Tíminn - 26.09.1982, Page 16

Tíminn - 26.09.1982, Page 16
SUNNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1982 SUNNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1982 W'ÍIBÍ útlendingar menn sem við höfðum aldrei heyrt nefnda. Þeir hringdu aðeins og báðu leyfis að mega líta inn kvöldið eftir. Nei, það var ekki erfitt að vera eiginkona Þórbergs. Hann hafði svo afskaplega góða lund. Oft kom hann fram til mín þar sem ég sat við sauma í eldhúsinu og spurði mig um einhverja setningu, sem hann var að velta fyrir sér, hvort mér þætti hún vera fallegri svona eða svona. Við vorum alltaf alveg sammála, í hvert einasta sinn.“ Þú hefur alltaf haft gaman af að fara í leikhús. Hvemig leist þér á „Ofvitann“ á sviði? „Mér var boðið á frumsýninguna og í kaffinu uppi á eftir var ég sett niður við hliðina á engum öðrum en honum Kristjáni Eldjárn, því það þótti eiga við að láta mig sitja hjá einhverjum merkilegum manni. Það fannst mér ánægjulegt því ég þekkti hann dálítið fyrir. Hinum megin við mig sat svo Vigdís Finnbogadóttir. Krístján Eldjárn sagði að þetta væri alskemmtilegasta stykkið sem hann hafði séð og Vigdís Finnbogadóttir sagði mér á eftir að það mætti trúa því að hann segði satt, því Kristján talaði aldrei um hug sér. Það kom líka í ljós að leikritið mæltist vel fyrir því mér er sagt að aðeins eitt leikrit annað hafi verið sýnt oftar. Eftir sýninguna komu svo leikararnir til mín óskuðu mér alls góðs. Sá sem lék Þórberg sagði mér samt að sér hefði liðið illa alla sýninguna, vegna þess að hann vissi að ég var í salnum. Hann sagðist hafa verið hræddur um að mér hefði ekki þótt Þórbergur nógu sannfærandi. Hann lék hann hins vegar ljómandi vel og var ekki alveg laus við að vera líkur honum, eins og hann var á tímabili. Hann hefur sjálfsagt náð því að gera þetta svona vel með því að rannsaka kvikmyndina sem hann Ósvaldur heitinn Knudsen gerði um Þórberg. Þar gat hann sé hvemig Þórbergur gekk um gólf og hvemig hann bar sig til.“ Þórbergur var allu ævi mikill sósíalisti? Greindi ykkur aldrei á í pólitík, hjónin? „Ha, ha! Nei, aldrei. Þórbergur var fæddur sósíalisti og það var ég líka. Við systkinin voru öll sömu skoðunar, nema ein systirin. Já, við Þórbergur vomm bæði fædd rauð. Sjá næstu síðu ■ Því er svo háttað með ýmsa bestu menn meðal þjóðar, einkum þegar þeir hafa orðið langhfir í landinu, að þeir öðlast sérstaka mynd og sess í huga hennar og það á ekki síst við um listamennina. Þegar best lætur getur þessi mynd orðið svo skýr að það þarf aðeins að nefna nafnið á manninum, - þá er eins og ljúkist upp saga heillar kynslóðar eða tímabils. Það á við um Þórberg Þórðarson. En samt er það svo að mynd Þórbergs er ekki algjör án þess að nafn lífsförunautar hans sé nefnt um leið. Af lestri bóka Þórbergs og af því umtali sem þekktir rithöfundar komast varla hjá hefur Margrét Jónsdóttir orðið partur,mynd við þjóðsögu sem kannske er orðin goðsaga í augum margra og návist hennar í myndinni gerir myndina fyllri og skýrari, - gerir hana eins og okkur öllum finnst að hún eigi að vera. Margrét Jónsdóttir er nú 82ja ára og býr á Droplaugarstöðum við Snorrabrautina. Við báðum hana um að mega hta til hennar einhvern daginn og spjalla við hana um hitt og þetta viðkomandi þeim Þórbergi og þó einkum henni sjálfri og Margrét nennti ekki að setja sig upp á móti því. Hér fer á eftir viðtal okkar við hana og við byrjuðum það á ákaflega venjubundinn hátt með því að biðja hana að segja okkur hvaðan