Tíminn - 10.09.1982, Qupperneq 7
FÖSTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1982.
7
erlent yfirlit
■ Kína er að breytast. En hvernig?
Hver er þróunin í þessu mannflesta ríki
heims? Stjórnendur og stjórnarform
hafa tekið miklum breytingum í Kína á
þessari öld, en spurningin er hvort
Kínverjar og kínversk menning hefur
breyst svo mikið sem af er látið. í byrjun
aldarinnar var keisaraveldið orðið las-
burða, en á ofanverðri öldinni sem leið
áttu útlendingar mikil ítök í landinu, og
var þar þá undarleg blanda nýlendu
margra þjóða ogsjálfstjórn. Kuomitang-
stjórnin var við völd um skeið en
uppreisnar- og byltingarástand skók
allar stoðir ríkisins. Borgarastyrjöld
geisaði þar sem kommúnistar og
þjóðemissinnar áttust við. Japanir
hemámu mikinn hluta landsins og
fyrrum andstæðingar snéru saman bök-
um gegn þeim. Bandaríkjamenn hafa
aldrei verið taldir frelsarar Kína, þótt
þeir hafi sigrast á Japönum.
Eftir að Japanir fóru til síns heima
eftir stríð, hófst borgarastyrjöldin á ný,
sem lauk með sigri kommúnista.
Hreinsanir fóru fram um allt ríkið en
þjóðernissinnar flúðu til Formósu. Enn
er deilt um Taiwan eins og eyjan er nú
kölluð.
Mao var lyft á stall sem himneskum
frelsara. Stóra stökkið fram á við, sem
átti að gera Kína að iðnveldi rann út í
sandinn, en bumbur voru barðar til lofs
stökkinu stóra og hljómaði áróðurinn
um allan heim.
Menningarbyltingin átti að leysa allan
■ Nú er það ekki byltingin sem mestu máli skiptir, eigulegur japanskur iðn-
varningur fangar hugann.
Gangan langa
aftur á bak
þjóðfélagslegan og mannlegan vanda
eins milljarðs Kínverja. Forsprakkar
hennar sitja á bak við lás og slá og eru
úthrópaðir sem glæpamenn.
Sænskur blaðamaður Göran Leijon-
hufvuð, sem skrifar í Dagens Nyheter
dvaldi um árabil í Kína. Hann kom þar
fyrst 1966 er menningarbyltingin var að
hefjast, og fylgdist gjörla með máium.
Það er eins og undirritaðan reki minni
til, að um árabil skrifaði blaðamaður
þessi greinar frá Kína og var uppveðrað-
ur af flestu því sem hann sá og heyrði
og sænskir fjölmiðlar kokgleyptu allt
saman.
Leijonhufvud var nýlega á ferð í Kína
á nýjan leik og skrifar greinar í blað sitt
um það sem nú ber fyrir augu. Það sem
hér er eftir honum haft skrifar hann
undir fyrirsögninni „Gangan mikla til
baka“.
Eldmóður menningarbyltingarinnar
er slokknaður. Kínverjar eru farnir að
kvarta. Þeir segjast vera of margir. Þeir
vilja ekki lengur einangra sig frá öðrum
þjóðum og draumur þeirra er að taka
upp lifnaðarhætti neysluþjóðfélaganna í
Japan, Vestur-Evrópu og Bandaríkjun-
um. Þeir segjast vera eftirbátar annarra
þjóða. Þeir kenna fjórmenningaklík-
unni um að hafa tafið framfarir í áratug.
Erlendur vamingur er eftirsóttari en
kínverskur.
í blöðum er birt skrýtla af ungu
ástföngnu pari.
Hann: „Sérðu hve fagur máninn er í
kvöld“.
Hún: „Hann er áreiðanlega innflutt-
ur“.
Kínverska skrýtlan er furðu lík gömlu
skemmtisögunni okkar um „helvískan
Hornafjarðarmánann".
Kína í dag er líkara því sem það var
fyrir hálfri öld, en á tímum Maos og
menningarbyltingarinnar. Ástfangið
fólk leiðist um garða og götur, en svo
borgaralegt atferli var harðbannað fyrir
áratug. Götusala alls konar þrífst vel og
dráttarkarlarnir skoppa fyrir þríhjóluðu
farþegavögnunum um götur borganna
rétt eins og þeir hafi aldrei verið teknir
úr umferð.
Allt það sem leiðtogar menningarbylt-
ingarinnar bannfærðu getur nú að líta í
Kínverska alþýðulýðveldinu. Markaðs-
verslunin gengur gíatt. Kínverski bónd-
inn er aftur farinn að vinna hjá sjálfum
sér og sfórkommúnurnar að hverfa.
