Fréttablaðið - 24.01.2009, Side 68
40 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR
Hvenær varstu hamingjusömust?
Núna.
Ef þú værir ekki leikkona hvað
myndirðu þá vera? Kvikmynda-
leikstjóri.
Hvað er það dýrasta sem þú hefur
nokkurn tímann keypt þér? Leik-
listarmenntun.
Hvað er það versta sem nokkur
hefur sagt við þig? Að ég væri
eins og Jóhanna frá Örk sem mér
þótti alls ekki svo slæmt fyrr en
sá hinn sami bætti við „barnaleg
og þrjósk“ – það er kannski ekki
svo slæmt heldur …
Ef þú byggir ekki í Reykjavík
hvar myndirðu vilja búa? Á millj-
ón stöðum. Á eftir að heimsækja
New York og væri gaman að búa
þar í eins og eitt ár. Ítalía gæti
líka verið dásemd í góðum félags-
skap.
Uppáhaldsleikskáld og af hverju?
Ibsen – djúpur, friðsæll og klass-
ískur…
Draumahelgin þín í einni setn-
ingu? Það felur í sér ferska helgi
úti á landi með góðri fjallgöngu,
hestaferð og heitum potti.
Uppáhalds Shakespeare-karakt-
erinn og af hverju? Hamlet – dýn-
amísk innri togstreita.
Hvert er versta starf sem þú
hefur nokkurn tíman gegnt? Það
var þegar ég var þjónn eftir leik-
listarútskrift í London – ég entist
í einn dag og meðan aðrir þjón-
ar hlupu fram hjá eins og þeir
ættu lífið að leysa starði ég út í
tómið og bjó til einhvern skáld-
skap í hausnum á mér. Ákvað að
vera heiðarleg við yfirmanninn og
sjálfa mig og horfast í augu við að
ég hefði með aldrinum orðin van-
hæf í starfið.
Uppáhaldsstaðurinn þinn á jörð-
unni? Fårö á Gotlandi þar sem
Ingmar Bergman bjó er falleg-
ur staður og Skógafoss er í uppá-
haldi. Ef einhver pótintátinn ætlar
að virkja hann þá er mér að mæta
– með sverð.
Hvers konar tónlist hefur mest
áhrif á þig og hvað hlustar þú
mest á í dag? Björk hefur haft
mikil áhrif á mig en er að hlusta á
Grieg í augnablikinu – elska góða
tónlist. Kemst ekki í gegnum dag-
inn án eðal tónlistar og frumsam-
ins ódauðlegs nútímadanskafla.
Er eitthvað sem heldur fyrir þér
vöku á nóttunni? Aðgerðir Ísraels-
hers á Gasa á síðustu vikum.
Ef þú gætir breytt einhverju í for-
tíð þinni, hvað myndi það vera? Er
mjög sátt, líka við mistökin því af
þeim lærði ég nokkrar góðar lex-
íur. Verð þó alltaf mjög döpur ef
ég særi fólk. Annars held ég að
fortíðin sé bara löngu farin og
núið það eina sem sé til.
Hvenær fékkstu síðast hlátur-
skast? Ehhehehehehehheheheh-
ehehehhehehehe!
Áttu þér einhverja leynda nautn?
Eee, já, eigum við það ekki öll? En
leynd er ekki leynd nema það sé
leynd.
Uppáhaldsbókin þessa stundina?
Let me stand alone: heildarsafn
dagbóka baráttukonunnar Rachel
Corrie sem lést á Gasasvæðinu í
Palestínu fyrir sex árum.
Hvaða núlifandi manneskju lítur
þú mest upp til? Allra sem hafa
hugrekki til að þora að hlusta á
hjartað, standa með sinni sann-
færingu, hlýða sinni köllun og
fara sína eigin frumsömdu leið.
En hvaða núlifandi manneskju
þolirðu ekki? Ég fæ illt í hjart-
að við að fá svona spurningu. Er
mjög fegin að það er kominn nýr
forseti í Bandaríkjunum því mér
fannst fyrirrennarinn á rangri
hillu. Held í vonina með að Obama
fái að stjórna pínulítið eftir eigin
samvisku. Vona að kerfið valti
ekki yfir mannúð hans.
Uppáhaldsorðið þitt? Rassálfur.
Hvaða eitt atriði myndi fullkomna
lífsgæði þín? Hreint vatn, svo lífs-
gæði mín eru fullkomnuð.
Hvaða eitt hlutverk verður þú að
leika áður en þú deyrð? Rachel
Corrie.
Hvað er næst á dagskrá? Að hefja
æfingar á einleiknum „Ég heiti
Rachel Corrie“ sem frumsýnt
verður á Litla sviði Borgarleik-
hússins 19. mars og opna vefinn
www.egheitirachelcorrie.com
FULLT NAFN: Þóra Karítas Árnadóttir
STARFSFERILL Í HNOTSKURN: Barnapía, arfareitari, fiski-
kona, bréfberi, þjónn, hótelstarfskona, sjónvarpskona,
blaðamaður, skrifta, ritstjóri, fararstjóri, kynningarfulltrúi,
aðstoðarleikstjóri, framleiðandi, leikkona …
FÆÐINGARÁR OG HVAÐ GERÐIST MARKVERÐAST Á ÞVÍ ÁRI:
1979 - Gullfoss var friðlýstur og þar með bjargað frá virkjun
þökk sé hugsjónakonu sem gafst ekki upp.
ÞR
IÐ
JA
G
R
Á
Ð
A
N
Lít upp til allra sem hafa hug-
rekki til að þora að hlusta á
hjartað, standa með sinni sann-
færingu, hlýða sinni köllun og fara sína eigin
frumsömdu leið.
Aðgerðir Ísraelshers hafa
haldið fyrir mér vöku
Leikkonan Þóra Karítas Árnadóttir tekur að sér hlutverk baráttukonunnar Rachel Corrie í byrjun
mars, en hún lést á Gasasvæðinu fyrir sex árum. Anna Margrét Björnsson fékk Þóru í þriðju gráðu yfir-
heyrslu og fékk að heyra um uppáhaldsstaði og leyndar nautnir.
ÞÓRA KARÍTAS ÁRNADÓTTIR LEIKKONA Uppáhaldsstaðurinn er Farö á Gotlandi, þar sem Ingmar Bergmann bjó. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON
■ Á uppleið
Appelsínugulur
er liturinn núna,
fjölmargar áskor-
anir ganga á net-
inu um að vera
appelsínugulur,
lesist; friðsam-
legur í mótmæl-
um. Sem tákn um
viljann er hvatt til þess
að menn klæðist appel-
sínugulu, sem væri góð hugmynd
ef liturinn klæddi hinn venjulega
bleiknefja Íslending ekki afspyrnu illa.
Millivegurinn er að binda borða um
handlegginn, sem er kannski besta
lausnin.
Hnattlíkön Töff
stofustáss sem þar
að auki auðveldar
ferðalög í hugan-
um, sem eru einu
ferðalögin sem
fólk hefur efni á um
þessar mundir. Hægt
að kaupa í bókabúðum
og víðar, stundum í Kola-
portinu til dæmis.
Hera Björk
Eftir að hafa
fest í hlutverki
bakraddasöng-
kvenna í Eurov-
ision-keppnum
Íslands hefur
hún fært sig
upp á skaft-
ið og er í
aðalhlutverki
í lagi í dönsku
Eurovision-for-
keppninni. 26 kílóum léttari en fyrr.
Hér er kona á öruggri uppleið.
Þorramatur Þorrinn hófst í gær og
þá er um að gera að slafra í sig slátri,
sviðasultu, hrútspungum og harðfiski.
Margir borða nú ekkert annað en það
síðastnefnda af hinum hefðbundna
þorramat á hlaðborðum og kýla svo
vömb á hangiketi og síld, sem er
svindl. Það er ekkert kúl að sneiða hjá
því sem bragð er að í þessum efnum.
■ Á niðurleið
Ofbeldi Það er öllum til minnk-
unar að beita ofbeldi. Óeirðaseggir
á meðal mótmælenda eru ekkert
annað en óeirðaseggir sem koma
upp um smánarlegt eðli með því að
kasta hnullungum í lögreglumenn
sem gera sitt besta í að sinna starfi
sínu af alúð og einbeitingu. Friðsam-
leg mótmæli eru málið.
Tímarit Þau erlendu fást ekki
innflutt vegna gjaldeyrishafta, þau
íslensku fara sum hver í óskilgreind
leyfi. Styttist kannski í að erlendir vinir
fari að senda tímarit til Íslands eins
og fágætan munaðarvarning sem
lesinn verður þegar vorskipin leggja
að bryggju.
Töggun Að
„tagga“ fólk
á Facebook
í asnalegu
ástandi eða
með asnaleg-
um vinum er
ekkert sniðugt
lengur. Þegar
vinnufélagarn-
ir eru farnir að
góna á fyllir-
ísmyndir eða
matarboð hjá
hver öðrum er
kominn tími á
smá prívatlíf.
Skinkur Lúkkið sem
samanstendur af
þröngum vakúm-
pökkuðum fötum,
sólbrúnku og
þrýstnum barmi
er algerlega úti.
Hins vegar er
farið að þykja
töff hjá anti-
skinkum að
segjast vera
að „skinka
sig upp“
þegar þær
hafa sig til á
djammið.
MÆLISTIKA