Fréttablaðið - 24.01.2009, Qupperneq 64
36 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR
Taktu lýsi og borðaðu fisk.
Sólarljós er uppspretta hins
bráðnauðsynlega D-vítamíns
en þar sem það er af
skornum skammti á þessum
árstíma er um að gera að
taka inn hið meinholla og D-
vítamínríka lýsi og borða nóg
af fiski. Fiskur er líka svo holl-
ur, ríkur af omega-3 fitusýrum
sem sýnt hefur verið fram á að lækka blóðþrýsting. Jákvæð
áhrif fiskneyslu eru enn fremur minni líkur á hjartaáfalli,
þunglyndi og andlegri hrörnun með hækkandi aldri.
Stundaðu vetraríþróttir. Fyrir þá sem
ekki hafa áhuga á að skíða niður
brekkur eru margir aðrir möguleikar í
boði þegar kemur að vetraríþróttum.
Gönguskíði eru til dæmis frábær
íþrótt sem að mörgu leyti er auð-
veldara að stunda en svigskíði því
ekki þarf að reiða sig á skíðasvæði,
sérstaklega ekki ef utanbrautarskíði
eru notuð. Skautar eru svo sígild
skemmtun, ísklifur er spennandi
fyrir þá ævintýragjörnu og langar
gönguferðir bæta hressa og kæta.
Íslensku ferðafélögin, Ferðafélag
Íslands, Útivist, Íslenskir fjallaleið-
sögumenn og Alpaklúbburinn
standa öll fyrir skipulögðum ferðum
og námskeiðum sem geta hjálpað til
við að opna heim sem gerir veturinn
að eftirsóknarverðri árstíð.
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!
Alicante
Farðu út að ganga. Tíu
mínútna göngutúr á hverjum
degi hefur jákvæð áhrif á
líkama og sál. Líkamsrækt
á ekki að vera uppspretta
kvíða og samviskubits eins
og margir þekkja sem eiga
ónotað líkamsræktarkort
í fórum sínum. Röskur
göngutúr í tíu mínútur krefst
ekki ferðalags í ræktina, upp-
hafs- og lokapunktur getur til
dæmis verið vinnustaðurinn
þinn enda tilvalið að brjóta
upp daginn með smá útiveru
í dagsbirtunni.
Sofðu í að minnsta
kosti sjö tíma.
Það er hægt að
svindla á svefnin-
um á sumrin þegar
birtan veitir manni
kraft til vökunátta.
Á veturna er það
bara heimskulegt.
Því er ágætis ráð
að klæða sig alltaf í náttfötin klukkan tíu og vera farinn
að sofa klukkan ellefu. Þá er jafnvel hægt að ná átta tíma
svefni sem er dásamlegt að vetrarlagi.
Láttu þér líða vel
Kuldahroll setur að hraustasta fólki þegar janúarstormar belja. Og þó að sé
tekið að birta er dagurinn enn í styttra lagi. En ekki dugir að draga sængina
yfir höfuð, það eru ótal ráð til þess fallin að auka kraft og þrek á útmánuðum.
Sigríður Björg Tómasdóttir tók saman heilsubætandi ráð.
Skoðaðu myndir af vinum
og fjölskyldu. Allt milli
himins og jarðar hefur
verið rannsakað og meðal
annars jákvæð áhrif þess
að sitja og skoða myndir
af þeim sem þér þykir
vænt um. Dragðu fram
gömlu myndaalbúmin með
fyndnum partímyndum
eða skoðaðu albúmin í
tölvunni, það er hressandi
að rifja upp skemmtilegar
stundir og staðfesta að
maður hefur jafnvel fríkkað
með árunum.
Skrifaðu niður hugmyndir
og hugleiðingar þínar. Á
hverjum degi dettur okkur
eitthvað sniðugt í hug en
flestu gleymum við um leið.
Ef minnisbók er ávallt við
höndina, hvort sem er gam-
aldags eða stafræn þá er
hægt að skrifa hugmyndirn-
ar niður strax og dást svo að
eigin hugmyndaflugi síðar
meir. Líkurnar aukast því
einnig á því að þær komist
til framkvæmda ef þær eru
til á blaði.
Minnkaðu stressandi og tíma-
frekar keyrslur með fjölskyldu-
meðlimi bæjarenda á milli.
Reyndu að finna afþreyingu í
hverfinu sem börnin geta sjálf
komið sér í, stúderaðu strætó-
leiðir og kenndu þeim eldri að
taka strætó í tónlistartímann
eða hvað svo sem það er sem
að börnin þín vilja stunda utan
skóla. Ef skutl er óhjákvæmilegt
athugaðu hvort aðrir foreldrar
eru í svipaðri stöðu, þá er hægt
að skiptast á með tilheyrandi
tíma- og bensínsparnaði.
