Fréttablaðið - 24.01.2009, Qupperneq 82
54 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR
Íslenskir listamenn átu og drukku í
boði Fransescu von Habsburg á veit-
ingastaðnum Við Tjörnina um svipað
leyti og táragassprengjum var varpað
á Austurvelli.
„Þetta var auðvitað fjarstæðukennt. En það er
svo sem fullt af fjarstæðukenndum og súrreal-
ískum atburðum að eiga sér stað á Íslandi í dag,“
segir Hrafn Björgvinsson, betur þekktur sem
Krummi í Mínus, en hann var meðal gesta bar-
ónessunnar.
Elítan úr íslensku listalífi át og drakk í boði
barónessunnar og Íslandsvinkonunnar, Franses-
cu af Habsburg, á miðvikudagskvöld á veitinga-
staðnum Við Tjörnina sem er í Templarasundi.
Hún sötraði kampavín og vodka á meðan mót-
mælendur og lögregla slógust á Austurvelli með
þeim afleiðingum að táragassprengjur voru not-
aðar til að sundra hópnum. Meðal þeirra sem
nutu gestrisni barónessunnar þá um kvöldið
voru Jónsi úr Sigur Rós og fjöllistamaðurinn
Ragnar Kjartansson en þeir hafa verið áberandi
í mótmælunum á Austurvelli að undanförnu.
Auk þeirra var listakonan Gabríela Friðriks-
dóttir meðal gesta sem og hönnuðurinn Hrafn-
hildur Hólmgeirsdóttir. Heimildir Fréttablaðs-
ins herma að reikningurinn hafi hljóðað upp á
tæp 350 þúsund. „Jú, jú, auðvitað er eitthvað
fáránlegt við þetta, drekka í boði barónessu á
meðan eldar loga í Reykjavík. Svona getur þetta
bara stundum verið. Ísland er undarlegt land
um þessar mundir,“ segir Krummi.
Krumma til málsvarnar má taka fram að
hann hafði staðið vaktina fyrir utan Alþingis-
húsið allan miðvikudaginn ásamt unnustu sinni
og barið bumbur. Öskrað sig hásan með slag-
orðinu „Vanhæf ríkisstjórn“. „Svo var manni
bara orðið kalt og þegar hópnum var tvístrað í
annað sinn af lögreglunni þá leist okkur ekkert
á blikuna. Barónessan er ágætis vinkona mín
og ég vissi af þessu boði þarna á veitingastaðn-
um. Hún borðar þarna alltaf þegar hún kemur
hingað,“ útskýrir Krummi og bætir því við að
barónessan hafi flogið hingað sérstaklega til að
verða vitni að þeim miklu breytingum sem eiga
sér stað á Íslandi um þessar mundir.
Útsýnið frá Við Tjörnina er ansi gott og þegar
Krummi sá af svölum veitingastaðarins sjúkra-
liða bera lögreglumann burt á börum fékk hann
mikla ónotatilfinningu. „Ég vissi það þá að hlut-
irnir væru að fara úr böndunum,“ segir Krummi
og það varð raunin. Táragaslyktin barst inn á
staðinn og menn komust í mikið uppnám. En svo
róuðust menn eftir nokkurn tíma enda ekki á
hverjum degi sem Íslendingar finna táragaslykt
inni á fínum veitingastöðum. Krummi segir að
listamenn landsins muni áfram standa í fremstu
víglínu þessarar byltingar og menn séu í mikl-
um ham. „Enda á þetta ástand eflaust eftir að
veita mörgum innblástur á næstu misserum.“
freyrgigja@frettabladid.is
Andlit leikkonunnar Cate
Blanchett mun prýða ný frímerki
sem framleidd verða í heimalandi
hennar, Ástralíu. „Ég er bæði
undrandi og auðmjúk yfir því að
ég sé orðin að frímerki. Millj-
ónir Ástralíubúa eiga eftir að
sleikja mig og ég get ekki beðið
eftir því,“ sagði Blanchett. „Þetta
sýnir einnig fram á gildi listar-
innar í Ástralíu og færir hana í
átt til almennrar neyslu. Ef ég er
orðin hluti af því þá er ég virki-
lega stolt.“
Blanchett er ein þekktasta
leikkona Ástralíu. Nýjasta mynd
hennar, The Curious Case of
Benjamin Button, var nýverið
tilnefnd til þrettán Óskarsverð-
launa.
