Tíminn - 19.09.1982, Page 10

Tíminn - 19.09.1982, Page 10
SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 bergmál «s ii i 1 1 ífi jíjjjnjj ji í m ■ ■■ k ^ 9 m j§i\ \ T Æ >•■ . BH| ■ Nýbygging háskólans sem nefnd hefur verið „hugvísindahús.“ Ætti að banna orðm „hug- vísindi” og99raunvísindi”? ■ Ég þarf að fjasa svolítið um orð Tilefnið er nafn sem mér virðist að eig; að gefa nýbyggingu háskólans á lóðinm milli Árnagarðs og Norræna hússins. Á vinnuteikningum og í fjölmiðlum heitir byggingin „hugvísindahús" og á að hýsa ýmsar námsgreinar heimspekideildar, viðskiptadeild, listasafn háskólans og e.t.v. eitthvað fleira. Ég held að þessi nafngift sé mjög óheppileg. Hún byggir á leiðinlegri hugsunarvillu, og styrkir hleypidóma sem ríkjandi eru um greinarmun á ýmissi fræðilegri starfsemi við háskólann hér og utan hans. Skal ég nú reyna að styðja þetta sjónarmið rökum. Upphaf „hugvísinda“ og „raunvdisinda“ Orðin „hugvísindi" og „raunvísindi" voru líklega búin til af Ágústi H. Bjarnasyni, fyrrum háskólarektor, þegar hann var að setja saman kver sitt um almenna rökfræði (1913). Hann vantaði orð til að gera greinarmun á vísindum eftir aðferðum þeirra. Á erlendum málum eru þau vísindi sem eingöngu beita afleiðslu og byggja á rökhugsun nefnd apriorisk. Þau nefndi Ágúst „hugvísindi“. Kannski hefði verið betra að tala um „rökvísindi.“ Ti! hugvísinda telja menn rökfræði og stærðfræði. Þau vísindi sem auk afleiðslu beita aðleiðslu eru á erlendum málum nefnd empirisk. Þau nefndi Ágúst „raunvísindi". Kannski hefði verið betra að tala um „reynsluvísindi.“ Til raunvísinda má telja eðlisfræði og líffræði, málfræði og hagfræði, sálar ■ fræði og félagsfræði o.s.frv. Þessi greinarmunur er um margt býsna skynsamlegur, en hann er ekki verulega hagnýtur, ef svo má að orði komast. Nú á dögum kjósa menn að draga fræðistörf í ýmsa aðra dilka; eftir árangri þeirra, viðfangsefnum og ætlunarverkum, svo eitthváð sé nefnt. Til að mynda er mikill munur á raunvísindum innbyrðis og í því viðfangi kjósa menn stundum að draga markalínu milli félagsvísinda eða mannlegra fræða (s.s. félagsfræði, mannfræði, sögu, málfræði, bókmennta- fræði) annars vegar og náttúruvfsinda eða efnisvísinda (s.s. eðlisfræði, líffræði, stjörnufræði, efnafræði) hins vegar. Hvor tveggja vísindin stunda menn eftir tilteknum vinnureglum og með tiltekin markmið í huga. Síðari flokkurinn hefur, sem kunnugt er, náð meiri árangri og í því sambandi er honum stundum gefið aukanefnið „lögmálsvísindi"; þar haldast í hendur skýringar á tilteknu náttúruferli og forsagnir um atburðarrás í framtíðinni. Mannltg fræði kjósa að bregða ljósi á viðfangsefni sín á annan hátt. Sumir sem þeim sinna halda að vísu að á endanum muni þeir finna lögmál um hugsun manna og félagslíf, sem sambærileg eru við lögmál náttúruvís- inda, en það er satt að segja mikið álitamál. Orð fara á flakk Gleymum ekki orðunum „hugvís- indi„ og „raunvísindi“. Löngu eftir að þau voru komin á prent sem tækniorð í rökfræði og vísindaheimspeki, kusu einhverjir að nota þau á nýjan hátt, þ.e. til að tala um aðra hluti. Hvenær þetta gerðist og hvernig veit ég ckki; kannski veit það enginn. Líklegast er að þetta hafi gerst smám saman. Hinn nýja skilning orðanna er að finna í nær aldarfjórðungsgamalli Orðabók Menn- ingarsjóðs. Þar segir um hugvísindi: „Þau vísindi, sem fjalla einkum um manninn og mannlegt samfélag, húmanísk fræði; um mál, bókmenntir, sálfræði, sögu, heimspeki..