Fréttablaðið - 24.01.2009, Blaðsíða 42
24. janúar 2009 LAUGARDAGUR42
Tækni- og umhverfissvið
S E LT J A R N A R N E S B Æ R
A
ug
l.
Þó
rh
.
22
00
.4
43
Á tækni- og umhverfissviði Seltjarnarnesbæjar er
laus til umsóknar staða verkfræðings.
Meðal verkefna á tækni- og umhverfissviði eru: Skipulags-
og byggingamál, rekstur veitna, þjónustumiðstöðvar
og garðyrkjudeildar. Verksamningagerð og sam-
skipti við hönnuði og verktaka, eftirlit með fram-
kvæmdum, umsjón með útboðum og úttektir á
skilum framkvæmda.
Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri tækni- og
umhverfissviðs.
Leitað er að drífandi einstaklingi sem hefur metnað til að
taka þátt í frekari uppbyggingu sviðsins.
Starfssvið og ábyrgð
• Rekstur og umsjón með veitum
• Umsjón með rekstri, viðhaldi og byggingu
gatna, gangstétta og göngustíga
• Umsjón með strandlengju og sjóvarnargörðum
• Umsjón og stjórnun smábátahafnar
• Staðgengill framkvæmdastjóra tækni- og
umhverfissviðs.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun á sviði verkfræði
• Reynsla af rekstri og stjórnun
• Þekking í stefnumótunarvinnu og opinberri
stjórnsýslu er kostur
• Góð tölvu- og tungumálakunnátta
• Hæfni til þess að koma fram og tjá sig í töluðu
og rituðu máli
• Frumkvæði, metnaður og framsýni í starfi.
Verkfræðingur á tækni- og umhverfissviði
óskast til starfa hjá Seltjarnarnesbæ
Um er að ræða tækifæri til að takast á við tækni-
og framkvæmdamál í framsæknu bæjarfélagi þar
sem við taka krefjandi verkefni frá fyrsta degi.
Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Melsted framkvæmda-
stjóri tækni- og umhverfissviðs Seltjarnarnesbæjar,
sími 8998907, olafur@seltjarnarnes.is.
Kjör eru samkvæmt viðeigandi kjarasamningi.
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar eru konur
jafnt sem karlar hvattar til að sækja um stöðuna.
Umsókn sendist á: Bæjarskrifstofur Seltjarnarness,
Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnes merkt:
Verkfræðingur fyrir 13. febrúar 2009, eða með
netpósti á olafur@seltjarnarnes.is fyrir sama tíma.
Umsókn skal greina frá menntun, fyrri störfum og
helstu verkefnum sem umsækjandi hefur tekist á
við á undanförnum árum og sem hann telur að
koma muni að gagni í þessu starfi.
Gætt verður fyllsta trúnaðar varðandi fyrirspurnir og persónulegar
upplýsingar og verður öllum umsóknum svarað.
gtv@gtv.is - www.gtv.is
Rauðhellu 1 - 221 Hafnarfjörður - Sími 580 16 00 Fax 580 16 01
OPNAR Í FEBRÚAR Í GLÆSIBÆ MEÐ HOLLA, FERSKA & FRAMANDI RÉTTI
VIÐ ÓSKUM EFTIR:
MATREIÐSLUMANNI MEÐ ÁHUGA Á HOLLUM & FRAMANDI MAT
GLAÐLEGU STARFSFÓLKI Í SAL MEÐ RÍKA ÞJÓNUSTULUND
& EINSTAKLINGI SEM KANN AÐ ELDA INDVERSKAN MAT
UMSÓKNIR SENDIST Á HAUKVI GMAIL.COM ÁSAMT MEÐMÆLUM