Fréttablaðið - 08.01.2009, Síða 32

Fréttablaðið - 08.01.2009, Síða 32
 8. JANÚAR 2009 FIMMTUDAGUR Krabbameinsfélag Reykjavík- ur hefur um árabil haldið nám- skeið fyrir einstaklinga eða hópa sem vilja hætta að reykja. Næsta námskeið hefst þriðjudaginn 27. janúar klukkan 17. Þátttakendur hittast sex sinn- um á fimm vikna tímabili og að námskeiði loknu er þeim fylgt eftir. Á fundunum er farið ítarlega í undirbúning fyrir reykleysi. Ef reykingamaður er að hugsa um að hætta þá er það mjög mikil- vægt að undirbúa sig vel áður en hætt er að reykja. Því betri sem undirbúningurinn er, þeim mun meiri árangurs má vænta. Á námskeiðinu er meðal ann- ars fjallað um reyklaus svæði, tóbaksfíkn, fráhvarfseinkenni, lyf sem geta hjálpað, streitu, næringu, hreyfingu og hvað er já- kvætt við að hætta að reykja. Á námskeiðinu, sem verður haldið að Skógarhlíð 8, fá þátt- takendur fræðslu og ráðgjöf til að hætta að reykja ásamt stuðn- ingi til að takast á við reyklausa framtíð. Leiðbeinandi er Ingi- björg Stefánsdóttir hjúkrunar- fræðingur. Hægt er að skrá sig á reykleysi@krabb.is eða í síma 540 1900. Nánari upplýsingar má fá á www.krabb.is. Vefsíður með leiðbeining- um fyrir þá sem vilja hætta að reykja: Ráðgjöf í reykbindindi: www. reyklaus.is Canadian Cancer Society: www. cancer.ca/tobacco Boston University: www.quitn- et.com American Lung Association: www.lungusa.org/tobacco University of Geneva: www. stop-tabac.ch Arizona Smoker’s Helpline: www.ashline.org Reyklaus á nýju ári Margir strengja þess heit að hætta að reykja á nýju ári. NORDICPHOTOS/GETTY Próteindrykkur með súkku- laðibragði er hugarfóstur þeirra Arnars Grant og Ívars Guðmundssonar. Hámark er nýr próteindrykk- ur sem þeir Arnar Grant og Ívar Guðmundsson hafa þróað ásamt Vífilfelli. Drykkurinn, sem er með súkkulaðibragði, inniheld- ur 25 grömm af próteini, engan hvítan sykur og er 99 prósent fitu- snauður. Hann er fyrst og fremst hugsaður sem næringardrykkur en notkun hans fer eftir þörfum hvers og eins. Ef markmiðið er að léttast er gott að nota drykkinn stakan sem millimáltíð en ef markmiðið er að þyngjast er tilvalið að fá sér Há- mark með öðrum mat. Þá er hægt að nota drykkinn á fleiri vegu. Til dæmis út á morgunkornið, í boozt með ávöxtum og klökum eða út í kaffidrykkinn. „Við erum hrikalega stoltir af Hámarki. Við höfum það að mark- miði að bæta heilsu landsmanna og þá er öflugt að íhuga mataræð- ið vandlega,“ segja þeir Arnar og Ívar. - ve Ívar og Arnar ná hámarki Þeir Arnar og Ívar eru stoltir af næringardrykknum sem er nýfarinn í dreifingu. MYND/ÚR EINKASAFNI T A I C H I námskeið hefst 17. janúar Æfingastöð SLF Háaleitisbraut MECCA SPA                    "#  $%&''''' %(()"*)

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.