Fréttablaðið - 24.01.2009, Blaðsíða 80
52 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
> ÁNÆGÐ MEÐ VÖXTINN
Leikkonan Anne Hathaway er sérlega
ánægð með ávalar línur Scarlett Jo-
hansson, Reese Witherspoon og Bey-
once Knowles og segir þær vera
góðar fyrirmyndir. Hún segir að
allt snúist um megrun og enginn
mega bera á sér aukakíló. „Það er
ekki bara Hollywood sem sendir
frá sér þessi skilaboð. Samfélagið
í heild sinni hefur uppi óraunhæf-
ar kröfur á líkamsbyggingu ungra
kvenna.“
Hvað er að frétta? Þessa vikuna stendur 10
ára afmæli Q- félags hinsegin stúdenta mest
upp úr. Sem formaður er ég mjög ánægð
með þann árangur sem við höfum náð og
hlakka til að halda baráttunni áfram.
Augnlitur: Brúnn.
Starf: Nemi í sálfræði við Háskóla Íslands.
Fjölskylduhagir: Er í sambandi.
Hvaðan ertu? Fædd í Reykjavík.
Ertu hjátrúarfull? Já, ég á það til að vera
það.
Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: The L-word.
Uppáhaldsmaturinn: Lambakjöt með góðu
meðlæti.
Fallegasti staðurinn: Akureyri.
iPod eða geislaspilari: Ipod.
Hvað er skemmtilegast? Kósí kvöld með
vinahópnum.
Hvað er leiðinlegast? Að vaska upp.
Helsti veikleiki: Fullkomnunarárátta.
Helsti kostur: Geri hlutina af einlægni og er
samviskusöm.
Helsta afrek: Að vera formaður Q-félags
hinsegin stúdenta.
Mestu vonbrigðin? Þrátt fyir að hafa farið
í nokkrar áheyrnarprufur komst ég aldrei í
skólaleikritið í Versló.
Hver er draumurinn? Að flytja aftur til Kan-
ada og ljúka þar framhaldsnámi í sálfræði.
Hver er fyndnastur/fyndnust? Jim Carrey.
Hvað fer mest í taugarnar á þér? Þegar fólk
stendur ekki við orð sín.
Hvað er mikilvægast? Fjölskyldan og
vinirnir.
HIN HLIÐIN ALDÍS ÓLAFSDÓTTIR, FORMAÐUR Q-FÉLAGS HINSEGIN STÚDENTA
Á það til að vera hjátrúarfull
03.01.1987
Spænska leikkonan Penelope
Cruz segir það mikinn heiður af
hafa verið tilnefnd til Óskarsins
fyrir hluterk sitt í Vicky Christ-
ina Barcelona. „Þessi tilnefning
er heiður og hefur mikla þýðingu
fyrir mig,“ sagði Cruz.
„Ég er að eilífu þakklát aka-
demíunni og Woody Allen sem
veitti mér þetta tækifæri. Ég er
mjög ánægð með þá velvild og
þær hamingjuóskir sem ég hef
fengið, sérstaklega frá Spáni,“
sagði hún. „Vonandi get ég farið
með styttuna heim.“ Cruz var
síðast tilnefnd til Óskarsins árið
2007 fyrir hlutverk sitt í Volver.
Heiður að fá
tilnefningu
PENELOPE CRUZ Spænska leikkonan
hefur verið tilnefnd til Óskarsins í annað
sinn.
Leikritaskáldið Václav Havel var
sem kunnugt er í fararbroddi í
flauelsbyltingunni í Tékkóslóvakíu
1989. Hann varð síðan forseti lands-
ins eftir að kommúnistastjórnin
féll. Margir íslenskir rithöfundar
virðast ganga með „Havel í mag-
anum“ og hafa mótmælt kröftug-
lega að undanförnu.
Þó er alls ekkert víst að þeir hafi
áhuga á að verða háttsettir innan
íslenska stjórnkerfisins, þótt það
væri örugglega betri kostur en
margt af því sem boðið er upp á í
dag. Einar Már forseti, Hallgrím-
ur Helgason menntamálaráðherra
– hljómar alls ekki illa.
Kannski eiga skáldin bara auð-
veldar með að komast frá vinnu
en launaþrælarnir sem ekki vilja
hætta á brottrekstur með mót-
mælafríi. Þótt þeir fegnir vildu.
Rithöfundar með
Havel í maganum?
SKÁLD Í FREMSTU RÖÐ Óttar M. Norðfjörð og Steinar Bragi mótmæla við Alþingis-
húsið. Steinar þótti ganga vasklega fram með því að berja á skildi lögreglumanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BÍLL BLÁU HANDARINNAR FÆR AÐ FINNA TIL TEVATNSINS Vígalegur Hallgrímur
Helgason albúinn að láta vaða á bíl forsætisráðherra. Á innfelldu myndinni sést hvar
hann segir Geir til syndanna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LJÓÐRÆN MÓTMÆLI Einar Már Guð-
mundsson hefur mikið lagt til umræð-
unnar, heilu bálkana í Mogganum og
margar ræður. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Rokkararnir í Oasis hafa ákveð-
ið að halda tónleika í Kína í fyrsta
sinn á ferlinum. Gallagher-bræður
og félagar spila í Peking og Sjang-
hæ þriðja og fimmta apríl en áður
höfðu þeir ákveðið að koma fram í
Hong Kong hinn sjöunda þess mán-
aðar. Oasis hefur einnig tilkynnt að
hljómsveitirnar Reverend and the
Makers, Twisted Wheel og The Peth
muni hita upp fyrir hljómsveitina á
tónleikum í Bretlandi í sumar.
Oasis til Kína
OASIS Rokkararnir í Oasis ætla í tón-
leikaferð til Kína í apríl.
MÁLTÍÐ
MÁNAÐARINS
Á KFC
HRÍS
GRJÓ
N EÐ
A
KART
ÖFLU
MÚS
FYLG
IR ME
Ð
699krónur
Aðeins
TRANS-
TAFI
Fjármálaráðgjöf fyrir þig
Kynntu þér málin á www.kaupthing.is, hafðu samband
í síma 444-7000 eða komdu við í næsta í útibúi Kaupþings.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki