Tíminn - 20.02.1983, Síða 9
SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983
menn og málefni " ' __ HBHHHHHIHHÍ^I
ÚRELT LÖGGJÖF VIÐ-
HELDUR EINOKUN
■ Lögð hafa verið fram á Alþingi
þrjú frumvörp sem eru samverkandi á
þann veg, að lagt er til að allt að því
einokun á brunatryggingum húsa verði
aflétt. Lagabreytingarnar miðast að
því, að húseigendum verði frjálst hvar
þeir brunatryggja hús sín eins og aðrar
eignir. Það kerfi, sem búið er við í
sambandi við brunatryggingar, var gott
og sjálfsagt á sínum tíma en er nú löngu
úrelt, enda löngu búið að breyta tii-
svarandi lögum í öllum nágranna-
löndum okkar. Sá háttur er hafður á að
sveitarfélögin semja við ákveðið trygg-
ingafélag um brunatryggingar allra
fasteigna. Brunabótafélag íslands hef-
ur frá öndverðu haft þessar tryggingar
á sinni hendi, nema hvað allmörg
sveitarfélög hafa tryggt hjá öðru trygg-
ingafélagi.
Það er ekki í þágu húseigenda að
starfsemi þessi er einokuð. Tryggingar
eru ekki ódýrari en þótt þær væru
frjálsar og mörg dæmi eru um að eignir
eru vantryggðar vegna úr sér genginna
og oft handahófskenndramatsreglna.
Mjög fáir fylgjast með brunabótamati
eigna sinna, hvort þær eru nægilega
háar, það er hið oþinbera sem sér um
þetta allt saman og það er ekki fyrr en
einhver verður fyrir óhappi, og hús
brennur, að menn átta sig á að það var
vantryggt.
Eins og flestum mun kunnugt bjóða
tryggingafélög alls kyns aðrar húsa- og
heimilistryggingar og notfæra sér það
mjög margir og tryggja eignir sínar
fyrir alls kyns uppákomum og skaða,
nema brunatryggingarnar. Þæreru ein-
okaðar.
Guðmundur G. Þórarinsson lagði
fram frumvörpin sem færa þessi mál í
frjálsræðisátt ef að lögum verða. Þau
eru um breytingar á lögum um Bruna-
bótafélag íslands, um skráningu og
mat fasteigna og um brunavarnir og
brunamál. Með frumvarpinu um
Brunabótafélagið er ákvæði til bráða-
birgða þess efnis, að þrátt fyrir gildandi
samninga sveitarfélaga og vátrygginga-
félag um brunatryggingar fasteigna
eru tryggingatakar frjálsir að því að
tryggja fasteignir sínar frá og með 1.
jan. 1984 hjá hverju því tryggingafélagi
er þeir óska og hefur starfsleyfi.
Einkaréttur verði
afnuminn
í greinargerð um Brunabótafélagið
segir að þær meginbreytingar sem það
feli í sér séu: Numin eru brott úr
lögunum öll ákvæði er lúta að einka-
rétti Brunabótafélags íslands á bruna-
tryggingum húsa. Ákvæði um forráða-
rétt sveitarfélags á brunatryggingum
allra fasteigna í hverju sveitarfélagi.
Ákvæði um meðferð á vanskilum ið-
gjalda og skylduábyrgð tryggingafé-
lags. Ákvæði um brunabótamat og
hvernig það skuli gert og hverjir skuli
meta hús. 011 ákvæði sem lúta að
almennum brunavörnum í landinu og
ráðgjöf fyrir ríkisstjórn.
Megintilgangur þessa lagafrumvarps
er að losa um þær viðjar, sem bruna-
tryggingar húsa í landinu eru nú í. Hér
er um tvenns konar bindingu að ræða.
Annars vegar hafa sveitarstjórnir for-
ræði á því, hvar hús í umdæminu eru
brunatryggð, og hins vegar nýtur
Brunabótafélag íslands nokkurs konar
einokunarréttar á þessum tryggingum.
Þá eru felld niður nokkur ákvæði í
lögum um Brunabótafélag íslands,
sem úrelt eru orðin, og önnur, sem
komin eru annars staðar í nýrri lögum.
