Fréttablaðið - 24.01.2009, Side 46
Fagráð vöruþróunarverkefnisins
Hönnun í útflutning hefur nú valið
sex tillögur af 65 tillögum hönnuða
sem bárust. Enn á eftir að velja til-
lögu fyrir fyrirtækið JS Gull. Sess-
elja Thorberg vöruhönnuður var
einn þeirra hönnuða sem valdir
voru til samstarfs við fyrirtæki í
verkefninu og hannaði hún fyrir
Villimey ehf.
„Sjö fyrirtæki voru valin til að
taka þátt en hvert fyrirtæki fær
styrk sem nemur 550 þúsund krón-
um frá Útflutningsráði til að setja
í hönnunarvinnuna en fyrirtækin
leggja út jafnháa upphæð á móti.
Markmiðið er að leiða saman fyr-
irtæki og hönnuði til að hanna og
framleiða nýja vöru til útflutn-
ings,“ segir Sesselja og bætir við
að mismunandi hafi verið hverju
fyrirtækin vildu ná fram með sam-
keppninni.
„Villimey vildi fá nýjar umbúðir
fyrir sínar vörur sem eru náttúru-
leg krem og smyrsl úr handtíndum
jurtum á Vestfjörðum. Sú hugmynd
heillaði mig mest. Var það meðal
annars vegna þess að mér fannst
kominn tími til að gera eitthvað rót-
tækt með þeirra umbúðir sem eru
svolítið barn síns tíma. Mér fannst
því mesta áskorunin í því fólgin,“
útskýrir Sesselja áhugasöm. „Ég
tók í raun mikla áhættu. Vörur í
þessum flokki eru oft frekar ljúf-
ar og notalegar í útliti en ég fór þá
leið að einblína frekar á stemning-
una og birtuna á Vestfjörðum og
var þá með svartnættið og norður-
ljósin í huga. Nöfnin á kremunum
tengjast göldrum og gekk ég út frá
því.“ Í ljós kom að fyrirtækið vildi
fara í miklar breytingar og höfðaði
tillagan til þeirra. „Þrátt fyrir að
þetta hafi verið vinningstillagan þá
hefst nú langt og strangt þróunar-
ferli þannig að óvíst er að lokanið-
urstaðan verði eins og í dag,“ segir
hún og brosir.
Að mati Sesselju er mikill heið-
ur að vera valin úr hópi hæfileika-
ríkra hönnuða. „Svo er alltaf mik-
ils virði að verða sér úti um nýja
reynslu. Villimey er stórkostlegt
fyrirtæki og sé ég þar mikla vaxt-
armöguleika,“ segir hún. Afrakst-
ur samstarfsins verður kynntur á
sýningu í maí. - hs
HEIMILISHALD
RAGNHEIÐUR TRYGGVADÓTTIR
● Forsíðumynd: Mynd úr einkasafni Friðgerðar Guð-
mundsdóttur Útgáfufélag: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík, s. 512 5000 Ritstjórar: Roald Eyvinds-
son roald@frettabladid.is, Emilía Örlygsdóttir emilia@
frettabladid.is Auglýsingar: Hlynur Þór Steingrímsson s.
512 5439 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@
frettabladid.is.
Heiður að vera valin
● Sesselja Thorberg vöruhönnuður er einn þeirra hönnuða sem áttu vinningstillögu í vöru-
þróunarverkefninu Hönnun í útflutning en hún hannaði umbúðir fyrir Villimey ehf.
S
kjótt skipast veður í lofti. Nú þykir ekki töff að eiga flat-
skjá eða veggfóðra baðherbergið í svörtu, slíkir hlutir heyra
sögunni til. Sjónvarpsþættir sem byggðust á innliti inn í vel
stílíseruð heimili hafa verið teknir af dagskrá og aðrar áhersl-
ur ráða ferðinni. Fólk staldrar við og veltir fyrir sér hvað það er sem
raunverulega gerir heimili að heimili. Eru það gljásprautaðar innrétt-
ingar og gegnheil eik eða eitthvað allt annað?
Heimilið er griðastaður fjölskyldunnar innan fjögurra veggja og
ef við getum sinnt okkar grunnþörfum og okkur líður vel þarf ekki
meira. Auðvitað er alltaf gaman að hafa fallega hluti í kringum sig en
hugsanlega skiptir þó sagan bak við hlutinn meira máli en hvar hann
var keyptur. Slitinn stóll úr búi ömmu og afa getur gefið stofukrókn-
um jafn mikið gildi og frægur stóll sem kost-
aði mikið. Það er spurning fyrir hvern við
stillum stólnum upp, er það fyrir okkur sjálf
eða fyrir þá sem koma í heimsókn?
Fólk safnar gjarnan að sér frægum hlut-
um úr hönnunarsögunni og má líta á það sem
fjárfestingu eins og að fjárfesta í myndlist.
Margir virtust þó ekkert vita um hlutinn eða
um höfund þess hlutar sem þeir sýndu stoltir
í innlitsþáttum. Þá var jafnvel hægt að efast
um að nokkuð annað lægi að baki kaupunum
en sýndarmennska og löngun til að tilheyra
ákveðnum hópi.
Á bak við hvern hlut liggur hugmyndafræði hönnuðarins og það er
það sem gerir hann áhugaverðan. Sagan af því hvernig hann varð til,
úr hvaða umhverfi hann spratt og hvaða tilgangi hann
þjónar. Hverjir aðrir en þú eiga hann
eða hvað hann kostar skiptir engu
máli. Á tímabili blómstruðu verslan-
ir sem seldu eftirlíkingar af frægri
hönnun, en tilgangurinn með því að
kaupa eftirlíkingu getur ekki verið
neinn annar en löngunin til að sýnast
eiga eitthvað. Virðingin fyrir hlutnum er
enginn né skilningur á því hvað liggur að
baki honum.
Nú sjáum við í gegnum sýndar-
mennskuna og metum aðra þætti.
Hvað býr að baki
Á bak við hvern hlut
liggur hugmynda-
fræði hönnuðarins og
það er það sem gerir
hann áhugaverðan.
Sagan af því hvernig
hann varð til, úr
hvaða umhverfi hann
spratt og hvaða
tilgangi hann þjónar.
Sesselja hrósar þeim
fyrirtækjum sem
þora að leggja út í
samkeppni á borð við
Hönnun í útflutning
og prófa eitthvað
nýtt með íslenskum
hönnuðum.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
● heimili&hönnun
● RUSL Í NÝJU LJÓSI Frakkinn Gilles Eichenbaum tekur gamla úr
sér gengna hluti, sérstaklega gömul eldhúsáhöld og -tæki, og breytir
þeim í hreinustu listaverk.
Hann hannar undir nafninu Garbage, eða Rusl. Með því að bora
smá göt í ýmsum mynstrum í yfirborð hluta á borð við gamla katla, járn-
fötur og bala, verður rusl að fínasta heimilisstássi. Hann breytir gömlum
brauðristum og hakkavélum í fínustu lampa. www.garbage-vpot.com.
24. JANÚAR 2009 LAUGARDAGUR2