Tíminn - 20.02.1983, Blaðsíða 14

Tíminn - 20.02.1983, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 SUNNUDAGUR 20. FEBRUAR 1983 15 ■ „Hluti Vestur-Atlantshafsins, undan sudur- strönd Bandaríkjanna, frá Bermúdaeyjum í noröri til Suður-Flórída og til austurs um Bahamaeyjar og Puerto Rico til staöar, sem er um 40 gráður vesturlengdar og aftur til Bermúdaeyja, myndar þríhyrning. Þar hafa gerst einhverjar mestu fúrður sem um getur. Venjulega er svæðið nefnt Bermúda- þríhymingurinn, en þar hafa horfið rúmlega 100 flugvélar og skip, flest síðan 1945, án þess að eðlilegar skýringar hafl fengist. Um 1000 manns hafa týnt þar lífi á síðustu tuttugu og sex árum, án þess.að eitt einasta lík eða nokkurt brak úr horfnum skipum eða flugvélum hafí fundist. Hvörfum virðist fara fjölgandi, þrátt fyrir aukna umferð á þessum slóðum, nákvæmari leit og betri skýrslugerð.“ Með þessum orðum hefst Bermúda- þríhyrningurinn eftir Charles Berlitz sem varð ein af metsölubókunum hér á landi um síðustu jól. Upphaflega kom bókin út í Bandaríkjunum 1974, en útgefand- inn Bókhlaðan h.f. hefur ekki séð ástæðu til að geta þess, fremur cn hins sem mikilvægara er, að staðhæfingar höfund- arins hafa fyrir löngu verið hraktar lið fyrir lið og hann afhjúpaður sem ómerki- legur loddari. Svo virðist sem hugsun um skjóttekinn gróða sé sumum útgefendum oftar leiðarljós, en að þjóna sannleikan- um. Gátan ráðin Árið 1975 sendi Larry Kusche frá sér bókina The Bermuda Triangle Mystery - Solved (Gátan um Bermúdaþríhyrn- inginn ráðin) þar sem hann fer í saumana á staðhæfingum um dularfull hvörf skipa og flugvéla undan suðausturströnd Bandaríkjanna í rúma öld. I bókinni sýnir Kusche hvernig sagan um Ber- múdaþríhyrninginn varð upphaflega til og hvernig hún þróaðist og varð á endanum að lygasögu aldarinnar. Það var fyrst á árinu 1972 að Kusche hóf rannsókn sína með því að safna saman greinum í blöðum, tímaritum og bókum, þar sem vikið var að furöum þríhyrningsins. Samkvæmt þessum heimildum eru sagnir um dularfulla atburði á svæðinu varðveittar í munn- mælum sjómanna allt frá dögum Kol- umbusar; sagnir um að skip hafi siglt inn á svæðið í björtu og stilltu veðri og horfið síðan án þess að af þeim eða áhöfnum þeirra sæist framar tangur eða tetur. Greinarhöfundar bættu því einatt við að ef til vill mætti skýra þetta scm tilviljun eina - en samt væru dæmin of mörg og of einkennileg til að hefðbundn- ar skýringar- óveður, bilun eða mannleg mistök -dygðu til. Sagt var aðsjóherinn, strandgæslan, tryggingarfélög og vís- indamenn sem rannsakað hefðu málin, væru forviða. Þær heimildir sem mest var vitnað til þegar Kusche hóf rannsókn sína voru tvær greinar eftir blaðamanninn Vincent Gaddis. Greinar þessar höfðu birst undir heitinu „The Deadly Bermuda Triangle" í febrúarhefti tímaritsins Argosy 1964 og undir heitinu „The Triangle of Death“ í bók hans The Invisiblc Horizons. Af orðalagi og frásagnarhætti var augljóst að flestir höfundar greinanna sem Kusche hafði undir höndum höfðu byggt frásögn sína á þessum tveimur greinum. Undarleg frásögn Eitt atvikið sem Kusche athugaði varðaði flutningaskipið Suduffco sem átti samkvæmt frásögn Gaddis að hafa siglt inn í „vítisþríhyrninginn“ árið 1926 og horfið þar með 39 manna áhöfn. Það sem athygli Kusche vakti var hver stutt- araleg frásögn Gaddis af þessu slysi var, og eins frásögn annarra höfunda um það. Þeir höfðu greinilega ekki kannað aðrar heimildir en greinar Gaddis. Auðvelt var að afla upplýsinga um skipið. I úrklippusafni New York Times fundust fimm greinar um málið. Sú fyrsta gat þess að stjórnendur skipafyrir- tækisins sem gerði Suduffco út höfðu ekki beðið sjóherinn að leita að skipinu fyrr en þrjár og hálf vika voru liðnar frá því síðast heyrðist til þess. Lokaorð blaðagreinarinnar voru: „Suduffco var að sigla niður eftir ströndinni, þegar þar geisuðu miklir stormar." Gaddis og aðrir höfundar afþreyingagreina um Bermúdaþríhyrninginn minnast aftur á móti hvergi á storm í frásögnum sínum. Hinar greinarnar fjórar í úrklippusafn- inu fjalla um leitina að skipinu og að hún beri engan árangur. Enn fremur er tekið fram að um það leyti sem Suduffco hvarf hafi hið versta veður gengið yfir svæðið þar sem síðast sást til skipsins. Af þessu verður ekki önnur ályktun dregin en að tilraunir til að gera hvarf Suduffco að leyndardómi stafi annað hvort af þekkingarskorti eða farið sé með blekkingar af ásettu ráði. Við athugun sína á „furðum“ Berm- údaþríhyrningsins rak á fjörur Kusche bókina Limbo of the Lost (1969) eftir John Wallace Spencer. Eftir að hafa lesið bókina gaumgæfilega komst hann að því að hún var í megindráttum byggð á umorðuðum og endursögðum greinum úr New York Times. Af einhverjum ástæðum hafði Spencer kosið að fella úr frásögn sinni mikilvæg atriði. í frásögn hans af Suduffco birtir hann t.d. frétt NYT orðrétta en sleppir mikilvægustu setningunni um að stormur hafi geisað á svæðinu. Hvers vegna? Eftir að Kusche hafði lokið að semja handrit að bók sinni um Bermúdaþrí- hyrninginn og áður en hún var prentuð komu út tvær bækur um sama efni, skrifaðar frá öðrum sjónarhól þó: The Devil’s Triangle eftir Richard Winer og The Bermuda Triangle eftir fyrrnefndan Charles Berlitz. í báðum þessum bókum er fjallað um Suduffco-hvarfið sem óráðna gátu, og hvorugir höfunda minn- ast á storminn. Frekari athugun Kusche á skrifum um Bermúdaþríhyrninginn leiddi í ljós að slíkar yfirsjónir voru regla en ekki undantekning hjá þeim höf- undum er héldu fram kenningum um leyndardóma Bermúdasvæðisins. Ellen Austin-málið Ágætt dæmi um það hvernig sögur um dularfulla atburði í Bermúdaþríhyrn- ingnum verða til er atvik sem tengt er bandarísku skipi Ellen Austin. Flestir höfundar byggja frásögn sína, hvort sem þeir vita það eða ekki, á bók Rupert Gould frá 1914 The Stargazer Talks. Hann skrifar: „Síðast en ekki síst skal greint frá yfirgefinni skonnortu, sem breska skipið Ellen Austin fann á reki í miðju Atlantshafi árið 1881. Skonnortan var prýðilega sjófær. Skipstjórinn á Ellen Austin ákvað að færa skonnortuna til hafnar í Nýfundnalandi og setti áhöfn um borð. Skipin urðu viðskila í þoku- veðri en aftur sást til skonnortunnar tveimur dögum síðar. Þá var enginn um borð. Áhöfnin hafði horfið sporlaust, eins og mennirnir sem verið höfðu um borð áður en Ellen Austen fann skonn- ortuna." í bókinni kemur ekki fram hvaðan ■ Bermúdaþríhyrningurinn: Frá Bermúdaeyjum i norðri til Suður-Flórída og til austurs um Bahamaeyjar og Puerto Rico til staðar sem er um 40 gráður vesturlengdar og aftur til Bermúdaeyja. Lygasaga aldarinnar afhjúpuð Gatan um Bermuda þríhyrn- k • _*• \ mginn llA ráðin A ■ Viður- kennd rann- sókn og af- hjúpun LarryKusche á sögum um leyndardóma á Bermúda- þrihymingsins ■ Falsrit * Charles Ber- æitzumBer- múdaþrí- hyrninginn frá 1974 sem varð metsölu bókáíslandi umsíðustujól £RLITZ LAWRENCE DAVID KUSCHE Rnal answers to the most baffling mysteryofall times! 