Fréttablaðið - 08.01.2009, Side 47
FIMMTUDAGUR 8. janúar 2009 31
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 08. janúar 2009
➜ Opnanir
17.00 Í START ART listamannahúsi
opna Árni Bartel og Sveinbjörg Jóns-
dóttir sýningar auk þess sem START ART
listamenn munu sýna valin verk. START
ART, Laugavegi 12b.
➜ Listaverkaleiðangur
20.00 Alma Dís Krist-
insdóttir safnfræðslu-
fulltrúi Listasafns
Reykjavíkur, býður list-
unnendum í leiðangur
um miðbæinn þar sem
þeim gefst kostur á
að líta listaverk í nýju
ljósi. Þessi viðburður
er liður í sýningu Hlyns Hallsonar ÚT
/ INN en henni lýkur á sunnudaginn.
Leiðangurinn hefst í A-sal Hafnarhúsins
við Tryggvagötu.
➜ Sýningar
Með þinni skrift, sýning sem sam-
anstendur af handskrifuðum ljóðum
eftir margar af helstu skáldkonum
landsins, m.a. Diddu, Vilborgu Dag-
bjartsdóttur, Guðrúnu Evu Mínervudótt-
ur, Gerði Kristnýju Vilhjálmsdóttur og
Margréti Lóu Jónsdóttur. Opið þri.-föst.
13-18 og laugardaga 14-17. Gallerí
Marló, Laugavegi 82.
Karl Jóhann Jónsson hefur opnað sýn-
ingu í sýningarsalnum Hurðir, Virtus á
Laugavegi 170, 3. hæð. Sýningin er opin
alla daga frá 9-17.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Út er komið nýtt rit
um sögu
18. aldar
eftir Hrefnu
Róbertsdóttur
sagnfræðing.
Bókin er á
ensku og ber
heitið Wool
and Society.
Manufacturing
Policy, Economic Thought and Local
Production in 18th-century Iceland.
Hér er á ferðinni doktorsritgerð í
sagnfræði sem varpar fersku ljósi á
sögu 18. aldar á Íslandi: Hörspuni,
heimilisvefsmiðjur, forlagsvinnsla
og aukinn útflutningur höfðu áhrif
á ullarframleiðslu á Íslandi í kjölfar
upptöku vefsmiðjuvinnslu ullar á
seinni hluta 18. aldar. Í ritinu er
ullarvinnsla leiðarljós að skilningi á
18. aldar samfélaginu á Íslandi. Snert
er á fjölda efna: búskaparháttum,
mismunandi atvinnugreinum, verka-
skiptingu, framleiðslutækni, útflutn-
ingi og starfsemi vefsmiðja Innrétt-
inganna í Reykjavík. Einnig er hugað
að tilraunum til að auka framleiðslu
í sveitum, sérstaklega á Norðaust-
urlandi og Suðvesturlandi. Spurt er
hvað einkenndi stefnu í handiðnaði
og handiðnaðarframleiðslu? Hvert
var samspil hagrænnar hugsunar við
landshagi og ullarframleiðslu þessa
tíma? Greining á samtímaumræðu
um landshagi á Íslandi og í Dan-
mörku ásamt rannsókn á ullarfram-
leiðslu á afmörkuðum hagsvæðum
á Íslandi, leiðir höfundur til annarrar
sýnar á íslenskt samfélag þessa tíma
en oft hefur birst, bæði fjölþættara
og svæðisskiptara en áður hefur
verið lögð áhersla á. Bókin er gefin
út af forlaginu Makadam Publishers
í Svíþjóð í samvinnu við Háskólann
í Lundi, en Sögufélag hefur umboð
fyrir bókinni hér á landi.