Lögin um Brunabótafélag Islands
eru að stofni til frá árinu 1917. Enginn
vafi er að þau bættu á sínum tíma úr
brýnni þörf, þegar ekkert tryggingar-
félag var starfandi á íslandi. Segja má
að við höfum þá fylgt fordæmi ná-
grannaþjóða okkar með því að fá
sveitarstjórnum forræði brunatrygg-
inga húsa.
Með þróun í tryggingamálum og
fjölgun tryggingafélaga hefur þetta
forræði sveitarfélaga verið afnumið
svo til alls staðar nema hér á landi.
Það hlýtur að teljast þáttur í eðlilegri
þróun vátrygginga að leysa bruna-
tryggingar húsa úr fyrrnefndum
viðjum.
Svo sem fyrr segir hafa nágranna-
löndum okkar í flestum tilvikum horfið frá
forræði sveitarfélaga í brunatrygging-
um húsa. Hér á landi liafa frjálsar
vátryggingar verið að þróast og batna
á undanförnum árum, en húsatrygg-
ingar setið eftir vegna ákvæða í lögum.
Samkvæmt þeim upplýsingum, sem
flutningsmaður hefur aflað sér, geta
éinstaklingar í eftirtöldum löndum
brunatryggt hús sín hjá hvaða trygg-
ingafélagi sem þeir sjálfir velja, án
afskipta sveitarfélags eða ríkisvalds:
Noregur, Svíþjóð, Danmörk,
Finnland, Bretland, Holland, Belgía,
Frakkland, Austurríki, Ítalía, Spánn
og Portúgal.
Forræði sveitarfélags um brunabóta-
tryggingar húsa er hins vegar enn í
nokkrum rtkjum V-Þýskalands og í
Sviss.
Svo sem fyrr segir hafa brunatrygg-
ingar húsa ekki þróast á íslandi sem
önnur vátryggingarstarfsemi vegna
þessa lögboðna kerfis.
Fjöldinn treystir á hið lögboðna
kerfi án þess að kynna sér hvers eðlis
þuí) er. Tryggingartakinn á litla aðild
að tryggingartökunni og viðhaldi
tryggingar.
Segja má að þessum viðskiptum hafi
verið ofstýrt með lögum, frjálst val
fólksins heft, og afleiðingin er lakari
þjónusta en í nágrannaríkjunum.
Einkaréttur í viðskiptum sem þess-
um heldur öllum framförum í fjötrum.
Til þessa einkaréttar má rekja að lítið
hefur verið gert til þess að brunatygg-
ingar húsa séu raunveruleg vátrygg-
ingavernd.
Raunin hefur hins vegar orðið sú, að
menn hafa misst eignir sínar verulega
vantryggðar í brunatjónum.
Á undanförnum árum hefur orðið
veruleg breyting á brunaáhættu húsa á
íslandi. Breyting sem þessi ætti að
leiða jafnharðan til endurskoðunar á
verðlagi brunatrygginga og mundi án
efa gera það, ef brunatryggingar húsa
væru frjálsar og sámkeppni ríkti á
markaðnum.
Varðandi breytingar á brunaáhættu
húsa má nefna:
a) Stóraukin notkun jarðhita til hús-
hitunar hefur minnkað líkur á
bruna.
b) Bæturogöruggaribúnaðurrafkerfa
í húsum hefur minnkað líkur á
bruna.
c) Bættar eldvarnir, bæði opinberar
og einkabrunavarnir, auka öryggi.
d) Eldþolnari byggingarefni minnka
líkur á tjóni.
Erlendis hafa brunatryggingar húsa
þróast mikið á síðustu árum eins og
aðrar vátryggingar. Brunatryggingar
húsa eru í eðli sínu ekki frábrugðnar
öðrum tryggingum. Fólkið á að hafa
frjálst val um tryggingarfélag. Sam-
keppni tryggingarfélaganna ætti að
tryggja eðlilega þróun og besta verð.
í frumvarpi þessu er lagt til að
Brunabótafélag íslands verði ekki
lengur sérstakt brunatryggingafélag,
heldur taki að sér alhliða vátrygginga-
þjónustu.
Réttlausir einstaklingar
Eftir að frumvörp Guðmundar G.
