Fréttablaðið - 08.01.2009, Qupperneq 55
FIMMTUDAGUR 8. janúar 2009 39
Mariah Carey og eiginmaður
hennar, Nick Cannon, hafa blásið
á þær sögusagnir að Mariah
gangi með barn undir belti. Nick,
sem giftist Mariuh síðastliðið
sumar, sagði nýverið í viðtali við
fjölmiðla vestanhafs að þau séu
að „reyna að eignast barn og það
muni án efa gerast“.
Margir töldu að Mariah væri
ófrísk eftir að hún sást yfirgefa
læknastofu kvensjúkdómalæknis
með eitthvað í höndunum sem
líktist helst sónarmynd. Hin 38
ára söngkona hefur viðurkennt að
hún sé tilbúin til að eignast barn,
en segist vera þreytt á því að fólk
sé stanslaust að spyrja hana
hvort hún sé ófrísk.
Tilbúin í
barneignir
EKKI ÓFRÍSK Mariah segist tilbúin til að
eignast barn með eiginmanni sínum.
Breska söngkonan Leona Lewis
hefur samþykkt að gefa út
ævisögu sína hjá útgefandanum
Hodder & Stoughton. Fjallar hún
um það hvernig hún skaust á
ótrúlegan hátt upp á stjörnuhim-
ininn eftir að hafa starfað sem
afgreiðsludama á pitsustað. Eftir
það vann hún X-factor-keppnina
og er nú orðin alþjóðleg stjarna.
„Síðustu tvö ár hafa verið
ótrúleg,“ sagði Lewis. „Að geta
sagt fólki frá því í mínum eigin
orðum skiptir mig miklu máli.“
Fyrsta plata hennar, Spirit, hefur
selst í rúmlega fimm milljónum
eintaka sem er frábær árangur,
sérstaklega fyrir nýliða í
tónlistarbransanum.
Gefur út
ævisögu
LEONA LEWIS Breska söngkonan ætlar
að gefa út ævisögu sína. Hún vann á
pitsustað áður en hún vann X-factor.
Söngkonan og breski X-faktor
dómarinn Cheryl Cole viðurkenn-
ir að hún hafi orðið fyrir vonbrigð-
um með Victoriu Beckham eftir að
upp komst að eiginmaður Cheryl,
fótboltakappinn Ashley Cole, hafði
ítrekað haldið framhjá henni.
Í viðtali við tískutímaritið Vogue
segir Cheryl að hún hafi verið
hneyksluð á því að Victoria hafði
ekki samband eftir að upp komst
um framhjáhaldið í fjölmiðlum í
byrjun síðasta árs.
Cheryl segir fyrrverandi krydd-
píuna hafa verið fastagest á hótel-
herbergi sínu þegar eiginmenn
þeirra kepptu á heimsmeistara-
mótinu í fótbolta í Þýskalandi
2006. Einnig segir hún þær stöllur
margoft hafa verið saman í grill-
veislum, og mæður
Ashley Cole og Dav-
ids Beckham séu
góðar vinkonur og
því hafi hún orðið
mjög vonsvikin yfir
því að Victoria skyldi
ekki hafa samband.
Sár og svekkt út í Victoríu
HNEYKSLUÐ Cheryl
Cole bjóst við
því að heyra
frá Victoriu
Beckham eftir
að upp komst
um framhjá-
hald Ashley
Cole.
HRINGDI EKKI Að
sögn Cheryl var
Victoria Beck-
ham fasta-
gestur á
hótel-
herbergi
hennar
þegar eig-
inmenn þeirra
kepptu á HM
2006.
Leikstjórinn Martin Scorsese
ætlar að halda áfram að styðja við
bakið á ítölsku mafíumyndinni
Gomorra, sem er byggð á sam-
nefndri bók Roberto Saviano.
Scorsese kom ekki að gerð mynd-
arinnar en tekur engu að síður
þátt í kynningarherferð hennar.
„Gomorra eftir Matteo Garrone
sýnir undirheima Napolí á harð-
neskjulegan hátt,“ sagði Scorsese,
sem er afar hrifinn af myndinni.
Gomorra vann Grand Prix-verð-
launin á Cannes í fyrra sem eru
næstæðstu verðlaun hátíðarinnar
á eftir Gullpálmanum. Hún verð-
ur frumsýnd í Bandaríkjunum 13.
febrúar og er framlag Ítala til
Óskarsverðlaunanna í ár.
Hrifinn af Gomorra
MARTIN SCORSESE Leikstjórinn þekkti
styður dyggilega við bakið á glæpa-
myndinni Gomorra.