16 PAGES OF PHOTOS Enn hefur sagan um skonnortuna og Ellen Austin veri rakin í bók Charles Berlitz Bermudaþríhyrningurinn. sem eins og fyrr var getið kom út í íslenskri þýðingu á forlagi Bókhlöðunnar fyrir síðustu jól. I heimildaskrá (semersleppt í ísl. útgáfunni; hvers vegna?) nefnir Berlitz bækur Gaddis og Sandersons sem heimildir sínar, en aftur á móti ekki tímaritsgrein Gaddis sem hann styðst þó augljóslega einnig við. Hann nefnir held- ur ekki bók Gould í heimildaskránni og virðist ekki vita að þangað er frásögnina á endanum að rekja. Kjarnaatriðin eru eftirfarandi í bók hans: Staður: Vestur af Azoraeyjum. Tími: 1881. Ástand skonnortunnar: Yfirgefin, sjófær, segl felld, á reki. Ástæður fyrir viðskilnaði: Skyndilegt hvassviðri. Fundur í annað sinn. Tveimur dögum síðar sást skon- nortan á ný, og engar vísbendingar voru um það hvað af áhöfninni hafði orðið. Berlitz bætir því við að skipstjórinn á Ellen Austin hafi ekki verið á því að gefast upp, og hafi tekist að fá sjálfboða- liða til að gefa sig fram, þrátt fyrir tregðu margra í áhöfn. Hvað varð um skonnort- una?: Hvessti á ný, og skipin urðu aftur viðskila. Aldrei spurðist aftur til yfir- gefnu skonnortunnar eða áhafnar hennar. Berlitz getur þess ekki á hvaða leið skonnortan hafi verið. Dæmigerð saga um blekkingar Bermúdahöfunda Við höfum nú rakið í talsvert löngu máli dæmigerða sögu um „dularfullan atburð" í Bermúdaþríhyrningnum, og sýnt hvernig hún breytist í meðförum mismunandi höfunda. Það er engum vafa undirorpið að hér er ekki um einstæð mistök að ræða eða ritvillur heldur vísvitandi blekkingar. Kusche byrjaði á því að fara í saumana á Ellen Austin-málinu. Hann veitti því eftirtekt að í frásögn fyrsta heimildar- manns, Gould, er talað um Mið-Atlants- haf, en það svæði er a.m.k. 1600 km austur frá Bermúda. Svo virðist sem höfundar sagnanna um Bermúdaþrí- hyrninginn láti sér slík „smáatriði" úr landafræði í léttu rúmi liggja, og það er mismunandi eftir bókum og höfundum hver mörk þríhyrningsins dularfulla eru talin. Sumir tala um lítið hafsvæði undan Flórídaströnd, en fjalla samt um skips- hvörf við Nýfundnaland, Azoraeyjar, Kanaríeyjar og jafnvel í Kyrrahafinu (sbr. frásögn Berlitz af hvarfi skipsins Freya). Uppspuni frá rótum Kusche hafði samband við tryggingar- samtökin Lloyd’s í Lundúnum en þau 'hafa í fórum sínum yfirgripsmiklar skýrslur um skipsskaða. (Kusche kveðst mundu hafa haft samband við Gould ef hann væri ekki látinn fyrir þremur ára- tugum). í þessu tilviki var málið mjög flókið því hvergi er gefið upp nafnið á yfirgefnu skonnortunni og Lloyd’s fann ekki nein gögn um málið. Viðurkenndar uppflettibækur um sjóslys og skipskaða nefndu það ekki. Einnig athugaði Kusche fréttaefnisskrá Times í Lundún- um og New York Times, en þar var heldur ekkert að finna. Þess var getið í frumheimildinni að skonnortan hefði verið á leið til Jóhannesarborgar á Nýfundanlandi og hafði hann samband við almenningsbókasafn í borginni og leitaði aðstoðar. í skjalasafni þar fannst ekkert; og heldur ekki í blaðinu Evening Telegram frá 1881. Kusche rannsakaði einnig nákvæmlega allar frásagnir í öðru fréttablaði The Newfoundlander yfir tímbilið janúar 1881 og fram í júli 1882, en þar var ekki minnst á skonnortuna, eða Ellen Austin. Ef frásögnin hefði í raun haft við rök að styðjast mundi hún án nokkurs vafa hafa verið aðalfréttaefni blaðanna í borginni um nokkurt skeið. Svo reyndist ekki vera. Niðurstaða Kusche varð því sú