Fréttablaðið - 24.01.2009, Síða 94
66 24. janúar 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. málhelti, 6. í röð, 8. líða vel, 9. því
næst, 11. númer, 12. stafir, 14. gim-
steinn, 16. tónlistarmaður, 17. sjáðu,
18. stansa, 20. 999, 21. glufa.
LÓÐRÉTT
1. gáski, 3. í röð, 4. annir, 5. blóð-
hlaup, 7. þurrkuð plóma, 10. munda,
13. þakbrún, 15. brennt vín, 16.
náinn, 19. tvíhljóði.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. stam, 6. rs, 8. una, 9. svo,
11. nr, 12. letur, 14. safír, 16. kk, 17.
sko, 18. æja, 20. im, 21. rauf.
LÓÐRÉTT: 1. ærsl, 3. tu, 4. annríki, 5.
mar, 7. sveskja, 10. ota, 13. ufs, 15.
romm, 16. kær, 19. au.
Árni Rúnar Hlöðversson
Aldur: 26 ára.
Starf: Tónlistarmaður.
Stjörnumerki: Vatnsberinn.
Búseta: 101 Reykjavík.
Fjölskylda: Býr með unnustu sinni,
Lóu Hjálmtýsdóttur, söngkonu FM
Belfast.
Árni plúseinn í hljómsveitinni FM Belfast
varð fyrir lögreglubíl þegar hann stóð í
friðsömum mótmælum á miðvikudaginn.
Auk þess lamdi lögreglan hann í bakið.
„Við veltum því auðvitað fyrir
okkur hvort þetta væri heppi-
leg hátíð fyrir Íslendinga. En við
getum ekki látið smá milliríkja-
deilu stöðva okkur,“ segir Einar
Skúlason, formaður Edinborg-
arfélagsins, en félagið stendur
fyrir 31. Burns Supper-hátíðinni
í Kiwanis-húsinu við Engjateig í
kvöld.
Burns Supper er hálfgerður
þjóðhátíðardagur Skota en þá
minnast þeir og vinir þjóðarinn-
ar fæðingardags þjóðarskálds-
ins, Roberts Burns og halda á
lofti skoskri menningu. Ástæð-
an fyrir því að menn voru tvístíg-
andi með hátíðina var einfaldlega
sú að Gordon Brown, forsætis-
ráðherra Breta, er Skoti og til að
bæta gráu ofan á svart þá er kjör-
dæmi Alistairs Darling fjármála-
ráðherra í Edinborg.
Menn hafi þó ákveðið að líta
fram hjá því. En þá var komið
að öðru vandamáli. Lágt gengi
krónunnar gerði það að verkum
að kostnaður við að flytja inn
hið skoska haggis var gríðarleg-
ur. „Við leituðum til kjötvinnslu-
manna og skoðuðum hvort þeir
gætu gert haggis eftir uppskrift
en þeir treystu sér ekki til þess,“
útskýrir Einar og varla var hægt
að bjóða upp á íslenska lifrarpylsu
enda haggisið bragðmeira. Þannig
að fimmtíu kíló af ekta skosku
haggis voru flutt inn sérstaklega
fyrir kvöldið. Einar segist vera
mikill aðdáandi haggis, það sé
bragðmeira en íslenska lifrapyls-
an enda unnið á allt annan hátt.
„Innyflin eru soðin áður en þau
eru sett í keppina og kryddjurtum
bætt við,“ bætir Einar við. Hann
segir jafnframt að áhugasamir
skuli vera tímanlega því síðast
þurfti að vísa fólki frá. Hátíðin
hefst stundvíslega klukkan sjö.
- fgg
Flytja inn 50 kíló af haggis
EINAR SKÚLASON Um tíma stóð tæpt að
hægt væri að bjóða upp á skoskt haggis
á hátíð Edinborgarfélagsins en það
hafðist fyrir rest.
Kári Sturluson tónleikahaldari
vakti athygli á dögunum fyrir að
biðjast opinberlega afsökunar á að
hafa kosið Samfylkinguna. Kannski
ekki síst fyrir þá skuld að systir hans
er Oddný, borgarfulltrúi flokksins.
Kári er sjálfum sér samkvæmur
en strax í kjölfar tíðinda-
mikils blaðamanna-
fundar Geirs H. Haarde
í gær þar sem hann
boðaði kosningar 9.
maí skrifaði Kári á
Facebook-síðu sína:
„hjúkkit. Eurovision er
16. maí.“
Kvikmyndagerðarmaðurinn Ólafur
Jóhannesson situr ekki með hend-
ur í skauti frekar en fyrri daginn.
