Tíminn - 02.02.1983, Blaðsíða 2

Tíminn - 02.02.1983, Blaðsíða 2
Rangt að flestar rúdurnar haf i verið brotnar ■ í Tímanum í gær var forsíðufrétt um læti á balli í Sólgarði í Eyjafirði. Þar stóð í fyrirsögn að flestar rúður í húsinu hefðu verið brotnar. Petta er ekki rétt því hver rúða hússins er samsett af mörgum smáum og var um að ræða að 10 svona smárúður voru brotnar, en ekki 10 heilir gluggar. Var því um misskilning að ræða milli fréttamanns og heimildarmanns. Þessar smárúður eru úr einföldu gleri og því auðvelt að brjóta þær úr römmunum en tjónið alls nam ckki nema 400 kr. Eru viðkomandi beðnir velvirðingar á þessum mistökum í fréttaskrifum. -FRI Þorsteinn lætur af störfum hjá V.S.Í. ■ I frétt frá Vinnuveitendasambandi íslands f gær segir að Þorsteinn Pálsson sent undanfarin fjögur ár hcfur gegnt starfi framkvæmdastjóra VSÍ, hafi óskað eftir að láta af þvf starfi frá og með 1. fcbrúar að telja. Hefur framkvæmdastjórn sambands- ins fallist á þessa ósk. Sem kunnugt er hlaut Þorsteinn kosningu í efsta sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna í Suðurlandskjör- dæmi fyrir skömmu. Einhell vandaðar vörur Vatnsdælur Tvær stærðir Hagstætt verð Skeljungsbúðin SÍÖumúla33 símar 81722 og 38125 Mikið deiluefni í bæjarstjórn Hafnarfjarðar: ÁKVEÐIÐ AÐ SEUA BÆJARINS í LÝSI & ■ Frá umræðum í bæjarstjórn Hafnarfjarðar í gær. Markús Á. Einarsson, flytur mál sitt. (Tímamynd G.E.) Ávarp vegna Patreksfjarðar- söfnunarinnar — minnihlutinn einhuga á móti sölunni ■ Bæjarstjórn Hafnarfjarðar sam- þykkti í gærkvöldi að selja hlut bæjar- sjóðs Hafnarfjarðar og Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar í fyrirtækinu Lýsi og mjöl h/f en þessir tveir aðilar hafa átt þar meirihluta. Þessi ákvörðun olli hörðum deilum á fundi bæjarstjórnar sem stóð fram á kvöld. Fulltrúar meirihlutans, Sjálfstæðisflokks og óháðra borgara stóðu að þessari sölu, en fulltrúar minnihlutans lögðust gegn henni og urðu harðar umræður um málið. Sölu- verð hlutabréfanna var 955.500 krónur. Bæjarfulltrúar minnihlutans, sem töluðu við umræðuna í gær, Markús Á. Einarsson frá Framsóknarflokki, Guð- mundur Árni Stefánsson Alþýðuflokki, og Rannveig Traustadóttir Alþýðu- bandalagi átijldu meirihlutann fyrir að hafa látið fyrirtækið dankast og drabbast niður, því hefði verið neitað um ábyrgð bæjarins á láni sem það hugðist taka s.l. haust, ekki hefði verið hægt að standa eðlilega að viðhaldi húsnæðis og tækja vegna þess að rafmagn hefði verið tekið af húsnæði fyrirtækisins og þar fram eftir götunum. Markús Á. Einarsson sagði að þegar fulltrúar meirihlutans segðu að ekki ætti að taka fé úr vösum einstak- linga í bænum til að halda uppi atvinnu væri ekki unnt að skilja það á annan veg en þann að meirihlutinn hugsaði sér að láta BÚH fara sömu leiðina og Lýsi og mjöl, en það fjármagn sem bæjarsjóður legði fram til atvinnumála færi að langmestu leyti til rekstrar Bæjarútgerð- arinnar. Þá gagnrýndu fulltrúar minni- hlutans það harðlega að ekki skyldi tryggt að vinnsla fiskimjöls færi fram ■ Þeir sem á annað borð hafa fylgst með umræðunni um breytingar á kjör- dæmamálinu kannast við að meðaltals- aðferðin hefur iðulega verið nefnd sem hentug úthlutunaraðferð. Hafa fleiri en einn viðmælenda Tímans orðað Leif Ásgeirsson stærðfræðiprófessor við þessa reikniaðferð, auk þess sem einn viðmælandi Tímans sagði að Leifur hefði á sínum tíma sagt að meðaltalsað- ferðin væri sanngjarnasta leiðin sem hægt væri að fara í kjördæmamálinu. Tíminn hafði samband við Leif og spurði hann um mál þetta: „í þessum umræðum um nýtt kosningafyrirkomu- lag, þá hefur nafn mitt oftar en einu sinni verið nefnt, og ég tel að það hafi verið nokkuð blandað málum í því sambandi, m.a. kannast ég ekki við að ég hafi úrskurðað að það sem nú er nefnt meðaltaisaðferð, væri sanngjarnasta leiðin. Úr slíku er í rauninni ekki hægt að skera stærðfræðilega, því það er hægt að finna sumt sem mælir með og sumt sem mælir móti hverri aðferð. Auk þess kannast ég ekki við að ég hafi haft neitt sérstaklega með þessa reikniaðferð að gcra.