Tíminn - 26.09.1982, Side 8
8
SUNNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1982
Hiiftlíli
Útgefandi: Framsóknarflokkurinn.
Framkvœmdastjórl: Gfsli Slgurðsson. Auglýalngastjórl: Stelngrlmur Gfslason.
Skrlfstofustjórl: Jóhanna B. Jóhannsdóttlr. Afgrelóslustjórl: Slguróur Brynjólfsson
Rltstjórar: Þórarinn Þórarlnsson, Ellas Snœland Jónsson. Rltstjórnarfulltrúl: Oddur
V. Ólafsson. Fréttastjórl: Krlstlnn Hallgrfmsson. Umsjónarmaður Helgar-Tfmans: Atlf
Magnússon. Blaóamenn: Agnes Bragadóttlr, Bjarghlldur Stefánsdóttlr, Elrfkur St.
Elrfksson, Frtórlk Indrlðason, Helður Helgadóttlr, Slgurður Helgason (fþróttlr), Jónas
Guðmundsson, Krlstfn Leifsdóttlr, Skaftl Jónsson. Útlltstelknun: Gunnar Trausti
Guðbjörnsson. LJósmyndlr: Guðjón Elnarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Elfn
Ellertsdóttlr. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttlr. Prófarklr: Flosl Krlstjánsson, Krlstfn
Þorbjarnardóttlr, Marfa Anna Þorstelnsdóttlr. Rltstjórn, skrlfstofur og auglýslngar:
Sfðumúla 15, Reykjavfk. Sfml: 86300. Auglýslngasfmi: 18300. Kvöldsfmar: 86387 og
86392.
Verð f lausasölu 9.00, en 12.00 um helgar. Áskrlft á mánuði: kr. 130.00.
Setnlng: Tœknidelld Tfmans. Prentun: Blaðaprent hf.
Þjóðartekjur á
mann minnka
um 5% á árinu
■ Þjóðhagsstofnun hefur nú kynnt nýja spá um
líklega afkomu þjóðarbúsins á þessu ári. Þar er
staðfest hversu verulega þjóðartekjur hafa dregist
saman vegna utanaðkomandi áhrifa, fyrst og fremst
verulegs samdráttar í sjávarafla.
Miðað við afla íslendinga fyrstu átta mánuði ársins
hefur heildaraflinn minnkað um hvorki meira né
minna en 30%. Ef miðað er við fast verðlag er
samdráttur í verðmæti sjávarafurða um 16%.
Þjóðhagsstofnun gerir ráð fyrir, að þessi samdráttur í
framleiðslu sjávarafurða muni leiða til þess að
þjóðarframleiðslan dragist saman um 3,5% á árinu.
Þar sem viðskiptakjörin verða sennilega um 2% lakari
en í fyrra munu þjóðartekjurnar minnka meira en
nemur samdrætti þjóðarframleiðslunnar eða um 4%.
Þjóðartekjur á mann munu hins vegar minnka enn
meira eða um 5% samkvæmt þessum spám.
En minnkandi þjóðarframleiðsla og þjóðartekjur er
ekki eina stóra vandamálið, sem steðjar að
þjóðarbúinu.Viðskiptajöfnuðurinn við útlönd er talinn
verða óhagstæður um 10,5% á árinu, og er það enn
lakari útkoma en spáð var fyrr í sumar.
Þetta eru þau alvarlegu vandamál, sem stjórnvöld
hafa verið að takast á við síðustu mánuðina. Það þýðir
lítið fyrir stjórnarandstæðinga að halda því fram, að
þetta séu léttvægir erfiðleikar. Staðreyndin er allt
önnur, ekki síst vegna þess að þjóðfélagið hefur
undanfarin ár og áratugi miðað allt við sífellt aukna
þjóðarframleiðslu og þjóðartekjur. Skyndileg vending
í afla, sem nú leiðir til minnkandi þjóðarframleiðslu
í fyrsta sinn um langt árabil, hefur því gífurleg áhrif
um allt þjóðfélagið. Ríkisstjórnin hefur með
aðgerðum sínum reynt eftir föngum að dreifa þeim
áhrifum þannig, að byrðarnar komi sem jafnast og
réttlátlegast niður.
