Tíminn - 31.08.1982, Qupperneq 1
Allt um íþróttir helgarinnar - bls. 10-12
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ
Þriðjudagur 31. ágúst 1982
196. tbl. - 66. árgangur
Allt fast vegna krafna samninganefndar ríkisins
í samningaviðræðum við BSRB:
NEITAR AÐ RÆÐA AÐRA
HLUTI EN KAUPUÐINNI
■ „Þetta stendur þannig, að samn-
inganefnd ríkisins neitar að ræða aðra
hluti en kaupliðinn, og vill ekki fara
út í aðra sálma fyrr en hann hefur verið
afgreiddur eftir þeirra höfði“, sagði
einn af samningamefndarmönnum
BSRB, í samtali við Tímann ■
gærkveldi, en þá stóð yfir samninga-
fundur milli ríkisvaldsins og BSRB um
nýjan aðalkjarasamning þessara aðila.
Fundurinn hófst klukkan níu í gær-
morgnn og stóð enn í gærkveldi þegar
blaðið fór í prentun.
Samkvæmt heimildum Tímans býð-
ur samninganefnd rfkisins BSRB
svipaðar grunnkaupshækkanir og fel-
ast í samkomulagi ASÍ og VSÍ frá því
fyrr í sumar. Er það 4% grunnkaups-
hækkun frá og með l.ágúst sl. og svo
aftur 2.1% grunnkaupshækkun 1.
janúar nk. BSRB forystan mun geta
sætt sig við 4% grunnkaupshækkun
strax en viil fá eins flokks launahækk-
un frá áramótum eins og kveðið er á
um í samningi ASÍ og VSÍ. Slík
launaflokkahækkun mun metin á
3.5%, á meðan eins flokks launahækk-
un ASÍ um áramót er metin á 2.1%,
sem er nákvæmlega sú tala sem ríkið
hefur þegar boðið BSRB í tilboði sínu.
Um þessi atriði stendurstyrrinn nú.
BSRB-menn vilja ræða hlutina í
víðara samhengi, hin og þessi atriði
sem þeir vilja fá breytt, áður en sjálfur
kaupliðurinn er negldur niður. Samn-
ingamenn ríkisins eru hins vegar
gallharðir á þeirri afstöðu sinni að vilja
ræða hann einan sér og ganga frá
honum. „Mjög óvenjuleg aðferð, sem
setur allt fast“, sagði annar samninga-
nefndarmaður BSRB.
Óformlegt samkomulag hefur nú
náðst um gerð flestra sérkjarasamn-
inga félaga innan BSRB, en beðið
verður með undirritun þeirra þar til
aðalkjarasamningurinn er að mestu
frágenginn. Einnig hangir á sömu
spýtu samningaviðræður við meina-
tækna og röntgentækna sem sagt hafa
upp störfum sínum frá og með
miðnætti í kvöjd, og því er lagt
allt kapp áað heildarsamkomulag náist
fyrir þann tíma, þótt menn væru ekki
mjög bjartsýnir á að það tækist seint í
gærkvöldi.
„Það er hreint ómögulegt að segja
fyrir um hvað gerist í nótt,“ sagði enn
einn samningamefndarmaður BSRB í
samtali við Tímann.
—Sjo/FRI.
Heimilis-
tfminn:
Hættid
að reykja
— bls. 13
■ Nokkrír af samninganefndarmönnum BSRB slá hér á létta strengi í hléi frá samningsþófinusemstóðmestanhlutadagsinsígær,ogennsérekkilyrirendanná.
Tímamynd: Ella.
Taldi sig finna fosfórsprengju í fjörunni á Seltjarnarnesi:
ÓKMEDHANAÍ GEGNUM
BORGINAINN A DAGBLAÐ
T,Ámælisvert að draga hluti sem menn álíta hættulega ígegnum
þétta byggð” segir sprengjusérfræðingur lögreglunnar
■ „Varúð! Skilist á næstu herstöð
eða lögreglustöð". Eitthvað á þessa
leið stóð skrifað utan á torkennilegt
hylki, sem maður nokkur fann í fjör-
unni vestur á Seltjamamesi og bar inn
á ritstjórnarskrifstofur Þjóðviljans
laust eftir hádegið í gær.Taldi maður-
inn sig hafa fosfórsprengju í
höndunum.
„Þetta er ekki sprengja heldur
hylki og á því ereðlismunur," sagði
Rudolph Axelsson, sprengjusérfræð-
ingur lögreglunnar í Reykjavík í
samtali við blaðið.
„Þáð er ekki enn ljóst hvort hylkið
er hættulegt. Hins vegar tel ég það
ámælisvert að draga hluti sem menn
sjálfir álíta hættulega langar leiðir í
gegn um þétta byggð. Ef fólk finnur
svona hlut á fjömm eða annars staðar,
á það skilyrðislaust að snúa sér til
lögreglunnar og hreyfa ekki við hlut-
num.“
Rudolph vildi ekki tjá sig nánar um
þennan torkennilega fund fyrr en
rannsókn á honum væri lokið."
-Sjó.
Útstæð
eyru
— bls. 2
„Bruin
ónýt”
- bls. 6
Heit
mynd
— bls. 19