Fréttablaðið - 24.01.2009, Qupperneq 6
6 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR
Óvissa í stjórnmálum og kosningar framundan
Ef þið eruð atvinnulausir
Hafið samband við skrifstofuna
eða skoðið vefinn rafis.is
og athugið hvaða
úrræði eru í boði.
Eins og öðrum var Þorgerði Katr-
ínu Gunnarsdóttur, menntamála-
ráðherra og varaformanni Sjálf-
stæðisflokksins, brugðið eftir
tíðindin sem Geir H. Haarde færði
samflokksmönnum sínum í Valhöll
í gær. „Ég er slegin yfir þessum
tíðindum og get ekki hugsað um
annað að svo stöddu,“ sagði Þor-
gerður við fréttamenn í Valhöll í
gær.
Í samtali við Fréttablaðið sagði
hún að í ljósi stöðunnar væri óum-
flýjanlegt að kjósa í vor. Hins
vegar væri það ekki besti kostur-
inn með tilliti til efnahagsástands-
ins. Benti hún á að fræðimenn
teldu að vegna kosninga hefði
kreppan í Finnlandi á fyrrihluta
tíunda áratugarins lengst um tvö
ár. Svíar hefðu á hinn bóginn kom-
ist fyrr en ella út úr sínum efna-
hagsþrengingum þar sem ekki var
gengið til kosninga.
Þorgerður segir að nú bíði for-
manna stjórnarflokkanna; Geirs
og Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur utanríkisráðherra, að ræða
framhaldið. „Þau fara yfir málin
á morgun [í dag]. Þau hafa bæði
sýnt mikla ábyrgð og gera sér
grein fyrir erfiðri stöðu efna-
hagsmálanna og að taka þurfi erf-
iðar ákvarðanir sem þola ekki bið
fram yfir kosningar.“ Þær ákvarð-
anir snúi að samskiptum og eftir-
fylgni vegna samkomulagsins við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og ríkis-
fjármálunum.
Þorgerður kveðst búast við að
Samfylkingin fallist á kosningar
9. maí en formennirnir eigi eftir
að ná um það sátt. Dagsetningin
gæti þó hnikast eitthvað til.
Þorgerður var kjörin varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins á
landsfundi 2005, þegar Geir varð
formaður. Hún segist ætla að velta
því fyrir sér í rólegheitum hvort
hún muni sækjast eftir formanns-
embættinu á landsfundinum í lok
mars. „Ég tel eðlilegt að varafor-
maður íhugi að leita eftir því að
verða formaður en ætla að fara
yfir það með mínu fólki.“
Spurð hvort ástandið í samfélag-
inu muni róast við að Sjálfstæð-
isflokkurinn lýsi yfir vilja til að
kjósa í maí, kveðst Þorgerður telja
það. „Að mörgu leyti er komið til
móts við kröfur fólks um kosning-
ar og ég held að þetta kæli samfé-
lagið aðeins. En það er aldrei hægt
að taka ákvarðanir sem róa alla,“
segir Þorgerður.
bjorn@frettabladid.is
Kosningar geta lengt
kreppuna um tvö ár
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins segir að úr því sem komið var sé nauðsyn-
legt að kjósa í vor. Engu að síður kunni að lengja í kreppunni vegna kosninga.
Ríkisstjórnar bíði erfiðar ákvarðanir. Hún veltir formannsframboði fyrir sér.
AÐ MIÐSTJÓRNARFUNDI LOKNUM Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var slegin eftir tíðindin sem Geir færði samstarfsfólki sínu í
Sjálfstæðisflokknum á fundi miðstjórnar í Valhöll í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Það var mun eðlilegra
áður fyrr að stjórnir
sætu ekki út kjörtímabil-
ið. Fyrir 1988 er það eig-
inlega bara Viðreisnar-
stjórnin sem svo gerir,“
segir Guðni Th. Jóhann-
esson sagnfræðingur.
Árið 1988 sprakk ríkis-
stjórn Sjálfstæðisflokks,
Alþýðuflokks og Fram-
sóknarflokks, undir for-
sæti Þorsteins Pálssonar. Árið
1983 hefðu kosningar með réttu átt
að vera í desember. Ákveðið var þó
að flýta þeim og voru þær haldnar
í apríl það ár. Ríkisstjórn Gunnars
Thoroddsen, sem þá sat, var orðin
mjög veik, en hafði nægan þing-
styrk til að verjast vantrausti.
Árið 1979 sprakk ríkisstjórn
Ólafs Jóhannessonar, formanns
Framsóknarflokksins, með látum,
þegar Alþýðuflokkurinn hætti
stuðningi við hana. Ólafur rauf þó
ekki þing, heldur kom það í hlut
Benedikts Gröndal, for-
manns Alþýðuflokksins,
sem var í forsvari minni-
hlutastjórnar sem sat fram
að kosningum í desember.
Fyrri ríkisstjórn Ólafs
sprakk einnig árið 1974.
