Tíminn - 26.09.1982, Síða 26
SUNNUDAGUR 26. SEPTEMBER1982
■ Magnús Guðmundsson söngvari Þeys.
„Sálvaxtarhátíð” Þeysara til andlegrar upplyftingar landsmanna
■ Hvað er það sem er í regnfrakka
innanhúss, rekur upp gól og hoppar upp
og niður?
Lesendum skal látið eftir að svara
„spurningu dagsins" hér að ofan, en það
sem fer hér á eftir er helgað hljómleikum
Þeys á „sálvaxtarhátíðinni" í Félags-
stofnun stúdenta sl. miðvikudag.
Samkvæmt þeim ummælum og
blaðadómum sem mér hafa borist á
erlenda grund sl. tvö ár í fjarveru minni
frá ættjörðinni, hafa Þeysarar verið
Þeyr:
Tvöföld
skilaboð
■ Vegna frásagnar í blöðum s.l.
helgi (þar á meðal Nútímanum) um
nasistasvipinn á hljómsveitinni
ÞEY hélt hljómsveitin blaðamanna-
fund til að skýra málið. Á þeim
fundi kom fram að þeir félagar í
ÞEY: telja sig síður en svo vera
merkisbera nasismans á einn eða
annan hátt heldur þvert á móti var
framkoma þeirra hugsuð sem ádeila
á allt það sem þessi stefna og
fasisminn standa fyrir og þykir
Þeysurum miður ef það hefur misskil-
ist hjá fólki.
Textar þeirra laga sem Þeyr flutti
í nasistamúnderingunni í l.augar-
dalshöllinni á RISAROKKINU eru
hörð ádeila á þessar stefnur eins og
til dæmis Iagið Rúdolf og vildu
Þeysarar meina að hér væru á
ferðinni tvöföld skilaboð, annarsveg-
ar væri áherslan lög á að „sjokkera“
fólkið með útlitinu fá það til að sýna
viðbrögð og hinsvegar væri hart deilt
á þctta „útlit“ í textum þeirra félaga.
Nýja platan þeirra Þeysara heitir
The Fourth Reich og sögðu þeir að
hér væri ekki á ferðinni tilvísun til
nasismans heldur væri átt við
sáikönnuðinn Wilhelm Reich sem
Þeysarar hafa mikið pælt í að
undanförnu en hann átti um margt
merkilega ævi, var rekinn úr
Þýskalandi nasismans, flutti til
Bandaríkjanna og lenti þar í
McCarthy nornaveiðunum á sjötta
áratugnum og hefur oft setið í
fangelsi fyrir skoðanir sínar. _ FRI
Hljómplatan
„Kvölda
tekur”
komin út:
■ Út er komin fyrsta hljómplata Nýja
Kompanísins og nefnist hún „Kvölda
tekur“.
Nýja Kompaníið hefur starfað í rúm
tvö ár og markað sér ákveðna sérstöðu
með því að leika frumsamið efni og
sérstaklega útsett í ríkara mæli en tíðkast
hefur í íslenskum jazzi. Útgáfa
plötunnar markar þau tímamót í
íslenskri jazzsögu að hún er fyrsta
hljómplatan með frumsömdu og útsettu
efni sem starfandi jazzhljómsveit sendir
frá sér.
lofaðir og prísaðir upp í hástert og það
svo að ég man vart annað eins síðan
Bubbi Morthens sló í gegn. Ummæli
þessi hafa verið mjög á einn veg, Þeyr
er besta hljómsveit í heimi og ekki sakar
að árur þeirra munu vera mjög
jákvæðar.
