Fréttablaðið - 08.01.2009, Page 33
FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 5heilsa og lífsstíll ● fréttablaðið ●
Sumir telja að með nálastung-
um náist bati við flestum þeim
kvillum sem hrjá mannfólkið,
en eftir efnahagshrunið leita æ
fleiri lausna við kvíða, streitu
og þunglyndi með hjálp nála.
„Mér finnst fólk orðið hugrakk-
ara að viðurkenna andleg mein, því
í árferðinu nú hefur fengist opin-
bert leyfi til að segja frá andlegri
vanlíðan og því auðveldara fyrir
fólk að leita sér hjálpar,“ segir Þór-
unn Birna Guðmundsdóttir nála-
stungusérfræðingur og ein fárra
Íslendinga sem lokið hefur meist-
aragráðu í austurlenskri læknis-
fræði. „Það er áberandi nú að fólk
hugsar meira um líkama og sál, og
fjárfestir frekar í heilsu sinni en
dauðum hlutum. Gildin virðast því
vera að breytast,“ segir Þórunn.
Í austurlenskum lækningum er
litið á líkama og sál sem eina heild,
en þaðan er sprottið hugtakið heild-
rænar lækningar.
„Nálastungur losa um taugaboð-
efnið endorfín, sem veitir sælutil-
finningu og hefur róandi slökunar-
áhrif á líkamann. Endorfín er inn-
rænt, verkastillandi morfín sem
kemur í veg fyrir sársaukaboð til
heilans og hefur því góð áhrif á
kvíða, streitu og þunglyndi,“ segir
Þórunn sem vinnur að sérhæfðri
meðferð fyrir hvern og einn í nála-
stungumeðferð.
„Flestir finna mun í fyrsta tíma
og hafa náð viðunandi árangri eftir
fimm til sjö skipti. Meðfram nála-
stungum vinn ég einnig með hug-
ann því auðvelt er að heilaþvo sjálf-
an sig á neikvæðan hátt og skapa
þannig viðvarandi vanmáttartil-
finningu. Með því að tala jákvætt
til sjálfs síns verður auðveldara að
halda áfram stefnunni þegar með-
ferð lýkur hjá mér,“ segir Þórunn
sem er þjálfuð í að forða stungutil-
finningu skjólstæðinga sinna, sem
margir hafa ímugust á nálum.
„Ótti við nálar eru ástæðulaus.
Þær eru örfínar og stungutilfinn-
ing ekki aðal tilfinningin, held-
ur doði, blossi eða dýpri, jákvæð
tilfinning þegar nál hittir á orku-
braut. Rafmagn fer um líkama
okkar eftir orkubrautum sem Kín-
verjar kortlögðu fyrir árþúsund-
um og við þær tengjum við nál-
arnar,“ segir Þórunn, sem lærði og
starfaði við nálastungur á virtum,
bandarískum sjúkrahúsum.
„Vestra er lögð mikil áhersla
á menntun, en hérlendis er engin
lögverndun né reglugerð um nála-
stungur, og getur hver sem er
notað nálar án þess að hafa til þess
menntun,“ segir Þórunn, sem er
ein sjö Íslendinga sem lokið hafa
fjögurra og hálfs árs meistaranámi
í austurlenskum lækningum, en
þeir einir eru félagar í Nálastungu-
félagi Íslands.
„Það er mikilvægt að fólk geri
sér grein fyrir hvað það fer út
í þegar það ætlar í nálastungur
því hérlendis vinna margir með
nálar sem aðeins hafa lokið stutt-
um helgarnámskeiðum. Nálastung-
ur hafa víðtæk áhrif á líkamann og
líkamsstarfsemina og geta komið
jafnvægi á hvaða kvilla sem er, um
leið og þær eru hagkvæm lausn til
að ná bata á náttúrulegan hátt, án
lyfjagjafar.“
Samkvæmt upplýsingum Al-
þjóða heilbrigðisstofnunarinn-
ar gefa nálastungur góða raun við
astma, mígreni, lungnasjúkdóm-
um, ofvirkni barna, ófrjósemi,
taugasjúkdómum og verkjum eftir
skurðaðgerðir, svo fátt sé upptal-
ið. „Hérlendis er algengt að fólk
fari í nálastungur vegna vöðva-
bólgu og verkja, en ég hjálpa mest-
megnis konum á meðgöngu og til
að verða ófrískar, ásamt því að
koma jafnvægi á hormónastarf-
semi kvenna.“
Hver tími í nálastungum tekur
klukkustund. Þórunn er með stofu
í Hamraborg 10. - þlg
Þunglyndi stungið
burt með nálum
Þórunn Birna Guðmundsdóttir segir Íslendinga leita í vaxandi mæli til nálastungu-
meistara til að vinna bug á kvíða, streitu og þunglyndi, en nálastungur gefa góða
raun við flestum kvillum líkama og sálar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Vísindamenn við Stony Brook-háskólann í New York
hafa komist að því að um tíu prósent para eru jafn
ástfangin eftir tuttugu ára samband og þau voru í
upphafi sambands.
Vísindamennirnir könnuðu heilastarfsemi para
sem höfðu verið saman í tuttugu ár og báru hana
saman við heilastarfsemi para sem höfðu nýtekið
saman. Alls tíu prósent para sem höfðu verið saman
um langt skeið sýndu sömu viðbrögð og turtildúf-
urnar.
Fyrri rannsóknir gefa til kynna að það byrji að
kulna í ástarglæðunum eftir um fimmtán mánaða
samband og að ástin kulni að mestu eftir um tíu ár.
„Þessar niðurstöður ganga gegn fyrri hugmyndum
um að ástin kulni eftir fyrsta áratuginn,“ segir Art-
hur Aron, sálfræðingur við Stony Brook í samtali við
the Sunday Times.
Um tíu prósent para eru jafn ástfangin eftir tuttugu ár og þau
voru í upphafi sambands. NORDICPHOTOS/GETTY
Ástin getur enst út ævina
Nálastungur hafa róandi áhrif.
BARNINU
LÍÐUR BETUR &
NÁTTÚRAN BLÓMSTRAR
• Glæný og gullfalleg bók um gömlu
góðu gildin.
• Hagnýtar uppástungur um „grænt“
uppeldi.
• Einföld ráð um sparnað og hollustu.
• Góð leiðsögn fyrir þá sem vilja draga
úr neyslu en auka um leið
lífsgæði barna.
MECCA
SPA
"# $%&''''' %(()"*)
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið