Tíminn - 02.02.1983, Blaðsíða 11
10
Uimm
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRUAR 1983
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 1983
15
Iþróttlr
Iþróttir
Umsjón: Samúel örn Erjlngsson
Lúalegt
bragð
Norð-
marma
■ „Þad er ekki nokkur vafi á því að
Norðmaðurinn miðaði beint í andlitið
á mér, og grýtti í mig af ásettu ráði“,
sagði Brynjur Kvaran eftir leikinn í
gserkvöldi.
Atvikið sem Brynjar Kvaran vísaði
til átti sér stað i byrjun síðari hálflciks.
Brynjar hafði varið mjög vel i fyrri
hálfleiknum, alls 9 skot. Norðmenn
fengu vítakast strax á 3. mínútu síðari
hálfleiks, sem Thor Edvin Helland
tók. Norsku leikmennirnir fóru allir
yfir á sinn vallarhelming, og skiptu sér
ckkert af þvi hvað um frákastið yrði,
ef um það væri að ræða.
Thor Edvin Helland skaut af öllu
afli beint í andlit Brynjars, með þeim
afleiðingum að Brynjar varð að yfir-
gefa leikvöllinn. Við þetta áfaU hikst-
aði íslenska liðið lítillega, en náði sér
síðan á strik, eftir að Kristján Sig-
mundsson hafði fundið sig og hitnað i
markinu.
Frá Ingólfi Hannessyni í Osló:
ORUGGUR SIGUR A NORDMÖNNUM
ísland sigraði 22:17 ■ Norðmenn réðu ekkert við
Alfreð Gíslason ■ Brynjar varði eins og berserkur
■ „Eg er mjög ánægður með
sigurinn hér, en þrátt fyrir það er
margt enn að og í rauninni margt
sem hikstar í vélinni hjá okkur. En
það er samt kominn ákveðinn
stöðugleiki í þetta“, sagði Hilmar
Björnsson landsliðsþjálfari eftir
landsleik íslands og Noregs í
Sandehallen rétt utan við
Drammen í Noregi í gærkvöld.
íslendingar sigruðu í leiknum
22-17, eftir að staðan hafði verið
10-6 landanum í hag í hálfleik.
Norðmcnn byrjuðu mcð nokkrum
látum í lciknum og skoruðu fyrsta
markið. En íslcndingarvorufljótir
að svara, og skoruðu næstu 4
mörk, og tóku þar með forystuna
4-1. Næstu mínútur var leikurinn
ansi jafn, og Norðmenn náðu til
dæmis að jafna um miðbik fyrri
hálfleiks 5-5.
íslensk einstefna
Eftir þetta var um algera ein-
stefnu að ræða að marki Norð-
manna, og skoruðu íslendingar 5
mörk gegn einu norsku. Það sem
aðallega skapaði þessa forystu,
10-6 í leikhléi, var stórgóður
leikur Brynjars Kvaran í marki
íslenska liðsins og varði hann alls
9 skot í fyrri hálfleik. Þá sýndi
Alfreð Gíslason snilldartakta, og
íslenska liðið lék að öllu leyti mjög
vel.
Síðari hálfleikur var nokkuð
jafn, og munurinn hélst nokkuð
svipaður fram eftir leiknum. 3-5
mörk skildu liðin að, 13-9, 16-11,
17-12, 18-12 og þar komst landinn
í 6 marka forystu. Eftir það
hikstaði íslenska liðið aðeins, og
Norðmenn komust í 15-18. Héldu
menn að íslenska liðið væri að
springa, en í ljós kom að það var
öðru nær. Landinn skoraði 2
næstu mörk, og þar með var
leikurinn búinn, ef svo má segja.
Hvort lið skoraði 2 mörk það sem
eftir lifði leiks, og leiknum lauk
22-17. Reyndar höfðu íslendingar
möguleika á að bæta enn marka-
töluna, þegar staðan var 22-16
fengu íslendingar tvö hraðaupp-
hlaup, en klúðruðu báðum mjög
klaufalega. Þetta gerðist þegar ein
mínúta var til leiksloka, og Norð-
menn skoruðu síðasta markið.
Leiknum hefði því getað lokið
24-16, og sést á því að munurinn
á liðunum var talsvert mikill.
Norskir réðu ekkert
við Alfreð
Bestu menn íslcnska liösins
voru Alfred Gíslason og Brynjar
Kvaran. Norðmenn réöu ekkert
við Alfreð sem átti enn einn
stórleikinn í þessari ferð. Alfreð
sýndi það og sannaði að hann er
að springa út sem handknattleiks-
maður, og réðu norsku varnar-
mennirnir nákvæmlega ekkert við
hann. Alfreð skoraði 7 mörk í
leiknum, hvert öðru glæsilegra.