Þórarinssonar komu fram mótmælti
forstjóri Brunabótafélagsins því að
félagið hefði einokunaraðstöðu á
brunatryggingum, og var höfuðrök-
semd hans sú, að sveitarfélögin hefðu
ákvörðunarrétt um hvar þau tryggöu
allar fasteignir. En þegar hinn eiginlegi
tryggingarkaupandi, sem á sjálfur mest
í húfi fær ekki að ráða hvar hann
kaupir tryggingu, og jafnvel ekki trygg-
ingarupphæðinni, er vissulega um ein-
hvers konar einokunaraðstöðu að
ræða. Samkvæmt lögum hefur sveitar-
stjórnum verið fenginn réttur til að
ákveða hvar einstaklingar eiga að
tryggja. Hann hefur ekkert val um
skilmála. Þetta tíðkast ekki í öðrum
viðskiptum. Þess ber líka að geta, að í
landinu eru tryggingafélög sem eru vel
fær um að taka þessi verkefni að sér.
Óhætt mun að fullyrða að í fjölmörg-
um tilvikum veita lögboðnar bruna-
tryggingar húsa húseigendum ekki það
öryggi sem góð trygging á að veita.
Veiki hlekkurinn þarna er fyrst og
fremst brunabótamötin. Þau eru tæp-
ast í samræmi við verðgildi þeirra húsa
sem tryggð eru. Þetta hafa margir
fyrrverandi húseigendur orðið að
reyna, þegar í Ijós kemur að bruna-
bótamötin eru aðeins hluti af því tjóni
sem hafa orðið í bruna. Hrikalcgt
dæmi um þetta er þegar eldgosið var í
Vestmannaeyjum. Þá hrukku margir
upp er í Ijós kom hve brunabótamötin
voru lág. Varð að hlaupa undir bagga
með þeim. sem fyrir tjóni urðu, eftir
öðrum leiðum.
Viöskiptavinir hlunnfarnir
Brunabótamat er víða handahófs-
kennt og í engu samræmi við verðgildi
eignanna. Oft kemur fyrir að þegar
tjón er orðið kemur í 'ljós að bruna-
bótamatið er ekki beysnara en svo að
menn fá aðeins um helming verðgildis
húsanna greiddar. Á þennan hátt cru
menn bókstaflega hlunnfarnir af aðil-
um sem hið opinbera bcr ábyrgð á.
Tjónþolar verða því að bera skaðann
sjálfir.
Með því að ákveða þetta fyrirkomu-
lag með lögum, og framkvæmdin er
falin opinberum yfirvöldum, telur allur
almenningur að þetta sé allt í góöu
lagi. En þegar brennur reka menn sig
oft illilega á hið gagnstæða.
Væri þetta frjálst mundu húscigend-
ur fremur hugsa sitt ráð og fylgjast
betur með liver réttur þeirra er ef tjón
verður. Það hlýtur að verða nokkurt
aðhald fyrir tryggingafélög að við-
skiptavinir þeirra verði ekki fyrir
ónauðsynlegum skakkaföllum vegna
vanmats eða af öðrum ástæðum, og ef
menn eru óánægðir með viðskiptin á
einum stað gcta þeir farið annað. Af
sjálfu leiðir að tryggingafélögin ættu
að geta keppt innbyrðis um að bjóða
sem hagkvæmust kjör. Leggja sitt
fram til að tryggingar séu raunveruleg-
ar og keppt um þjónustu og skilmála.
Þá er oft mjög varasamt að sparnað-
ur felist í því kerfi sem nú er við lýði í
brunatryggingum fasteigna. Fólk verð-
ur að borga talsvert fyrir framkvæmd
brunabótamatsins þótt það sé ekki
betra eða nákvæmara en raun ber vitni.
í athugasemdum með frumvarpinu
um breytingar á lögum um skráningu
og mat fasteigna segir:
Aðalinntak frumvarps þessa er að
færa mat á húseignum til brunabóta-
verðs frá hinum dómkvöddu mats-
mönnum í sérhverju sveitarfélagi, eins
og nú er, til Fasteignamats ríkisins.
Fasteignamat er nú unnið upp úr
svokölluðu grunnmati, sem Fasteigna-
mat ríkisins leggur á allar fasteignir í
landinu. Lagt er til að Fasteignamat
ríkisins vinni brunabótamat upp úr
þessu grunnmati eftir að upplýsingar
til grunnmats hafa borist frá bygginga-
fulltrúum viðkomandi byggðarlags.
