Tíminn - 19.09.1982, Qupperneq 31

Tíminn - 19.09.1982, Qupperneq 31
- • m t * í I f i t : . f • ^ • SUNNUDAGUR 19. SEPTEMBER 1982 < 4 S ^ 31 ■ Heimili Cathlyn Wilkerson sprakk í loft upp, en hún hafði komið þar upp sprengjuverksmiðju meðan foreldrar hennar voru fjarverandi. Réttarhöld eru nú hafin í New York yfir hópi hryðju- verkamanna sem verið hefur í felum frá því í stúdenta- uppreisninni 1968 — — ■ Sífellt fleiri félagar úr „Veðurkjaliaranum“ hafa komið fram í dagsljósið að undanförnu: Hér er Judith Clark sem mjög lét til sín taka í samtökunum. látinn laus til reynslu. Hann er nú kennari í Nýja Mexico. Bernadine Dohrn, 37 ára og William Ayers, 35 ára, komu fram 1980. Hún var sektuð og látin laus til reynslu, en ákærur á hendur honum höfðu þegar verið felldar niður. Aðrir félagar á borð við Jane Alpert og Cathlyn Wilkerson fengu tveggja og þriggja ára fangelsisdóm fyrir þátt sinn í baráttu samtakanna. Flestir þessara flóttamanna virðast hafa búið í Upper West Side hverfinu á Manhattan, þar sem leiga er tiltölulega lág og íbúarnir koma og fara. FBI telur nú sýnt að fólkið hefur flest búið nærri þeim stöðum sem það upphaflega flúði frá, „aðeins nokkrum húsum fjær,“ sagði einn FBI mannanna. „Vilji menn fara í felur í New York, þá er það ekki svo erfitt." 20. október Ekki sást hins vegar né heyrðist neitt frá Kathy Boudin, sem nú er 38 ára. Benjamin Spock hitti foreldra hennar oftsinnis á síðasta áratug. Þau létu ekkert uppskátt við hann um það hvort þau hefðu séð dóttur sína eða ekki, en sögðu aðeins að hún væri heil á húfi. Ekki hafa þau heldur fengist til að ræða það hið minnsta hvort þau hafi hitt hana þau ár sem hún fór huldu höfði. En það hljóta þau að hafa gert. Það sést á ást þeirra til hennar og 18 mánaða dóttur hennar, Chesu. Þessa ást sína hafa þau sannað verklega með því að þau greiða fyrir vörn Kathy, nú er hún er komin undir manna hendur. Þessi vörn er geypilega dýr og þau eru ekki ríkt fólk. Kathy gegnumgengst nú erfiðasta skeið í ævi sinni sem eru þessi réttarhöld, en þau eiga alla athygli manna í Bandaríkjunum um þessar mundir. Það var hinn 20. október á sl. ári í bænum Nanuet í Rockland skíri, sem er skammt utan við New York, að ráðist var á brynvarinn vagn frá Brink-öryggis- þjónustunni af vopnuðum mönnum. Einn varðanna var skotinn til dauða og annar særður lífshættulega. Stolið var 1.6 milljón dollara í reiðufé. Ræningj- arnir komust undan í tveimur bílum og óku um fimm mílna leið, uns þeir komu að vegartálma, sem lögreglan hafði komið upp. Þar upphófst ný skothríð og voru tveir lögreglumenn drepnir og var lík annars þeirra hryllilega leikið af skotsárum. Kona ein var tekin höndum, þegar hún ætlaði að hlaupast á brott af vettvangi og vitni segja hana hafa sagt: „Ég skaut hann ekki, - hann gerði það.“ - eða „Ég skaut hann ekki, - þeir gerðu það.“ 14 fylgsni fínnast Hún var hneppt í varðhald og þar sagði hún til nafns. Enginn kannaðist við það. Þá voru tekin af henni fingraför, sem leiddu í ljós að hér var komin Kathy Boudin. Nú fór aðra meðlimi flokksins að drífa að og náðist einn þeirra úr ægilegu bifreiðarslysi. Þegar svipt var af honum grímu dulnefnisins sást að þessi var Nathaniel Burns. Hann hafði verið eftirlýstur frá 1968 vegna tengsla við sprengjutilræði „Svörtu hlébarðanna." Enn náðust þau Judith Clark, sem fyrrum var meðlimur „Veðurkjallarans“ og David Gilbert úr sömu samtökum, en hans höfðu menn leitað frá 1970 fyrir íkveikjur, og líkamsárásir. Enn voru fimm grunaðir auk þessara dregnir fram fyrir dómstólana og höfðu þcir ailir nema einn verið í tygjum við herskáar neðanjarðarhreyfingar, síðla á sjöunda áratugnum og snemma á þeim áttunda. Lögreglunni og FBI hlóp nú kapp í kinn og farið var að leita