Mörg markanna skoraði hann
með uppstökkum langt utan
punktalínu og þrykkti boltanum í
markið svo söng í. Brynjar Kvaran
átti stórleik í markinu. Hann varði
alls 9 skot í fyrri hálfleik, og 1 í
byrjun síðari hálfleiks, en þá varð
hann að yfirgefa völlinn vegna
höfuðhöggs. Kristján Sigmunds-
son sem kom í Brynjars stað í
síðari hálfleik varði einnig mjög
vel. Markvarsla í leiknum var því
með því allra besta sem hægt er
að búast við hjá íslensku hand-
knattleikslandsliði.
Páll Olafsson var góður í
leiknum, hornamennirnir Guð-
mundur og Bjarni voru mjög
frískir og Kristján Arason var
öruggur í vörninni, en frekar
rólegur í sókninni. Þorbjöm Jens-
son var sem klettur í íslensku
vörninni.
Mörkin
Mörk íslands: Alfreð Gíslason
7, Kristján Arason 4/2, Bjarni
Guðmundsson 3, Páll Ólafsson
3, Guðmundur Guðmundsson
2, Sigurður Sveinsson 2 og
Steindór Gunnarsson 1.
Flest mörk Norðmanna
skoruðu Thor Edvin Helland 5,
Karl Christian Hanneborg 4,
Bjarne Sten Jörgensen 3.
í norska liðinu bar Helland af
öðrum leikmönnum, og að mati
undirritaðs eini leikmaðurinn í
norska liðinu sem mundi sleppa í
íslenska landsliðið. Þrátt fyrir
þetta eru Norðmenn í mikilli
framför, og eru að byggja upp
landslið fyrir b keppnina 1985.
Norska liðið er mun sterkara
landslið en við höfum séð á
undanförnum árum, en íslending-
ar voru bara mun betri. r ,,
IngH.
Frábær
markvarsla
■ Brynjar Kvaran varði 10 skot
alls í leiknum, 9 í fyrri hálfleik,
og það tíunda fékk hann í
andlitið. Kristján Sigmundsson
varði 9 skot í síðari hálfleiknum,
og vörðu því íslensku markverð-
irnir alls 19 skot, sem er frábær
árangur.
Sóknarnýting
í leiknum í gær voru 23 soknir
og 10 mörk í fyrri hálfleik hjá
íslendingum, og í síðari hálfleik
24 sóknir og 12 mörk. Sóknarnýt-
ing var því 50% í leiknum.
Bragi Garðarsson
prentarl (4)
Birmingham/
WestHam
West Ham vann heima i fyrri umferðinni
5-0, og ætti þess vegna að sigra eða í það
minnsta gera jafntefli. Birmingham er í
neðsta sæti nú sem stendur, en spá mín er
sú að þeir vinni 1-0, og lyfti sór upp af
botninum.
Þorkell J. Sigurðss. Southampton/
prentari (1) Norwich
Þetta er 1. Norwich á engan séns.
AgnesBragadóttir Everton/
blaðamaður (3) NottsCounty
Það þarf ekki mikinn spámann til þess að
vita að Everton vinnur þennan leik, ég
hugsa 3-1. Ég tippa því að sjálfsögðu á 1.
2
Gísli Óskarsson Sunderland/
verslunarstjóri (1) Coventry
Bæði þessi lið eru í mikilh framför. Ég held
að Coventry vinni.
Ásta M. Reynisd.
nemi (3)
Ipswich/
Man. United
2. United vinnur og nær upp spennu í
deildinni á ný.
Þorgrimur Þráinss.
auglýsingastj. (1)
W.B.A./
Stoke
Þetta er öruggur heunasigur. Albion er vel
treystandi á heimavelli.
HinrikÞórhallsson Luton/
kennari Liverpool
Luton er skemmtilegt lið. Ég hef mikla trú
á þeim. Þeir halda jöfnu gegn meisturun-.
um.
2
i *
Guðm. Hreiðarss.
bifreiðastjóri (1)
Barnsley/
Wolves
Ég tippa á Úlfasigur. Úlfamir hafa verið í
svolitlu uppáhaldi hjá mér síðan Andy Gray
gekk til liðs við þá. Þeir eru líka á
sigurbraut.