hún er ættuð. „Ég er ættuð frá Innri-Njarðvík og foreldrar mínir voru þau Jón Jónsson, útgerðarmaður þar og kona hans Þorbjörg Ásbjarnardóttir. bjuggum vestur í bæ og skólinn var lengst inni í Holtum, svo það varð aldrei af því að ég drifi mig. Þá hafði maður ekki bíl og ég treysti mér ekki til að fara ■ Þessa mynd af þeim Margréti og Þórbergi mun Ragn- ar Jónsson í Smára hafa tekið af þcim. ■ Margrét Jóns- dóttir 22ja ára. Myndin er tekin um það leyti sem hún fer til Kaupmannahafn- Helgar-Tíminn ræðir við frú Margréti Jónsdóttur um æviferil hennar, fyrstu kynni þeirra Þórbergs og heimilislíf og hún segir frá reynslu sinni af ýmsum dulrænum fyrirbærum ■ Þetta er myndin af Margrétí, sem Þórbergur hafði jafnan hjá sér á skrifborði sínu. Hér er hún 24 ára. 1 „Það var ekki erfítt að vera eiginkona Þórbergs” Pabbi var ættaður úr Grímsnesinu, en mamma má segja að hafi verið ættuð úr Reykjavík. Hún var komin af ákaflega fínu fólki, til dæmis Einari sem kallaður var „stúdent" og var tengdafaðir Jóns Sigurðssonar. Þau voru systkinabörn hjónin, svo ég var skyld þeim báðum. Pabbi var ættaður frá Búrfelli í Grímsnesi og afi hans var kallaður Jón ríki. Hann átti tvo syni og eina dóttur. Eins og viðurnefnið bendir til var Jón loðinn um lófana og sagan segir að þegar langamma mín flutti frá Búrfelli vestur á land, en hún varð ekkja snemma, þá hafi hún flutt peningana með sér í koffortum á hestbaki. Það sýnir líka að eitthvað hefur verið til í búinu að hann gat látið annan son sinn læra til prests en hinn sigla til Danmerkur að læra söðlasmíði. Fyrir utan útgerðina var rekinn í Njarðvíkunum dálítill búskapur, svona rétt fyrir okkur, en við höfðum alltaf tvær kýr og nokkrar kindur. En aðallega var það útgerðin sem við lifðum af og pabbi var cinn þeirra fyrstu sem fékk sér mótorbát á Suðurncsjum. Báturinn hét „Njarðvíkin" og þeir voru þarna nokkrir á mcð föður mínum, ckki man ég þó hve /■ margir. Það þótti gott pláss að vera hjá föður mínum og ég má segja að þetta hafi gengið vel. Ég leið hcldur aldrei skort heima sem barn, hafði alltaf nóg. Við vorum einmitt að ræða um þetta : nýlega, nokkrar konur hérna og ég, en þær höfðu kynnst því að hafa ekki nóg sem börn. En ég hafði aldrei af því að segja. Skemmtanirnar voru auðvitað fá- brotnar í Njarðvíkunum. Mér fannst þó gaman að fara inn í Keflavík og stundum var okkur gefin ein eða tvær krónur til þess að versla fyrir, en þá voru í Keflavík verslun Duus og verslun Ólafs Ófeigssonar og fleiri. En það var svo merkilegt með mig að ég hafði aldrei áhuga á að kaupa annað í Kcfiavik en j myndir. Þaðfengustþamainnrammaðar smámyndir, flestar af einhverju úr dönsku landslagi, og ég keypti einhver ósköp af þeim eins og aurarnir leyfðu. Já, veistu hvað. Ég hef alltaf verið svona, alltaf haft afskaplega gaman af myndum. Ég átti marga listamenn að vinum og hafði eignast ein fimmtíu listaverk, sem ég gaf nýlega til Listasafns alþýðu. Eftir að ég fluttist til Rcykjavíkur langaði mig talsvert til þess að læra að mála eða teikna, en við Búðum á Snæfellsnesi, fyrir Jökul og inn í Stykkishólm. Þetta varð viku ferð og við gættum þess að ganga ekki mjög langt í fyrstu, heldur lengja leiðina dag frá degi. Síðasta daginn höfðum við gengið 30 kílómetra, en Þórbergur var með ýmis mælitæki á sér og þar á meðal mæli sem sýndi hve langt við höfðum gengið hvern dag. Við fundum aldrei fyrir harðsperrum, þrátt fyrir það hve gangan var löng. Við gistum á bæjum á Snæfellsnesi og ég man að þegar við ætluðum að borga fyrir greiðann daginn eftir á fyrsta bænum sem við gistum á, þá sagði húsfreyjan við Þórberg: „Nei, ég held nú ekki. Þú ert búinn að borga þetta fyrir löngu, löngu.