Hann er með fjögur ný verkefni í
vinnslu um þessar mundir, á milli
þess sem hann planleggur frumsýn-
ingu á Stóra planinu á kvikmynda-
hátíðinni í Rotterdam nú
um helgina. Þess utan
hefur hann gengið frá
sjónvarpsþáttaröð upp
úr Stóra planinu. Um er
að ræða fimm hálftíma
þætti sem ráðgert er
að sýndir verði
í íslensku
sjónvarpi á
þessu ári.
Viðtal Sigmars Guðmundssonar
við bljúgan Bjarna Ármannsson
í Kastljósi er mörgum enn í fersku
minni. Mikið hefur verið skrafað um
viðtalið á kaffistofum og bloggsíðum
landsmanna og sitt sýnist hverjum.
Flestir geta þó verið sammála um
að Bjarni kom vel fyrir og talaði af
mikilli yfirvegun. Þær sögur berast
nú ofan úr Borgarleikhúsi að Bjarni
hafi fengið leiðsögn fyrir viðtalið; að
Glitnisforstjórinn fyrr-
verandi hafi leigt
sér bæði leikara
og leikstjóra til
að skóla sig í
réttri framkomu.
Ekki fylgir sögunni
hvaða leikhúsmenn
voru þessa heiðurs
aðnjótandi.
-jbg, hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Þetta mál er fyrsta sinnar teg-
undar á Íslandi. Prófmál og engin
furða að þessir menn séu að míga
á sig. Hætt að sýna Kompás og
allt enda þeir búnir að kúka upp
á bak þessir pappakassar,“ segir
Benjamín Þór Þorgrímsson – betur
þekktur sem Benni Ólsari.
Lögmaður Benna, Vilhjálmur
H. Vilhjálmsson, hefur lagt fram
stefnu og krefst tíu milljóna króna,
greiðslu málskostnaðar og vaxta
vegna Kompásþáttar sem sýnd-
ur var í mars árið 2008. Stefn-
an er stíluð á Kristin Hrafnsson,
Jóhannes Kr. Kristjánsson og Ara
Edwald, forstjóra 365. Lögmaður
365, Einar Þór Sverrisson, vinnur
nú að greinargerð þar sem stefn-
unni verður svarað áður en hún er
lögð fram. Stefna Benna er upp á
tíu síður og er fjallað ítarlega um
það þegar fréttaþátturinn Komp-
ás tók upp með földum myndavél-
um viðskipti Benna og Ragnars
Magnússonar sem enduðu með því
að Benni gekk í skrokk á Ragnari.
Þátturinn fjallaði um handrukkun
og bar yfirskriftina „Hnefaréttur“.
Í kærunni er farið nokkrum orðum
um fjölmiðlavald, sagt að
365 hafi beitt öllu sínu
fjölmiðlaafli til að
auglýsa þáttinn sem
hafi verið brot á frið-
helgi Benna. „Þessari
fjárkröfu er mjög í hóf
stillt,“ segir Vilhjálm-
ur en í stefnunni segir
meðal annars að stefn-
andi eigi ekki að
þurfa að þola að
vera „tekinn af
lífi án dóms og
laga í fjölmiðl-
um stefndu.“
Mál þetta
kemur upp á
sérkennileg-
um tíma því í
gær [fimmtu-
d a g ] v a r
þeim Kristni
og Jóhannesi sagt upp störfum
og Kompásþátturinn sleginn af.
Benni grætur Kompás ekki og
vandar umsjónarmönnum reynd-
ar ekki kveðjurnar. „Þeir skutu sig
í fótinn með að vera með glæpa-
mann sem píslarvott. Af hverju
notuðu þeir ekki Palla saklausa
úr Grafarvoginum frekar en
stilla glæpamanni dauðans upp
gegn mér? Ég veit ekki hvað þeir
þykjast vera þessir karlar, vitn-
andi í 60 minutes og þykjast vera
einhverjir voðalegir rann-
sóknarblaðamenn –
þessir snillingar,“
segir Benni. Hann
telur aðspurður
stefnu sína reynd-
ar ekki tengjast
því að þátturinn
hafi verið sleg-
inn af.
„Ég náttúru-
lega fagna því
að Benjamí n
hafi fundið leið
siðmenntaðra réttarúrræða telji
hann á sér brotið. Og leggi nú
fróma hönd á lögbók fremur en að
kreppa hnefann,“ segir Kristinn
Hrafnsson.