Fram kemur í skýrslu Þjóðhagsstofnunar að frá því
í marsmánuði á þessu ári hefur skráð atvinnuleysi
verið svipað því sem verið hefur á þessum tíma
undanfarin ár. Það hefur sem sagt þrátt fyrir
snarminnkandi þjóðarframleiðslu tekist að halda uppi
fullri atvinnu í landinu. Það er ekki svo lítið afrek, og
aðgerðir ríkisstjórnarinnar miðast að sjálfsögðu við
að reyna að halda fullri atvinnu í landinu áfram. Það
er mun mikilvægara en önnur markmið í efnahags-
málum, jafnvel baráttan gegn verðbólgunni. Leiftur-
sóknarmenn telja að vísu í lagi að sækja svo hratt gegn
verðbólgunni að atvinnuleysi fylgi í kjölfarið, en
íslendingar hafa hafnað þeirri stefnu meo eftirminni-
legum hætti og í málefnasamningi núverandi ríkis-
stjórnar er full atvinna eitt meginmarkmiðið.
Þjóðhagsstofnun segir í þessari nýjustu skýrslu
sinni, að útlit sé fyrir að kaupmáttur taxtakaups verði
að meðaltali á árinu svipaður og í fyrra. Áætlað sé að
ráðstöfunartekjur á mann aukist um 51% á árinu sem
þýði að kaupmáttur ráðstöfunartekna miðað við
verðlag einkaneyslu geti dregist saman um rösklega
1% á mann á árinu. Þessi spá er að vísu óviss, en engu
að síður hlýtur það að vekja athygli ef kaupmáttur
ráðstöfunartekna minnkar aðeins um 1% á mann á
sama tíma og þjóðartekjurnar minnka um 5% á mann.
-ESJ.
Að loknu syndaflóði
Igarnorkustyrjaldar
B ANDARÍSKIR BÓKAÚTGEFENDUR ERU BJART-
SÝNIR VEGNA ÚTGÁFUNNAR NÚ í HAUST ÞRÁTT
FYRIR SAMDRÁTT í ÚTGÁFU OG SÖLU BÓKA
VESTRA AÐ UNDANFÖRNU. Ástæðan er fyrst og fremst
sú, hversu mikið af nýjum bókum eftir þekkta og virta
rithöfunda eru væntanlegar. „Á þessu hausti er nánast hver
einasta stórskytta með nýja bók. Það ætti að auka mjög söluna
í bókaverslununum", segir forstjóri Crown Publishers, eins
af stærri bókaforlögunum vestra.
Síðastliðið ár hefur bókaútgáfan í Bandaríkjunum dregist
saman; færri nýjar bækur hafa komið út en undanfarin ár og
salan hefur verið minni en áður. En bókaútgefendur segja
það gömul sannindi, að þegar harðnar á dalnum efnahagslega
þá aukist ásókn í góðar bækur. Og þeir segja, að í haust komi
út fleiri nýjar bækur eftir góða rithöfunda en í langan tíma.
H, TELJA STÆRSTU FORLÖGIN AÐ SÉU
HELSTU VERKIN SEM ÞAU GEFA ÚT Á ÞESSU
HAUSTI? Elisabeth N. Sifton hjá Viking Press benti á
eftirfarandi skáldsögur: „Second Heaven“ eftir Judith Guest,
sem áður samdi ma. „Ordinary People“, en sú bók varð að
Óskarsverðlaunamynd í fyrra. Þriðju skáldsöguna í fimm
skáldsagna ritröð eftir Lawrence Durrell. Þessi nefnist
„Constance in Love, or Solitary Practices“. Og skáldsöguna
„In the City of Fear“ eftir Ward Just. Sú gerist í Washington,
„borg óttans“.
Robert A. Gottlieb hjá Knopf nefndi fyrst bókina „The Path
to Power“ eftir Robert A. Caro, en þar fjallar hann um leið
Lyndon Johnsons til valda og áhrifa í stjórnmálum
Bandaríkjanna. Einnig „Freud and Man’s Soul“ eftir Bruno
Bettelheim, og svo nýjar skáidsögur eftir William Wharton
(A Midnight Clear), Anne Rice (Cry to Heaven), Laurie
Colwin (Family Happiness) og John Updike (Bech Is Back).
