Fréttablaðið - 08.01.2009, Page 52
36 8. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Nú eru tímar samdráttar og niðurskurðar. Ríkisútvarpið er þar ekki
undanskilið. Um daginn flaug það fyrir að m.a. stæði til að skera niður
tónlistarflutning í Sjónvarpinu. Tónlistarinnslögin í Kastljósinu voru
sérstaklega nefnd, auk þess sem talað var um að óvíst væri að sent yrði
út frá afhendingu Íslensku tónlistarverðlaunanna. Nú veit ég ekki hvort
einhverjar ákvarðanir hafa verið teknar, en þessi umræða varð til þess
að ég fór að velta fyrir mér hvernig Sjónvarpið hefur staðið sig í þessum
málum.
Í raun eru innslögin í Kastljósinu stærsta framlag Sjónvarpsins til
íslenskrar tónlistar. Þessi stuttu tónlistaratriði hafa verið mjög vel valin
og framleidd. Ungar sveitir hafa fengið tækifæri mjög snemma á
ferlinum, (oft áður en þær hafa gefið út sína fyrstu plötu t.d. Retro
Stefson og Sprengjuhöllin), en eldri og
ráðsettari listamenn hafa líka verið aufúsu-
gestir. Í heildina gefa þessi innslög góða
mynd af því sem hefur verið að gerast í
tónlistarlífinu. Þau hafa oft vakið verðskuld-
aða athygli á upprennandi listamönnum og
eru mikilvæg heimild fyrir framtíðina.
Hugsið ykkur t.d. ef jafn mikið efni væri til
með hippasveitum áttunda áratugarins eða
listamönnum rokksprengjunnar í upphafi níunda áratugarins. Það væri
þarft mál að gera öll þessi innslög aðgengileg á vef RÚV.
Það er auðvitað sitthvað fleira gott á skjánum. Það besta við þáttinn
Gott kvöld var t.d. lifandi flutningur og oft nýjar útsetningar á tónlist
viðmælendanna. Og stórtónleikar Rásar 2 á Menningarnótt sem Sjón-
varpið hefur tekið upp undanfarið eru líka frábært framtak. Lifandi
tónlist er alltaf gott sjónvarpsefni. Þættir Möggu Stínu með íslenskum
tónlistarmönnum hér um árið voru svolítið undarlegir, en tónlistin í þeim
stóð fyrir sínu. (Muniði t.d. eftir Mugison þættinum?). Og nú eru þeir
varðveittir um ókomna tíð. Íslensku tónlistarverðlaunin hafa líka reynst
ágætt sjónvarpsefni.
Það má auðvitað gera betur. T.d. gera meira af því að taka upp tónleika
úti í bæ. En Sjónvarpið hefur samt yfir það heila staðið sig nokkuð vel.
Þess er óskandi að svo góðu efni verði ekki fórnað.
Enginn veit hvað átt hefur...
> Í SPILARANUM
Morrisey - Years of Refusal
Lily Allen - It’s Not Me, It’s You
Kuroi - ep
Friendly Fires - Friendly Fires
Ragnar Sólberg - The Circle
MORRISEY RAGNAR SÓLBERG
> Plata vikunnar
Reykjavík! - The Blood
★★★★
„Þótt hljómurinn á The
Blood sé skítugur og rokkvegg-
urinn þykkur þá gefa grípandi
viðlög plötunni poppaða vídd.
Frábær rokkplata.“
TJ
Hljómsveitin Kuori heldur útgáfutónleika á Grand
Rokki á laugardaginn til að kynna nýja EP-plötu
sína. Sveitin leikur kassagítarrokk undir áhrifum
frá sveitum á borð við Led Zeppelin, Sunny Day
Real Estate og Alice in Chains.
„Hún er búin að vera dágóðan tíma í smíðum,“
segja þeir félagar Leifur Björnsson og Daníel
Auðunsson um plötuna. „Við álítum okkur tilbúna
núna til að fara með hana út í þjóðfélagið.“ Leifur og
Daníel eru einnig í hljómsveitunum Foreign
Monkeys og Árstíðir, sem gefa báðar út plötur á
árinu. „Þetta byrjaði sem kassagítardjamm og við
unnum okkur út úr því með bandinu,“ segja þeir.
Nafnið óvenjulega Kuroi er fengið úr japönsku og
þýðir dökkur. „Það er töff að hafa flott orð sem fólk
tengir við góða músík,“ segja þeir.
Útgáfutónleikarnir hefjast klukkan 23, þar sem
Retro Stefson stígur einnig á svið. Aðgangseyrir er
500 krónur og verður nýja platan seld á kynningar-
verði. Tóndæmi má nálgast á www.myspace.com/
kuroimikado. - fb
Kassagítarrokk frá Kuroi
KUROI Hljómsveitin Kuroi heldur útgáfutónleika á Grand Rokk
á laugardaginn.
Umboðsmaður Jimmy Page hefur staðfest
að Led Zeppelin muni á næstunni fara á
tónleikaferð og taka upp nýja plötu án
söngvarans Roberts Plant. Sögusagnir hafa
verið á kreiki að sú yrði raunin og eftir að
Plant tilkynnti í desember að hann tæki
ekki þátt í frekari endurfundum hefur allt
verið sett á fullt í leit að nýjum söngvara.
