Tíminn - 20.11.1982, Síða 10
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982
10
11
fréttafrásögn
fréttafrásögn
■ Það var glatt á hjalla í
hópnum sem kominn var
saman sér til fróðleiks og
greinilega skemmtunar í
leiðinni í Ölfusborgum nú
fyrir nokkru. En þar var þá
haldið helgarnámskeið
starfsmanna dagvistunar-
stofnana á Suðurlandi, sem
sótt var af um 80 konum víðs
vegar að úr héraðinu.
„Pað hlakka allir til að fá þessi
námskeið á haustin. Hér eru fóstrur
og stasrfsstúlkur úr Hveragerði,
Þorlákshöfn, Eyrarbakka, Selfossi,
Hellu, Laugarvatni og líklega fleiri
stöðum að ógleymdum þeim frá
■ Ólíha Geirsdóttir, föndurkennari gaf fóstrum og starfsstúlkum mörg góð ráð og leiðbeiningar sem
að gagni mega koma.
Nokkrar úr hópnum niðursokknar við að búa til myndir úr silkipappír.
■ Mörg listaverk urðu til þessa helgi í Ölfusborgum.
■ Þessar ungu stúlkur sögðust heita (frá vinstri): Margrét, Vigdís, Þuríður, Anna, Ragga og Linda.
77
ALUR HLAKKA TIL AÐ
Rætt við Ernu Valdimarsdóttur um helgarnámskeið
starfsmanna dagvistarstofnana á Suðurlandi
Vestmannaeyjum - sem eru mjög
duglegar í þessu, tóku Herjólf upp
og rétt náðu í tæka tíð áður en
námskeiðið byrjaði“, sagði Erna
Valdimarsdóttir, forstöðukona leik-
skólans í Hveragerði sem við á
Tímanum náðum tali af. Erna kvað
þetta a.m.k. í annað sinn sem slíkt
námskeið er haldið og hugmyndin sé
að það verði árlegur viðburður hér
eftir. Það var fyrir frumkvæði fóstr-
anna sjálfra að námskeiðin voru
tekin upp. Þau eru haldin í frítíma
kvennanna, - laugardag og sunnudag
- sem einnig greiða sjálfar kostnað
við uppihaldið, en sveitarfélögin
hafa greitt fyrir þær sjálft nám -
skeiðsgj aldið.
Um 80 manns á slíku námskeiði
hlýtur þó að þýða mjög góða mæt-
ingu?
„Frá okkur vantaði t.d. aðeins
eina stúlku af ellefu og ætli það sé
ekki svipað frá mörgum öðrum
stöðurn", sagði Erna. Aðalverkefni
laugardagsins sagði hún vera ýmiss-
konar föndur sem fram fór undir
handleiðslu Ólínu Geirsdóttur, fönd-
urkennara Fósturskóla íslands og
Bergljótar Aradóttur, kennara í
tveim hópum. Síðdegis kom formað-
ur Fóstrufélagsins og hélt fund með
fóstrum á Suðurlandi um kjaramál
þeirra og réttindamál. Starfsstúlk-
urnar skiptust einnig á skoðunum
m.a. um hvaða kjara og réttinda þær
nytu á hinum og þessum stöðum og
kom í ljós að þar var nokkur munur
á.
Að fundi loknum hélt allur
hópurinn í mat austur að Selfossi. En
þaðan var aftur haldið í Ölfusborgir
þar sem efnt var til kvöldvöku. „Þar
komum við fram með skemmtiatriði
frá hverju barnaheimili og síðan
sungu allir fullum rómi. Þetta var
ákaflega gaman“, sagði Erna.
Á sunnudeginum var hafist handa
kl. 10 um morguninn og byrjað á
leikrænni tjáningu sem Hlíf Agnars-
dóttir leiðbeindi við. |
En að hvaða notum kemur nám-
skeið sem þetta í starfi, t.d. leikræn
tjáning?
„T.d. þegar brjálað veður er úti,
börnin búin að vera inni allan daginn
og orðin pirruð þá förum við kannski
og leikum vindinn, rigningu, blóm
og svo framvegis. Eins þegar maður
syngur og leikur með, þá er það
raunverulega leikræn tjáning. Börn-
um finnst þreytandi til lengdar að
sitja grafkyrr og hlusta á sögur, en
að fara í eitthvað það sem þau geta
fengið að leika og tjá sig hefur mjög
róandi og góð áhrif á þau. Föndrið
sem við lærðum kemur okkur líka til
góða í starfinu með þeim. Auk þess
gefa svona námskeið fóstrum tæki-
færi til að bera sig saman, t.d. um
hinar og þessar starfsaðferðir, sem
þær hafa hver um sig prófað. Þriðji
kosturinn er sá að það er mjög
gaman að koma svona saman og lífga
mann upp fyrir veturinn, bæði félags-
lega og á annan hátt,“ sagði Erna.
Hún var svo áhugasöm og ánægð að
okkur grunar að hún sé þegar farin
að hlakka svolítið til næsta náms-
keiðs.
-HEI
■ Sannkölluð blómarós - gerð úr sUki-
pappir. Myndir Sigurður S.
N AMSKEIÐIN
77
VINNUEFTIRLIT RÍKISINS
Síðumúla 13,105 Reykjavik. Simi 82970
Laus staða
BYGGINGATÆKNIFRÆÐINGS
eða
BYGGINGAFRÆÐINGS
Verkefni eru einkum á sviöi húsnæöismála
vinnustaða og öryggismála byggingaiðnaöar.
Nánari upplýsingar um starfiö eru veittar í síma
82970 millikl. 8.00 og 16.00.
launakerfi opinberra
Laun samkvæmt
starfsmanna.
Umsóknir sendist Vinnueftirliti ríkisins,
Síöumúla 13, Reykjavík, fyrir 15. desember nk. á
eyöublöðum sem þar fást.
Allir landsmenn
geta orðið
þátttakendur í
áskriftargetraun
Tímans
Næst drögum við 2. des., ’82
um 50,000 kr. vinning SHARP
myndband og SHARP litsjónvarp.
Adeins skuldlausir áskrif endur
getatekiðþátt í getrauninni,
Getraunaseðlarnir birtast
laugardagsblöðunum
REYKJAVIK - SIMI 86300