Hann segir stefnu Vilhjálms
ótrúlegt skemmtiefni og broslega
lesningu: „Að Benni krefjist frið-
helgi einkalífs til að geta lúskrað
á manni á Hafnarvoginni í Hafn-
arfirði fyrir allra augum. Menn
mæta þessu náttúrulega með yfir-
vegun í réttarsal en óneitanlega
sætir það furðu að maðurinn sem
telur alla anga hins „illa“ veldis
365 hafa tekið sig af lífi og skuli
svo glaðbeittur ætla að spranga
inn á gólf hjá skemmtikröftum
stöðvarinnar til að lyfta sér á stall
sem hinn geðþekki handrukkari
sem hann hefur viðurkennt að vera
í samtölum við mig,“ segir Krist-
inn. En til stóð að Auddi og Sveppi
væru með Benna sem sinn fyrsta
gest í nýjum frétta- og skemmti-
þætti sínum en flautuðu það af á
síðustu stundu. jakob@frettabladid.is
VILHJÁLMUR H. VILHJÁLMSSON: FJÁRKRÖFU MJÖG Í HÓF STILLT
Benni Ólsari vill tíu milljónir
BENNI ÓLSARI Hann grætur Kompás ekki og vandar umsjónarmönnum ekki kveðj-
urnar en hann vill tíu milljónir í skaðabætur vegna þáttar um handrukkun.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KOMPÁS Kristinn
Hrafnsson segir stefnuna
broslega lesningu en
fagnar því að Benni leggi
nú fróma hönd á lögbók
fremur en að kreppa
hnefann.
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
250
ÓKEYPIS
KROSSGÁTUR
NÝ GÁTA
Í HVERRI VIKU
„Ég tók smá kast á netinu. Á til
að vera gífuryrtur. Var svo hand-
tekinn og yfirheyrður því ég þótti
ógn við ráðamenn,“ segir Þorri
Jóhannsson, skáld með meiru.
Í gærmorgun bönkuðu tveir
lögregluþjónar upp á hjá Þorra
og höfðu hann með sér til yfir-
heyrslu. Tilefnið var tölvupóst-
ur sem Þorri hafði reynt að birta
á athugasemdakerfi á bloggsíðu
Friðriks Þórs Guðmundsson-
ar – lillo.blog.is, en þegar það
ekki tókst sendi hann skrif sín í
tölvupósti. Friðriki var brugðið
og gerði Stefáni Eiríkssyni lög-
reglustjóra viðvart. „Ég leit svo
á að þarna væru hótanir í garð
einstaklinga og stofnana í sam-
félaginu auk þess sem ég taldi
skrifin beinast gegn mér,“ segir
Friðrik sem fól Stefáni að meta
hvort ástæða væri til að aðhaf-
ast í málinu. Skrifin eru ógnandi
en Friðrik birtir þau á síðu sinni:
„StóriðjuÖssur fær ekki að lifa til
vors …“ og svo framvegis. Forvitn-
um er bent á síðu Friðriks.
Þorri segir þetta upplifun og
dregur ekki úr því að hafa verið
heitt í hamsi enda umbrotatímar.
Hann segist hafa lesið síðu Frið-
riks, „þessa grunnhyggna snáps
úr Samfylkingunni sem taldi
allt batna með að ríkisstjórnin
færi. Alltaf verið að blása upp að
steinum sé hent í lögguna eins og
ekki sé neinn aðdragandi,“ segir
anarkistinn Þorri. Sem var lát-
inn dúsa í klefa í tvo tíma án þess
að fá að fara á salerni né fá vott
eða þurrt. „Svo ræddi ég við lög-
regluna, sagði þetta spámannleg-
an texta og vísaði í söguna þar
sem byltingin getur orðið blóðug.
Þetta er þroskaferli í sögu þjóð-
arinnar eftir siðleysi og efnis-
hyggju.“ Þorri rambar á milli þess
að vera upp með sér, segist aldrei
hafa áður fengið slík viðbrögð við
skrifum sínum og að vera tættur
eftir yfirheyrsluna þaðan sem
honum var sleppt við svo búið. Og
óljóst á þessari stundu hvar málið
endar. - jbg
Yfirheyrður af lögreglu vegna tölvupósts
ÞORRI JÓHANNSSON Eftir því sem næst
verður komist er hann fyrstur til að
vera handtekinn og yfirheyrður vegna
netskrifa.