Fréttablaðið - 24.01.2009, Page 4

Fréttablaðið - 24.01.2009, Page 4
4 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR Óvissa í stjórnmálum og kosningar framundan VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 5° 5° 1° 3° 5° 6° 4° 3° 2° 3° 18° 15° 8° 5° 19° 3° 22° 13° Á MORGUN Stíf NA-átt NV-til, annars hæg breytileg. MÁNUDAGUR Hæg suðlæg átt. 5 4 2 4 3 4 4 6 5 6 2 8 14 15 11 9 13 10 15 8 13 7 1 2 2 3 3 2 0 -2 -1 2 VINDUR OG VÆTA Í dag verður allhvasst norðvest- anlands en mun hægara syðra.Það lægir til morg- uns og má búast við fl ottu veðri suðvestanlands og í höfuðborginni en dálítil úrkoma ann- ars staðar. Þurrt að mestu á mánudag en hvessir SV-til um kvöldið. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður „Það er minnsta málið að boða til kosninga, en meira mál að takast á við aðkallandi verkefni sem við verðum að sinna, hvort sem okkur líkar betur eða verr,“ segir Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. Ekki er víst á þessari stundu hvort ríkisstjórnin starfar áfram fram að kosningum, segir Ingi- björg. Ótímabært sé að fullyrða um það fyrr en hún hafi rætt við Geir H. Haarde forsætisráðherra. Þau munu ræða saman í dag og fara yfir stöðuna. „Það sem við munum gera er að sjá til þess að það sé stjórn í land- inu, þó að óróleikinn sé mikill og óvissan getur staðan orðið mikið verri ef það er ekki starfandi rík- isstjórn í landinu fram að kosning- um,“ segir Ingibjörg. Hún segir að ekkert óafturkræft hafi gerst sem komi í veg fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylk- ingin geti starfað saman, ef flokk- arnir séu sammála um þau verk- efni sem þurfi að sinna. Margir í grasrót Samfylking- arinnar hafa lýst sig andsnúna áframhaldandi stjórnarsam- starfi. Ingibjörg segir mikilvægt að hlusta á grasrótina, en hún hafi verið kosin til að tala, vinna og hafa skoðanir. Geir sagði í yfirlýsingu í gær að þingflokkur Sjálfstæðisflokks- ins vilji að gengið verði til alþing- iskosninga 9. maí næstkomandi. Ingibjörg segir þá dagsetningu vel koma til greina. Þetta sé hug- mynd sem fara verði betur yfir. Ræða þurfi málið við formenn hinna stjórnmálaflokkanna. Verði það niðurstaðan að kosið verði í vor verður landsfundi Sam- fylkingarinnar flýtt, og hann hald- inn nokkru fyrir kosningar, segir Ingibjörg Sólrún. Ingibjörg kom til landsins seinni- part dags í gær, eftir að hafa und- irgengist læknismeðferð í Svíþjóð. Hún fékk þær fréttir í gærmorgun að mein í höfði hennar sé allt góð- kynja og hún muni því líklega ná sér að fullu. Ingibjörg segir ótrúlegt að upp- lifa það að fá í gærmorgun ein- hver þau bestu tíðindi sem hún hafi fengið af eigin veikindum, og fá svo skömmu síðar þau ótíðindi af heilsufari Geirs að hann hafi greinst með illkynja krabbamein í vélinda. „Mér er til efs, og ég segi það hvorki mér eða Geir til lofs eða lasts, að nokkrir tveir forystu- menn í ríkisstjórn hafi áður setið með fangið svona fullt, bæði af verkefnum í landsmálunum og í sínu persónulega lífi,“ segir Ingi- björg Sólrún. Ingibjörg mun verða frá vinnu eitthvað áfram vegna veikinda sinna, en mun ekki þurfa að leggj- ast inn á sjúkrahús eins og áður var talið nauðsynlegt. brjann@frettabladid.is Ekki víst að stjórnin haldi segir Ingibjörg Ótímabært er að tala um hvort núverandi ríkisstjórn starfi áfram fram að kosn- ingum í vor segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Formenn flokkanna ræða fram- haldið í dag. Til greina kemur að kjósa 9. maí en ræða þarf dagsetninguna. GÓÐAR OG SLÆMAR FRÉTTIR Ingibjörg Sólrún Gísladóttir kom til landsins í gær. Hún fékk góðar fréttir af eigin veikindum í gær, en sama dag fékk hún slæmar fréttir af heilsu Geirs H. Haarde