Framboð á vamingi eykst og kínverski
smáborgarinn er farinn að spara til að
■ Draumamir rætast þegar búið er að
safna saman fyrir vélhjóli. Einkabíll er
ekki enn kominn á óskalistann í Kína.
kaupa litasjónvarp, skellinöðru, litrík
föt og húsgögn. Honum er umhugaðra
um eigin velferð en dýrð sósíalismans og
ríkisins.
Betlarar em á ný komnir út á
götumar, ekki í stómm stíl eins og áður
var, en börn rétta fram hendumar að
sníkja aura á þeim stöðum sem
ferðamenn venja komur sínar.
Menntun er fyrir hina útvöldu og
verða nemar að ganga í gegnum álíka
ströng próf til að fá að halda áfram
námi eins og tiðkaðist í gamla keisara-
dæminu.
Ekki er langt sfðan kínversku börnin
sungu um ást sína á Torgi hins himneska
friðar í Peking og að hinn mikli leiðtogi
Mao formaður vísar veginn. Nú syngja
kínversku börnin „Seiko, Seiko“, en
þann söng læra þau í auglýsingatíman-
um eftir fréttir er Japanir auglýsa úr sín
og klukkur.
Veggspjöldin snjöllu og frægu em enn
á sínum stað. En á þeim er enga
baráttuherhvöt að finna. Á þeim em
auglýsingar, að hægt sé að komast að
sem nemi hjá einhverjum skraddara í
vesturhluta Peking og auglýsingar um
fullorðinsfræðslu í kvöldskólum og
fleira af því tagi.
Oddur Ólafsson
skrifar
Vinsælasta sjónvarpsefnið er ensku-
kennsla, þar sem vel uppáfærðar enskar
dömur drekka gin og tonik og gera að
gamni sínu við barþjóna. Elvis Presley
er dáður af útvarpshlustendum.
Þótt stjórnendur Kína hafi slakað
mikið á og hafi ekki eins ofboðsleg
afskipti af öllu lífi þegnanna og áður
ríkir engan veginn upplausnarástand.
Ritskoðun er ströng, en blöðum og
tímaritum hefur fjölgað mjög og efnis-
valið er fjölbreyttara. Það er fjallað um
ýmiss konar efni sem áður var harðbann-
að að prenta eða nefna á nafn, svo sem
unglingavandamál, smygl, spillingu, slys
og fleira, sem ekki þótti við hæfi að hafa
hátt um í ríki Maos.
Sænski blaðamaðurinn, sem hér er
vitnað til, ber það að allt sé nú orðið
miklu mannlegra í Kína en er hann
dvaldi þar. Fólk frjálslegra og opnara,
en annað hafi snúist til verri vegar að
hans áliti. Skriffinnskan hefur aukist um
allan helming. Embættismenn hafa ekki
lengur það aðhald sem þeir þurfa. Margs
kyns óþarfur neysluvarningur er á
boðstólum, og þar sem fólk var áður
hvatt til dáða í þágu byltingarinnar eru
komnar auglýsingar um kóka kóla og
alls kyns neysluvörur vandlega innpakk-
aðar í plast. Háhýsi og stórar fbúðar-
blokkir setja æ meiri svip á borgirnar.
Allt þetta kalla Kínverjar nýtískulegt
og þeim er mjög í mun að fylgjast með
tímanum, þeir ætla ekki að dragast aftur
úr á ný.
Þegar allt kemur til alls eru Kínverjar
venjulegt fólk með sínar óskir og
framtíðardrauma. En framtíðin beinist
nú ekki einvörðungu að því að efla flokk
og ríki og viðhalda sívarandi byltingar
anda. Kínvcrja langar til að eignast
heimili og börn, húsgögn, sjónvarp og
vélhjól. Bíll heyrir draumnum ekki til.
Öll olía Kínaveldis dugir ekki til að
halda gangandi einkabílum 1. milljarðs
manns.
Og enn stritar kínverski bóndinn í
sveita síns andlits. Það skiptir hann ekki
svo miklu máli hvaða stjórnarform þeir
ástunda hverju sinni í Peking.
erlendar fréttir
Lögreglan í Sviss:
FRELSAÐI
GÍSLANA
MEÐ SKYNDI-
ÁHLAUPI
■ Svissnesku lögreglunni tókst f
gærmorgun að frelsa gíslana í pólska
sendiráðinu í Bem í Sviss. Gerði
lögreglan skyndiáhlaup á sendiráðið,
eftir að hafa sent inn táragassprengj-
ur fyrst, sem voru faldar í matar-
pakka. Engan sakaði í áhlaupi
lögreglunnar.
