Tíminn - 10.10.1982, Page 7
SUNNUDAGUR 10. OKTÓBER 1982
Verið Velkomin.
LL JOHANN
Skeifan 8. sími 85822
gegn Vilhjálmi í Þýskalandi að þjóð-
þingið greip fram fyrir hendumar á
honum vegna íhlutunar hans í utanríkis-
mál landsins. En Chamberlain full-
vissaði hann um að þetta andsnúna
almenningsálit væri runnið undan rifjum
fávita og svikahrappa og hann skyldi láta
það sem vind um eyru þjóta. Þá svaraði
Vilhjámur þegar og kvað þá tvo jafnan
mundu standa saman: „Þér hvessið
penna yðar en ég tungu mína og mitt
breiða sverð,“ sagði hann.
Án afláts minnti Englendingurinn
keisarann á hlutverk og örlög Þýska-
lands. „Þegar Þýskaland hefur á annað
borð náð sigri,“ skrifaði hann eftir að
fyrri styrjöldin braust út,“ og það vitum
við það mun gera, þá verður þegar að
hefjast handa samkvæmt stjómmála-
fræði vísindalegrar snilli. Ágústus réðst
í að umbreyta heiminum og Þýskaland
verður að gera hið sama. Landið verður
að eignast vopn til sóknar og vamar og
á öllum sviðum verður það að vera eins
vel skipulagt og her. Það mun bera af
öllum í listum, vísindum, tækni, iðnaði,
verslun, fjármálum og hverju sem er.
Það verður kennari, stjórnandi og
brautryðjandi heimsbyggðarinnar. Sér-
hver maður mun standa árvakur í stöðu
sinni og leggja sig fram fyrir hinn heilaga
málstað. Þannig mun Þýskaland sigra
heiminn með innri mikilleik sínum.“
Chamberlain gerðist þýskur ríkis-
borgari árið 1916, - sem sé í miðju fyrra
heimsstríðinu. Fyrir predikanir sínar um
hið dýrðlega hlutverk Þýskalands hlaut
hann járnkrossinn úr hendi keisarans.
Nýr frelsari
Svo átti þó að fara að það var í Þriðja
ríki nasista sem áhrif þessa Englendings
urðu mest. Hann var þá dáinn, en hafði
séð fyrir stofnun þess. Nasistar tóku upp
mærðarrollur hans um örlög og hlutverk
Þjóðverja og Þýskalands og ekki síst
kynþáttakenningar hans. Hann var
hylltur sem einn hinn mesti spámann-
anna. Á þessum tíma streymdu bækl-
ingar, bækur og greinar út úr nasista-
pressunni sem hófu þennan fræðara til
skýjanna og hann var kallaður „and-
legur faðir hins þjóðemissósíalistiska
Þýskalands.“ Rosenberg, sem var hug-
myndafræðingur flokksins mun oft hafa
látið í Ijós aðdáun sína á þessum enska
heimspekingi við Leiðtogann. Hitler
hefur líklega heyrt fyrst um Chamber-
lain sem ungur maður í Vín, en þar voru
rit hans vinsæl meðal afturhaldsafla og
gyðingahatara og eflaust hefur hann
■ Eva Wagner, dóttír tónsnillingsins,
sem giftist hinum enska eldibrandi frá
Portsmouth.
■ „Þér hvessið penna yðar, en ég tungu mina og mitt breiða sverð j“ sagði keisarimi
í bréfi til breska heimspekingsins.
að Kristur hafi að miklu leyti ekki haft
semítablóð í æðum. Hann fullyrti svo
blátt áfram: „Hver sá sem segir Krist
hafa verið Gyðing er annað hvort
heimskingi eða lygari."
En hvað var hann þá? Chamberlain
segir: Ef til vill Aríi! Hafi hann ekki
verið það að ætt að fullu, þá var hann
það vegna siðalærdóms síns og trúar-
legra viðhorfa, sem eru andstæð efnis-
hyggju og stirðnuðum formum Gyðinga-
trúarinnar.
„Guð hefur sent
yður til mín“
Þegar „Hornsteinar 19. aldar“ komu
út í Þýskalandi fór hrifningarbylgja um
landið og þessi sérkennilegi Englend-
ingur varð skjótt á hvers manns vörum.
Þrátt fyrir þá miklu mælsku sem bókin
bjó yfir og fagran stíl, - en á því sviði
sém fleirum var Chamberlain lista-
maður, - þá þótti bókin ekki auðveld
aflestrar. En yfirstéttimar lögðu bókina
sér við brjóst, líkt og þær hefðu einmitt
fundið það í henni sem þær vildu trúa.
Þegar tíu ár voru liðin frá því er hún
kom fyrst út voru komnar af henni átta
prentanir og 60 þúsund eintök höfðu
selst. Er fyrri heimsstyrjöldin skall á var
eintakafjöldinn kominn upp í 100
þúsund eintök. Hún var alls staðar til
sölu á stjómaráram nasista og t.d. 1938
mun það hafa verið 24. útgáfa sem verið
var að selja. Eintakafjöldi frá upphafi
var þá orðinn um 250 þúsund.