“ Þar átti hún við bækurnar hans. „Nei, við Þórbergur giftum okkur ekki í kirkju. Við fórum til hans Björns fógeta og létum pússa okkur saman og löbbuðum svo heim til foreldra minna í kaffi og fínar kökur. Það þótti auðvitað tíðindum sæta þegar það fréttist að Þórbergur skyldi vera búinn að gifta sig og einhvem fyrstu daganna sem við vomm gift kom til okkar ungur Svíi, vinur Þórbergs sem var nýkominn til landsins með Gullfossi. Hann hafði séð Moggann um "borð með þeirri frétt að Þórbergur Þórðarson mundi ætla að gifta sig þennan og tiltekna dag, fréttin flaug víst um allt skipið í einu vetfangi. Þórbergur hafði sagt að hann ætlaði aldrei að kvænast. Nú var hann kominn til þess að sannfærast um það með eigin augum hvort þetta væri satt. „Nú er starf rithöfundarins þess eðlis að hann þarf að vera mikið út af fyrir sig við sína vinnu. Hvernig er að vera eiginkona rithöfundar? „Ja, það má segja að það sé list út af fyrir sig. Mér er til dæmis minnisstætt hve oft það kom fyrir að menn hringdu og sögðu: „Er Þórbergur heima“. Þá svaraði ég: „Já, hann er heima. Hvað var það?“ Kannske var þá erindið að „spjalla við hann“ svolitla stund, eins og menn orðuðu það. „Nei, þá er hann ekki við,“ sagði ég þannig tókst mér oft að bjarga honum frá töfum. Þórbergur var þessu mjög feginn. Hann fór snemma á fætur og fór alltaf í göngutúr fyrir matinn, en vann svo fram eftir degi og stundum langt fram á kvöld, væri hann upplagður. Jú, það var oft margt gesta hjá okkur, bæði innlendra og útlendra. Oft voru þessir í skólann í öllum veðrum, enda var hann alltaf á kvöldin. í Njarðvíkunum var ég til 14 ára. aldurs, en fór þá til Reykjavíkur og tók pabbi það í sig fimm árum síðar að flytja til Reykjavíkur líka, seldi allt suður frá og flutti hingað.“ Hvað tók við þegar til Reykjavíkur kom? „Ég settist hér í Kvennaskólann og sat þar í fjögur ár og lauk þaðan prófi. Þá var þar skólastjóri frú Ingibjörg Bjarnason. Jú, ég kunni vel við hana, því hún var góð við mig. Hún var talin ströng, en það var ekki erfitt að hafa stjórn á unglingunum þá. Tómstundir? Þær vóru nú helstar þær að maður á bíó, ef maður átti fyrir því. Þá voru bíósýningarnar í Fjalakettinum og spilað á píanó undir með myndinni og þetta þótti manni voðalega mikil skemmtun. Ég man eftir því að þegar ég fór á bíó í fyrsta sinn. Þá kostaði 10 aura fyrir krakka, en 25 aura fyrir fullorðna. Ég man hins vegar ekkert um hvað sú mynd var eða hvað hún hét. Það er annars merkilegt að ég skuli hafa gleymt þessu ég var einmitt að hugsa um það um daginn. Nei, listamenn voru hér ekki margir, en ég man til dæmis eftir því að þegar ég sá þá Hannes Hafstein og Þorstein Erlingsson fyrst og þeir voru báðir svo fallegir að ég gleymi því aldrei. Samt var hér mikið líf í leikhúsmálum og ég fór mikið í leikhús. Það gat ég vegna þess að ég bjó hjá henni Gunnþórunni Halldórsdóttur, leikkonu. Hún var mikil vinkona móður minnar og bauð mér að búa hjá sér fremur en í heimavistinni í Kvennaskólanum. Þær Guðrún Jónas- son ráku saman verslun og þær tóku mig stundum með í leikhúsið, ef pláss var. Ég sá því mörg leikrit, ekki síst ef Gunnþórunn var að leika. Guðrún lék hins vegar ekki, þótt það kæmi fyrir að hún tæki að sér smáhlutverk. Gunnþórunn var fædd leikkona og ég