Fréttablaðið - 24.01.2009, Blaðsíða 2
2 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR
Guðjón, er leitun að annarri
eins bók?
„Það má lengi leita.“
Jógakennarinn og rithöfundurinn Guðjón
Bergmann vinnur nú hörðum höndum
að nýrri skáldsögu á ensku sem kallast
The Search, eða Leitin. Bókin fjallar um
leitina að tilganginum í lífinu.
FÓLK „Við höfum ekki enn fundið
Ingólf, en höfum fengið fjöldann
allan af vísbendingum frá fólki
sem telur sig hafa séð hann,“
segir Phillip Krah, eigandi katt-
arins Ingólfs sem týndist þegar
íbúð sem Phillip bjó í ásamt unn-
ustu sinni og vini varð eldi að
bráð í byrjun mánaðarins.
Að sögn Phillips skilja eigend-
urnir daglega eftir mat handa
Ingólfi hjá íbúðinni sem þau
bjuggu í. Maturinn er alltaf étinn,
en þau vita ekki hvort Ingólfur sé
þar á ferð eða aðrir kettir.
Þremenningarnir búa enn á
gistiheimili Hjálpræðishersins
og eru að leita sér að íbúð á leigu.
Þau biðja alla sem gætu gefið
upplýsingar um Ingólf að hafa
samband í síma 862-9498. - kg
Týndu ketti í eldsvoða:
Ingólfur köttur
enn ófundinn
INGÓLFUR Kötturinn er svartur með
hvítar loppur og með hvítan blett á
hálsinum. Hann er ómerktur. HJÁLPARSTARF „Yfirleitt líður mér
óskaplega vel inni á Gasa og fólkið
þar er gott,“ segir Pálína Ásgeirs-
dóttir, sendifulltrúi Alþjóða Rauða
krossins í Palestínu. Mikil sam-
kennd sé meðal Gasabúa, sem
taki erlendum hjálparstarfsmönn-
um fagnandi.
Pálína hefur yfirumsjón með
samskiptum við heilbrigðisstjórn-
völd í Palestínu, bæði á Gasasvæð-
inu og á Vesturbakkanum. Hún
heimsótti Gasa áður en Ísraels-
menn hurfu þaðan fyrr í mánuð-
inum og lenti meðal annars í sól-
arhringslangri árás þeirra. Þá
gisti 120 manna
stórfjölskylda hjá
Rauða krossinum
um nóttina.
„En fólkið á
Gasa er ýmsu vant
og ótrúlega útsjón-
arsamt að bjarga
sér. En það verður
að segjast eins og
er að það er ansi
hart í ári,“ segir
hún. Eymdin hafi ekki hafist með
þriggja vikna stríðinu, því þar á
undan hafi Ísraelsmenn lokað
landamærum í eina 20 mánuði.
„Það var ekkert eðlilegt líf
hérna fyrir, því það var lítið til
af vörum, nema algjörar nauð-
þurftir,“ segir hún. Sem dæmi um
útsjónarsemi fólksins segir hún
að þegar bílarnir urðu eldsneyt-
islausir hafi þeim verið breytt og
þeir gangi nú fyrir gasi. Verðlítil
smámynt sé brædd niður og nýtt
þar sem vantar málma.
Nú hafi sum hverfin verið lögð í
rúst og ýmsir innviðir samfélags-
ins skemmst, svo sem rafmagn,
vatnsleiðslur og skolpræsi.
„Gasabúar eru að horfast í augu
við það sem hefur gerst, bæði að
missa ástvini og heimili. Forsend-
an fyrir uppbyggingarstarfi er að
landamærin opnist fyrir bygging-
arefni, mat og aðrar vörur, en for-
gangsatriði okkar er að styðja við
um 50.000 manns sem eiga ekki
þak yfir höfuðið og geta ekki fætt
sig og klætt,“ segir hún.
Rauði krossinn starfi mikið með
palestínska Rauða hálfmánanum,
en sjúkrahús þeirra og sjúkrabíl-
ar urðu fyrir sprengjum Ísraela í
árásunum, og skemmdust mikið.
klemens@frettabladid.is
Pálína kann vel við
sig á Gasasvæðinu
Pálína Ásgeirsdóttir er á vegum Rauða krossins í Palestínu og segir að sér líði
yfirleitt óskaplega vel á Gasasvæðinu, þar sem fólkið sé afar vingjarnlegt og út-
sjónarsamt. Ansi hart sé í ári og Ísraelar verði að opna leiðir fyrir nauðþurftir.