Nú er ég þeirrar skoðunar eftir
heimkomuna, eftir að hafa séð Þey í
tvígang og í þriðja skiptið í óklipptu
eintaki af „Rokk í Reykjavík" - skyldi
Hulda vera dáin?, að Þeyr sé ekki besta
hljómsvcit í heimi. Mín skoðun er aftur
á móti sú að hljómsveitin sé skrambi góð
og vafalítið eins sú allra besta sem skotið
hefur upp kollinum á íslensku rokksviði
allt frá því í árdaga. Vafalaust hafa þar
hinir „jákvæðu straumar" sitt að segja,
en höfuðstyrkur Þeys er samt sem áður
sá að hljómsveitin er öðruvísi. Þeysarar
hafa skapað sér „irnage" og hvar sem
þeir fara er mikið um að vera og það er
beðið með eftirvæntingu eftir leik
þeirra. Áður hefur verið minnst á það
hér að Þeyr séu á villigötum hvað
sviðsframkomu varðar, en vel kann a
vera að það sé vitleysa og stafi af
„neikvæðum „og þröngum sjóndeildar-
hring undirritaðs...Dæmi hver fyrir sig.
Þeyr voru annars ágætir umrædd
miðvikudagskvöld. Lög eins og
„Rúdolf“ með tilheyrandi kertaljósum
og armréttum, og „Killer Boogie“ voru
flutt hnökralítil og lokalagið „Life
Transmission“ skapaði skemmtilega
stemmingu í lokin. Afturganga Þorsteins
Magnússonar á vafalítið sinn þátt í
léttum leik þetta kvöld, en eitthvað var
söngkerfið lasið og holgóma, því lítil
orðaskil heyrðust, en það var kannski
ekki meiningin. Þá komu „beinagrind-
astúlkurnar", eða e.t.v. væri betur við
hæfi að nefna þær „beinakerlingarnar",
skemmtilega á óvart, en fjarstöddum til
upplýsingar má geta að þær dilluðu sér
■ -Ég er mjög ánægður með
útkomuna. Þetta er persónuleg plata
og það liggur ákveðin hugmynd á
bak við öll lögin, en samt er yfir
henni ákveðinn léttleiki sem ég er
hrifinn af, sagði Þorgeir Ástvaldsson
í samtali við Nútímann er hann var
spurður um útkomu fyrstu sólóplötu
hans, „Á puttanum", sem út kemur
í lok þessarar viku.
Þorgeir sagði að honum hefði
boðist þetta tækifæri að gera plötuna
í vor og hefði hann fengið Gunnar
Þórðarson til að sjá um útsetningar
með sér auk þess sem Gunnar
stjórnaði upptökum. 11 lög eru á
plötunni og öll eftir Þorgeir sjálfan.
Þorgeir sagði lögin mjög ólík að
gerð, en sagðist jafnframt vona að
■ Þorgeir Ástvaldsson verðnr „Á puttanum“ á nxstunni ásamt vaimkunnu
heiðursfóiki s.s Helgu Möiler sem hér tekur lagið, væntanlega yfir „glasalyftingum“
Þorgeirs.
ÞORGEIR „PUTTALINGUR”
ÁSTVALDSSON MEÐ PLÖTU
ákveðin heildarmynd væri yfir
plötunni.
Þorgeiri til aðstoðar á þessari nýju
plötu eru margir snjallir hljóðfæra -
leikarar,auk þess sem söngkonurnar
Helga Möller, Diddú, Shady Owens
og Ellen Kristjánsdóttir leggja
honum lið.
- Allt ákaflega ólíkar söngkonur,
en allar frábærar, sagði Þorgeir að
lokum.
- ESE
Rökkurmnsikk frá
Nýja kompaníinu
Platan var tekin upp í marsmánuði s.l.
í Hljóðrita og upptökumaður var Baldur
Már Arngrímsson. Á plötunni eru átta
lög öll eftir meðlimi kompanísins.
Á „kvölda tekur" eru m.a. tvö íslensk
þjóðlög í jözzuðum útsetningum
Jóhanns G. Jóhannssonar píanóleikara
Nýja kompanísins. Lögin eru „Kvölda
tekur“ og „Grátandi kem ég nú Guð
minn til þín“, en Jóhann á auk þess tvö
frumsamin lög á plötunni, „Frýgískt
frumlag" og „Dögun“. Sveinbjörn I.
Baldvinsson, gítarleikari á tvö frum-
samin lög á plötunni, „Blúsinn hans Jóns
míns“ og „Nóg fyrir þetta kaup“. Tómas
R. Einarsson, bassaleikari, og Sigurður
Flosason, saxafónleikari eiga síðan hvor
sitt, „Stolin stef“ og „G.O.“. Fimmti
meðlimurinn í Nýja kompaníinu er
síðan Sigurður Valgeirsson trommuleik-
ari.
