Tíminn - 26.09.1982, Page 27
SUNNUDAGUR 26. SEPTEMBER 1982
27
Umsjón: Friðrik Indriðason og Eiríkur S. Eiríksson
Misjafnt SATT-kvöld
■ KOS var traust að vanda.
■ Inn á sviðið á efstu hæð Klúbbsins
ganga fjórir menn, með dagblöð vafinn
um höfuðið og fest með þykkum
límböndum. Þeir taka að fikta við
nokkur hljóðfæri, hver með sínu lagi,
hávaðinn sker í eyrun. Hér er kominn
hljómsveitin Kvalasveitin á SATT-
kvöldinu s.l. miðvikudag. Sjaldan hefur
hljómsveit borið annan með meiri
rentum enKvalasveitia þ.e. algjör kvöl
var að hlusta á þá. Fjórir bavíanar hefði
sennilega gert betur á hljóðfærin en
svokölluð Kvalasveit sem vægt til orða
tekið á eftir um hálft ár í „bílskúrnum“
til að geta komið saman lagi miðað við
frammistöðuna á SATT-kvöldinu.
Þrjár hljómsveitir komu fram á þessu
SATT-kvöldi, fyrir utan ofangreinda
voru það sveitirnar KOS og Jonee
Jonee. KOS kom skemmtilega á óvart á
Melarokkinu fyrr í sumar með geysilega
skemmtilegum leik og hið sama var upp
á teningnum í Klúbbnum.
Tónlist KOS er nokkuð fjölbreytt og
liggur að mestu leyti í léttu millirokki en
þó eiga þeir félagar til að taka traust
reggae-lög og voru tvö slík á prógrammi
þeirra í Klúbbnum. Þeir félagar virðast
ekki hafa mikið fyrir því að koma frá
sér léttum og skemmtilegum lögum,
trommarinn afslappaður og öflugur og
gítarleikarinn þrumugóður en sveitina
skipa þeir Þröstur Þórisson, Jón
Björgvinsson og Þröstur Þorbjörnsson.
Jonee Jonee kynntu nýútkoma plötu
sína og voru að mörgu leyti skemmtileg-
asta sveit kvöldsins. Tónlist Jonee Jonee
er á mjög svipuðu línum og tónlist
Purrks Pillnikk en nokkuð fábreyttari og
ekki eins hröð þótt þeir strákar eigi það
til að hafa „keyrsluna“ í hærri kantinum.
Mjög fámennt var á SATT-kvöldinu
og því lítil stemming sem skapaðist en
nokkuð var um leiðinda frammíköll
drukkinna áheyrenda,sérstaklega eins en
heldur dofnuðu lætin í honum er Þorvar
söngvari Jonee Jonee spurði hvort þessi
bjáni færi ekki að „deyja“. - FRI
■ Kvalasveitin bar nafn með rentum.
Tímamynd FRI
■ Jonee Jonee kynntu efni af nýrri plötu.
Þorleifur rekinn úr Egó:
„Hef
segja
■ „Ég hef ekkert að segja um þetta
mál“ sagði Bubbi Morthens söngvari
og prímusmótar hljómsveitarinnar
Egó f samtali við Nútímann er við
spurðum hann um þær breytingar sem
orðnar eru á Egó en Þorleifur mun
hafa verið rekinn úr hljómsveitinni
skömmu áður en upptökur hófust á
ekkert aað
um málið”
nýtti plötu þeirra Egó-manna í gengið inn í sveitina.
Hljóðrita. Bubbi sagði ennfremur að upptök-
Rúnar Erlingsson bassaleikari úr urnar í Hljóðrita stæðu í um tíu daga
Bodies og fyrrum Utangarðsmaður en síðan mundi Egó fara f túr um
vinnur nú að gerð plötunnar í stað landið og sennilega yrði Rúnar með í
Þorleifs en Bubbi sagði að Rúnar væri þeirri för.
„session“ maður á plötunni hjá þeim Ekki tókst að ná í Þorleif vegna
og ekki um það að ræða að hann hefði þessa mál. _ FRI
Auglýsingasími
TÍMANS er 18-300
Loftpressur frá 50-3000 mín. lítra
mmwwmmAm
Smiðjuvegi 30 — Simi 76444.
liuifenqan mat
og léttist!
Leiðir til megrunar geta verið ákaflega lystugar. í bók-
inni „Léttir og ljúffengir réttir" er 3ja vikna megrunar-
kúr eða matseðill.
Þar er lýst lystugri leið til megrunar,-girnilegir og
næringaríkir réttir. Fjöldi litprentaðra mynda.
BÁRA MAGNÚSDÓTTIR hefur þýtt og staðfært
efni bókarinnar. Hún hefur áralanga reynslu í
umfjöllun um heilsu- og megrunarfæði fyrir fólk á
öllum aldri.
LOFTPRESSUR
SETBERG