Er ljóst að Fasteignamat ríkisins er
miklu betur til þess fallið með þeirri
sérþekkingu, sem það ræður yfir, en
hinir lögskipuðu virðingamenn að
koma á samræmingu í brunabótamati
í landinu, en verulega hefur á skort að
svo væri.
Rétt þykir, að tryggja að allar hús-
eignir verði skyldutryggðar. að fok-
heldisvottorð verði ekki afhent hús-
byggjendum nema húseignin hafi áður
verið tryggð gegn bruna.
Þá er gert ráð fyrir, eins og verið
hefur, að brunabótamat sé bundið
byggingarvísitölu Hagstofu íslands, en
þó þannig að það taki breytingum á 3ja
mánaða fresti, við útreikning nýrrar
vísitölu.
Fasteignamat ríkisins er öflugasta
matsstofnunin hér á landi og er sjálf-
sagt að efla það svo að stofnunin geti
bætt við sig þeim verkefnum sem
brunabótamatið krefst.
Frjálst val
Góður möguleiki er á því að trygg-
ingafélögin felli brunatryggingar meira
inn í samsettar tryggingar eigna og
sameina alls kyns tryggingum öðrum
sem þegar eru seldar. Fjölmörg heimili
hafa margs kynsóhappatryggingareins
og allir kannast við. Brunatryggingar
gætu allt eins fylgt þar með, en að
sjálfsögðu yrðu brunatryggingar lög-
bundnaráfram. En hví ættu mennekki
að fá að ráða sjálfir hvar þeir tryggja
hús sín rétt eins og bílana? Þeir eru
skyldutryggðir, og er samt ekkert því
til fyrirstöðu að bíleigendur ráði sjálfir
hvar þcir kjósa að tryggja þá.
Þcgar Brunabótafélag íslands var
stofnað var það merkur áfangi í sjálf-
stæðisbaráttu þjóðarinnar, að færa
tryggingarnar inn ílandið. Brunatrygg-
ingar húsa voru þá lögboðnar og var
þetta allt gott og blessað á sínum tíma.
En breytingar hafa orðið á. Mörg
tryggingafélög eru nú starfandi í land-
• inu og er öllum frjálst að ráða því hvar
þeir tryggja - nema brunatryggingar.
Þar er einokun. Sem dæmi um hve
öfugsnúið þetta er skal ncfnt, að
samvinnuhreyfingin rekuröflugt trygg-
ingafélag sem starfar á öllum sviðum
trygginga, cn samvinnuhreyfingin hef-
' ur ekki leyfi til að tryggja eigin eignir,
nema í þeim sveitarfélögum sem samið
hafa við Samvinnutryggingar um
brunatryggingar húsa. Samvinnuhreyf-
ingin tryggir sínar eignir hjá BÍ sam-
kvæmt lagaboði.
í orði heitir það svo, að sveitarfélög-
in ráði hvar þau kjósa að brunatryggja,
en kerfið er orðið svo staðnað að
haldið er við Brunabót af gömlum
vana og einnig munu sveitarfélögin
hafa eitthvað fyrir snúðinn. Það þarf
að létta þeirri skyldu af, að sveitarfé-
lögin séu að vasast í brunabótamati og
húsatryggingum, en láta eigendur fast-
eigna og tryggingafélögin um málin.
Aðalatriðið er að lögboðnar bruna-
tryggingar húsa veita ekki nægilegt
öryggi sem þeim er ætlað. Þeir kerfis-
karlar sem hagsmuna hafa að gæta
segja að það ríki frjálsræði í húsa-
tryggingum. En frjálsræðið einskorð-
ast við að sveitarfélögin geta valið
hvaða tryggingafélag sem er sem síðan
ákveða, oft fyrir handvömm, hvaða
hungurlús tryggingatakar fá ef illa fer
og hús brenna. Þarna þarf að koma til
frjálsræði eigenda eignanna, og að
tryggingaþjónustan fái það aðhald sem
frjálsir viðskiptavinir geta veitt.
\
Oddur Ólafsson, Cf
r itstj ór nar f ulltr úi,
skrifar wtF/á