forsætisráðherra. MYND/VÍKURFRÉTTIR Erfitt gæti verið fyrir Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu að starfa áfram saman í ríkis- stjórn, segir Kristján Þór Júlíusson, þing- maður Sjálf- stæðisflokks- ins. Stjórnar- samstarf verð- ur að byggja á trausti milli flokkanna, og ekki er víst að það sé til staðar eftir yfirlýsingu varaformanns Samfylkingarinnar um að hann telji stjórnarsamstarfið búið, og eftir yfirlýsingar grasrótarinnar, segir Kristján Þór. Útspil Samfylkingarinnar eru einfaldlega ekki traustvekjandi, sem kallar á breytt vinnubrögð ætli flokkarnir sér að vinna saman fram að kosningum í vor, segir Kristján Þór. - bj Samstarf gæti verið erfitt: Útspilin ekki traustvekjandi Ármann Kr. Ólafsson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokksins, segir að í ljósi allra aðstæðna hafi frestun landsfundar og tillaga um kosn- ingar 9. maí verið það eina rétta. Yfirlýsingar Samfylkingar- manna upp á síðkastið hafi þrengt kostina enda virðist Sam- fylkingin þrír flokkar en ekki einn og erfitt sé að starfa í fjög- urra flokka rík- isstjórn. „Innan Sam- fylkingarinn- ar starfa græni armurinn, gamla Alþýðubandalagið og svo hægri kratarnir,“ segir Ármann. Þinglið Sjálfstæðisflokksins sé hins vegar samhent. „Við stönd- um þétt saman eins og ábyrgur flokkur þarf að gera á stundum sem þessari. Við hlaupum ekki frá erfiðum verkefnum og þess vegna er skynsamlegast að láta þennan tíma líða fram að kosn- ingum. En það er háð því að hægt sé að ganga í þau verkefni sem fram undan eru og Sjálfstæðis- flokkurinn setur á oddinn.“ Spurður hvað verði ef Samfylk- ingin gangist ekki inn á að kjósa 9. maí segir Ármann að þá sé hún að hlaupast undan ábyrgð. „Við gerum það hins vegar ekki.“ - bþs Þingmaður Sjálfstæðisflokks: Fjögurra flokka stjórn erfið ÁRMANN KR. ÓLAFSSON KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUSSON Landsfundur Vinstri grænna verður haldinn í mars, en hann hefði átt að vera í haust. Formað- ur og varaformaður reikna með að gefa kost á sér áfram. „Þau eru mörg verkin sem þarf að vinna núna og því flýttum við fundi. Við hefðum viljað kjósa í apríl því það þarf að skýrast sem fyrst hvernig stjórn landsins verður háttað. Það er engan bil- bug á mér að finna ef stemning- in er þannig í okkar herbúðum,“ segir Steingrímur J. Sigfússon um áframhaldandi formennsku. Katrín Jakobsdóttir, varafor- maður, segist ekki hafa leitt hug- ann að framboði sínu. Hún sjái þó ekki fram á róttækar breytingar hjá sér. - kóp Vg flýtir landsfundi sínum: Landsfundur Vg verður í mars FORYSTAN Steingrímur hefur verið formaður frá stofnun Vg, en flokkurinn á 10 ára afmæli í febrúar. Katrín varð varaformaður á landsfundi 2005. FRÉTTABLAÐIÐ/E. ÓL „Mörg ríki hafa farið í gegnum kosningar og sum hafa jafnvel skipt um ríkisstjórn á meðan unnið er eftir áætlun Sjóðsins, án þess að áætlunin truflist mikið,“ segir Mark Flanagan, yfirmaður áætlunar Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins gagnvart Íslandi, í tölvupósti til Fréttablaðsins, aðspurður hvort kosningar eða breytt rík- isstjórn myndi hafa áhrif á sam- starfið við sjóðinn. „Áætlanir Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins styðja góðar stefnur og eins lengi og viðeigandi stefna er við lýði á Íslandi mun áætlunin halda áfram.“ - ss Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn: Styður stefnu en ekki flokka Sextándi laugardagurinn Raddir fólksins boða til mótmæla á Austurvelli í dag, sextánda laugar- daginn í röð. Kröfur hópsins eru að ríkisstjórnin víki, svo og stjórnendur Fjármálaeftirlits og Seðlabanka, og að kosið verði svo fljótt sem unnt er. MÓTMÆLI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.