Blanchett
á frímerki
CATE BLANCHETT Andlitt leikkonunnar
prýðir ný frímerki í heimalandi hennar,
Ástralíu.
Orðrómur er uppi um að Mickey
Rourke hafi verið boðnir 250 þús-
und dollarar, eða um 32 milljónir
króna fyrir að leika í framhaldi
hasarmyndarinnar Iron Man.
Þetta þykja ekki miklir peningar
þegar milljarðaborgin Hollywood
er annars vegar. Svo virðist sem
framleiðslufyrirtæki séu farin
að draga verulega saman seglin
í alþjóðlegu fjármálakreppunni
og er tilboðið til Rourkes í góðum
takti við það.
Rourke hefur átt frábæra endur-
komu í kvikmyndaheiminn að und-
anförnu. Hann vann Golden Globe-
verðlaun fyrir hlutverk sitt í The
Wrestler og var einnig tilnefndur
til Óskarsins. Þykir hann líkleg-
astur til að hreppa styttuna eftir-
sóttu ásamt Sean Penn fyrir hlut-
verk sitt í Milk.
Smáaurar fyrir Iron Man
MICKEY ROURKE Rourke í hlutverki
útbrunnins fjölbragðaglímukappa í
myndinni The Wrestler.
Alex James, bassaleikari Blur,
missti af tækifæri til að fá hljóm-
sveitina Coldplay til að semja við
útgáfufyrirtæki sitt.
James fór ásamt öðrum stjórn-
endum fyrirtækisins á tónleika
með Coldplay áður en hún varð
fræg en ákvað að semja ekki við
sveitina vegna þess að þeim fannst
hún of „venjuleg“.
„Okkur fannst þeir vera venju-
legir og höfðum ekki áhuga
á að semja við þá. Ég
held að allir hafi verið
á sömu skoðun og við
nema Parlophone.
Þetta er það sama og
gerðist með Bítlana og
Blur,“ sagði James.
Hann segist ekkert sjá
eftir því að hafa
ekki samið við
Coldplay þrátt
fyrir að sveit-
in sé ein vin-
sælasta hljóm-
sveit heims og
hafi selt millj-
ónir platna.
„Mér finnst
Coldplay enn
þá frekar venju-
leg hljómsveit
þótt söngvarinn sé reyndar góður.
Það er frekar erfitt að búa til eftir-
minnilegt þriggja og hálfrar mín-
útu popplag.“
Blur er að und-
irbúa nýja plötu
eftir margra
ára hlé og
orðrómur er
uppi um að
hún spili á
Glastonbury-
hátíðinni í
sumar.
Hafnaði Coldplay
MISSTI AF
FEITUM BITA
Alex James hafði
ekki áhuga á
að semja við
Coldplay.
CHRIS MARTIN Alex
James fannst Coldplay
of „venjuleg“ hljóm-
sveit þegar hún var að
hefja feril sinn.
Elítan drakk kampavín í boði barónessu
ELÍTA Í BOÐI BARÓNESSU
Fransesca von Habsburg bauð listaelít-
unni að borða með sér á veitingastaðn-
um Við Tjörnina. Þeirra á meðal voru
Krummi úr Mínus, Ragnar Kjartansson,
Gabríela Friðriksdóttir og Hrafnhildur
Hólmgeirsdóttir. Á meðan hún gæddi
sér á vodka og kampavíni
slógust óeirðaseggir og lögregla
af slíkri hörku að yfirvöld
neyddust til að beita
táragassprengjum.