Fréttablaðið - 24.01.2009, Side 48
● heimili&hönnun
Fagaðilum á sviði hönnunar og
arkitektúrs á Norðurlöndunum er
boðin þátttaka í Forum Aid-hönn-
unarsamkeppninni og undanfar-
in ár hefur verið keppt í þremur
flokkum: arkitektúr,
innanhússhönnun
og vöruhönnun. Í
ár var fjórða flokkn-
um bætt við, Besta
nemendaverk-
ið, og á Ísland
fulltrúa í öllum
flokkum.
Í flokknum Besti arkitektúr 2008
eru Kurtogpí Arkitektar tilnefndir
fyrir einbýlishús í Perlukór, í inn-
anhússhönnun er Katrín Ólína Pét-
ursdóttir tilnefnd fyrir Cristal bar,
PK Arkitektar fyrir Reykjavik city
administration og KRADS Arki-
tektar fyrir Skin, bar & clinic.
Katrín Ólína er einnig tilnefnd
í vöruhönnunarflokki fyrir Mesta-
bekk og Sruli Recht fyrir Ísbjörn. Í
nýja flokknum, Besta nemenda-
verkið, er Friðgerður Guðmunds-
dóttir tilnefnd fyrir Stuðla, út-
skriftarverkefni sitt síðastliðið vor
frá vöruhönnunardeild LHÍ.
Alþjóðleg dómnefnd mun velja
úr verkum og kynna úrslit hinn 3.
febrúar með viðhöfn og veislu í
Rival-leikhúsinu í Stokkhólmi.
Dómnefndina skipa meðal
a n n a rs M a rcus
Fairs, hönnuður
og blaðamaður,
sem er jafn-
framt einn
af stofnend-
um tímaritsins
Icon Magazine og
ritstjóri vefritsins Dez-
een, og belgíski hönnuðurinn
Dirk Wynants, eigandi stofunnar
Extremis. - rat
Íslendingar tilnefndir
● Sænska hönnunartímaritið Forum Aid efnir til hönnunarsamkeppni áttunda árið í röð.
Keppt er í fjórum flokkum og eiga íslenskir hönnuðir fulltrúa í öllum flokkum.
PK Arkitektar eru tilnefndir í innanhúss-
hönnun fyrir skrifstofubyggingu undir
stjórnsýslu Reykjavíkurborgar.
Kurtogpí Arkitektar eru tilnefndir í flokknum Besti arkitektúr fyrir einbýlishús í
Perlukór. MYND/KURTOGPÍ
Friðgerður Guðmundsdóttir er tilnefnd
fyrir Stuðla, útskriftarverkefni sitt úr
vöruhönnunardeild LHÍ, í nýjum flokki
sem kallast Besta nemendaverkið.
MYND/FRIÐGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR
Katrín Ólína Pétursdóttir er tilnefnd í tveimur flokkum; í flokknum Besta innanhúss-
hönnunin fyrir Cristal bar og Besta vöruhönnunin fyrir Mestabekk sem hún vann í
samvinnu við steypusmiðjuna Mest í Hafnarfirði. MYND/KATRÍN ÓLÍNA
Vöruhönnuður-
inn Sruli Recht er
tilnefndur fyrir
verk sitt Ísbjörn í
flokknum Besta
vöruhönnunin.
MYND/SRULI RECHT
M
YN
D
/P
K
.A
RK
IT
EK
TA
R
S ýning á plastsleða Dags Óskarssonar vöruhönnuðar verður opnuð á torgi Þjóðminjasafnsins í dag klukkan 14. Sleðinn er
meistaraprófsverkefni hans og hugmyndin er sótt í gamla sleða sem
eru þekktir víða. Dagur, sem er frá Dalvík, ólst upp við notkun slíkra
sleða meðal annars eins eftir langafa sinn. „Mig langaði að elta uppi
þetta gamla útlit, láta viðaræðarnar og naglahausana sjást og hafa
sleðann veðraðan,“ segir hönnuðurinn sem lætur búa til sleðana í
sinni heimabyggð. „Þeir baka þá fyrir mig í Promens á Dalvík. Það er
gamla Sæplast,“ segir hann og útskýrir nánar: „Í framleiðslunni eru
sleðarnir bakaðir eins og kaka. Efninu er hellt í mót og bakað. Litar-
efnið er í plastinu og gefur endalausa möguleika.“ Hann kveðst hafa
haft kjálkana ívið breiðari en á fyrirmyndinni svo þeir renni betur. „Þá
gagnast þeir í ólíkri færð.“ - gun
Bakaðir eins og kaka
Sleðarnir eru framleiddir í þremur litum eins og er. Til hægri er faðir Dags,
Óskar Pálmason, á sínum yngri árum við fyrirmyndina að plastsleðanum.