Magnús Þorvaldss. Man. City/
bakari (2) Tottenham
Þeir eru erfiðir þessir karlar í Tottenham.
Ætli Tottenham vinni ekki tvo leiki í röð nú,
þeir hafa ekki gert það lengi.
2
Guðm. Torfas.
skrifstofumaður (1)
Bolton/
Fulham
Þetta eru 2. Fulham heldur sínu striki.
Óttar Sveinsson
bakari (2)
Nott. For./
AstonVilla
Það verður 1 í þetta skipti, þó að það ætti
kannske að vera x. En þetta verður óvænt.
Benedikt Guðm. Leeds/
prentari (1)
Sheff.Wed.
Leeds er mitt lið. Þeir vinna örugglega.
■ Enn eru það sex, sex og sex hjá okkur
hór í getraunaleiknum, það er að segja,
sex út, sex inni og sex nýir. Getraunaspá-
menn runnu flatir í hálku bikarkeppninnar
síðast, það kemur fyrir bestu menn. Þeir
sem nú kveðja okkur fá að sjálfsögðu kærar
þakkir fyrir samfylgdina.
Ekkert er gleðilegra en þegar hann
skellur á með blíðu, það er alveg klárt...
Skiðamenn fengu loksins almennilega
útrás fyrir hreyfiiðkun sína í góðu veðri
síðastliðinn laugardag, og í gær var stilla
og fegursta veður. Þær fréttir berast okkur
einnig frá Akureyri frá einum getrauna-
spekinga okkar, að þar sé nú snjómugga,
þar af leiðandi að koma skíðasnjór i Fjallið
aftur, enda kominn tími til.
Ef hingað kæmu verur annars staðar frá,
eins og til dæmis frá stjömunni El, eða bara
einhverri annarri stjömu, gæti þeim hinum
sömu orðið á að spekúlera dálitið i
fótabúnaði jarðarbúa. Segjum til dæmis að
þeir kæmu niður á Hellisheiðinni. Þar gætu
þeir séð gönguskiðamenn í reimuðum
skóm og með örmjó skiði á fótum, htu síðan
upp í Hveradalabrekkuna og þar væri fólk
í stómm plastblöðruskóm með breið skíði
viðfest, á fullri ferð niður brekkumar, eða í
húk-, eða sprengstellingu rúllandi í lyftunni
upp eftir. Svo fína frúin úr Reykjavik sem
fer tortryggin út úr bílnum sínum af þvi að
hann er orðinn eitthvað skrýtinn í akstri,
tiplar svo ráðalaus kringum spmngið dekk-
ið á hælaháu bandaskónum í nælonsokkun-
um og á samkvæmiskjólnum sem á vel við
á góðgerðarfundinum í Hveragerði. Ekki
þarf síðan að minast á nokkuð eðlilegan
fótabúnað að vetrarlagi, né bomsur eða
gúmmiskó...
■ Allir leikirnir á seðlinum í þessari viku
em erfiðir. Hlt að spá og verra að spá í. „Ég
vildi ekki lenda í þessu ódmkkinn", eins og
útigangurinn sagði. En þrátt fyrir misjafnan
árangur flestra í bikarkeppninni síðast, em
liklega allir galvaskir, eða alvakrir, og spá
enn grimmar en fyrr. Já, og á meðan ég
man, 15 raðir vom upp á 12 rétta síðast, og
vinningur á röð krónur 19.585.-. 319 raðir
vom með 11 rétta og 394 krónur þar á röð.
Leikirvikunnar em eins og áður er nefnt illir
yfirferðar, eins og sagt var um fjallvegi
íslands marga hverja á ámm áður, og á
stundum enn. Menn gætu átt í erfiðleikum
að ákveða föstu leikina á kerfisseðlunum.
Á flestum vígstöðvum em það neðri lið sem
fá efri lið í heimsókn, og þá er það
spumingin, hversu dýrt vegur heimavöllur-
inn gegn betra liði? Það em ekki alltaf jól,
né heldur páskcir, svo að það er ekkert
annað að gera en byrja... Sparksérfræðingar
hér heima em nú sem óðast að fyllast
vorhug, flestir vita orðið hvenær Reykjavík-
urmótið byrjar, og hvaða lið leika fyrsta
leikinn í íslandsmótinu, enda hefja menn
leik hér þegar blendingur Engla,Saxa og
Norðmanna fara að leggja tuðmnni í vor,
öllum handsaumuðum.