að frá upphafi væri um tilbúning að ræða. Frásögn sem fjöldi höfunda hefur birt á sér ekki stoð í raunveruleikanum. Fyrir henni er ekki unnt að finna eina einustu heimild. Um það leyti sem Kuscha hafði lokið athugun sinni á Ellen Austin-málinu rak á fjörur hans bókin The Devil’s Triangle eftir Richard Wine (1974). Hann talar þar um að atvikið hafi átt sér stað 20. ágúst 1881 miðsvæðis milli Bahamas og Bermúda, og hafi skonnortan verið á leið til Boston. í bókinni er að auki að finna stílfærðar frásagnir um aðkomuna að skonnortunni, lýsingu á atferli skip- stjórans og jafnvel hugsun (!). Frásögnin tekur nærri fimm blaðsíður og er auðvit- að skáldskapur einn, enda þótt banda- ríski útgefandinn neiti því og kalli hana „nonfiction." Ekkert leyndardómsfullt á Bermúdasvæðinu Rannsókn Larry Kusche á Ellen Aust- in-málinu er aðeins eitt dæmi af sjötíu svipuðum athugunum hans á staðhæf- ingum um dularfulla atburði í Bermúda- þríhyrningnum. Hér er ekki vettvangur til að lýsa öllum niðurstöðum hans, en áhugasömum lesendum er bent á bók hans, sem nefnd var í upphafi þessarar greinar og fengist hefur í bókaverslunum hér - og unnt er að panta ef hún er uppseld. Megin niðurstöður Kusche eru 1 aftur á móti eftirfarandi: Engin ein „kenning" getur útskýrt öll hvörf skipa og flugvéla á Bermúdasvæð- inu. Atvikin eru hverju öðru ótengd. Það eru engar heimildir fyrir því að fjöldi skipa og flugvéla sem horfið hafa á Bermúdasvæðinu sé meiri en annars staðar á hafinu. Aftur á móti er öruggt. að fjöldi skipa sem ranglega er staðhæft að hafi horfið þar með dularfullum hætti er meiri en á nokkrum öðrum stað! Kusche fann skýringar á öllum þeim skips- og flugvélahvörfum sem ekki voru tilbúningur höfunda. í engu tilviki þurfti að kalla til dulræn öfl. Einu hvörfin sem eru óskýrð eru þau sem engar heimildir eru til fyrir, og álykta verður að séu í flestum eða öllum tilvikum uppspuni. Mörg skips- og flugvélahvörf sem sagt er að hafi átt sér stað í Bermúdaþríhyrn- ingnum urðu í raun og vcru fjarri honum: við írland, Nýfundnaland, Afríkustrendur og í Kyrrahafinu. Mörg skip sem talin eru hafa horfið á Bermúdasvæðinu þurfa ekki að hafa sokkið innan þríhyrningsins, enda þótt þau hafi siglt í nágrenni hans eða um hann. Staðhæfingar höfunda um hið gagnstæða hafa ekki við rök að styðjast. Flest hin „dularfullu hvörf" urðu ekki dularfull fyrr en mörgum árum síðar, þ,e, þegar farið var að spinna upp leyndardóma Bermúdaþríhyrningsins. Þá var farið að tengja saman hina ólíklegustu skipsskaða, og frásögnum um þá hagrætt og þær ýktar eftir hentug- leikum. Öndvert við það sem jafnan er stað- hæft þá var veður slæmt í flestum tilvikum þegar skipsskaðar urðu á Ber- múdasvæðinu. Þetta kom í Ijós þegar Kusche athugaði skýrslur veðurathugun- arstöðva. Ábyrgð og skyldur útgefenda í síðasta Helgar-Tíma fórum við ítar- lega í saumana á kenningum Erich von Dánikens um uppruna mannkyns og sýndum fram á að þær eru byggðar á sandi. Við vörpuðum fram spurningum um ábyrgð og skyldur útgefenda í því sambandi. Eru engin takmörk fyrir því hvað bókaútgcfendur geta leyft sér að setja á markað? Erekki refsivert að fara mcð blekkingar vitandi vits? Og hve lengi getur sá aðili sem segist ekki vita að hann er útgefandi ómerkilegs falsrits skýlt sér bak við vanþekkingu? Er hann hæfur til síns starfa? Við teljum mikil- vægt að um þessi álitaefni fari fram opinber umræða hið fyrsta. — GM. Gould hefur upplýsingar sínar um þetta mál. En til