Fréttablaðið - 08.01.2009, Síða 54
38 8. janúar 2009 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> EIGNAÐIST TVÍBURA
Leikkonan Rebecca Romijn eignaðist tví-
burastelpur 28. desember síðastliðinn.
Ugly Betty-stjarnan og eiginmaður henn-
ar, leikarinn Jerry O‘Connell, eru í
skýjunum með nýju fjölskyldu-
meðlimina og hafa nefnt stelp-
urnar Dolly Rebecca Rose og
Charlie Tamara Tulip. Romijn og
O‘Connell giftu sig árið 2007, en
áður var hún gift E.R.-leikaranum
John Stamos.
Þótt Burger King í Smáralind sé ei
meir er bandaríska hamborgara-
keðjan enn í góðu stuði og setti
nýlega á markað sérstakan Bur-
ger King-rakspíra – Burger King
flame. Eins og klárlega má sjá á
heimasíðu rakspírans er um gott
grín að ræða.
Rakspírinn er þó til í alvörunni
en var dreift í afar takmörkuðu
magni. Aðeins var hægt að kaupa
Flame í verslunum Ricky‘s í New
York og á netinu. Rakspírinn seld-
ist upp á nokkrum dögum en fæst
nú á eBay á uppsprengdu verði.
Heimildum ber ekki saman um
ilminn. Sumir segja rakspírann
minna á „Burger King-borgara
sem er að fuðra upp í hræðilegu
feitis-báli“, aðrir segja að lyktin
sé „hressandi kryddblanda, ekki
ósvipuð og af rakspíranum Axe“.
Burger King-rakspírinn kemur
í verslanir bráðlega aftur enda
hafði hann gífurlegt auglýsinga-
gildi. Nánast allir spjallþátta-
stjórnendur vestanhafs minntust
á ilminn í gríninngangi sínum og
mörgum finnst svona vara eflaust
vera tilvalin sem „gríngjöf“.
Á Íslandi hætti Burger King í
Smáralind um áramótin. Þar sem
staðurinn var mun nýr veitinga-
staður opna þriðju vikuna í janúar.
Ekki hefur enn verið greint frá
hvers konar staður það er.
Burger King-rak-
spírinn rýkur út
MMM… HAMBORGARAILMUR Ef þú
vilt lykta eins og skyndibitastaður þá er
Burger King með rakspírann fyrir þig.
„André Bachmann er náttúrulega einn af helstu
sjentilmönnum þessa samfélags og hefur liðsinnt
ótrúlegum fjölda landsmanna, ekki síst þeim sem
minna mega sín. Ég veit að gríðarlegur fjöldi fólks
stendur í þakkarskuld við hann og fyrir vikið munu
hellast yfir mig beiðnir um skemmtiat-
riði, framsögur og kvæðabálka,“ segir
Sigmundur Ernir Rúnarsson sem verður
veislustjóri í sextugsafmæli André
Bachmann sem fram fer næstkomandi
föstudagskvöld í Rúgbrauðsgerðinni.
Andri hefur meðal annars haldið
jólaball fatlaðra í 26 ár, þar sem
Sigmundur Ernir og Edda Andrésdóttir
hafa verið kynnar.
„Þegar ég fór að ræða það við Jóhannes
bróður minn um að ég ætlaði að halda upp á
sextugsafmælið sagði hann að ég þyrfti ekki að
sjá um það, það væri komin undirbúnings-
nefnd,“ útskýrir André og segir Jóhannes hafa
komið sér á óvart þegar hann varð fimmtugur
með troðfullum Súlnasal þegar André ætlaði
aðeins að halda smáboð. „Ég á afmæli í dag. 8.
janúar, sama dag og Elvis Presley og David
Bowie, svo Presley, Bowie og Bachmann eru
allir sama daginn,“ bætir hann við og hlær.
„Hljómsveitin Hvar er Mjallhvít? ætlar að spila
fyrir dansi á föstudagskvöldið og ég vonast til að sjá
sem flesta vini, ættingja og vinnufélaga, bæði af Olís
og Strætó. Ég er ekki að biðja um neinar gjafir heldur
bara hlýtt handtak, það er miklu betra
en stórar gjafir,“ segir
André. - ag
André Bachmann sextugur
Því hefur oft verið haldið fram að
þjóðin sameinist fyrir framan sjón-
varpstækin á gamlárskvöldi og horfi
saman á Áramótaskaupið. Tölur úr
mælingum Capacent Gallup staðfesta
þessa kenningu. „82,7 prósent horfðu.
Sem verður að teljast dágóður
árangur,“ segir Þórhallur Gunnars-
son dagskrárstjóri. Þetta er öllu
lægri tala en kom út úr svipuðum
mælingum í fyrra en þá reyndust
rúmlega 94 prósent þjóðarinnar hafa
horft á Skaup Ragnars Bragasonar.