Hjá Random House taldi Jason Epstein nýjustu bók James
Micheners (Space) mjög góða skáldsögu, en þar er fjallað um
geimrannsóknir Bandaríkjamanna. Einnig kvaðst hann gera
sér góðar vonir um nýja æfisögu skáldsins Robert Lowells
eftir Ian Hamilton og bók eftir Robert Scheer sem heitir
,,-With Enough Shovels: Reagan, Bush and Nuclear War“,
þar sem fjallað er um þá í stjóm Reagans forseta, sem trúa
því að ekki sé aðeins hægt að lifa af kjarnorkustyrjöld heldur
sigra í slíkri helför.
Patricia Soliman hjá Simon & Schuster taldi að ýmsir
höfundar, sem nú væru að fá sína fyrstu skáldsögu útgefna,
myndu fá góðar viðtökur. En af þekktum höfundum nefndi
hún nýja bók eftir Graham Greene. Sú nefnist „Monsignor
Quixote“ og er nútímaleg endursögn á hinni sígildu sögu
Cervantes. Nýtt smásagnasafn eftir Margaret Atwood er
einnig væntanlegt (Dancing Girls), en auk þess er S&S með
bækur metsöluhöfunda, svo sem Harold Robbins.
„Spellbinder" heitir nýjasta bókin hans og fjallar um ungan
prest, sem gerir prédikun guðsorðsins að stórbissness.
Fordæmin fyrir því eru víst mörg þar vestra.
Hjá forlaginu Farrer, Strauss & Giroux er Bernard
Malamud rósin í hnappagatinu. Nýja skáldsagan hans, sem ,
kemur út í haust, heitir „God’s Grace“ og segir frá Nóa
framtíðarinnar eftir syndaflóð kjarnorkustyrjaldar. Af öðrum
bókum þessa forlags má nefna endurminningar frá tímum
Weimarlýðveldisins í Þýskalandi eftir Nóbelsverðlaunaskáldið
Elias Canetti, nýja æfisögu Mozarts eftir Wolfgang
Hildesheimer og skáldsöguna „1943“ eftir Albert Moravia um
Ítalíu á fasistatímanum.
IVÍlKILL FJÖLDI SKÁLDSAGNA KEMUR ÚT í
HAUST í BANDARÍKJUNUM BÆÐI EFTIR INN-
LENDA OG ERLENDA HÖFUNDA. Nokkrar þeirra hafa
þegar verið nefndar. Til viðbótar má m.a. nefna nýja sögu
eftir Alan Sillitoe. Sú heitir „Her Victory“ og fjallar um ástir
fólks á miðjumn aldri. Joyce Carol Oates sendir frá sér„A
Bloodsmoor Romance“, og glæpasögudrottningin P.D.
James „The Skull Beneath the Skin". Irwin Shaw er með nýja
sögu, „Acceptable Losses”, og Kurt Vonnegut sömuleiðis:
„Dead Eye Dick“. Steve Tesich, sem hingað til hefur skrifað
leikrit og kvikmyndahandrit, sendir nú frá sér fyrstu skáldsögu
sína, „Summer Crossing", og metsöluhöfundar þrillera eruu
með nýjar bækur, svo sem Helen Maclnnes (Cloak of
Darkness), sem sendir frá sér tuttugustu skáldsögu sína,
Sidney Sheldon (Master of the Game), Irving Wallace (The
Almighty), Len Deighton (Goodbye, Mickey Mouse), og
Clive Egleton (The Russian Enigma).
Arthur C. Clarke hefur ritað enn eina vísindaskáldsöguna.
Þessi mun ekki síst vekja athygli vegna þess að hún er hugsuð
sem framhald „2001“ - en Clarke skrifaði handritið að þeirri
kvikmynd. Sagan nefnist „2010: Odyssey Two“.
Af skáldsögum höfunda frá öðrum löndum en
Bandaríkjunum má nefna „Chronicle of a Death Foretold"
eftir Gabriel Garcia Márqucz (hún kemur út á íslandi fyrir
jólin) um manndráp í suðuramerísku þorpi, „The Loser“ eftir
George Konrad um líf menntamanns í Ungverjalandi, og
„What a Beautiful Sunday!" eftir Jorge Seraprún, spænskan
rithöfund sem vann bókmenntaverðlaunin Prix Formentor.