Mótun, leir og tengd efni er nýleg
námsbraut við Myndlistaskólann í
Reykjavík í samstarfi við Tækni-
skólann þar sem nemendur vinna
með leir og keramik og læra að
hugsa og móta í gegnum efnið.
Um er að ræða tveggja ára
diplómanám sem getur leitt til
BA-gráðu ef nemendur bæta við
sig þriðja árinu í erlendum lista-
háskóla.
Í náminu gefst nemendum kost-
ur á að kanna hagnýta möguleika
leirs við framleiðslu einstakra
gripa, fjöldaframleiðslu sem og
annarra skapandi verka. Lögð er
áhersla á að tengja gamla og nýja
þekkingu auk þess sem námið er
hugsað sem tilraunastofa með ís-
lensk jarðefni og vettvangur fyrir
skapandi hugmyndir um nýtingu
þeirra.
„Í náminu er bæði unnið með
myndlist og hönnun að leiðarljósi.
Það er að mestu verklegt en þó
með fræðilegu ívafi,“ segir Ólöf
Erla Bjarnadóttir, deildarstjóri
keramikdeildar skólans. - ve
Hugsað og mótað í leir
Námið er meðal annars hugsað sem
tilraunastofa með íslensk jarðefni.
MYND/MYNDLISTASKÓLINN Í REYKJAVÍK
FATASKÁPAR ÞVOTTAHÚS
ELDAVÉLAR - INNBYGGINGAROFNAR - HELLUBORÐ - VIFTUR - HÁFAR - UPPÞVOTTAVÉLAR - KÆLISKÁPAR - FRYSTISKÁPAR
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • www.friform.is
Mán. - föst.kl. 10-18
Laugardaga kl. 11-16
OPIÐ
25% AFSLÁTTUR AF RAFTÆKJUM, ÞEGAR ÞAU ERU KEYPT MEÐ INNRÉTTINGU !
Við sníðum innréttingar að þínum óskum
ELD
HÚS
EINS OG ÞÚ
VILT HAFA ÞAÐ
PISA höldulaust hvítt háglans
Val um 32
hurðagerðir
Birki Duo
BAÐINNRÉTTINGARNAR
byggjast á einingakerfi 30, 40,
60 og 80 cm breiðra eininga.
Ótæmandi uppröðunarmöguleikar.
Við hönnum og teiknum fyrir þig.
Heilsteyptu vaskborðin eru vinsæl!
Breiddir: 60, 80, 90, 120,140, 160, 180 cm
PISA höldulaust háglans
Askur Facet
BETRA BAÐ
BETRI LAUSNIR - MEIRA ÚRVAL
NÚ BJÓÐUM VIÐ ÁKVEÐNAR GERÐIR ELDHÚS, BAÐ - OG ÞVOTTA-
HÚSINNRÉTTINGA, EINNIG FATASKÁPA TIL AFGREIÐSLU AF LAGER
( MEÐAN BIRGÐIR ENDAST) MEÐ 25% AFSLÆTTI.
AF LAGER
Á LÆGRA VERÐI
25%
Vegna breytinga á vöruvali seljum við nú einnig nokkrar sýningainnréttingar með 60% afslætti.
SÝNINGAINNRÉTTINGAR MEÐ 60% AFSLÆTTI
24. JANÚAR 2009 LAUGARDAGUR4