uppi fylgsni í New York og New Jersey, Mount Vernon N.Y. og meira að segja í Missouri. Alls voru þetta 14 fylgsni og fundust vopn og sprengiefni í sumum þeirra. Var nú farið að setja samasem- merki á milli íbúa fylgsnanna og margvíslegra afbrota, svo sem árása á brynbíla öryggisþjónustufyrirtækj a. Sér til mestu furðu uppgötvaði FBI nú að lögreglan hafði rekist á fyrirbæri sem menn héldu að ekki væri til í Bandaríkjunum: ný samsærissamtök meðlima úr gömlu róttæklingahópun- um. Þessi gömlu samtök voru Svarti frelsisherinn (einkum gamlir félagar úr Svörtu hlébörðunum) „Veðurkjallar- inn", 19. maí samtökin, og Nýja Afríkulýðveldið svonefnda, sem vildi leggja fimm ríki í suðurhluta Bandaríkj- anna undir svertingja. Virk hermdarverkasamtök „Við vorum alveg furðu lostnir," segir Kenneth Walton, aðstoðarforingi í þeirri deild FBI, sem rannsakaði árásina á brynbílinn. Hann hefur einnig með höndum stjórn liðs sem stefna má gegn hermdarverkamönnum. „Við höfum enga hugmynd um að þessi samtök hefðu gert með sér bandalag.“ Walton er þeirrar skoðunar að nýju samtökin hafi verið að birgja sig upp, með öðrum orðum að þau hafi verið að sanka að sér fjármunum til þess að kosta aðgerðir á borð við rán á forstjórum stórfyritækja og stjórnmálamönnum í þeim tilgangi að knýja fram fangaskipti. Ekki þykir þessi tilgáta þó mjög sennileg, þar sem aðeins fáir félagar þessara samtaka sitja inni. FBI og saksóknarinn hyggjast sýna og sanna að hinir ákærðu hafa verið meðlimir virkra hermdarverkasamtaka, sem beint var gegn bandarísku þjóðfé- lagi. Sakborningarnir hyggjast aftur á móti halda fram sakleysi sínu og koma í vörn sinni á framfæri pólitískri greiningu á bandaríska auðvaldsþjóðfé- laginu, einkum undir stjórn Reagans. Báðir aðilar búast því við harla einstæðum réttarhöldum og það er talið að þau verði ein hin lengstu í bandarískri réttarsögu, - standi ef til vill í 18 mánuði. Lögregluþyrlur munu svífa yfir réttarsöl- unum og verðir með hríðskotabyssur munu standa innan dyra, en slíkar varúðarráðstafanir eiga sér varla for- dæmi. Utandyra er búist við að múgur og margmenni safnist saman, líkt og gerst hcfur á fyrri stigum þessara mála, sem hrópar: „Látið þau í rafmagnsstól- inn.“ „Hengið skepnurnar!“ og „Steikið kvikindin í helvíti!" Mjög einangruö Áhangendur dauðarefsingar í New York fylki nota sér málið miskunnar- laust til þess að tryggja sér stuðning. í meira en ár hefur það verið daglega í blöðunum í New York og í tímaritum sem fara um allt land. Hver og einn vcit hver Kathy Boudin er og félagar hennar og menn eru afar uppnæmir vegna tilhugsunarinnar um það að í tíu ár gat þctta fólk látið og lifað eins og áður er þau voru ung og hættuleg og allur heimurinn fylgdist með þeim. Nú er litið á þau svipuðum augum og á japanska hermenn sem voru lengi að finnast á Kyrrahafseyjum eftir að heimsstyrjöld- inni lauk. Bernadine Dohrn hefur verið færð í fangelsi þegar, vegna þess að hún hefur neitað að láta eftir sýnishorn af rithönd sinni vegna Brink ránsins. Engin nefnd eða samtök til varnar þeim hefur verið sett á fót og ekki virðist líklegt að til þess komi, Dr. Spock, sem hefur heimsótt Kathy í fangelsið segir hana finnast hún mjög einangruð. Carl Ogleby segir að þrátt fyrir ágætar og innilegar minningar sínar um Kathy og þau hin, þá geti hann ekki varið þau“ af því að ég vildi heyra af vörum þeirra að þau iðruðust gerða sinna, en það gera þau ekki. Þau ættu að geta viðurkennt að þau höfðu rangt fyrir sér. En meðan þau segja aðeins „ekki mín sök“, þá eru þau enn of tengd fortíðinni. Þetta var ótrúlega yndisleg fortíð. En engum getur liðist að hanga fastur í henni og reyna ekki að komast út.“ AM þýddi

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.