Fréttablaðið - 24.01.2009, Page 86
58 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR
sport@frettabladid.is
KÖRFUBOLTI Það hefur andað köldu
á milli forráðamanna KR og
Grindavíkur í vetur og ekki síst
út af útlendingamálum.
Böðvar Guðjónsson, formaður
körfuknattleiksdeildar KR, var
aldrei í vafa um að Grindvíkingar
myndu fá sér Kana og svaraði á
kaldhæðinn hátt þegar hann var
spurður út í hvort koma Nicks
Bradford hefði komið honum á
óvart.
„Ég er gáttaður og trúi þessu
ekki enn þá. Það er eins og ég
sé í draumi og ég bíð eftir að Óli
Björn veki mig,“ sagði Böðvar og
vitnaði þar í formann körfuknatt-
leiksdeildar Grindavíkur en sá lét
hafa eftir sér að Grindavík hefði
aldrei fengið sér Kana ef KR
hefði ekki verið með Kana.
„Við tökum því sem hrósi að við
séum farnir að stýra körfuboltan-
um hérna heima samkvæmt
Grindvíkingum,“ sagði Böðvar.
- hbg
Böðvar Guðjónsson:
Er í draumi og
bíð eftir að Óli
Björn veki mig
BRATTUR Böðvari kom ekki á óvart að
Grindavík fengi sér Kana.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI 32-liða úrslit enska bikars-
ins fara fram um helgina. Stórlið-
in Arsenal, Chelsea, Liverpool og
Manchester United eru öll enn með
í keppninni. Manchester United og
Tottenham mætast á Old Trafford
í stórleik dagsins í dag.
Yfirlýsing knattspyrnustjórans
Harry Redknapp hjá Tottenham
fyrir leikinn, um að tefla fram eins
„veiku“ byrjunarliði gegn United
og hann mögulega getur til þess
að spara leikmenn sína fyrir botn-
baráttu úrvalsdeildarinnar kann
þó að hafa tekið talsverðan sjarma
af leiknum.
Chelsea mætir b-deildarliðinu
Ipswich á Brúnni í dag en Lund-
únafélagið hefur hreint ekki verið
sannfærandi upp á síðkastið og
nægir því til stuðnings að nefna
jafnteflið gegn c-deildarliðinu
Southend á Brúnni í deildarbik-
arnum á dögunum.
Liverpool og Everton munu
heyja enn eitt stríðið í rosaleg-
um borgarslag á Anfield á morg-
un. Erkifjendurnir Liverpool og
Everton eru einmitt þau lið sem
oftast hafa mæst í sögu kepnninn-
ar, en þetta verður í 21. skipti sem
þau mætast.
Þess má geta að Liverpool er
taplaust í öllum keppnum á Anfi-
eld síðan liðið tapaði gegn Barns-
ley í FA-bikarnum í fyrra. - óþ
Fjórða umferð FA-bikarsins fer fram um helgina á Englandi:
Blóðug barátta verður á Anfield
BARÁTTAN UM BORGINA Steven Gerrard
hjá Liverpool og Phil Neville hjá Everton
mætast á morgun. NORDIC PHOTOS/GETTY
> Bikarhafarnir mæta Haukum
Dregið var í undanúrslit Eimskipsbikars
kvenna í handbolta í gær og ljóst liggur
fyrir að bikarhafar Stjörnunnar heimsækja
Hauka að Ásvöllum og FH ferðast norður
til Akureyrar og mætir 2. deildarliði
KA/Þórs í KA-heimilinu. Haukar og
Stjarnan eru búin að stinga af í
N1-deildinni í vetur og há nú harða
baráttu um toppsætið. Liðin mættust
jafnframt í úrslitaleik N1-deildarbik-
arsins milli jóla og nýárs og þá höfðu
Stjörnustúlkur betur í hörkuspennandi
leik. Leikirnir í undanúrslitunum fara
fram 14.-15. febrúar.
KÖRFUBOLTI KR og Grindavík mæt-
ast í dag í undanúrslitum Subway-
bikars karla og fer leikurinn fram
í DHL-Höllinni og hefst klukkan
16.00. Þarna mætast tvö efstu liðin
í deildinni en þau hafa mæst tvisv-
ar í jöfnum og spennandi leikjum í
vetur. Það er því búist við miklum
körfuboltaviðburði fyrir framan
troðfulla DHL-Höll í dag.