„John Paul Jones og Jimmy Page njóta
þess að spila saman, Jason Bonham er
frábær trommari svo af hverju ekki? Við
þurfum bara að finna söngvara,“ segir
umboðsmaðurinn Peter Mensch. Hann
gefur fremur lítið fyrir þátttöku Plants í
Led Zeppelin-endurkomunni árið 2007:
„Þeir skemmtu sér frábærlega vel saman
við æfingar fyrir tónleikana, þeir þrír,
áður en Robert mætti til leiks.“
Ýmsir þekktir söngvarar hafa verið
orðaðir við söngvarastöðuna í Led Zeppel-
in, þar á meðal Chris Cornell úr Sound-
garden og Audioslave og Steven Tyler úr
Aerosmith. Umboðsmaðurinn Mensch vill
lítið tjá sig um leitina að söngvaranum:
„Þetta verður langt og erfitt ferli.“
Zeppelin heldur áfram
ENDURKOMA ZEPPELIN Robert Plant og Jimmy
Page á endurkomutónleikum Led Zeppelin í Lond-
on í desember 2007. NORDICPHOTOS/GETTY
Þrátt fyrir efnahagslegan
samdrátt er auðvitað ekkert
lát á útgáfu nýrra platna,
enda engin sérstök kreppa
á meðal listamanna. Tón-
listaráhugafólk hefur yfir
mörgu að hlakka á næst-
unni enda nóg af spennandi
plötum að koma út.
Ljúfi risinn Antony mætir nú loks
með nýja plötu eftir að hann sló í
gegn með I Am a Bird Now árið
2005. Antony sem má vel kalla
Íslandsvin enda hefur hann spilað
hér og dvalið, notar annan Íslands-
vin til að útsetja fyrir sinfóníu-
hljómsveitir sem munu spila með
honum á tónleikum. Nico Muhly
heitir sá og gaf út í fyrra plötuna
Mother Tongue á vegum Bedroom
Communications, fyrirtækis Val-
geirs Sigurðssonar.
Tonight: Franz Ferdinand verð-
ur þriðja plata skosku rokkar-
anna. Platan ku vera undir afrísk-
um áhrifum á köflum og „örugg
með sig og kjörin fyrir dansgólf-
in,“ eins og söngvarinn gaf nýlega
út í viðtali.
Nirvana-ekkjan Courtney Love
kemur með aðra sólóplötu sína,
Nobodys Daughter, en fyrir fimm
árum reið hún ekki feitum hesti
frá fyrstu sólóplötunni sinni.
Courtney þykir í fínu formi þökk
sé strangri rækt við búddisma.
Helsta aðstoðarfólk hennar á plöt-
unni er Billy Corgan úr Smashing
Pumpkins, lagahöfundurinn Linda
Perry og Michael Beinhorn, sá
sem tók upp hina ágætu plötu
Hole, hljómsveitar Courtney,
Celebrity Skin.
The Prodigy kemur nú saman á
ný, hljóðkarlinn Liam og söngvar-
arnir Keith og Maxim á plötunni
Invaders Must Die. Síðast var
Liam einn á ferð fyrir fimm árum
á plötunni Always Outnumbered,
Never Outgunned. Nýja platan
þykir afturhvarf til sveittrar for-
tíðar og frá sjónarhóli dansgólfs-
ins þykir þetta besta Prodigy-plat-
an síðan Music for the Jilted
Generation kom út.
Í byrjun mars heiðrar U2 okkur
svo með tólftu sólóplötunni sinni,
No Line on the Horizon. Bandið
stefndi á grjótharða rokkplötu
þegar pælingar hófust við plötu-
gerðina árið 2006 og fékk Rick
Rubin á takkana. Efnið sem hann
var búinn að taka upp var þó sett í
geymslu og gamlir jálkar úr U2-
klaninu, Brian Eno, Daniel Lanois
og Steve Lillywhite, fengnir til
verka. Nýja platan þykir fram-
sækin og nýjungagjörn og þeir
sem hafa heyrt hana lofa álíka
tónrænu nýjabrumi og á plötunni
Achtung Baby. drgunni@frettabladid.is
Spennandi plötur streyma út
Í JANÚAR:
Animal Collective - Merriweather
Post Pavillion
Antony and the Johnsons - The
Crying Light
Franz Ferdinand - Tonight
Bruce Springseen - Working on
a Dream
Eagles Of Death Metal - Heart
On
Sepultura - A-lex
Í FEBRÚAR:
50 Cent - Before I Self
Destruct
Courtney Love -
Nobodys Daughter
Jay-Z - Blueprint 3
Lily Allen - It’s Not
Me, It’s You
Morrissey - Years of
Refusal
Dolores O’Riordan
- No baggage
Í MARS:
The Prodigy - Invad-
ers Must Die
Eminem - Relapse
U2 - No Line on the
Horizon
Deftones - Eros
Yeah Yeah Yeahs - Þriðja platan
Chris Cornell - Scream
Röyksopp - Junior
Pet Shop Boys - Yes
PJ Harvey - A Woman a
Man Walked By
Black Eyed Peas - The
E.N.D.
AÐRIR PLÖTUR SEM
KOMA ÚT Á ÁRINU:
Depeche Mode - Tólfta
platan
Tori Amos - Tíunda
platan
Doves - Fjórða
platan
Beastie Boys - Áttunda
platan
Green Day - Áttunda
platan
Manic Street Preachers
- Journal for Plague
Lovers
Radiohead - Áttunda
platan
Muse - Fimmta platan
No Doubt - Sjötta
platan
Korn - Níunda platan
VÆNTANLEGAR PLÖTUR
FRAMSÆKNIR Ný U2
plata í byrjun mars.
AFTUR SAMAN, AFTUR Á
DANSGÓLFIÐ The Prodigy
snúa aftur í fantaformi.
BÚDDISMINN
HELDUR HENNI
Í GÓÐUM GÍR
Courtney Love
er einskis dóttir.
föstudagur
föstudagur