Nú að lokum er ekkert annað eftir en að
óska spámönnum gleðilegra úrslita, sér-
staklega þeim sem sitja á laugardögum í
gljábónuðum knattspymuskóm, júníformi
og hvitum sokkum upp á læri í ökkladjúpu
flosteppinu spyrnandi ímynduðum knetti
af öllu afli í netið, ímyndað net eða hárnet,
og glápandi á skjáinn með eld í augum og
roða í kinnum, já þetta er sport.
STAÐUR HINNA VANDLATll
STAÐAN
1 Staðan i efstu deildunum ú 1
1 Englandi eftir leiki á laugar- ■
dag.
l.deild:
Liverpool...... .. 25 17 5 3 60-21 56
Manchester Uti .25 13 7 5 35-19 46
Watford .! ..25 13 4 8 44-26 43
NottForest ... ..26 13 4 8 40-33 43
Coventry ..25 11 6 8 33-30 39
West Ham .. 25 12 1 12 42-37 37
Everton .. 25 10 6 9 40-32 36
W.B.A .. 25 10 6 9 37-35 36
Aston Villa .... .. 25 11 3 11 35-34 26
Manchester City . 25 10 6 9 34-38 36
Tottenharn .... .. 25 10 5 10 36-35 35
Ipswich ..25 9 7 9 39-30 34
Stoke .. 25 10 4 11 36-39 34
Arsenal ..25 9 6 10 31-33 33
Notts County .. ..25 9 4 12 32-44 31
Luton ..25 7 9 9 46-51 30
Southampton .. ..25 8 6 11 29-41 30
Swansea .. 25 7 6 12 31-36 27
Sunderland.... ..26 6 9 10 28-38 27
Norwich ..25 7 5 13 26-41 26
Brighton ..25 6 6 13 2348 24
Birmingham ... ..25 4 11 10 19-35 23
2.deild:
Wolves . 25 16 5 4 50:23 53
Q.P.R .25 15 4 6 40:22 49
Fulham .25 14 5 6 47:32 47
Shefí.W .25 10 8 7 40:33 38
Oldham .26 8 13 5 44:35 37
Leicest v. . 26 11 3 11 41:28 36
Leeds .25 8 12 5 30:27 36
Shrewsb 25 10 6 9-30:34 36
Grimsby .25 10 5 10 35:43 36 .
Bamsley .25 8 10 7 36:31 34
Blackb .25 9 7 9 37:37 34
Newcast .25 8 9 8 38:36 33
Rotherh. .26 8 8 10 29:37 32
Chelsea .25 8 7 10 32:31 31
Bolton .25 8 7 10 30:33 31
Carlisle .25 8 6 11 46:48 30
Cbryst. P ,26 7 9 9 27:32 30
Charlt .25 8 5 12 37:51 29
Middlesb ,25 6 10 9 28:44 28
Cambr ,25 7 6 12 27:40 27
Bumley 25 6 4 15 35:47 22
Derby 25 3 11 11 27:42 20
Alfreð Gíslason hefur líklcga aldrei leikið betur fyrir íslenska landsliðið en í gærkvöld.
RUMMENIGGE FER
EKKI FRA BAYERN
■ Karl Heinz Rummenigge,
fyrirliði vestur-þýska landsliðs-
ins batt um síðustu helgi enda
á þá umræðu fréttamanna og
áhugafólks um knattspyrnu að
hann væri á leið frá Bayern
Múnchen, og þá jafnvel til Ítalíu.
Rummenigge samþykkti á
fundi með Willi Hoffmann for-
seta Bayern Munchen á veit-
ingahúsi í Múnchen á laugar-
dag, að framlengja núgildandi
samning sinn við félagið um tvö
ár. Rummenigge mun þvi verða
hjá félaginu til 1987.
Karl Heinz Rummenigge er nú
27 ára að aldri. Hann mun því
verða 31 árs, þegar samningi hans
við Bayern Múnchen lýkur.
Rummenigge hefur tvisvar verið
kjörínn knattspyrnumaður ársins
í Evrópu. Hann hefur klifað á því
á keppnistímabilinu sem er að líða
að hann langi að leika á Ítalíu, en
neitað því að það væri aðferð til
að fá betri kjör hjá Bayern
Múnchen.
„Hér á ég heima“, sagði
Rummenigge eftir að samnings-
gerðin var kunngerð. „Ég er
ánægður með að öll sú. umræða
um að ég fari annað er yfirstaðin.“
„Framtíð okkar er nú mun
Ijósari", sagði Hoffmann eftir
samningsgerðina. „Nú getum við
einbeitt okkur að deildarkeppn-
inni til vors, og að Evrópukeppni
bikarhafa."
eftir
leikinn
HOFDII EKKI
TAPAÐ LEIK
■ Um síðustu helgi voru nokkrir
leikir í deildakeppninni í borð-
tennis. Þar urðu þau tíðindi hclst,
að lið Borgfirðinga í fyrstu deild
kvenna tapaði sínum fyrsta leik í
deildakeppni BTÍ í þrjú ár.
