Fréttablaðið - 24.01.2009, Page 8
8 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR
„Það er skýrt af okkar hálfu að við hefðum viljað kjósa
fyrr, helst síðustu helgi fyrir páska. En nú verða formenn
flokka að hittast og ræða fyrirkomulag kosninga og fleira
þess háttar,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna.
Hann segir ótrúlegt að þær aðstæður komi upp að
formenn beggja stjórnarflokkanna séu veikir á sama tíma.
„Það virðist ekki eiga af okkur að ganga með ótíðindi af
þessu tagi. Ég sendi Geir og fjölskyldu hans allar mínar
bestu óskir og vona að honum farnist vel í þessari glímu.
Hann tekur skynsamlega ákvörðun að draga sig í hlé og
hlúa að heilsu sinni.“ - kóp
„Við reglubundna læknisskoð-
un á Landsspítalanum í síðustu
viku kom í ljós hjá mér lítið æxli
í vélinda. Síðastliðinn þriðjudag
var mér greint frá því að rann-
sóknir hefðu leitt í ljós að æxlið er
illkynja.“
Á þessum orðum hófst yfirlýs-
ing sem Geir H. Haarde, forsætis-
ráðherra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins, flutti blaðamönnum í
beinni útsendingu útvarps og sjón-
varps í Valhöll í hádeginu í gær.
Óhætt er að segja að fram að því
hafi menn búist við öllu öðru.
Ólga í pólitík og þjóðlífinu
almennt síðustu daga kallaði á við-
brögð forystumanna í stjórnmálum.
Að morgni fimmtudags var ákveð-
ið að miðstjórn Sjálfstæðisflokks-
ins skyldi funda í hádeginu daginn
eftir. Eftir ríkisstjórnarfund í gær-
morgun sagðist Geir ætla að ræða
við blaðamenn klukkan hálf eitt.
Reiknað var með að hann myndi
flytja pólitísk tíðindi. Sem hann
gerði. En þau féllu í skugga fregna
af veikindunum.
Geir upplýsti að hann muni gang-
ast undir aðgerð erlendis um eða
skömmu eftir næstu mánaðamót.
Hann kvaðst bjartsýnn á að sigrast
á veikindunum enda segðu læknar
batahorfur ágætar og að hann gæti
vænst þess að halda fullri starfs-
orku á næstu mánuðum. Þó væri
ekki hægt að útiloka að mál þróuð-
ust til verri vegar.
Geir kvaðst hafa ákveðið að
sækjast ekki eftir endurkjöri sem
formaður Sjálfstæðisflokksins
og sagði það auðvelda ákvörðun-
ina að flokkurinn ætti úr breiðum
hópi mikilhæfra forystumanna að
velja. Greindi hann frá því að þing-
flokkur Sjálfstæðisflokksins vildi
að gengið yrði til alþingiskosninga
9. maí. „Ég legg áherslu á að ríkis-
stjórnin vinni áfram ótrauð fram
að kosningum að þeim verkefnum
sem brýnust eru til bjargar heim-
ilum og fyrirtækjum í landinu,“
sagði Geir. Jafnframt upplýsti hann
að landsfundur Sjálfstæðisflokks-
ins verði dagana 26.-29. mars.
Geir hyggst gegna embætti for-
sætisráðherra þar til ný ríkisstjórn
hefur verið mynduð. Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, mennta-
málaráðherra og varaformaður
Sjálfstæðisflokksins, mun gegna
embætti hans á meðan hann gengst
undir aðgerðina. Þegar ný ríkis-
stjórn tekur við, lýkur pólitískum
ferli Geirs H. Haarde.
bjorn@frettabladid.is
Óvissa í stjórnmálum og kosningar framundan
Iðnaðarráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu
Átaki til atvinnusköpunar.
Átak til atvinnusköpunar veitir styrki til nýsköpunarverkefna og
markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja.
Markmið verkefnisins
Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlot-
ið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta.
Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða í
frumkvöðla- og sprotafyrirtækum.
Í umsókn þarf að koma fram
Skýr lýsing á verkefninu í heild og ætluðum árangri þess
Greining á nýnæmi verkefnisins
Greinargóðar kostnaðar- og verkáætlanir
Ýtarleg lýsing á þeim verkþáttum sem sótt er um styrk til, s.s. þró-
unarvinnu og markaðsstarfs.
Styrkir geta að hámarki numið 50% af heildarkostnaði verkefnisins.
Ekki eru veittir styrkir til fjárfestinga s.s. í tækjum og búnaði.
Rafræn umsóknareyðublöð eru á www.impra.is.
Beiðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið hb@nmi.is.
Umsóknarfrestur er til 17. febrúar n.k.