man eftir einu kvöldi þegar hún lék í þrem einþáttungum sama kvöldið. í þeim fyrsta lék hún ungan stúdent, telpu með sippuband í þeim næsta og í hinum þriðja lék hún gamla konu sem var að deyja og lá í rúminu. Allt fórst henni þetta jafn vel úr hendi. Nú, auk þessa gerði unga fólkið sér það helst til skemmtunar að fara út að spásséra og setjast inn á kaffihús ef aur var til. Eins og þú sérð þá var þetta ekki ■ „Þeir Hannes Hafstein og Þorsteinn Erlingsson voru svo fallegir að ég gleymi því aldrei“ Tímamynd Róbert fólki nú á dögum. Tilgangurinn er víst sá einn að fá á sig lit, en ekki að skoða landið. Maðurinn minn hló nú að fólki sem borgaði þúsundir króna fyrir það eitt að liggja á sandströnd og fá á sig lit. Fólk sem ferðast svona er bara eins og kría sem sest á stein og sér ekkert og kynnist engu.“ Þið Þórbergur ferðuðust víða? „Já, við ferðuðumst mikið, því við höfðum bæði svo gaman af því. Við komum til flestra Evrópulanda og til dæmis vorum við í Tékkóslóvakíu í mánuð. Ég held að Tékkóslóvakía sé einhvert fegursta land sem hægt er að hugsa sér og fyrir mig hafði hún mikið að bjóða, þar sem ég hef svo gaman af öllu gömlu, - gömlum húsum og götum og þess lags. Nú, okkar frægasta ferð var svo auðvitað ferðin með Baltika. í þeirri ferð fannst mér skemmtilegast að koma til Grikklands. Þangað hafði ég alla ævi þráð að koma og þegar við fórum þaðan þá fór ég grátandi um borð, því mig langaði svo til þess að stansa lengur. í sömu ferðinni komum við líka til Egyptalands og það var auðvitað ógleymanlegt. Við fórum og sáum prýramídana og ókum inn í eyðimörk- ina. í Caríó var þá sá mesti hiti sem ég hef nokkru sinni komið í, - hvorki meira né minna en 47 stig á Celsíus. Ég spurði fjóra menn að þessu til þess að fullvissa mig um að þetta væri satt og þeim bar öllum saman. Við vorum líka alveg að kafna, þegar við komum út úr bílunum. Næst mesti hiti sem ég hef komið í var í Moskvu, en þar var einu sinni 45 stiga hiti, þegar ég var þar.“ Hvar hefur þú kunnað bcst við þig meðal annarra þjóða? „Eins og ég sagði þá kunni ég vel við Dani og ég hef verið í Englandi og kunni einnig mjög vel við Breta. Bretar voru allt öðru vísi en ég hélt og margir íslendingar halda að þeir séu, stífir og kaldranalegir. En það var nú eitthvað annað og ég hef varla hitt nokkra þjóð þar sem menn hafa annað eins skopskyn og geta hlegið jafn innilega. Þá var það yndislegur tími þegar ég fór fráRóm og suður um alla Ítalíu. Ég held að ég hefði orðið að betri manneskju ef ég hefði getað dvalið lengur á Ítalíu, Skaplyndi Itala átti svo vel við mig. Loks var ég einu sinni ásamt manninum mínum á dvalarheimili í Rússlandi og ekki væsti um mig þar, svo þú sérð að það er erfitt að gera upp á milli þessara þjóða fyrir mig. Ég get þó trúað að helst hefði ég viljað fæðast sem Rússi eða ítali.“ Hvað tók við þegar þú komst alkomin heim frá Danmörku? „í Danmörku hafði ég meðal annars lært að setja upp púða, en það höfðu menn ekki kunnað hér áður, heldur voru aðeins saumaðar sessur, svona til þess að hafa við bakið. Ég byrjaði því að vinna fyrir mér með því að setja upp púða og selja, auk þess sem ég saumaði klukkustrengi gardínur og stórisa og því um líkt. Þetta var óskaplega mikil vinna og ég hef oft hugsað það síðar hve lítið ég fékk fyrir þetta.