„Það mætti ætla að þetta væri
úrslitaleikurinn miðað við hvern-
ig þessi lið hafa spilað í vetur. Það
er ekki líklegt að Stjarnan eða
Njarðvík séu að fara að blanda sér
í það að vinna titilinn en hvað veit
maður, þetta er bikarkeppni. Bik-
arkeppni er keppni í heppni og þar
getur allt gerst,“ sagði Sigurður
Ingimundarson, þjálfari Keflavík-
ur og íslenska karlalandsliðsins.
KR-ingar hafa unnið báða inn-
byrðisleiki liðanna naumlega í
vetur, fyrst á sigurkörfu Jasons
Dourisseau í Powerade-bikarn-
um og svo með tveimur stigum í
deildinni.
Fjórir leikmenn KR og Grinda-
víkur hafa skilað hærra framlagi í
innbyrðisleikjum liðanna í vetur en
þeir hafa gert að meðaltali í deild-
inni í vetur. Þetta eru þeir Jason
Dourisseau og Jón Arnór Stefáns-
son hjá KR og þeir Brenton Birm-
ingham og Þorleifur Ólafsson hjá
Grindavík. Jason (27,5) og Brent-
on (27,0) eru með hæsta framlagið
í innbyrðisleikjum liðanna á tíma-
bilinu.
Nú hafa Grindvíkingar hins
vegar styrkt liðið sitt með því að
ná í Nick Bradford og Fréttablaðið
fékk Sigurð Ingimundarson, fyrr-
um þjálfara Bradford hjá Kefla-
vík, til þess að meta hverju hann
breytir í uppgjöri tveggja efstu
liða deildarinnar.
„Þeir voru refir að næla sér í
Bradford því honum finnst ekk-
ert eins gaman og að fá að spila
svona leiki. Hann kemur með
sjálfstraust inn í liðið.
Hann er fullur af
sjálfstrausti sjálfur
og rúmlega það og
smitar því til ann-
arra og það er
ekki verra að
hafa slíkan
mann í sínu
liði,“ segir
Sigurður
um Bradford. Sigurður segir hann
vera það kláran körfuboltamann
eins og fleiri í Grindavíkurliðinu
að þeir finni einhverjar lausnir á
því að láta alla spila þrátt fyrir
að í liðinu séu margir líkir leik-
menn.
„Hann þorir að taka mikilvæg-
ar ákvarðanir í stórum leikjum
og það sem menn leita helst eftir
þegar menn eru að styrkja liðið
með Kana er að þeir geri aðra
betri og Bradford er frábær í
því. Þar liggur hans helsti styrk-
ur.“ Sigurður er viss um að Brad-
ford búi ekki bara til stemningu
hjá sjálfu Grindavíkurliðinu held-
ur einnig hjá grindvískum áhorf-
endum.
„Bradford býr til vandræði
fyrir varnarmenn. Hann er
tveggja metra karl en getur spil-
að eins og bakvörður og á það til
að hitta mjög vel og þá er erfitt að
eiga við hann. Hann er líka gríðar-
lega góður varnarmaður. Hann er
ágætur í öllu án þess að vera frá-
bær í neinu. Ef hann er einbeitt-
ur þá getur hann fundið galla í
vörninni á móti honum og þá er
hann baneitraður,“ segir Sigurð-
ur en ræður Bradford þá úrslitum
í þessum leik.
„Ég ætla ekki að spá neinum sigri
í þessum leik því bæði lið eiga jafna
möguleika. KR-ingar eiga kannski
meiri möguleika af því að þeir eru
á heimavelli ef ég horfi kalt á þetta
þrátt fyrir að Bradford sé með
Grindavík. KR-ingar hafa spilað
vel og þeir eru ennþá með
jafn gott lið þótt Bradford
sé kominn. Bæði liðin,
maður fyrir maður, eru
bara þrælgóð. Eins og oft
í svona bikarleikjum þá
snýst þetta um að hitta
á rétta daginn. Þetta
er einstakt tæki-
færi til að horfa á
frábæran leik og
umgjörðin verður
örugglega mjög
skemmtileg. Þetta
er draumaleikur
fyrir marga.“
ooj@frettabladid.is
Draumaleikur í DHL-höllinni í dag
„Þeir voru refir að næla sér í Bradford,” segir Sigurður Ingimundarson, fyrrum þjálfari hans hjá Keflavík
sem vill þó ekki spá því að Grindavík verði fyrst til að vinna KR í vetur í undanúrslitum Subwaybikarsins.
ÖFLUGIR Þeir Brenton Birmingham og Jason Dourisseau hafa spilað mjög vel í inn-
byrðisleikjum KR og Grindavíkur í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HVERNIG FER LEIKURINN?
Valur Ingimundarson, Njarðvík
„Ómögulegt að segja. Grindavík er
sýnd veiði en ekki gefin fyrir KR.“
Lykillinn að sigri?