Impra á Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Keldnaholti, 112 Reykjavík
Á markað með snjöll
nýsköpunarverkefni?
Átak til atvinnusköpunar:
„Ég tel þörf á því að forystumenn allra flokka verði nú
kallaðir saman hið fyrsta,“ segir Guðjón Arnar Kristjánsson,
formaður Frjálslynda flokksins. „Það þarf að ákveða hvaða
mál á að fara með í gegnum þingið áður en því verður
slitið og menn hefja sína kosningabaráttu. Síðan þætti mér
eðlilegt að við fengjum einhverja áfangaskýrslu frá sann-
leiksnefnd áður en gengið er til kosninga jafnvel þótt hún
eigi ekki að skila fyrr en í nóvember.“ Síðan vék hann að
veikindum forsætisráðherra. „En mér er eins og mörgum
öðrum mjög brugðið og ég óska þess að allt fari á besta
veg hjá Geir H. Haarde.“ - jse
Spyr um þinghald
GUÐJÓN ARNAR
KRISTJÁNSSON
„Ég var á aukafundi með þingflokknum og þar var mönn-
um náttúrulega brugðið vegna fregnanna um Geir og við
sendum honum bestu kveðjur og ósk um skjótan bata,“
sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, í gær.
„En niðurstaðan var sú að tilboð okkar stendur enn um
að verja minnihlutastjórn Samfylkingar og Vinstri grænna
þrátt fyrir að það stefni í kosningar í vor. Við teljum að það
verði afar erfitt fyrir núverandi ríkisstjórn að vinna áfram,
sérstaklega í ljósi álita sem komið hafa fram á undanförn-
um dögum og vitna um mikla óeiningu þar á bæ.“ - jse
Tilboðið stendur
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
TÍÐINDIN FLUTT Geir H. Haarde upplýsti um veikindi sín og brotthvarf úr stjórnmálum á fundi með blaðamönnum í Valhöll í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Vélindað tengir saman kokið og
magann. Krabbamein í vélinda er
fremur sjaldgæft hér á landi en að
meðaltali greinast tíu ný tilfelli á ári
hjá körlum og helmingi færri hjá
konum. Samkvæmt upplýsingum
frá Krabbameinsskrá eru horfur
sjúklinga með vélindakrabbamein
almennt ekki góðar þar sem það er
tiltölulega sjaldgæft að hægt sé að
fjarlægja allan æxlisvefinn í aðgerð.
„Horfurnar fara alveg eftir því
á hvaða stigi krabbameinið er
þegar það greinist,“ segir Agnes
Smáradóttir, krabbameinslæknir á
Landspítalanum. „Þannig að ef það
greinist snemma þá eru horfurnar
miklu betri heldur en þegar það
greinist seint.“
Skurðaðgerðir við vélindakrabba-
meini eru gerðar hér á landi. „Þetta
eru með stærri aðgerðum sem
gerðar eru og í einstaka tilfell-
um þarf að beita aðferðum sem
tækjabúnaður hér á landi býður
ekki upp á og þá leitum við út fyrir
landsteinana.“
Hún segir það ekki hafa verið
sannað vísindalega að streita sé
orsakavaldur krabbameina.
VÉLINDAKRABBAMEIN ER SJALDGÆFT
Geir hættir í
stjórnmálum
Geir H. Haarde lætur af embætti formanns Sjálf-
stæðisflokksins á landsfundi í lok mars. Hann gengst
undir læknisaðgerð í útlöndum innan nokkurra
daga. Geir vill alþingiskosningar 9. maí og leggur
áherslu á að ríkisstjórnin starfi fram að þeim.
Geir H. Haarde er fæddur 8. apríl
1951. Hann tók stúdentspróf frá MR
og lærði hagfræði og alþjóðastjórn-
mál í Bandaríkjunum.
Geir vann í alþjóðadeild Seðla-
bankans 1977-1983 og var næstu
fjögur ár aðstoðarmaður fjármála-
ráðherranna Gunnars Thoroddsen
og Þorsteins Pálssonar. Árið 1987
var hann kjörinn á þing og situr nú
sitt sjötta kjörímabil. Hann var þing-
flokksformaður Sjálfstæðisflokksins
1991-1998.
Geir var formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna 1981-1985,
varaformaður flokksins 1999-2005
og hefur verið formaður síðan 2005.
Hann var fjármálaráðherra 1998-
2005, utanríkisráðherra 2005-2006
og varð forsætisráðherra 2006.
TÆP 30 ÁR Í ELDLÍNU STJÓRNMÁLANNA
STEINGRÍMUR J.
SIGFÚSSON
Hefði viljað kjósa fyrr