Meðlimir Nýja Kompanísins eru allir
ágætlega menntaðir í músikk og hafa
þeir allir að trommuleikaranum undan-
skildum lagt stund á tónlistarnám.
Jóhann G. Jóhannsson, hefur stundað '
klassískt tónlistarnám á íslandi, í
Bandaríkjunum og í Svíþjóð. Sigurður
Flosason, lýkur næsta vor námi í
saxófónleik við Tónlistarskólann í
Reykjavík og er nýkominn heim af
sumarnámskeiði í bandarískum tónlist-
arskóla. Sveinbjörn I. Baldvinsson,
hefur numið gítarleik um fimm ára
skeið, en Sveinbjörn er m.a. kunnur
fyrir ljóð sín, plötuna „Stjörnur í
skónum" og þátt sinn á plötu Diabolus
in Musica. Tómas Einarsson hefur
stundað kontrabassanám í nokkur ár, en
hann lék einnig á plötu Diabolus, „Lífið
í litum“.
Undanfarin 2 ár hefur Nýja
Kompaníið leikið á ýmsum stöðum í
Reykjavík og nágrenni, sem og á
Laugarvatni og á Akureyri. Hljómsveit-
in hefur m.a. leikið í menntaskólunum,
Djúpinu og Stúdentakjallaranum,
haldið tónleika í Norræna húsinu og á
Hótel Borg og komið tvisvar fram í
sjónvarpi. - ESE
í takt við tónlistina í einu lagi í svörtum
búningum með ámáluðum beinastrik-
um. Skrambi gott, en verst er hvað ég
var langt undan.
„Sálvaxtarhátíð" Þeysara bauð upp á
önnur atriði sem ekki verða nefnd hér,
en ég vil ljúka máli mínu með að draga
í efa að sjálfsvitund og andlegur vöxtur
landsmanna hafi eflst til mikill muna þó
að stiginn hafi verið „regndans“ í einu
af húsakynnum Melaklepps. Sálarflækj-
ur hafa vafalaust heldur ekki magnast
og þá er allt í þessu fína.
- ESE
Tveir þungir molar
■ Hin nýja hljómplata kanadísku
þungarokkssveitarinnar Rush er nú
komin út. Nefnist platan Signals og
var hún gerð lýðnum ljós á miklu
laser- og ljósasjóvi á þeim
skringilega stað, London Planetar-
ium Laserium. Frikki hefur farið á
svona stað og segir að græjunum sé
„plöggað" í sambandi við laser- og
ljósaapparöt á veggjum og í lofti og
er platan sé spiluð þá ærist apparötin
í takt við tónlistina. Það hlýtur að
vera sálvöxtur í lagi.
■ Michael Schenker.
■ Graham Bonnet, nýbakaður
söngvari Michael Schenker Group
(MSG) er hættur í hljómsveitinni
eftir heiftarlegt rifrildi við MS
sjálfan. Sagði Bonnet að gamli
maðurinn gæti farið í rass og rófu
fyrir sér og flaug síðan til Ameríku
(ekki þó á eyrunum). Þetta gerðist
rétt áður en MSG átti að koma fram
á Reading hljómleikahátíðinni og
varð Gary Bardens fyrrverandi
söngfugl MSG að hlaupa í skarðið og
æfa hin ómþýðu lög sveitarinnar með
aðeins tveggja tíma fyrirvara. Þóttu
viðstöddum raddbönd hans aldrei
hafa áður betri verið og talað um
glæsilegt „come back“ eins og það
heitir á fótboltamáli.
Þriðja hljómplata MSG sem átti
að koma út 15. október nk. kann að
draga dóm af fyrrgreindum atburð-
um og m.a. kemur til greina að
Barden kveði Bonnet í kútinn og
syngi yfir hann á plötunni í orðsins
fyllstu merkingu. Gæti þetta seinkað
plötunni nokkuð, enda Bonnet
hávær með afbrigðum.
- ESE