“ -AB áfram hjá Lýsi og mjöl. Fulltrúar meirihlutans rökstuddu söluna með því að það yrði of stór baggi á bæjarsjóði ef koma ætti fyrirtækinu af stað aftur en rekstur þess hefur legið niðri síðan á síðastliðnu sumri. Kaupendur að hlutabréfum bæjar- sjóðs og Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar eru Skipafélagið Víkur h/f og Saltsalan h/f. Kaupverð hlutabréfanna er 955.500 krónur eins og áður segir og gagnrýndu fulltrúar minnihlutans að bréfin skyldu seld á þeim tíma þegar þau væru í mjög lágu verði vegna sölutregðu á fiskimjöli, en eftir að ákvörðun hefði verið tekin um söluna, þ.e. í september s.I. hefði fiskimjöl aftur hækkað í verði. Væri því hlutur bæjar og Bæjarútgerðar seldir á allt of lágu verði, enda hefðu borist hærri tilboð í hlutina eftir að frestur rann út til að skila tilboðum. JGK ■ Vegna hinna þungu og válegu atburða sem urðu á Patreksfirði laug- ardaginn 22. janúar, þegar flóðbylgjur runnu þar yfir byggðarlagið með þeim afleiðingum að fjórir létust og fjöldi fólks missti heimiii sín, höfum við undirritaðir ákveðið að hafa forgöngu um fjársöfnun meðal almennings til styrktar þeim og hjálpar, sem sárasta nauðina hafa orðið að þola og þyngstar raunir. Við gerum okkur það ljóst, að svo þungt böl sem þetta, svo snögg og óvænt svifting eigna og ástvina, og yfirþyrntandi röskun í cinkalífi fólks, sem nú hefur orðið á Patreksfirði, verður aldrei að fullu bætt þeim, sem orðið hafa að þola. En heilög skylda býður hverjum þegni þjóðar að koma til hjálpar nauðstöddu samferðafóiki, létta því eftir megni þungar byrðar svo að það megi finna og sannreyna að ljósið skín í myrkrinu, að heit hjörtu samúðar og mannkærleika bærast í brjósti þeirra, sem fjar standa og finna sárt til með þeim, sem hlotið hafa hvað þyngstan skapadóm. Við heitum því á alla, skylda og vandalausa, brottflutta Patreksfirð- inga og héraðsmenn, að taka saman höndum við okkur. Við heitum á almenning að gefa þessu málefni verðugan gaum, að við megum einu sinni enn rétta hlýja hjálparhönd þeim, sem við þyngst bölið búa. Góðir samborgarar. Þið sem viljið og getið sinnt þessu brýna erindi, leggið vinsamlegast framlag ykkar inn á gíróreikning nr. 17007-0 á pósthús- um, í bönkum og sparisjóðum. Patreksfjarðarsöfnunin: Póstgíró 17007-0. Réykjavík 30. janúar 1983. Sigfús Jóhannsson Svavar Jóhannsson Tómas Guðmundsson Steingrúnur Gíslason Hannes Finnbogason Grímur Grímsson „Hef ekki úrskurðað að meðaltalsaðferðin væri sanngjörnust” — segir Leifur Ásgeirsson, stærdfrædiprófessor Rúmar ÍOO milljónir vantar á skuldabréfakaup iifeyrissjóða ■ Yfir 100 milljónir króna, eða um röskan þriðjung vantar á að lífeyrissjóð- irnir í landinu hafi keypt þær 297 millj. króna skuldabréf af opinberu byggingar- sjóðunum sem gert var ráð fyrir í lánsfjáráætlun 1982. Lánsfjáráætlun 1982 gerði ráð fyrir 187 millj. skuldabréfakaupum af Bygg- ingarsjóði ríkisins (sem var helmingur- inn af áætluðum heildarlánum sjóðsins), en þessi kaup námu hins vegar 128,9 millj. á síðasta ári, eða 69% af áætluðum kaupum. Sömuleiðis var gert ráð fyrir 110 millj. króna skuldabréfakaupum af Byggingarsjóði verkamanna, en raunin varð aðeins 66,8 millj. kr. eða innan við 61%. Aðspurður kvað Sigurður Guðmunds- son, framkvæmdastjóri Húsnæðisstofn- unar ríkisins þennan 100 millj. kr. mun hafa gert verulegt strik í reikninginn hjá stofnuninni á síðasta ári. Bilið hafi verið brúað með yfirdráttarlánum hjá Seðla- bankanum og lántökum frá Veðdeild Landsbankans. Þótt útkoman sé sú er að ofan greinir er enn gert ráð fyrir að hækka skyldu- kaup lífeyrissjóðanna á skuldabréfum af fjárfestingalánasjóðunum úr 40% í 45% eða um 12,5%. „Við teljum að reynslan sýni að það verði að fara mjög varlega í slíka hluti og að venjulega hafi verið reiknað með miklu meiri skuldabréfa- kaupum af lífeyrissjóðunum en þeir hafa síðan í reynd getað staðið við,“ sagði Sigurður sem kvaðst því nokkuð vantrú- aður á að fyrrnefndar áætlanir standist. -HEI Undirrituðu lánssamning vegna Blönduvirkjunar ■ í dag var undirritaður í Tokyo lánssamningur milli Landsvirkjunar og Yamaichi Securities Company, Limited og nokkurra annarra japanskra lána- stofnana varðandi skuldabréfalán til Landsvirkjunar að fjárhæð 5 milljarðar yena eða um 400 millj. króna á núverandi gengi. Af hálfu Landsvirkjun- ar var lánssamningurinn undirritaður af Halldóri Jónatanssyni, aðstoðarfram- kvæmdastjóra fyrirtækisins. Lánið er til 10 ára og eru fyrstu 6 árin afborgunar- laus. Vextir eru 8.6% á ári. Verður lánsfénu varið til fjármögnunar Blöndu- virkjunar og annarra framkvæmda Landsvirkjunar í ár.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.