Forspjall að frumspeki eftir Imm-anuel Kant kom fyrst út árið 1781
en birtist nú á íslensku í þýðingu
Skúla Páls-
sonar í útgáfu
hugvísinda-
deildar. Bókin
veitir innsýn í
hugmyndir Kants
um eðli rúms og
tíma, gildissvið
mannlegs skiln-
ings, möguleika
og takmarkanir
mannlegrar skyn-
semi og mörk
hins þekkta og hins óþekkta. Ritinu
fylgir greinargóður inngangur eftir
Günter Zöller, prófessor í heimspeki
við háskólann í München. Immanuel
Kant (1724-1804) var prófessor í
heimspeki við háskólann í Königsberg
í Prússlandi.
NÝJAR BÆKUR
Þú þarft að fara – núna. Hvaða hluti
myndir þú taka með þér ef þú
þyrftir að flýja burt – strax? Og
hvers myndir þú sakna mest? Sam-
viskuspurningar sem þessar voru
lagðar fyrir skólabörn í verkefni
sem unnið var í tengslum við sýn-
inguna HEIMA – HEIMAN sem
staðið hefur yfir í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur frá 13. september 2008
en lýkur nú á sunnudaginn 11. jan-
úar 2009.
Í hádeginu á morgun, föstudag,
munu þær Katrín Elvarsdóttir ljós-
myndari og Sigrún Sigurðardóttir
menningarfræðingur fjalla um sýn-
inguna, tilurð hennar og vinnu sína
við hana og útskýra hugmyndirnar
sem liggja að baki hvernig ljós-
myndirnar og textinn vinna saman í
henni. Auk þess mun Anh Dao Tran
frá Víetnam tala um reynslu sína
sem flóttamaður á Íslandi.
Á sýningunni eru kynntir ein-
staklingar sem allir eiga það sam-
eiginlegt að hafa þurft að flýja
heimkynni sín. Flestir vegna stríðs-
átaka. Sumir hafa leitað skjóls í
flóttamannabúðum – aðrir hafa
flúið land úr landi – en allir eiga
þeir sameiginlegt að hafa að lokum
komið hingað til Íslands og búið sér
hér nýtt heimili.
Á sýningunni fáum við innsýn í
líf flóttamanna og hælisleitenda á
ljósmyndum Katrínar Elvarsdóttur.
Þær sýna okkur hverjir þeir eru en
við getum aðeins gert okkur í hug-
arlund hvað þeir hafa fram að færa,
hvaða sögum þeir búa yfir. Við
skynjum brot af sögu þeirra og til-
finningum í gegnum einn einstaka
hlut sem fylgt hefur þeim frá gamla
heimalandinu og hingað heim.
Brot af sögu þeirra er jafnframt
miðlað með texta sem unninn er
upp úr viðtölum Sigrúnar Sigurðar-
dóttur við hælisleitendur og flótta-
menn á Íslandi. Á hljóðupptöku sem
er hluti af sýningunni getum við
hlustað á einstaka flóttamenn segja
frá reynslu sinni. Þeir leitast við að
koma upplifunum sínum í orð, finna
þeim stað í tungumálinu.
Katrín Elvarsdóttir ljósmyndari
á að baki farsælan og fjölbreyttan
feril sem ljósmyndari. Hún lauk
BFA-prófi frá Art Institute of
Boston árið 1993 og hefur síðan þá
haldið fjölda einkasýninga á Íslandi,
í Bandaríkjunum og í Danmörku,
nú síðast í Gallerí Ágúst þar sem
sýning hennar Margsaga opnaði í
ágúst síðastliðnum. Sigrún Sigurð-
ardóttir er menningarfræðingur og
hefur sérhæft sig í rannsóknum á
ljósmyndum og þýðingu þeirra
fyrir upplifun og skilning fólks á
veruleikanum í fortíð og nútíð. Sig-
rún vinnur nú að ljósmyndarann-
sókn á Þjóðminjasafninu auk þess
sem hún kennir við Listaháskóla
Íslands. pbb@frettabladid.is
Fréttir af flóttafólki
LJÓSMYNDIR Mynd og minningablað
Anh Dao Tran frá Víetnam á sýningunni
í Ljósmyndasafni Reykjavíkur en henni
lýkur um helgina. MYND/KATRÍN ELVARSDÓTTIR