Dómsmálaráðherra Sviss greindi
frá því í gær, þegar umsátrinu um
sendiráðið var lokið að foringi
hryðjuverkamannanna, sem voru
fjórir talsins, væri brottfluttur Pól-
verji, sem hefði lengi búið í
Austurríki og hefði hann meðal
annars afplánað 9 ára fangelsisdóm í
Austurríki fyrir vopnað rán. Hefði
hann sótt um innflytjendaleyfi til
Sviss eftir að hann losnaði úr fangelsi
í Austurríki, en ekki fengið. Hann
hefði farið þaðan til Hollands. Hann
hefði hertekið sendiráðið í Bem með
aðstoð þriggja annarra byssumanna,
en ekki var greint nánar frá þeim.
Greindu stjórnvöld í Sviss frá því að
Pólverjinn yrði sóttur til saka í Sviss.
Pólsk stjórnvöld í Varsjá sögðu á
hinn bóginn í gær að ef hér væri um
Pólverjaað ræða, þá myndu þau óska
eftir því að þeir yrðu framseldir til
Póllands.
Jaruzelsky hershöfðingi þakkaði
svissneskum yfirvöldum og lögreglu
í gær fyrir það sem hann nefndi trúa
og áhrifaríka samvinnu.
Enn loftárásir
ísraelsmanna
■ ísraelskar herþotur héldu annan
daginn í röð uppi árásum á sýrlenska
loftvarnarpalla í Líbanon í gær.
Talsmaður ísraelshers sagði í gær að
ísraelsku herþotunum hefði tekist að
eyðileggja loftvarnaskotpall af sömu
gerð og þærgrönduðu í fyrradag, en
það em pallar fyrir sovésku loft-
varnareldflaugarnar LA 9 sem eru
taldar vera einar fullkomnustu eld-
flaugar sem Sovétmenn framleiða.
Sagði talsmaðurinn að skotpallur
þessi hefði verið á svipuðum slóðum
og sá sem þeir grönduðu í fyrradag,
eða talsvert austur af Beirút.
Fulltrúi stjórnvalda í ísrael sagði
að ísraelsk stjórnvöld væru staðráðin
í því að koma í veg fyrir að
Sýrlendingar gætu komið sér upp
nýjum loftvarnarpöllum í Líbanon.
Leiðtogafundur
Arabaríkjanna í Marokkó:
Spennaíand
rúmsloftinu
■ Svo virðist sem ráðstefna leið-
toga Arabaríkja í Marokkó sé nú
brátt á enda, en enn hefur ekkert
verið gert opinbert um það hversu
málum hefur miðað eða hvað hefur
verið samþykkt, en fregnir frá
Marokkó herma þó að svo virðist
sem leiðtogum ætli að takast að
sameinast um sameiginlega yfirlýs-
ingu varðandi málefni Palestínu-
manna. Fregnir frá Marokkó segja
einnig að þrátt fyrir opinberar
yfirlýsingar frá ráðstefnunni, þá leki
út orðrómur um að spenna sé
talsverð og andrúmsloft allt að því
rafmagnað. Herma fregnirnar, sem
eru óstaðfestar, að vandræðin séu
vegna setu sýrlenskra herja í Líban-
on, en Sýrlendingar hafa þvertekið
fyrir að eitthvað sé hæft í þessum
orðrómi.
Tyrkneskur diplómat j
myrtur í Búlgarfu
■ Tyrkneskur diplómat var í gær
skotinn til bana fyrir utan heimili sitt
í Búlgaríu. Enginn hefur lýst ábyrgð
á hendur sér fyrir tilræðið.
Á undanförnum tíu árum hafa
meira en 20 tyrkneskir diplómatar
eða fjölskyldumeðlimir þeirra verið
myrtir af armenskum hryðjuverka-
mönnum, en þetta er í fyrsta sinn
sem ráðist er á tyrkneskan diplómat
í kommúnistaríki.
Enn springa sprengjur
á götum úti íTeheran
■ í gær sprakk sprengja á götu úti
í Teheran og fjöldi vegfarenda
særðist. Sprengjunni hafði verið
komið undir bíl, og var hún önnur í
röðinni á aðeins fjórum dögum.
Síðastliðinn mánudag létust 20
manns þegar bíll sprakk í loft upp á
fjölfarinni götu í Teheran.