„Það varð sögulegt að því
leyti að þegar líf henn-
ar var alveg á enda var
búið að leggja fram van-
trauststillögu á stjórnina
og meirihluti var fyrir því. Ólaf-
ur varð hins vegar fyrri til og rauf
þing og því kom vantraust ekki til
atkvæða,“ segir Guðni.
Stjórn Hermanns Jónassonar
fór frá völdum árið 1958, tveimur
árum eftir stofnun. Stjórnin hafði
tekið við af stjórn Ólafs Thors,
en hann hafði boðað til kosninga
ári áður en kjörtímabili lauk. Að
lokum má nefna að Stefanía, stjórn
undir forsæti Stefáns Jóhanns Stef-
ánssonar formanns Alþýðuflokks-
ins, sat frá 1947 til 1949. - kóp
Sjö ríkisstjórnir hafa sprungið frá lýðveldisstofnun:
Stjórnarslit voru tíð
GUÐNI TH.
JÓHANNESSON
„Þetta eru óskemmtileg tíðindi.
Geir á alla mína samúð,“ segir
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
um veikindi
Geirs Haarde.
Gylfi segist
fagna þeirri
ákvörðun að
boða til kosn-
inga í maí. „Ég
hafði sjálf-
ur komist að
þeirri niður-
stöðu að þetta
væri eina færa
leiðin. Við töld-
um að ekki væri hægt að halda
áfram viðræðum um endurskoð-
un kjarasamninga við ríkis-
stjórn sem er nánast umboðslaus.
Þó er áhyggjuefni að fyrirtæki
og heimili standa frammi fyrir
vandamálum í dag. Hvað sem
öðru líður munum við halda
áfram að þýsta á ríkisstjórn-
ina að teknar verði ákvarðanir
strax,“ segir Gylfi. - kg
Forseti ASÍ:
Fagnar boðun
kosninga í maí
„Kosningar voru svo sem komn-
ar á sjónarsviðið með einum eða
öðrum hætti. Aðalatriðið er að út
úr því ferli öllu komi einhver vilji
og geta til að
taka framtíðar-
ákvarðanir,
sem skila þjóð-
inni áfram
en ekki aftur
á bak,“ segir
Vilhjálm-
ur Egilsson,
framkvæmda-
stjóri Samtaka
atvinnulífsins.
Vilhjálmur
segist sleginn yfir fregnum af
veikindum Geirs Haarde. „Þetta
er mjög slæmt og ég vona inni-
lega að hann nái sér af þessum
veikindum. En verkefni ríkis-
stjórnarinnar er að halda áfram
að vinna. Það þarf að taka marg-
ar ákvarðanir því mörg mál sem
snerta fjármálakerfið í landinu
eru ókláruð,“ segir Vilhjálmur. - kg
Framkvæmdastjóri SA:
Mörg mál eru
enn ókláruð
GYLFI
ARNBJÖRNSSON VILHJÁLMUR
EGILSSON
Margir líta formannssæti í Sjálfstæðisflokknum hýru
auga, nú þegar Geir H. Haarde hefur lýst því yfir að hann
hyggist ekki sækjast eftir endurkjöri sem formaður á
landsfundi í mars. Staðan er algerlega breytt eftir tíðindi
gærdagsins, enda var fram að því reiknað með að Geir
myndi sækjast áfram eftir embættinu.
Heimildarmenn Fréttablaðsins segja líklegt að Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður flokksins,
muni sækjast eftir formannssætinu. Hún hefur þó ekki
tilkynnt opinberlega hvort hún sækist
eftir embættinu.
Aðrir sem taldir eru líklegir til
að bjóða sig fram til formanns eru
þingmennirnir Bjarni Benediktsson
og Kristján Þór Júlíusson og Guð-
laugur Þór Þórðarson heilbrigðis-
ráðherra.
Enginn þeirra vildi í gær stað-
festa að þeir sæktust eftir emb-
ættinu, en enginn útilokaði
það heldur. Tæpar átta
vikur eru í landsfund
Sjálfstæðisflokksins
og því ljóst að þeir
sem sækjast eftir
æðstu embættum
flokksins hafa
skamman tíma til
að gera upp hug sinn og hefja baráttu. Sumir heimild-
armanna Fréttablaðsins telja líklegt að Sjálfstæðisfólk
utan þingflokksins muni sækjast eftir æðstu metorðum
á landsfundi í vor. Margir nefndu nafn Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur borgarstjóra í því sambandi. Ekki náðist í
Hönnu Birnu vegna málsins í gær. - bj
Gjörbreytt staða í Sjálfstæðisflokknum við brotthvarf Geirs H. Haarde:
Stefnir í átök um formannsembættið
BJARNI
BENEDIKTSSON
HANNA BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
KRISTJÁN ÞÓR
JÚLÍUSSON
GUÐLAUGUR ÞÓR
ÞÓRÐARSON