M ARGAR BÆKUR KOMA ÚT UM NÚVERANDI
OG FYRRVERANDI FORSETA BANDARIKJANNA.
Þar af eru tvær bækur eftir fyrrverandi Bandaríkjaforseta.
Richard M. Nixon heldur áfram að skrifa. Nú kemur bókin
„Leaders: Profiles and Reminiscences of Man Who Have
Shaped the Modern World“. Jimmy Carter sendir frá sér
endurminningar sínar, sem nefnast „Keeping Faith: Memoirs
of a President”. Einn helsti samstarfsmaður Carters í Hvíta
húsinu, Hamilton Jordan, segir frá lokaári Carterstjómarinn-
ar í „Crisis: The Last Year of the Carter Presidency“
Mikill áhugi virðist nú vera á forsetatíð Harry Tmmans,
því ekki færri en þrjár bækur um það efni em væntanlegar í,
haust. Robert Donovan skrfar „Tumultuous Years: The
Presidency of Harry S. Tmman, 1949-1953“, Robert H.
Ferrell „Harry S. Tmman and the Modern American
Presidency" og loks ritar Ken Kechler endurminningamar
„Working with Tmman“.
Jafnvel Reagan fær eina bók um sig. Hún heitir einfaldlega
„Reagan" og er eftir blaðamann í Washington, Lou Cannon.
Kjarnorkuvopnamálin em enn mjög ofarlega á baugi og
fjöldi bóka um þau málefni koma út í haust. George F.
Kennan sendir frá sér „The Nuclear Delusion: Soviet-Amer-
ican Relations in the Atomic Age“, þar sem hann leggur m.a.
fram tillögur um afvopnun á kjarnorkusviðinu. I bókinni
„Stop Nuclear War“ eftir David P. Barash og Judith Eve
Lipton em veittar gagnlegar upplýsingar um skipulag
mótmælaaðgerða gegn kjarnorkuvopnum, en Robert Jay
Lifton og Richard Falk draga fram pólitískar og siðferðilegar
röksemdirgegn kjarnorkuvopnum í „Indefensible Weapons“.
Margar bækur eru fyrst og fremst með upplýsingar um
kjarnorkuvopn og afleiðingar þeirra, en aðrar draga einkum
fram rökin gegn núverandi ástandi þeirra mála. Ein bók er
þó varnarrit fyrir notkun kjarnorku sem orkugjafa. Sú er eftir
Samuel McCracken og heitir „The War Against the Atom“.
Nokkrar athyglisverðar endurminn-
INGABÆKUR ERU Á HAUSTLISTA BANDARÍSKU
FORLAGANNA. Leonard Bernstein rifjar þannig upp ýmis
atriði í lífi sínu í „Findings” og William Styron sömuleiðis í
„This Quiet Dust“. Blaðamaðurinn þekktir Harrison E.
Salisbury segir frá ferðum sínum um allan heim í „Journey
for Our Times“. Og Sir Laurence Olivier rekur æfi sína í
„Confessions of an Actor“.
Þá kemur nú út fyrsta heilstæða æfisagan um Norman
Mailer. Sú nefnist einfaldlega „Mailer” og er eftir Hilary
Mills. Joan Givner hefur ritað æfisögu Katherine Anne
Porter, og „Ava“ er æfisaga Ava Gardner eftir Roland
Falmini.
Nokkrar æfisögur um stjórnmálamenn eru væntanlegar,
m.a. um Marshall, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna,
Anwar Sadat, fyrrum forseta Egyptalands. Einnig ný bók um
Donovan, sem stofnaði OSS - fyrirrennari bandarísku
leyniþjónustunnar CIA. Sú heitir „Donovan: The Last hero“
og er eftir Anthony Cave Brown.
„The Thirties: An American Decade“ er sögð athyglisverð
lýsing á menningaratburðum í Bandaríkjunum á fjórða áratug
aldarinnar. „The Forties" er hins vegar safn ritgerða og
ritdóma eftir Edmund Wilson frá fimmta áratugnum.
Bókmenntaskýringar eftir Vladimir Nbokov birtast í bókinni
„Lectures on Don Quixote", og útgáfu á bréfum franska
rithöfundarins Gustave Flaubert er haldið áfram. Nýja bókin
nær yfir árin 1857-1880. _ g§j
Elías Snæland
Jónsson skrifar