Fréttablaðið - 08.01.2009, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 8. JANÚAR 2009 7heilsa og lífsstíll ● fréttablaðið ●
Mörg áramótaheitin eru strengd
varðandi heilsusamlegra líferni
og margir ætla sér stóra hluti. Oft
vill þó brenna við að fólk springi
á limminu ef farið er of geyst af
stað. Betra er því að undirbúa sig
vel og skipuleggja heitið.
Á vefsíðunni www.doktor.is
er að finna fimm skemmtileg-
ar ábendingar frá Ásþóri Ragn-
arssyni sálfræðingi varðandi ára-
mótaheit.
1. Áramótaheit á ekki að vera
skyndiákvörðun.
2. Gerðu heitið opinbert, það
veitir þér aðhald.
3. Settu þér raunhæf markmið,
ætlaðu þér ekki um of.
4. Hafðu heitið nákvæmt svo þú
getir metið árangurinn á einhvern
hátt.
5. Skráðu árangurinn til að fylgj-
ast með og styrkja þig á stundum
þegar þig langar að gefast upp. - rat
Undirbúið áramóta-
heitin og verið raunsæ
Áramótaheitin þurfa að vera raunhæf og vel undirbúin. NORDICPHOTOS/GETTY
Í kjölfar tímabils matarboða
með tilheyrandi reyktu kjöti
og sykruðum kartöflum er
gott að huga að hjartanu.
Fyrirtækið Hjartarann-
sókn er systurfyrirtæki
Hjartaverndar. Það var stofn-
að árið 2005 og var tilgangur
þess fyrst og fremst að efla
enn frekar forvarnir á sviði
hjarta- og æðasjúkdóma. Hjá
Hjartarannsóknum er hægt
að fara í áhættumat þar sem
fullorðnir einstaklingar geta
látið kanna líkurnar á að þeir
fái hjartasjúkdóm. Þeir sem
sérstaklega ættu að huga að
slíku áhættumati eru ein-
staklingar sem hafa ættar-
sögu um kransæðasjúkdóma
en auk þess eru allir yfir fer-
tugt hvattir
til að fara í
áhættumat.
Nánar á
www.hjarta-
rannsokn.is.
- sg
Hættan metin á
hjartasjúkdómi
Golfarar sem nota nýja gerð
af þunnum títaníum dræv-
erum gætu hætt á heyrnar-
skerðingu. Þetta kemur
fram í grein sem birt er í
tímaritinu British Medical
Journal. Þar er rakin saga 55
ára golfara sem notaði King
Cobra LD títaníum kylfu þri-
svar í viku í átján mánuði.
Hann sagði hljóðið þegar
kylfan hitti kúluna líkjast
byssuskoti. Hann hætti að
nota kylfuna. Þá hafði heyrn
mannsins hins vegar skað-
ast. Læknar á háskólasjúkra-
húsinu í Norfolk og Norwich
framkvæmdu rannsóknir
á golfaranum eftir að hann
leitaði til þeirra með tinnit-
us og minni heyrn á hægra
eyra. Niðurstöðurnar sýndu
að heyrnarvandamálin voru
sambærileg þeim sem verða
við of mikinn hávaða.
Atvinnugolfari var þá
fenginn til að skjóta nokkr-
um boltum með títaníum-
kylfum frá nokkrum fram-
leiðendum á borð við King
Cobra, Callaway, Nike and
Mizuno. Allar framleiddu
þær meiri hávaða en hinar
hefðbundnu og þykkari stál-
kylfur. Mesti hávaðinn
var í Ping G10 sem bjó til
hljóð upp á 130 desíbil.
Frétt af vef BBC, www.
bbc.co.uk
Golf getur haft
áhrif á heyrn