Tíminn - 20.11.1982, Page 2
2
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982
iUmsjón: B.St. og K.L.
— segir Dorth fyrirsæta
■ - Mér þykir spennandi að vinna sem fyrirsæta, segir Dorthe Rasmussen, 19 ára stúlka
í Árósum, en ef ég ætti að komast langt og vinna fyrir mér eingöngu með fyrirsætustörfum,
þá þyrfti ég að flytjast til Kaupmannahafnar, og það vinn ég ekki til. Kaupmannahafn-
arbúar þykja mér vera snobbaðir og kuldalegir, - einkum og
sér í lagi kvenfólkið. Það gerir samkeppnin í þessari grein.
Dorthe gerir því ráð fyrir, að hún þurfi að vinna eitthvað annað
en sem fyrirsæta.
- Ég er alveg ánægð með það, og nú er ég í námi sem
sjúkraliði. Ég býst við að það verði aðalstarf mitt í framtíðinni,
sagði Dorthe við blaðamann, sem vildi forvitnast
framtíðaráætlanir hennar.
um
■ Larry Hagman sagði óvænt og ruddalega upp sínum gamla
ráðgjafa og umboðsmanni - og nú á Maj, kona hans (sem sést
líka á myndinni) að sjá um viðskiptin.
Er Larry Hag-
man farinn að
draga dám af
hinum pen-
R. í Dallas?
Amanda
Lear varð
að af lýsa
■ Hefur fólk ekki lengur ráð
á því að fara á hljómleika, eða
vill það heldur kaupa hljóm-
plötur fyrir sömu peninga og
það kostar að kaupa sig inn til
að hlusta á listafólkið? Plötuna
má alltaf spila aftur og aftur,
en kvöldstundin líður fljótt.
Nýlega var skrifað um það í
dönsku blaði, að óvenjulega
mikið hefði verið um -það að
undanfömu þar í landi, að
þekktir listamenn hefði orðið
að aflýsa skemmtunum vegna
þess að miðarnir hreinfega
seldust ekki. Þar var fyrst
nefnd hin þekkta poppsöng-
kona Amanda Lear, sem ætl-
aði að halda nokkrar söng-
skemmtanir, en þeim var aflýst
þegar kom í Ijós að það var
engin eftirsókn í miða á þær.
Breska hljómsveitin Bucks
Fizz, sem vann í Eurovision
söngkeppninni á síðasta ári
með iaginu „Makin Your Mind
Up“, hafði ákveðið að koma
til Danmerkur og halda nokkra
hljómleika, en þeim var öllum
aflýst. Aftur á móti hefur selst
ágætlega á skemmtanir Victors
Borge, sem hefur skemmt
Dönum að undanförnu.
Amanda Lear var mjög von-
svikin yfir því að hætta við
Danmerkurferðina. „Ég hélt
að ég ætti tryggan hóp aðdá-
enda í Danmörku, en mér
finnst þeir heldur betur hafa
svikið mig“, sagði söngkonan
er hún tilkynnti að ekkert yrði
af hljómleikinum.
■ Amanda Lear finnst sem
aðdáendurnir hafi svikið sig.
■ Það er engu líkara en J.R.
sé farinn að vaða uppi í
leikaranum Larry Hagman,
sem hefur leikið hinn leiða
J.R. í mörg ár. Nú nýlega rak
Larry bæði umboðsmann sinn
og einkaritara, sem hefur unn-
ið fyrir hann árum saman, frá
því að tímarnir voru erfiðir hjá
leikaranum, og þá vann um-
boðsmaðurinn af krafti að því
að koma fótunum undir hann.
Nú ætlar Larry Hagman að
láta hina sænsku konu sína,
Maj Hagman, sjá um öll sín
mál. Maj verður þar með fyrsti
sænski agentinn í Hollywood.
Hún hannar og selur setböð
með vatnsnuddkerfi, og
gengur bissnessinn vel hjá
henni.
Hagman hefði reyndar vel
ráð á því að sleppa því að hafa
umboðsmann, því hann hefur
grætt svo mikið á leik sínum i
DALLAS, að þegar/ef sjón-
varpsþættirnir hætta, þyrfti
hann ekkert að fara að leita sér
að vinnu, því að hann veður í
peningum og hefur verið dug-
legur við að ávaxta sitt fé, að
hann ætti að geta lifað í
allsnægtum til dauðadags.