Fréttablaðið - 08.01.2009, Side 46

Fréttablaðið - 08.01.2009, Side 46
30 8. janúar 2009 FIMMTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott Þú ert rosalega seinn Pondus! Hérna, fáðu þér smá kaffi. Já... Namm, namm... Ég sé um þetta, þú verður að hlaupa! Já... hlaupa... Ég vona hann vakni áður en hann setur í gang! Ég kveiki á útvarp- inu! Ertu búinn að gera einhver plön fyrir sumarið Pétur? Algjörlega. Nú, hver eru þau? Ferðast? Markmið? Vinna? Allt þetta þrennt. Markmiðið er að ferðast eins langt og ég get til að vinna. Þú ert hug- myndabrunn- ur fyrir okkur hina drengur. Er þetta stærsta skálin sem þú átt? Uffffff. Skyrp! Hver ætli hafi sett leikfangaleir í nammibréf og sett það í nammiskálina? Jæja...? Hvenær? Leiðar vísir u m hvern ig sleppa á úr prísun d Harry Houd ini Undanfarin ár hef ég gert lítið af þeirri skemmtilegu iðju að spila á spil eða borðspil. Nýverið tókst vinahópnum þó að finna tíma til að spila Trivial, nýjustu útgáfuna. Alltaf er nokkur umræða um hvernig skipta eigi í lið en í ár var ákveðið að taka skiptinguna stelpur á móti strákum. Strákarnir voru nú nokkuð roggnir og sigurvissir fyrirfram en þurftu þó að játa sig sigraða fyrir okkur stelpunum. Nokkrum dögum síðar var ég stödd í búð og sá þá mér til mikillar furðu að komin er sérstök útgáfa af Trivial þar sem spurningunum er skipt í strákaspurningar og stelpuspurn- ingar. Minnug þess að hafa spilað Tribba í tætlur þegar spilið kom fyrst út á Íslandi, og unnið og tapað jafnt fyrir strákum sem stelpum, þá finnst mér óþolandi að það þurfti að klína kynjamun inn í heim þar sem hann er fullkomlega óþarfur. Einmitt í spilum og þrautum ýmis konar geta kynin staðið jafnfætis og ekkert náttúrulögmál að strákar hafi meira að segja um hasarmyndir en stelpur um slúður. Svona viðhelst einhver mýta um áhuga- svið kynja og ýtir kannski undir hvert konur og karlar leita. Þegar ég var unglingur var til dæmis enn nokkuð mikið talað um að karlar væru betri í stærðfræði en konur í tungumálum sem átti örugglega sinn þátt í vali algjörra stærðfræðiaula af karlkyni á stærðfræðibrautum í menntaskóla og öfugt. Árið 2009 væri óskandi að ekki væri gert ráð fyrir að kynin hefðu almennt ólík áhugasvið sem því miður er gert víðar en í Trivial. Stjórnun er víst lítið fyrir konur ef litið er yfir sviðið í þjóðlífinu og stjórnmál líka. Há laun hafa heldur ekki verið fyrir konur hingað til. Hvernig væri að breyta þessu bulli á hinu nýja Íslandi? Strákar á móti stelpum NOKKUR ORÐ Sigríður Björg Tómasdóttir BRYNDÍS ÁSMUNDSDÓTTIR ILMUR KRISTJÁNSDÓTTIR „Bryndís og Ilmur eru æði” – Gerður Kristný, Stöð 2 „Músíklega séð: Stórkostleg upplifun…Ég hélt ekki að það væri nokkur söngkona á Íslandi sem gæti gert þetta. Ég segi bara: Hallelúja! “ – Halla Sverrisdóttir, RÚV „Ég gleymdi alveg öllu…frábær söngur …flott skemmtun! – Þór Elís Pálsson, RÚV „Stuð í óperunni” – Ingibjörg Þórisdóttir, Mbl. „Dúndurmúsík!” – Páll Baldvin Baldvinsson, Fréttabl. Laugardaginn 10. janúar kl. 20 Föstudaginn 23. janúar kl. 20 Laugardaginn 31. janúar kl. 20 TAKMARKAÐUR SÝNINGAFJÖLDI MIÐASALA Á OPERA.IS, MIDI.IS OG Í MIÐASÖLU ÍSLENSKU ÓPERUNNAR. SÍMI MIÐASÖLU: 511 4200. „...fyrst á visir.is“ ...ég sá það á visir.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.