“ Var það um þetta leyti sem þið Þórbergur kynntust? „Nei, það var nú nokkru seinna. Ég vissi þó hver hann var því ég hafði lesið „Bréf til Láru,“ en fyrir þá bók varð hann frægur á einni nóttu. Ásbjöm elsti bróðir minn hafði verið í Verslunarskól- anum og lært þar íslensku hjá Þórbergi og hann keypti strax „Bréf til Láru“ og las hana aftur og aftur. Strax þegar hann kom heim úr skólanum byrjaði hann að lesa og auðvitað laségbókina líka. Þetta var það fyrsta sem ég las eftir hann því ljóðabækurnar sem komið höfðu út nokkru áður hafði ég ekki séð. Við kynntumst þannig að ég var í húsi vestur í bæ sumarið 1932 hjá amerískri konu sem þar bjó. Hún var gift frænda mínum sem var skipstjóri og hann fékk mig til þess að vera hjá henni, því hún var með niðurfallssýki. Sjálfur var hann fiskiskipstjóri hjá Englendingum um þetta leyti. Þórbergur bjó niðri og okkar fyrstu orðaskipti urðu þau að ég var að ganga niður stigann og hitti Þórberg í forstofunni. „Þekkirðu hann Ásbjörn Jónsson?" spyr Þórbergur. „Já, hvort ég geri,“ segi ég. „Hann er nú bróðir minn.“ Þannig kynntumst við. Við fórum að fara saman í göngutúra, því Þórbergur var svo mikill göngumaður og við höfðum um nóg að spjalla. Einu sinni man ég að við fórum gangandi upp á Kaldársel í himnesku veðri og síðar í miklu lengri túra, gengum einu sinni frá fjölbreytt, en í endurminningunni var þetta ákaflega skemmtilegt líf, enda gerði maður ekki miklar kröfur. Allan tímann var ég mest með sömu stúlkunum, en þær hétu Jakobína Pedersen frá Keflavík og Björg Pétursdóttir, sem seinna varð hjúkrunar- kona. Hún var með mér í skólanum. Það voru einkum Keflvíkingar sem flust höfðu í bæinn sem við umgengumst í fyrstu. Mér hefur satt að segja alltaf verið ákaflega vel við Keflvíkinga og ég hef alltaf verið á móti því'að heyra hvað margir tala illa um Kéflvíkinga á síðari árum. Ég kynntist Keflvtkingum vel þegar pabbi var að smíða skip fyrir þá, þegar ég var krakki, én hann var mjög góður bátasmiður og skipin hans þóttu fara afar vel í sjó. Meðan pabbi var að smíða fór ég oft niður á bryggjur og veiddi þar með strákunum, því það var hálfgerður strákur í mér líka. Ég vildi til dæmis komast á sjó með pabba og einu sinni tók hann mig með sér. En guð minn góður, - ég bað hann ekki um það aftur. Ég varð svo sjóveik. Eftir að ég eltist og tók að fara með skipum á miili landa, sem ég gerði oft, var ég hins vegar aldrei sjóveik og það var maðurinn minn ekki heldur. Stundum voru við ein uppi á matmálstímum um borð, ef eitthvað var að veðri.“ Hvað tók við að Kvennaskólaárunum loknum? „Ég var um tíma í versluninni hjá Gunnþórunni, en svo fór ég til útlanda um 1920 og var í Danmörku í nokkur ár. Nú, auðvitað fór ég til Kaupmann- ahafnar. Menn fóru nú ekki lengra til að byrja með á þeim árum. Ég fór þarna til náms í handavinnu og grautargerð, var í ýmsum skólum og kunni ákaflega vel við mig. I Danmörku var mín helsta skemmtun líkt og í Reykjavík að fara í leikhús og einna minnisstæðast er mér þegar ég sá þau Paul Raumert og Önnu Borg leika í gamla Dagmar leikhúsinu í „Nu er der Morgen“. Ég notaði tækifærið í Danmörku til þess að ferðast sem mest um landið og ég fór meira og minna um allar eyjamar. ég hef enda alltaf haft mjög gaman af að ferðast. En ég hef alltaf ferðast í þeim tilgangi fyrst og fremst að sjá löndin og kynnast fólkinu og ég á mjög erfitt með að skilja þessar sólarlandaferðir hjá ■ „Helst hefði ég viljað fæðast sem ftali eða Rússi.“ Tímamynd Róbert ■ „Þá sá Kristínn E. Andrésson þennan mann standa eins og hann væri Ijóslifandi á bak við rúmið.“ Tímamynd Róbert

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.