BELGÍA, AP Geðbilaður maður vopnaður hnífi óð inn á
barnadagheimili í flæmskum bæ í gær og stakk þar
alla sem á vegi hans urðu. Tvö ungbörn dóu og ein
fóstra. Tíu börn til viðbótar liggja mismikið særð á
sjúkrahúsi. Meiðsli sumra þeirra kváðu vera alvar-
leg.
Christian Du Four, saksóknari í umdæminu sem
dagheimilið Fabeltjesland í bænum Dendermonde
tilheyrir, segir að í ringulreiðinni sem berserks-
gangur hans olli gekk árásarmaðurinn út, settist upp
á reiðhjól sitt og hélt sína leið. Hann var handtekinn
í nærliggjandi matvöruverslun skömmu síðar.
„Við erum öll í algeru áfalli,“ sagði Leene Du
Bois, talsmaður fylkisstjórnar Flandurs. „Enginn
hefði getað ímyndað sér að nokkur maður væri fær
um að gera annað eins. Við erum öll harmi slegin.“
Hún bætti við að árásarmaðurinn hefði engin tengsl
við dagheimilið.
Samkvæmt upplýsingum fjölmiðla er maðurinn
geðsjúkur.
Bæjaryfirvöld opnuðu áfallahjálparmiðstöð þar
sem fórnarlömbum árásarinnar og vitnum að henni
bauðst sálfræðiaðstoð. - aa
Geðbilaður maður ræðst með hníf á lofti inn á dagheimili í Belgíu:
Stakk á annan tug ungbarna
HARMUR Tvö ungbörn dóu og ein fóstra þegar maðurinn réðst
inn á barnaheimilið. Tíu ungbörn eru mikið særð.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Flaug út af veginum
Ökumaður missti stjórn á bíl
sínum á veginum yfir Fjarðarheiði,
milli Seyðisfjarðar og Egilsstaða, á
fimmtudagsmorguninn með þeim
afleiðingum að bíllinn flaug 25 metra
út af veginum. Maðurinn var fluttur
á sjúkrahúsið á Egilsstöðum. Meiðsl
hans eru ekki talin alvarleg.
LÖGREGLUFRÉTTIR
PÁLÍNA ÁSGEIRS-
DÓTTIR
Íslendingar gengu lengra, pólitískt séð, en Norðmenn vegna árásar Ísraela
á Gasasvæðið, eftir því sem Össur Skarphéðinsson, starfandi utanríkisráð-
herra, segir.
Norðmenn hafa í gegnum tíðina gengið Norðurlandaþjóða lengst í friðar-
ferlinu í Mið-Asturlöndum og stundum gegn vilja Ísraelsmanna. Össur segir
að í þessum málum fylgi Íslendingar „rauðgrænu stjórninni“ í Noregi, en hafi
gengið lengra í þetta skiptið.
„[Norðmenn] tóku örugglega vel á móti [menntamálaráðherra Ísraels],“
segir Össur, sem afþakkaði fyrr í mánuðinum heimsókn ráðherrans, sem fór
til landa sem Ísraelsmenn töldu hafa fengið „brenglaða mynd“ af árásunum.
Norðmenn og Svíar fordæmdu mjög árásirnar á Gasa og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra gerði það einnig.
GENGUM LENGRA EN NORÐMENN
Á GASA Pálína segir fólkið á Gasa vera ýmsu vant og ótrúlega útsjónarsamt að
bjarga sér. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Kaup stjórnar Glitnis á
bréfum Bjarna Ármannssonar,
fyrrverandi forstjóra, á yfirverði,
voru dæmd ólögleg í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær. Stjórnin hafði
keypt bréfin á genginu 29, en
markaðsvirði þeirra kaupdaginn
var 26,66.
Vilhjálmur Bjarnason, einn
hlutahafa Glitnis, kærði kaupin.
Hann byggði bótakröfu sína á því
að honum hefði ekki boðist að selja
bréfin á sama gengi og Bjarni.
