Tíminn - 20.11.1982, Qupperneq 3
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982
3
fréttir
Iðntæknistofnun kannar íslenskar og innfluttar pizzur:
llTLENDA PIZZAN LÍT-
IDANNAOEN 80TNINN
MErlendu
pizzurnar
eru ekki
sam-
keppnis-
færarM
- segir Hrafn
Bachmann
í Kjötmið-
stöðinni
■ „Erlendu pizzurnar cru ekki samkeppnis-
færar lengur. Bæði hafa miklar gengisbreyt-
ingar hækkað verð þeirra mjög mikið og
cinnig hefur eftirlit neytenda á vörunum
batnað verulega, sem betur fer. Fólk kaupir
ekki sumar af þessum erlendu pizzum nema
einu sinni", sagði Hrafn Bakkmann, kaup-
maður í Kjötmiðstöðinni, en hann er einn
þeirra sem töluvert hefur auglýst pizzur
undanfarna mánuði.
Hrafn selur bæði íslenskar og erlendar
(amerískar nú að undanförnu) pizzur og er
verð þeirra nokkuð mismunandi eftir tegund-
um. Fljótt á litið virðist verð þeirra íslensku
og amerísku nokkuð svipað, auk þess sem
ætla má að ostur, kjöt og annað góðmeti sé
meira í íslensku framleiðslunni, samkvæmt
könnun þeirri sem sagt er frá hér á síðunni.
Telur Hrafn því líklegt að erlendu pizzurnar
hverfi af markaðinum sjálfkrafa.
Sölu á pizzum sem öðrum hraðréttum
sagði Hrafn sífellt vera að aukast, og
framleiðendum þeirra hér innanlands að
fjölga. T.d. kvað hann nýjan framleiðenda
bætast á markaðinn nú í næstu viku. hvers
framleiðsla virtist lofa mjög góðu. -HEI
■ Mikill mismunur er á innihaldi innfluttra
pizza og þeirra sem framleiddar eru hér
heima, samkvæmt könnun sem framkvæmd
var hjá Iðntæknistofnun á 4 tegundum
crlcndra pizza er mikið voru auglýstar hér á
landi í sumar og einni íslenskri til samanburð-
ar. Kom m.a. í Ijós að botninn (hveitikakan)
er um 2/3 hlutar af heildarþunga þeirra
crlcndu eða 62.5% til 65.2% í þrem þeirra
en 54.9% í einni á móti aðeins 30.4% í
innlendu pizzunni. Aftur á móti reyndist
ostur vera um þrefalt meiri í íslensku
pizzunni, eða 38.5% á móti 10,1% til 15,5%
í þeim erlendu. Sömuleiðis virðist mest
prótín (kjöt/fiskur) vera í öðru innihaldi
íslensku pizzunnar, en Iðntæknistofnun kvað
þó ekki unnt að aðskilja tómatsósu og
kjöthakk. Auk þess er í pizzunum ýmisskon-
ar mismunandi grænmeti eftir tegundum.
Það var að beiðni 4 pizzuframleiðenda í
Reykjavík sem Osta- og smjörsalan lét gera
framangreinda könnun. Bæðl töldu þeir
þarna um mikið hagsmunamál að ræða fyrir
sölu á íslenskum afurðum, þar sem þessir 4
kaupa um 60-80 tonn af osti á ári auk
töluverðs magns af kjöti, en jafnframt bentu
þeir á að þarna væri um innflutning á
landbúnaðarvörum. Að sögn Gunnars Guð-
bjartssonar fengust þau svör frá ráðuneytinu,
að ef landbúnaðarvörur séu undir 20% af
heildarþunga vörunnar flokkist hún sem
iðnaðarvara. Erlendir framleiðendur haldi
sig neðan við þessi mörk og á meðan er hægt
að flytja erlendu pizzurnar inn óheft og
tollfrjálst. Innlendirframleiðendursem nota
meira en tvöfalt meira af dýrari hráefnum
(ostur og kjöt er að sjálfsögðu margfalt
dýrari en hveitikökur) bera sig að sjálfsögðu
illa undan beinum verðsamanburði við
erlendu pizzurnar.
Stjórn Osta-og smjörsölunnar hefur nú
nýlega samþykkt að beina þeim tilmælum til
Framleiðsluráðs landbúnaðarins að það taki
upp viðræður við stjórnvöld til stöðvunar
pizzuinnflutningi. Auk þess sem hann skaði
íslenskan landbúnað fækki hann atvinnu-
tækifærum í landinu.
-HEI
■ Tekin hefur verið í notkun í Áburðaverksmiðjunni í Gufunesi mjög fullkomin
bflavog. Er þetta tölvuvog, bandarísk að gerð og getur hún vegið bfla og hluti allt
upp að 55 tonn að þyngd. Það er fyritækið Isvog hf. sem sá um uppsetningu
vogarinnar, en fyrirtækið hefur jafnframt uniboð fyrir þessum vogum hcrlcndis. Á
myndinni sést er vogin var reynd í gær og eins og sja má á innfelldu myndinni vó
kraninn rúm 28 tonn, en vogin er þá nákvæm að ekki skakkar nema 5 kflóum til og
frá á svona miklum þyngdum. Guðlaugur Hermannsson eigandi ísvogar stendur við
kranann.
uieeo v-bar
SNJÓKEÐJUR
fyrir fólksbíla, jeppa,
sendibíla og vörubíla
getum sett upp keðjur á traktora
og vinnuvélar
með stuttum fyrirvara.
Undirbúið ykkur fyrir veturinn,
hafið keðjurnar til.
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633
" 3-=
Nafn Nafnnúmer
Heimilisfang
□ Ég er áskrifandi að Tímanum □ Ég vil gerast áskrifandi að Tímanum
Undirskrift
Hver er stærsti jökull á íslandi?
□ Eiríksjökull
□ Vatnajökull
□ Drangajökull
Nú veröur endurbirtur getraunaseðillinn í oðrum áfanga
af fjórum í áskrifendagetraun Tímans. Að þessu sinni er
vinningurinn glæsilegt Sharp myndband og sjónvarp
að verðmæti um 50 þúsund krónur. Dregið verður úr
innsendum seðlum frá þeim, sem eru að gerast áskrifendur
að Tímanum, fimmtudaginn 3. desember næstkomandi.
Huggulegur jólaglaðningur það!
Hér birtist annar getraunaseðillinn í áskrrendagetraun-
inni fyrsta sinni. Spurningin er einföld eins og í fyrstu
umferöinni. Nú er spurt um stærsta jökul á Islandi.
Svarið spurningunni hér að ofan, útfyllið seðilinn og
sendið síðan úrklippuna til Tímans, Síðumúla 15,Reykja-
vik, hið fyrsta. Merkið umslagið: Áskrifendagetraun.
Þeir, sem eru skuldlausir áskrifendur að Tímanum þegar
dráttur fer fram — þ.e. 2. desember næstkomandi — geta
tekið þátt í getrauninni. Það er því enn góður tími til þess
að gerast áskrifandi og senda inn útfylltan getrauna-
seðil. Gerðu það strax í dag!
Næst drögum við 2. des., ’82 um 50,000 kr. vinning
SHARPmyndband og SHARP litsjónvarp.