Þórhallur upplýsir að þá hafi mæling-
arnar verið nýjar af nálinni og því séu
þessar tölur í raun ekki samanburðar-
hæfar.
Annars vekur það athygli að rúmlega
fimmtíu prósent þjóðarinnar kaus að
horfa á endursýningu Skaupsins á
laugardagskvöld. „Þetta hlýtur að stafa
af því að Skaupið hefur spurst vel út til
þeirra örfáu sem af því misstu,“ segir
Þórhallur. Því virðist sem minni
framleiðslukostnaður hafi ekki komið
niður á gæðunum því eins og Frétta-
blaðið greindi frá kostaði Skaupið
aðeins 26 milljónir, fjórum milljónum
minna en það kostaði fyrir ári. Silja
Hauksdóttir leikstýrði Skaupinu í ár en
með helstu hlutverk fóru þau Brynhild-
ur Guðjónsdóttir, Kjartan Guðjónsson
og Halldóra Geirharðsdóttir. - fgg
Þjóðin sameinaðist yfir Skaupinu
Eva María Jónsdóttir hefur
gengið til liðs við hið árlega
Eurovision-æði sem grípur
þjóðina því hún mun verða
kynnir Eurovision ásamt
Ragnhildi Steinunni.
„Ég hef alltaf tekið þátt í þessu en
bara heima hjá mér. Núna verður
þetta bara í vinnunni,“ segir Eva
María um kynnisstarf sitt í Euro-
vision og viðurkennir fúslega að
hún sé heilluð af þessari keppni
sem margir telja nú ekki merki-
lega. „Eurovision er bara eitthvert
furðulegt og fyndið sjónvarps-
efni,“ útskýrir sjónvarpskonan.
Fyrsta kvöldið verður á laugar-
daginn en þá keppa fjögur lög um
hylli áhorfenda heima í stofu.
Meðal þeirra sem stíga á svið eru
ungstirnið Jóhanna Guðrún, Edgar
Smári og Idol-Heiða. Eva segist
ekkert kvíða því að þurfa að hlusta
á öll lögin og kastar glöð frá sér
þeim forréttindum að geta slökkt
á sjónvarpinu ef lagasmíðarnar
reynast vera skelfilegar. „Og svo
er það nú líka oft þannig að verstu
atriðin eru oft eftirminnilegust.“
Ragnhildur Steinunn stjórnaði
Eurovision-langlokunni í fyrra
ásamt Gísla Einarssyni og vakti
sjónvarpskonan mikla athygli
fyrir oft á tíðum glæsilega og
íburðarmikla kjóla. Eva leyfir sér
að efast um að Eurovision-keppn-
in í ár verði einhver svipuð bún-
ingaveisla og þá. „Ég er búin með
það tímabil í mínu lífi. Þetta verð-
ur meira um flytjendurna og dans-
arana enda er Eurovision-keppnin
sjálf alveg nóg fyrir áhorfend-
urna.“ freyrgigja@frettabladid.is
Eva María Jóns-
dóttir í Eurovision
STJÓRNA SAMAN
Ragnhildur Steinunn og Eva María
leiða áhorfendur í allan sannleikann
um Eurovision-keppendurna.
Umsjónarkennarar námskeiðsins er Andrea
Brabin framkvæmdarstjóri Eskimo, auk
fjölmargra gestakennara.
Kennt verður einu sinni í viku,
einn og hálfan tíma í senn.
Allir þátttakendur fá Eskimo bol, Maybelline
mascara, viðurkenningarskjal og 10 sv/
hv myndir. Námskeiðinu lýkur með stórri
tískusýningu. Stúlkurnar eru farðaðar fyrir
myndatöku og tískusýningu.
EMM School of Make-Up sér um förðun.
SJÖ VIKNA NÁMSKEIÐ HEFJAST 20. JANÚAR OG 22. JANÚAR.
Sjálfstyrking . Framkoma . Líkamsburður . Innsýn í fyrirsætustörf . Förðun . Umhirða húðar og hárs .
Myndataka (10 s/h myndir) . Tískusýningarganga . Fíkniefnafræðsla . Myndbandsupptökur . Leikræn tjáning
Skráning er hafin í síma 533 4646 og eskimo@eskimo.is
Verð
17.900 kr.
STÓRAFMÆLI André
Bachmann verður 60
ára á fimmtudaginn og
vonast til að sjá sem
flesta vini, ættingja og
vinnufélaga í Rúgbrauðs-
gerðinni á föstudags-
kvöldið.
VEISLUSTJÓRI Sigmundur Ernir
Rúnarsson verður veislustjóri í
sextugsafmæli André, en þeir
hafa þekkst í fjölda ára.
GOTT ÁHORF Það hlýtur að teljast ágætur
árangur þegar yfir áttatíu prósent þjóðarinnar
horfa á sama dagskrárliðinn. Skaupið
virðist aldrei falla úr tísku.