Héraðsdómur tók undir rökstuðn-
ing Vilhjálms og komst að þeirri
niðurstöðu að stjórnin hefði hvorki
gætt hagsmuna bankans né hlut-
hafa við söluna.
„Það var gengið að öllum mínum
kröfum. Sigurinn í málinu bygg-
ist á einfaldleikanum, þetta voru
bara einföld lagarök sem dómari
staðfesti,“ segir Vilhjálmur. Hann
segist eiga von á því að staðfesti
Hæstiréttur niðurstöðuna fylgi
fleiri málaferli í kjölfarið. Ef
Hæstiréttur staðfesti ekki dóm-
inn ríki tvenn lög í landinu.
„Já þetta kallar á mun fleiri
málaferli, en ætti svo sem ekki
að breyta miklu. Það er ekki verið
að breyta lögum, heldur verið að
framfylgja lögum sem hafa verið
fótum troðin.“
Fyrrverandi stjórnarmenn
Glitnis sendu frá sér yfirlýsingu
í gær. Þar kom fram að dómnum
yrði áfrýjað til Hæstaréttar, enda
væri hann rangur. - kóp
Vilhjálmur segir úrskurð héraðsdóms kalla á fleiri málaferli:
Kaup á bréfum Bjarna ólögleg
VILHJÁLMUR BJARNASON Hann á von á
því að mun fleiri málaferli komi í kjölfar-
ið. FRÉTTABLAÐIÐ/E. ÓL
EFNAHAGSMÁL Horfur eru enn nei-
kvæðar hér á landi, samkvæmt
árlegu mati alþjóðlega matsfyrir-
tækisins Moody‘s á stöðu ríkis-
sjóðs. Lánshæfiseinkunn stendur
áfram í Baa1. Þá segir Moody‘s
nokkra óvissu um stöðu efnahags-
mála sem geti breyst fyrirvaralít-
ið. Fyrirtækið hefur lækkað láns-
hæfiseinkunnir landsins tvívegis
eftir bankahrunið.
Moody‘s segir að þrátt fyrir
skugga gríðarlegrar skuldabyrði
sé staðan ágæt til lengri tíma litið
þar sem menntunarstig sé hátt og
vinnumarkaðurinn sveigjanlegur.
Það geti hjálpað til við endurreisn
þjóðarskútunnar. - jab
Staðfestar neikvæðar horfur:
Jákvæð merki í
svartnættinu
VIÐSKIPTI Nýherji tapaði 1,2 millj-
örðum króna á síðasta ári. Til
samanburðar hagnaðist fyrirtæk-
ið um 420 milljónir króna 2007.
Haft er eftir Sverri Þórðar-
syni, forstjóra Nýherja, að upp-
gjörið beri merki skyndilegra
sviptinga í rekstarumhverfi fyr-
irtækja hér eftir fall bankanna
og stórfellda lækkun á gengi
krónu á seinni hluta árs.
Hremmingarnar endurspeglast
í tapi Nýherja upp á 507 milljón-
ir króna á síðasta fjórðungi árs-
ins samanborið við 117 milljóna
króna hagnað árið á undan. - jab
Sviptingar í afkomu Nýherja:
Tapaði rúmum
milljarði króna
SAMFÉLAGSMÁL Hátt í þrjú hundr-
uð tilnefningar hafa borist vegna
samfélagsverðlauna Fréttablaðs-
ins sem veitt verða þann 5. mars.
Steinunn Stefánsdóttir, aðstoð-
arritstjóri Fréttablaðsins og for-
maður dómnefndar, hvetur alla
til að nota helgina í að tilnefna
verðuga einstaklinga eða hópa.
„Ég minni sérstaklega á flokkana
frá kynslóð til kynslóðar og til
atlögu gegn fordómum. Á þessum
sviðum er fólk að vinna ómetan-
legt starf sem gaman er að vekja
athygli á.“
Frestur til að skila inn tilnefn-
ingum rennur út á mánudag. - hhs
Samfélagsverðlaunin veitt:
Þrjú hundruð
verið tilnefnd
VERÐLAUNAHAFAR 2008 Samfélagsverð-
laun Fréttablaðsins verða veitt í fjórða
sinn þann 5. mars. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SPURNING DAGSINS