Lið Arnarins, það cr að segja
a-lið Arnarins gerði sér lítið fyrir
ogsigraði Borgarfjarðardöniurnar
Staðan
■ Staðan í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik eftir leikina um
síðustu helgi er þessi:
Fram-Keflavík 77-87
ÍR-KR 87-72
Valur 13 10 3 1178-1076 20
ÍBK 14 10 4 1162-1146 20
UMFN 13 7 6 1079-1080 14
Fram 14 5 9 1231-1236 10
KR 13 4 9 1102-1173 8
ÍR 13 4 9 981-1052 8
Næstu leikir eru:
Njarðvík-ÍR föstudag,
KR-Valur laugardag og
ÍR-Fram sunnudag.
á heimavelli þeirra, 3-1. Leikurinn
var í ferð Arnanna til Borgarfjarð-
ar, og aðrir leikir þar um helgina
voru: UMSB a - Örninn b 3-0,
UMSB b - Örninn a 0-3, UMSB
b - Örninn b 3-0. Einn leikur var
rétt fyrir áramót sem ekki hefur
verið sagt frá, UMSB a og UMSB
b léku og sigraði a liðið 3-0.
Leikurinn er tvígildur, það er að
a liðið fær fyrir hann fjögur stig,
en það mun vcra regla í deilda-
kcppni BTÍ, að lið frá sama félagi
leiki aðeins einn leik sín á milli,
og hann gildi sem tveir. Þetta mun
vera til að úrslitum sé ekki
hagrætt.
Einn leikur var um helgina í
fyrstu deild karla, Víkingur a vann
KR b 6-2.
Þróttur sigraði
■ Þróttur sigraði ÍS í gærkvöldi
í fyrstu deild kvenna í blaki 3-1.'
Þróttarstúlkur hafa þar með tekið
eindregna stefnu á íslandsmeist-
aratitilinn. Nánar um leikinn á
morgun.
„Lofa sigri í kvöld“
■ „Þetta gekk vel t kvöld, en við
höfum gert-betur áður. En miðað við
að þetta er fimmti leikur okkar á mjög
stuttum tíma, var þetta mjög góður-
leikur hjá okkur", -sagði Brynjar
Kvaran eftir leikinn í gærkvöld. „Við
þekkjum náttúrulega norska liðið eftir
að Stjarnan var hér fyrr í haust,
þekkjum marga leikmennina, og viss-
um nokkum veginn hverju við gengum
að. En ég er ansi hræddur við leikinn
á morgun. Ég er hræddur um að þeir
korrii ansi ákveðnir til leiks á morgun.
Á því þurfum við að gæta okkar. En
ég lofa sigri“.
„Fann mig
óvenjuvel“
„Ég fann mig óvenjuvel í þessum
leik, og mér fannst allt sem ég reyndi
ganga sérstaklega vel", sagði Alfreð
Gíslason eftir leikinn. „Kcrfin gengu
vel upp hjá okkur allan tímann, ogþád
hjálpaði mikið til “. Aifreð sagði
ennfremur að hann hefði búist við
Norðmönnunum öllu sterkari en þeir
voru.
„En ég er hræddur um að Norðmenn
verði sterkari í seinni leiknum, og við
veikari. Norðmennimir verða ömgg-
lega hgrðir. - En við stefhum á sigur
og ekkert annað en sigur“, sagði
Alfreð Gíslason, „við ætlum að klára
þessa ferð almennilega".
Þeir sem hvfldu ,
■ Þeir sem hvíldu í lciknum voru
Þorgils óttar Mathiesen, Einar Þor-
varðarson og Ólafur Jónsson. Hilmar
Bjömsson gaf ekki upp f gærkvöld
hverjir mundu hvflá t leiknum á
morgun.
Brynjar Kvarán
ómeiddur
Það kom í ljós eftir leikinn gegn
Norðmönnum að meiðsli Brynjars
Kvaran vora ekki alvarleg, og var
hann að mestu búinn að ná sér eftir
leikinn. Hann mun því að öllum
líkindum leika með á morgun, það er
að segja ef ekki er komin röðin að
honum með að hvíla. f