“ Raunvís- indi eru skilgreind svo á sömu bók: „Þær vísindagreinir, sem fást flestar að mestu leyti við náttúrufræðileg eða stærðfræði- leg efni (eðlisfr., jarðfr., læknisfr. o.s.frv.)...“ Þessi orðabókaskilningur hefur síðan orðið ríkjandi. í grunnskólum er talað um „raungreinar" á sama hátt og „raunvísindi“ og flokkunarkerfi íslensk- ra bókasafna ber sömuleiðis merki þessa skilnings. Enn fremur skipting ■ Raunvísindadeild Háskólans. Þar kenna menn stxrðfrxði. deilda Vísindasjóðs: styrkjum til stærðfræðirannsókna er t.d. úthlutað úr raunvísindadeild sjóðsins! Ég vænti þess að við svolitla umhugsun átti lesendur sig á því að alvarlegur galli er á þessari nýju notkun orðanna tveggja. Augljóslega er það út í hött að telja stærðfræði, sem byggir á rökhugsun en ekki neins konar reynslu manna af heiminum, til raunvísinda. Og spyrja má í hvaða skilningi viðfangsefni sagnfræði: þjóðveldið, Jón forseti, kreppan o.s.frv. séu „huglægari" en til dæmis öreindir eðlisfræðinnar. Mig grunar að ein ástæðan fyrir því að hin nýja notkun orðanna hefur festst í sessi ráðist af hleypidómum tveggja hópa íslenskra háskólamanna; annars vegar þeirra sem vilja umfram allt kenna sig við hugvísindi og hins vegar þeirra sem vilja umfram allt kenna sig við raunvísindi. Hleypidómar þeirra kunna að virðast ósamþýðanlegir, en eru það ekki. Það virðist vera skoðun þeirra sem kenna sig við raunvísindi í hinum nýja skilningi, að þeirra fræðigreinar séu á einhvcrn hátt raunverulegri eða Guðmundur Magnússon k' ■<- Á ll blaðamaður skrifar á I raunhxfari en hugvísindin. Þá er forskeytið „raun-“ í orðinu „raunvís- indi“ ekki skilið sem samheiti við orðið „reynsla", heldur sem stytting á fyrrnefndum orðum. Þessir menn bera yfirleitt litla virðingu fyrir hugvísindum og telja þau bera nafn með rentu, séu nánast hugarburður einn, og skortur þeirra á árangursríkum mælingum og tilraunum svipti þau vísindalegu mikilvægi. Á hinn bóginn virðist það vera skoðun hugvísindamanna að raunvísindin séu tóm tækni og mælivinna, sem varla geti talist samboðin því göfuga akademíska lífi sem þrífist innan veggja háskólans. Hvorir tveggja fordómarnir eru röklausir og gera íslensku háskólastarfi aðeins óleik. Þeir ala á grautarlegri hugsun og hindra samstarf háskóla- deilda, samstarf sem ör framvinda tækni og vísinda gerir brýnt að komið verði á. Að gefa orðum frí Ég hef verið að rekja dálitla hugmyndasögu tveggja orða og benda á að röng notkun þeirra er ekki aðeins lítillækkandi fyrir þá skýru hugsun sem við viljum að háskólinn stæri sig af, heldur hefur þessi misnotkun orðið til þess að skekkja mat almennings og raunar háskólamanna sjálfra á því starfi sem fram fer í háskólanum, sem og meðal menntamanna utan hans. Auðvitað er fyrirsögn þessarar greinar tómt grín. Ég vil ekki banna orð. Það gera menn bara í alræðisríkjum. En á hinn bóginn er ástæða til að hugleiða hvort ekki megi gefa orðunum „hugvísindi“ og „raunvísindi" frí um eitthvert skeið, og hætta við að gefa nýbyggingu háskólans við Árnagarð nafn sem er nánast orðið að orðskrípi. Ég þori varla að vona að samtök verði um að uppræta misnotkun orðsins „raunvísindi'1 einhvern tímann í framtíðinni. Til þess þyrfti meiri háttar átak. En málstaðurinn, skýr og rökvís hugsun, er sá einn besti sem hugsanlegur er. GM

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.