að bera frásögn hans saman við síðari tíma skrif skulum við hafa eftirfarandi kjarnaatriði úr sögu hans á hreinu: Staður: Mið-Atlantshaf. Tími: 1881. Ástand skonnortunnar: Sjófær. Ástæður fyrir viðskilnaði skipanna tveggja: Þokuveður. Fundur skonnort- unnar í annað sinn: Skipin mættust nokkrum dögum síðar og þá var enginn um borð í skonnortunni. Hvað varð um skonnortuna?: Ekki nefnt. Frásögnin brenglast Næst er frásögn þessi birt í bók Vincent Gaddis, og getur hann þess að heimild sín sé bók Gould. Kjarnaatriðin í grein Gaddis frá 1964 eru eftirfarandi: Staður: Vestur af Azoraeyjum. Tími: 1881. Ástand skonnortunnar: Fyllilcga sjófær , en vísbendingar um átök um borð. Ástæður fyrir viðskilnaði skipanna tvcggja: Hvassvirði. Fundur skonnort- unnar í annað sinn: Enginn um borð, áhöfnin horfin. Hvað varð um skonnort- una: Eftir að hún fannst í annað sinn var enn önnur áhöfn fengin til að fara um borð. Aftur skall á hvassviðri, og eftir það sást hvorki tangur né tetur af skonnortunni og áhöfninni. Gaddis fjallaði um þetta merkilega mál á ný í bók sinni ári síðar, en þar er frásögn hans öðruvísi en í fyrri greininni og í bók Goulds, sem hann gefur þó upp sem heimildarmann sinn. Kjarnaatriði eru eftirfarandi: Staður: Mið-Atlants- haf. Tími 1881. Ástand skonnortunnar: Sjófær og allt í röð og reglu um borð. Engin merki um átök. Ástæður fyrir viðskilnaði skipanna tveggja: Þokuveð- ur. Fundur skonnortunnar í annað sinn: Sást aftur tveimur dögum seinna, þegar þoku hafði létt, siglandi í ranga átt. Skipstjóri gaf stýrimanni fyrirskipun um að sigla í átt að skonnortunni. Þegar komið var að henni reyndist enginn um borð og enga vísbendingu var að finna um örlög áhafnarinnar. Hvað varð um skonnortuna: Ekki var hægt að fá neinn af áhöfn Ellen Austin til að fara um borð í annað sinn. Hún var því látin eiga sig og sást síðast sökkva í hafið út við sjóndeildarhringinn þegar Austin sigldi á brott. Útgáfur Gaddis af þessari sögu eru verulega frábrugðnar, eins og lesendur sjá. Það er athyglisvert að í bæði skiptin gefur hann Gould upp sem heimildar- mann sinn, en breytir frásögn hans að geðþótta sínum, spinnur m.ö.o. upp tvær nýjar útgáfur sögunnar. Enn ný útgáfa sögunnar En sagan er ekki öll. í bók Ian Sanderson frá 1970 Invisible Residents er frásögn um málið byggð á ritum þeirra Gaddis og Gould. Kjarnatriðin eru nú þessi: Staður: Norður-Atlantshaf. Tími: 1881. Ástand skonnortunnar: Enginn um borð, en allt var þar að öðru leyti í röð og reglu. Nægar vistir fundust þar, og engar vísbendingar voru um átök eða slys. Stýrið snérist, skipið rak undan vindi í ranga átt. Skipsreiðinn var brotinn Skipstjóri sendi menn um borð til að reyna að bjarga skonnortunni. Ástæður fyrir viðskilnaði: Þétt þoka lagðist yfir á leiðinni til Nýfundnalands. Fundur skonnortunnar í annað sinn: Þegar þoku létti nærri tveimur dögum síðar sást skonnortan sigla í ranga átt. Athugun •leiddi í Ijós að enginn var um borð, en allt annars í röð og reglu. Gert hafði verið við reiðann og seglin voru þanin. Hvað varð um skonnortuna: Áhöfnin í Ellen Austin neitaði að fara um borð í annað sinn og skonnortan var yfirgefin. Sögur um dularfull hvörf skipa og f lugvéla undan suð- austurströnd Bandaríkjanna reynast vera ýkjur og uppspuni ■ SaragossahaHð er innan Bermúdaþríhyrningsins, Myndin sýnir hvernig listamaður nokkur ímyndar sér ástandið þar. Minnir helst á skipakirkjugarð.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.