Sá sem las bókina manna vandlegast
var Vilhjálmur II, keisari. Hann bauð
Chamberlain til hallar sinnar í Potsdam
og þegar við fyrstu sýn tókst með þeim
vinátta sem varði til dauða höfundarins
1927. Þeir skiptust á bréfum árum
saman. Sum þeirra 43ja bréfa sem
Chamberlain ritaði keisaranum vom
langar ritgerðir sem stríðsherTann not-
aði óspart í þrumuræðum sínum og
yfirlýsingum. „Það var Guð sem sendi
bók yðar til þýsku þjóðarinar og yður
mér persónulega,“ sagði hann í einu
bréfa sinna til Chamberlain. Allt lofið
og hólið sem finna má í bréfum
Chamberlain til keisarans getur valdið
mönnum klígju: „Yðar hátign og þegnar
yðar hafa verið fæddir í heilögu skríni,"
skrifaði hann t.d. sem áður er sagt frá.
En þessi undirgefni kom þó ekki í veg
fyrir áð stöðugt var Chamberlain að gefa
þjóðhöfðingjanum mikilláta heilræði.
Árið 1908 hafði risið upp slík andstaða
lesið einhverjar þeirra greína sem hann
ritaði í þýsk blöð í stríðinu. í „Mein
Kampf“ kveðst hann harma að boðskap-
ur Chamberlains sé lítið kynntur í
Weimarlýðveldinu.
Chamberlain varð fyrstur manna í
Þýskalandi til að sjá að Hitlers biði mikil
framtíð, og mikil tækifæri fyrir Þjóð-
verj a, ef þeir fylgdu honum. Hitler hafði
hitt hann í fyrsta sinn í Bayreuth árið
1923 og þótt Chamberlain væri þá veikur
hálf-lamaður og hugstola vegna ósigurs
Þýskalands, þá lifnaði hann allur við,
þegar hann heyrði þennan unga Austur-
ríkismann tala.
Yður bíða mikil vcrkefni," skrifaði
hann Hitler daginn eftir. „Trú mín á
Þýskaland hefur ekki hvikað eitt einasta
andartak, þótt víst hafi tímabundnar
vonir brugðist. f einu vetfangi hafið þér
gjörbreytt sálarástandi mínu. Það sýnir
kraft þýsku þjóðarinnar að á örlaga-
stundu fæðir hún af sér mann eins og
yður. Þann kraft sýnir líka það
kraftmagn sem frá yður stafar. Megi
Guð blessa yður!“
Þetta var á þeim tíma er Hitler með
Chaplinskegg sitt og klaufalega fram-
komu var enn álitinn hlægilegur af
flestum Þjóðverjum. Hann átti sér fáa
fylgjendur um þetta Ieyti. En seiðmagn
persónuleika hans hafði undraáhrif á
þennan aldraða, veika heimspeking og
endurnýjaði trú hans á þá þjóð sem hann
hafði kjörið að dveljast með og hefja til
skýjanna. Chamberlain gerðist meðlim-
ur hins unga flokks nasista og eftir því
sem heilsan leyfði för hann nú að rita í
þann tætingslega blaðakost sem hann
réði yfir. í einni þessara greina, sem
birtist árið 1924, lýsti hann því yfir að
Hitler, sem þá sat í fangelsi, væri kjörinn
af Guði til þess að veita þjóðinni
handleiðslu. Örlögin höfðu boðið Vil-
hjálmi II að spreyta sig, en hann hafði
brugðist. Nú var það Hitler.
Á sjötugsafmæli þessa merkilega
manns, hinn 5. september .1925, birtist
um hann fimm dálka afmælisgrein í blaði
nasista „Völkischer Beobachter", þar
sem bók hans „Homasteinar 19. aldar“
var nefnd guðspjall nasistaflokksins.
Sextán mánuðum síðar var hann
borinn til grafar, - hinn 11. janúar 1927.
Hann dó með þá von í brjósti að allt það
sem hann hafði predikað og spáð ætti
eftir að rætast undir handleiðslu þessa
nýja Messíasar.
Við jarðarförina voru ekki nema tveir
nafnkunnir menn. Annar var einn sona
Vilhjálms keisara, sem ekki mátti sjálfur
stíga fæti á þýska jörð, en hinn var
Hitler.
Nasistablöðin sögðu að nú hefði þýska
þjóðin misst hinn mesta vopnasmiða
sinna og að enn sem komið væri hefðu
þau vopn sem hann smíðaði ekki verið
borin í stríði sem þeim hæfði.“
Ekki mundi hinn aldraða sjúka
speking hafa grunað það þá og vart
Hitler sjálfan hve þess var skammt að
bíða að þessi vopn yrðu öll reynd og með
hve hörmulegum afleiðingum.
Þýtt - AM
HEIMILISIÐNAÐAR-
SKÓLINN
Laufásvegur 2 - sími 17800
Innritun er hafin á JÓLAFÖNDURNÁMSKEIÐIN, sem hefjast 20. okt.
Önnur námskeið í október og nóvember:
Knipl 9. okf.
Fótvefnaður 11. okt.
Vefnaður fyrir börn 19. okt.
T uskubrúðugerð 19. okt.
Munsturgerð 25. okt.
Spjaldvefnaður 1. nóv.
Tóvinna 9.nóv.
Auk þess minnum við á námskeið í munsturgerð og bótasaum,
ætluð fólki utan af landi (dagleg kennsla).
Innritun fer fram í HEIMILISIÐNAÐARSKÓLANUM Laufásvegi 2,
sími 17800.