Fréttablaðið - 24.01.2009, Qupperneq 1
HELGARÚTGÁFA
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
HUGMYNDARÍKIR
MIÐBÆJARSVANIR
Sigrún og Valdimar Geir reka verslun,
kaffihús og ferðaþjónustu í bænum.
VIÐTAL 26
24. janúar 2009 — 22. tölublað — 9. árgangur
ÚTLÖND 34
HEILSA 36
Þóra Karítas vill
hesta og heitan pott
VIÐTAL 40
TVÖ SÉRBLÖÐ Í DAG
25
20
15
10
5
0Fj
öl
di
þ
in
gs
æ
ta
16,8 22,1 3,7 19,2 32,6
Fylgi stjórnmálaflokkanna
Skoðanakönnun Fréttablaðsins 22. jan.
2009 - fjöldi þingmanna og fylgi (%)
12
15
0
13
23
Ko
sn
in
ga
r
7
25
4
18
9
Meðferð fyrir karla sem beita
ofbeldi á heimilum
Taktu ábyrgð – hringdu strax!
555 3020
Fyllsta trúnaðar er gætt
Blóði drifin saga
Ísraelsríkis
ÁHRIF FRÁ
MARRAKESH
FYRIR NÆSTA VOR
TÍSKA 50
Tíu leiðir til að
öðlast aukinn kraft
HALDIÐ Á BRAUT Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, yfirgefur Valhöll eftir að hafa fært þjóðinni
persónuleg og pólitísk tíðindi. Áður hafði hann upplýst samflokksmenn sína í þingliði og miðstjórn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Opið 10–18
STJÓRNMÁL Tillaga Sjálfstæðis-
flokksins um kosningar í maí
dugar ekki ein og sér til að halda
stjórnarsamstarfinu áfram. Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir segir
ótímabært að fullyrða nokkuð um
samstarfið fyrr en hún hefur hitt
Geir H. Haarde. Þau munu ræða
saman í dag og fara yfir stöðuna.
Viðmælendur Fréttablaðsins eru
sammála um að samband formann-
anna sé gott og það gæti orðið til
þess að stjórnin héldi.
Óánægja sé innan þingflokks
Samfylkingarinnar og grasrót-
arinnar. Það að flýta kosningum
slái eitt og sér ekki á þá óánægju.
Þung krafa er um að meira þurfi
að koma til; brotthvarf þeirra sem
hvað mest hafa verið gagnrýndir.
Eru seðlabankastjóri og forstjóri
Fjármálaeftirlits nefndir í því
samhengi. Ingibjörg segir mikil-
vægt að hlusta á grasrótina. Hún
hafi hins vegar verið kosin til að
tala, vinna og hafa skoðanir.
Einn viðmælandi Fréttablaðsins
sagði að ekki hefði tekist að klára
stór verkefni á þeim ríflega 100
dögum sem liðnir eru frá banka-
hruninu. Takist það allt í einu
með Sjálfstæðisflokknum sé það
hið besta mál, en það verði að telj-
ast ólíklegt. Annar sagði ljóst að
Sjálfstæðisflokkurinn segði Sam-
fylkingunni ekki fyrir um hvenær
ætti að kjósa.
Sjálfstæðismenn eru líka marg-
ir hverjir ósáttir við samstarfið og
telja Samfylkinguna ekki í því af
heilindum. Raddir innan flokks-
ins telja réttast að slíta því, enda
hafi Samfylkingin sýnt af sér
ábyrgðarleysi. Allt var á borðinu
á fundi miðstjórnar og þingflokks
í gær og bæði mælt með stjórnar-
slitum og gegn frestun landsfund-
ar. Ofan á varð þó að fallast á til-
lögu formanns um áframhaldandi
samstarf fram að kosningum.
- bþs, bj, kóp / sjá síðu 4, 6 og 8
Samstarfið í óvissu
Samfylkingin er enn tvístígandi um hvort halda eigi stjórnarsamstarfinu
áfram. Ljóst er að tillaga Sjálfstæðisflokksins um kosningar í maí dugar ekki
ein og sér. Innan Sjálfstæðisflokks er einnig óánægja með samstarfið.
SKOÐANAKÖNNUN Fylgi Sam-
fylkingar hrynur í nýrri skoð-
anakönnun Fréttablaðsins.
Einungis 19,2 prósent segjast
styðja flokkinn og hefur fylgið
ekki verið minna í tvö ár. Sjálf-
stæðisflokkur heldur áfram
að dala og hefur 22,1 prósent
fylgi. Framsókn rís hratt og
segjast nú 16,8 prósent styðja
flokkinn. Fylgið hefur ekki
mælst meira í rúm fimm ár.
Vinstri græn rísa einnig og
hafa 32,6 prósent fylgi. Frjáls-
lyndir nánast standa í stað
með 3,7 prósent fylgi.
Einungis 20,3 prósent styðja
nú ríkisstjórnina og hefur
stuðningurinn aldrei mælst
minni.
Flestir, eða 45,1 prósent
vilja þjóðstjórn fram að næstu
kosningum. Fjórðungur vill
að núverandi ríkisstjórn haldi
áfram þar til kosið er, en 18,2
prósent vilja stjórn Samfylk-
ingar og Vinstri grænna, með
stuðningi Framsóknarflokks.
Sjá síðu 12 / - ss
Fáir styðja ríkisstjórnina:
Fylgi Samfylk-
ingar hrynur
heimili&hönnun
LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2009
● ÍSLENSK HÖNNUN
Áberandi á
Forum Aid 2009
● STELDU STÍLNUM
Forskrift að
fallegri stofu
● INNLIT
Gerðu upp
gamlan bæ
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
JANÚAR 2009