Tíminn - 29.12.1982, Blaðsíða 11
10
MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1982
MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1982
GglíS
rn rnr fT' tr?
Píanó- og orgelbekkir Áklæði: Leður og pluss
Ljós fyrir píanó-orgel-flygla
Taktmælar Kertastjakar á píanó
Sendum í póstkröfu Verslun Leifur H. Magnússon hljóðfærasmiður Vogaseli 5. Sími 91-77585
VÖKVAPRESSA
MÚRBROT — FLEYGUN
HLJÓÐLÁT — RYKLAUS
Tökum að okkur alla múrbrota- og fleygavinnu, hvar og hvenær
sem er. T.d. í húsgrunnum og holræsum, brjótum milliveggi,
gerum dyra og gluggaop, einnig fyrir flestum lögnum og f.l.
Erum með nýja og öfluga vökvapressu. Vanir menn.
VERKTAK símí 54491.
19
íþróttir
Umsjón: Samúel Örn Erlir^ Vsson
iróttlr
■ Guðmundur Guðmundsson í láréttri stellingu í leiknum í gær, og skorar eitt af sex mörkum sínum. Steindór Gunnarsson og Hans Guðmundsson fylgjast með, en Danirnir eru hálf spældir
á svipinn. Tímamynd: Róbert
STRÁKARNIR LÖGDU DANINA
í HÖRKUSPENNANDI LEIK
Lokatölur urðu 22 mörk gegn 21 okkur í hag eftir harðan endasprett
■ Islenska landsliðið í handknattleik sigr-
aði Dani í gærkvöldi í hörkuspennandi leik.
Islenska liðið hafði frumkvæðið ■ leiknum
allan tímann, en mestu munaði í lokin góður
sprettur Páls Ólafssonar sem hafði ekki
skorað í leiknum, þegar tíu mínútur voru til
leiksloka, en hafði átt fallegar linusendingar.
Páll skoraði sautjánda mark íslands þegar
tíu mínútur voru til leiksloka, 17-16, Danir
jöfnuðu 17-17, Kristján Arason skoraði úr
víti 18-17, Sigurður Sveinsson skoraði með
þrumufleyg 19-17, Danir skoruðu 19-18, en
þá hófst Páls þáttur Ólafssonar fyrir alvöru.
Páll skoraði með glæsilegu langskoti 20-18,
„ÓBROTINN
■ „Ég er óbrotinn", sagði Páll Ólafs-
son eftir leikinn, en Danir fóru frekar
óblíðum höndum um hann oft í leiknum.
„Það er seigt í manni“, sagði Páll „en
það var gaman að vinna, enda kominn
tími til“.
„Þeir tóku hart á manni, það mega
þeir eiga“, sagði Guðmundur Guð-
mundsson eftir leikinn „og það var
dálítið erfitt að átta sig á dómunum. Mér
fannst þetta ekki góðir dómarar, þeir
voru ósamkvæmir sjálfur sér. En þeir
dæma líka töluvert öðruvísi en gert er
hér. Þeir gefa manni ekki annað tæki-
færi. Ef brotið er á manni, og maður
heldur áfram, en nýtir ekki færið, er
bara haldið áfram eins og ekkert hafi í
skorist. En að sjálfsögðu var gaman að
vinna. Þetta danska lið er svipað að
styrkleika og dönsk landslið hafa verið,
en markvörðurinn þeirra var sériega
góður í leiknum, hann varði stórkost-
lega“, sagði GuðmundurGuðmundsson.
Dönum brást bogalistin í næstu sókn og Páll
dreif sig skemmtilega inn úr horninu um leið
og íslendingar voru komnir í sókn, 21-18.
Róleg byrjun
Leikurinn var fremur rólegur framan af en
hafði skemmtilega stígandi. Bæði liðin settu
upp sóknir og léku nokkuð duglega vörn.
Það var Morten Stig Christiansen fyrirliði
danska liðsins sem opnaði markareikning-
inn, en Bjarni Guðmundsson jafnaði af
línunni. Kristján Arason tók forystuna fyrir
ísland með góðu langskoti 2-1, og Steindór
Gunarsson skoraði þriðja mark íslands með
einkar vel útfærðu svifskoti af línunni, eftir
hraðaupphlaup.
íslendingar voru grimmari í hraðaupp-
hlaupunum til að byrja með. Guðmundur
Guðmundsson gerði fjórða markið eftir
hraðaupphlaup, en þá kom lægð í leik
íslenska liðsins, sem var helst til of sveiflu-
kenndur lengst af. Danirnir söxuðu grimmt
á forskotið og svo fór að þeir jöfnuðu 4-4.
Kristján skoraði fimmta mark íslendinga úr
víti, og félagi hans úr FH Hans Guðmunds-
son skoraði 6-4 úr langskoti, en þar var Hans
heppinn að skora, þar sem Páll Ólafsson beið
honum á hægrihönd alfrír á línunni. Kristján
Arason skoraði 8-5 úr langskoti, en Danir
létu það ekki hræða sig og jöfnuðu aftur,
smám saman að sjálfsögðu, 8-8. Hans
Guðmundsson skoraði sitt annað mark og
íslands níunda rétt fyrir leikhlé með lang-
skoti, en Daninn er snöggur upp á lagið og
jafnaði fáum sekúndum áður en flautan gall.
Basl í síðari hálfleik
Síðari hálfleikur var í járnum mest allan
tímann, íslendingar skoruðu á undan, en
Danir jöfnuðu jafnharðan. Og utan vallarins
glumdi hás rödd Leif Mikkelsen þjálfara
danska liðsins, en hann átti oft ýmislegt
vantalað við sína menn. Kristján Arason
skoraði fyrir ísland 10-9 úr víti eftir að brotið
hafði verið á Guðmundi Guðmundssyni,
sem gerðist nú æ atkvæðameiri í horninu og
í hraðaupphlaupum. Þorgils Óttar skoraði af
'iínunni og síðan Guðmundur úr hraðaupp-
hlaupi, þá Kristján Arason úr víti og
Guðmundur úr horninu. Alltaf jöfnuðu
Danir, en Guðmundur skoraði 16. mark
íslands eftir einkar vel útfært hraðaupp-
hlaup, og þá höfðu íslendingar loks náð
tveggja marka forystu, 16-14. Danir skoruðu
15-16 og nú tóku leikar að æsast. Páll skorar
17-15, en Danir jafna 17-17. Kristján 18-17,
Sigurður Sveinsson 19-17, Danir 19-18 og þá
tók Páll Ólafsson til sinna ráða, 21-18.
Lokasprettur...
Danir hófu að leika maður á mann vörn í
lok leiksins, og kom þar fram léttleiki
Dananna og góð boltameðferð. Per Skaarup
línumaður Dananna átti mikinn þátt í
lokabrolti Dana, skoraði nítjánda mark
þeirra og Keld Nielsen það tuttugasta. Allt
varð brjálað í höllinni þegar Guðmundur
Guðmundsson braust í gegn og skoraði 22.
mark íslendinga og sigurinn var í höfn, 15
sekúndur til leiksloka og ómögulegt fyrir
Dani að jafna. Per Skaarup átti síðasta orðið
í leiknum skoraði með langskoti, og var ekki
laust við að það færi honum betur, þó
línumaður sé, ekki nenta svona tæpir 2
metrar á hæð.
Enn er ónefndur þáttur Brynjars Kvaran
í leiknum, hann varði 13 skot og mörg þeirra
með miklum tilþrifum. Var oft ötrúlegt
hvaða boltum hann náði.
Bestir íslendinga í leiknum voru Guð-
mundur Guðmundsson, Páll Ólafsson og
Brynjar Kvaran. Guðmundur eitilharður
allan tímann, Páll sterkur í vörninni gaf
fallegar línusendingar og átti góðan loka-
kafla, Brynjar traustur að baki íslensku
varnarinnar.
Poul Sörensen var sterkastur Dana, mark-
vörður sem varði hreint ótrúlega á köflum.
Þá var Michael Kisbye Ström sterkur,
leikinn leikmaður og ótrúlega snöggur þó
frekar stór sé. Þá var Per Skaarup skemmti-
legur, ekki beint nettur línumaður, en skilar
sínu og hefur fyrirmyndar framkomu á.
leikvelli.
Mörk fslands skoruðu Kristján 6, Guð-
mundur 6, Páll 3, Hans og Bjarni 2 hvor og
Steindór, Þorgils Óttar og Sigurður Sveins-
son 1 mark hver.
„GOÐUR
SIGUR”
■ „Ég er ánægður með að leikurinn
vannst", sagði Hilmar Björnsson, lands-
liðsþjálfari. En við getum gert betur,
það er enginn vafi“.
„Leikurinn var dálítið gloppóttur,
það komu kaflar sem voru hálf vand-
ræðalegir, en þetta gekk allt saman. Það
er mjög jákvætt og uppörvandi fyrir
okkar lið að vinna leik gegn svo sterkri
þjóð sem Danir eru. Þetta hefur verið
hálf niðurdrepandi undanfarið. Landslið
okkar er svo ungt að það þarf svo
sannarlega á uppörvuninni að halda.
Varnarleikurinn var betri í kvöld, en
hann hefur verið undanfarið, þó að
vissulega kæmu slæmir kaflar. Við
fengum á okkur mörk sem voru mjög
ódýr, en það er ekki hægt að skrifa þau
á vörnina beint, flest þeirra komu eftir
að boltinn glataðist og sem fráköst."
Hilmar var spurður hvaða breytingar
yrðu gerðar á liðinu.
„Ég gef það ekki endanlega út fyrr en
á hádegi á morgun“, sagði Hilmar.
United
steinlá
■ Kenny Dalglish skoraði þrjú mörk í fyrradag gegn Manchester City. En
ekki tókst honum né félögum hans að gera mark gegn botnliðinu Sunderland
í gærkvöldi.
■ Liverpool gerði jafntefli 0-0 við
Sunderland á Roker Park í gærdag. Það
hefði mátt ætla að þetta jafntefli gegn
botnliðinu yrði til þess að fimm stiga
forskot sem Liverpool hafði í deildinni
eftir leikina í fyrrakvöld yrði til þess að
hin liðin nálguðust, en óvænt úrslit
gærdagsins komu í veg fyrir það.
Nottingham Forest sem var fimm stigum
á eftir steinlá á útivelli 3-1 gegn Everton.
það voru Graeme Sharp (2) og Steve
McMahon sem skoruðu fyrir Everton,
en Steve Hodge svaraði fyrir Forest.
Þriðja liðið fyrir leikina í gær Man-
chester United, fékk heldur betur skell
þegar hið efnilega lið Coventry burstaði
þá 3-0. Peter Hormantschuk skoraði
fyrst hjá Gary Bailey, en Bailey náði
ekki að halda firnaföstu skoti hans
snemma í leiknum. Mark Hatelcy skor-
aði annað mark Coventry með góðum
skalla, og Jim Melrose bætti við þriðja
markinu í lok leiksins. Það stefnir því
allt í að Liverpool verði efst á stigatöfl-
unni í Englandi enn um sinn.
LIVERPOOL GOÐIR
— gegn Man. City, Nottingham
Forest lagði Coventry
■ Liverpool átti stórleik gegn Manc-
hester City er liðin mættust á Anfield
Road í fyrrakvöld. Kenny Dalglish gerði
þrennu, og lagði auk þess upp mark sem
Ian Rush batt endahnútinn á. Phil Neal
skoraði eitt, David Cross og Tommy
Caton skoruðu fyrir City.
Nottingham Forest lagði Coventry að
velli 4-2, nóg af mörkum þar, Willie
Young, John Robertson, Gary Birtles
og Mark Proctor skoruðu fyrir Forest,
en Steve Whitton og Jim Melrose
skoruðu fyrir Coventry.
Arsenal sigraði Tottenham á High-
bury 2-0 þrátt fyrir að vera einum færri
stærstan hluta síðari hálfleiks. Alan
Sunderland og Tony Woodcock séu um
að gera mörkin fyrir Arsenal, en
Woodcocvar að auki potturinn og pann-
an í leik Arsenal.
West Ham fékk Swansea í heimsókn
á Upton Park, og þar leit allt út fyrir að
Swansea ætlaði heim með stigin, þar sem
þeir komust í 2-0. En heimamenn réttu
úr kútnum og jöfnuðu og „hömruðu"
inn þriðja markinu. Bob Latchford
skoraði fyrir Swansea, en Ray Stewart,
Francois Van der Elst og Paul Goddard
skoruðu fyrir West Ham Danny Wallace
skoraði eina mark leiksins í Brighton
fyrir gestina Southampton, og Clive
Goodyear skoraði fyrir Luton gegn
Watford. Mark Chamberlain gerði út
um leikinn fyrir Stoke gegn Everton, en
West Bromwich Albion og Notts County
skiptu með sér stigum bróðurlega í 2-2
leik þar sem Justin Fashanu og Mark
Goodvin skoruðu fyrir County en Peter
Eastoe og Gary Owen fyrir Albion.
Birmingham lagði Aston Villa að velli
í Birmingham, og Villa má heldur betur
fara að taka sig saman í andlitinu, er
búið að tapa tveimur leikjum í röð í
deildinni síðan þeir töpuðu heims-
leiknum um daginn. Noel Blake, Ian
Handysides og Mick Ferguson gerðu
mörk Birmingham.
Úrslit í ensku kanntspyrnunni í
fyrradag urðu þessi:
1. deild
Arsenal-Tottenham 2-0
Birmingham-Aston Villa 3-0
Brighton-Southampton 0-1
Ipswich-Norwich 2-3
Liverpool-Man.City 5-2
Luton-Watford 1-0
Man United-Sundcrland 0-0
Notthm. Forest-Coventry 4-2
Stoke City-Everton 1-0
West Bromwich-Notts County 2-2
West Ham-Svansea 3-2
2. Deild
Barnsley-Sheffield 0-0
Bolton-Carlisle 1-0
Barnley-Blackburn 0-1
Chrystal Palace-Chariton 1-1
Fulham-Cambridge 1-1
Middlesboro-Leicester 1-1
Newcastle-Derby 1-0
Oldham-Leeds 2-2
QPR-Chelsea 1-2
Rotherham-Grimsby 3-0
Shrewsbury-Wolves 0-2
ÁFRAM
r
A
KRÓKNUM
■ Árni Stefánsson, fyrrum landsliðs-
markvörður í knattspyrnu, verður áfram
þjálfari og leikmaður með 3. deildarliði
Tindastóls frá Sauðárkróki. Um tíma
stóð til að Árni léki næsta sumar með
öðru Akureyrarliðanna, en Sauðkrækl-
ingar sóttu stíft að hafa Arna áfram og
var gengið frá samningum við hann
skömmu fyrir jól.
Litlar breytingar verða á liði þeirra
Tindastóls-manna og ætla þeir sér stóra
hluti í 3. deildinni næsta sumar. Þess má
geta að liðið hefur verið tíður gestur í
úrslitakeppni 3. deildar á undanförnum
árum, en ávallt misst af 2. deildarsætinu
langþráða á síðustu stundu.
MOLAR
Úrslit í gær
1. deild
Coventry-Man.Unitcd 2
Everton-Nottingh.For. 2
Man. City-West Bromwich 2
Notts County-Stoke City 4
Sunderland-Liverpool (
Norwich-Luton 1
Soulhnmpton-Arsenal 2
Tottenham-Brighton 2
2. deild
Cambridge-Chrystal Palace 1
Carlisle-Middlesborough 1
Chelsea-Fulham 0
Grimsby-Newcastle 2
Leeds-Bolton 1
Leicester-Barnsley
Shellield-Rotherham 0
Wolverhampton-Burnley 2
STAÐAN
1. deild
Liverpool .
Nott. For.
Man. Utd.
West Ham
Watford . .
Covcntry .
Man. City
WBA . . .
Aston Villa
Tottenham
Southampton
Everton .
Notts C.
Stoke ............21 8 3 1« 27
Ipswich........... 21 7 6 8 27
Arsenal........... 21 7 6 8 27
Norwich .......... 21 6 5 10 23
Luton............. 21 5 8 8 23
Swansea .......... 20 6 4 10 22
Brightou..........21 6 4 11 22
Birmingham....... 20 4 8 8 20
Sunderland........21 4 7 10 19
2. deild
Wolves
QPR
Fulham
Shefiield
Leicester
Leeds
Grimsby
Oldham
Blackburn
Shrewsbury
Chelsea
Newcastle
Rotherham
Barnsley
Chrystaí Pal.
Charlton
Carlisle
Middleshoro
Bolton
Cambridge
Burnley
Derby
Sóknarnýting
■ Sóknarnýting íslcnska landsliðsins
var um 50% í lciknum gegn Dönum í
gær. íslenska liðið skoraði 9 mörk í
fyrri hálfleik úr 21 skottilraun. í siðari
hállleik skoraði liðið 13 mörk úr 24
skottilraunum, en samanlagt eru það
22 mörk úr 45 skottilraunum, eða rétt
tæplega 50%. Kristján Arason skoraði
6 mörk ur 10 skottilraunum, en
glataðar sendingar hans voru þrjár.
Steindór Gunnarsson og Sigurður
Sveinsson gerðu sitt mark hvor úr
jafnmörgum skottilraunum, en Guð-
mundur Guðmundsson skoraði eins og
Kristján Arason 6 mörk úr 10 skottil-
raunum. Páll Olafsson skoraði 3 inörk
úr 5 skottilraunuin.
21 13 4 4 43
21 12 4 5 40
21 11 5 5 38
21 9 6 6 33
21 10 3 8 33
21 7 10 4 31
21 9 4 8 31
20 7 9 4 30
20 8 5 7 29
20 8 7 7 29
21 7 7 7 28
21 7 7 7 28
21 7 7 7 28
21 6 9 6 27
21 6 8 7 26
20 7 4 9 25
21 7 4 10 25
21 6 7 8 25
21 5 6 10 21
21 5 6 11 21
21 4 3 14 15
20 2 9 9 15
Ámi Stefánsson