Góð vika fyrir …
…formann. Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson var himinlifandi
með að Höskuldur Þórhallsson
væri orðinn formaður
Framsóknarflokks-
ins. Enn meira him-
inlifandi varð hann
vitanlega nokkr-
um mínútum síðar
þegar hann sjálfur
var orðinn formað-
ur Framsóknarflokks-
ins. Sigmundur, sem vakti fyrst
athygli sem fréttamaður á RÚV,
og síðan sem skorinortur álitsgjafi
um skipulagsmál, þykir efnilegur
og sumir ganga jafnvel svo langt
að líkja honum við Obama. Hin
ævagamla Framsókn nýtur góðs
af skiptunum, rauk í það minnsta
upp í fyrstu skoðanakönnun eftir
formannsskiptin, fór í rúm 17 pró-
sent úr fimm prósentum.
…stjórnmálafræðinga.
Fyrir nokkrum vikum áttu
hagfræðingar
sviðið en nú
er komið að
stjórnmála-
fræðingum.
Stjórnmálafræð-
ingar eins og Gunnar
Helgi Kristinsson hafa
haft nóg að gera í vikunni
við að kryfja málin í fjölmiðlum.
Hrottaleg óróleikatíð eins og nú
geisar er sem sé gósentíð stjórn-
málafræðinga.
…súlukóng. Geiri í
Goldfinger hefur verið
hreinsaður bæði and-
lega og líkamlega, og
er hreinlega sem nýr
maður eftir detox-með-
ferðina í Póllandi. Eins
og Fréttablaðið greindi
frá fór merkilegt manna-
val með Jónínu Ben í meðferðina,
auk Geira meðal annars þau Hera
Björk, Friðrik Ómar, Árni John-
sen og Gunnar í Krossinum. Sam-
tals fuku 140 kíló af Íslendingun-
um, þar af heil tíu af Geira.
Slæm vika fyrir …
…talningamann. Ein
af ráðgátum Íslands-
sögunnar hlýtur
að vera sú hvernig
Haukur Ingibergs-
son, formaður kjör-
nefndar hjá Fram-
sóknarflokknum, gat
klikkað svo herfilega í að telja
tæplega 800 atkvæði að hann
lýsti vitlausan mann sigurvegara
kosninganna. Þetta hljóta að telj-
ast fáránlegustu mistök vikunnar,
ef ekki ársins. Kannski eins gott
að Framsóknarflokkurinn komi
sem minnst nálægt milljarðasúp-
um íslensku bankanna fyrst hann
ræður ekki við annað eins smotterí
og þetta.
…fjölmiðlahjón. Sigmundur Ernir
og Elín Sveinsdóttir voru rekin af
Stöð 2 eftir hálfrar aldar sameigin-
leg störf. Þar að auki fuku þrír
fréttamenn af Kompási. Fólk-
ið mun vera fórnarlömb
„fituniðurskurðar“ á Stöð
2. Sigmundur er að sögn
guðsfeginn að vera laus
úr „krumlu auðjöfra“. Ef
hann hefði vitað um þessi
starfslok fyrirfram hefði hann
örugglega ekki verið svona fúll yfir
brunnu sjónvarpsköplunum í Krydd-
síldinni.
…varaformann. Ágúst Ólafur
Ágústsson, varaformað-
ur Samfylkingarinn-
ar, var sveittur og
titrandi þegar hann
sagðist vilja kosn-
ingar í vor. Þar
fór ungi maðurinn
full geyst fram á
móti Fídel Ingibjörgu,
sem er að sögn ekki par hrifin af
framhleypninni, enda er hún, og
aðeins hún, bæði flokkurinn og
þjóðin. Aðsend grein Óskars Magn-
ússonar í Mogganum var óvenju
hart diss: „Það er í raun ágætt að
þetta ómerkilega innræti (Ágústs)
komi svo fljótt fram“, skrifaði hann
Ingibjörgu til varnar. - drg
GÓÐ VIKA / SLÆM VIKA
Slökktu á sjónvarp-
inu. Ef fjölskyldan
ákveður að minnka
glápið um tvo tíma
á degi hverjum eru
komnir fjórtán tímar
í vikunni sem hægt
er að nota í eitthvað
uppibyggilegt.
Planaðu ferðalög, Tilbreyting er nauð-
synleg og þó að ferðir til útlanda verði
kannski síður á dagskránni hjá fólki í
ár en undanfarin ár þá er af nógu að
taka í ferðamöguleikunum innanlands.
Helgarferð í sumarbústað brýtur upp
gráan vetrarhversdagsleikann. Öll stétt-
arfélög eiga bústaði og margir þeirra eru
í útleigu á veturna, hægt er að skoða
möguleikana á heimasíðum félaganna.
Farðu á listviðburði. Listin göfgar andann og
góð listupplifun er heilsubætandi. Á veturna
blómstrar menningarlífið, það eru tónleikar
með tónlist af öllu tagi, leikhúsin sýna hvert
verkið á fætur öðru, gæðakvikmyndir eru
til sýnis í kvikmyndahúsum og listsýningar
fjölmargar. Komdu sjálfum þér á óvart og
farðu á öðruvísi listviðburð en vanalega, þú
gætir átt meiriháttar upplifun í vændum.