„KR er besta varnarliðið og Grindavík
er besta sóknarliðið. Það er spurning
hvað verður ofan á í baráttunni.“
Einar Árni Jóhannsson, Breiðabliki:
„Þetta verður í járnum allan tímann
en KR vinnur þetta að lokum 88-86.“
Lykillinn að sigri?
„Ég held að Jakob Örn muni gera
gæfumuninn fyrir KR.“
Kristinn Friðriksson, Tindastól:
„Ég held að KR vinni þetta eftir fram-
lengdan leik.“
Lykillinn að sigri?
„Bakvarðaparið Jón Arnór og Jakob
Örn hjá KR ráða úrslitunum.“
Hlynur Bæringsson, Snæfell:
„KR á eftir að vinna og eigum við ekki
að segja að þetta fari 85-81.“
Lykillinn að sigri?
„Það verður bara blanda af Jóni
Arnóri og heimavellinum.“
SIGUR Í HÖFN
Nick Bradford
og Sigurður
Ingimundar-
son. FRÉTTABLAÐ-
IÐ/VILHELM
Víkingar fögnuðu sínum fyrsta sigri í N1-deild karla þegar liðið vann
óvæntan sigur á Akureyri fyrir norðan á fimmtudagskvöldið. Róbert
Sighvatsson er greinilega á réttri leið með þetta unga lið Víkinga sem
hefur verið vaxandi í allan vetur.
„Það var mjög mikilvægt fyrir strákana að sýna það að þeir geta
unnið. Það var kærkomið að sýna það á útivelli og á Akureyri,
einum skemmtilegasta útivelli sem hægt er að fara á,“ sagði
Róbert sem tók við Víkingsliðinu á síðasta ári. Víkingar töpuðu
aðeins með einu marki fyrir Fram í síðasta leik fyrir jólafrí og
verið nálægt því að ná í stig í nokkrum leikjum í deildinni í
vetur. „Við erum búnir að vera að narta í hælana á hinum
liðunum en við höfum ekki komist fram í tær,“ segir Róbert
en hann lítur ekki á sem svo að liðið sé í fallbaráttu.
„Við erum ekki að horfa á þetta þannig að við
séum að reyna að halda okkur í deildinni.
Við erum að bæta okkar leikmenn og okkar
umgjörð í kringum Víking. Allt sem heitir
sigur er mjög ánægjulegt en við höldum
bara áfram okkar striki, að búa til leikmenn
með því að gefa þeim tækifæri á að fá að spila með Víkingi,“ segir
Róbert. Róbert er mjög sáttur við að liðið er að bæta sig leik frá leik.
„Desembermánuður hjá okkur var allur upp á við og menn lögðu sig
allir extra mikið fram í þessu fríi.
Við erum búnir að byggja ofan á það og höldum ótrauðir áfram.
Það hefur ekkert verið að stoppa okkur og það mun ekkert
stoppa okkur. Þarna er efniviður til þess að búa til mjög
gott lið og stóra liðsheild og þangað stefnum við,“ segir
Róbert. Róbert var atvinnumaður í Þýskalandi í mörg ár og
þjálfaði þá einnig Wetzlar-liðið um tíma. „Maður er búinn að
vinna í grunninum og er að reyna að byggja aftur upp þetta
dauða starf í Víkinni,“ segir Róbert og hann mælir árangur
frekar í bætingu leikmanna en í stigum í töflunni. „Það
er ekkert stress í neinu hjá okkur og við erum ekki
að hugsa um hvar við stöndum heldur hvað við
erum að gera. Hjá okkur er falldraugurinn ekki til
heldur aðeins næsti leikur og næsta verkefni,“
sagði Róbert og hann skorar á alla Víkinga að
hjálpa liðinu í næstu leikjum.
RÓBERT ÞÓR SIGHVATSSON, ÞJÁLFARI VÍKINGA Í N1-DEILD KARLA Í HANDBOLTA: FYRSTI SIGUR VETRARINS Í HÖFN
Hjá okkur Víkingum er falldraugurinn ekki til
FÓTBOLTI Hinn moldríki arabi, Dr.
Sulaiman al-Fahim, eigandi Man.
City, er sagður vera á þeim bux-
unum að gera tilboð í Chelsea
ásamt þýskum fjárfestum.
Talið er að eigandi Chelsea,
Roman Abramovich, hafi farið
afar illa út úr heimskreppunni
en þrátt fyrir það segja forráða-
menn Chelsea að félagið sé ekki
til sölu. - hbg
Eigandi Man. City:
Íhugar kaup
á Chelsea