Tíminn - 20.02.1983, Blaðsíða 13

Tíminn - 20.02.1983, Blaðsíða 13
SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 erlend hringekja Konan sem gerði Arthur Rubinstein liaiiwigýisainan ■ Stjómin í Suður-Afríku bannaði að leika lag John Lennons „Imagine" af því að hún taldi að þar væri hvatt til uppreisnar svertingja. SPURNING: Hvað eiga eftirtalin tónverk sameiginlegt: „Sur le Pont d’Avignon“, „Imagine" eftir John Lennon, „A Child of Our Time“ eftir Sir Michael Tippett og „1812“ eftir Tchaikovsky? Svar: Öll hafa þessi verk einhvern tíma verið bönnuð af yfirvöldum. Tímaritið Index on Censorchip helgar nýjasta hefti sitt ritskoðun tónlistar og þar er því haldið fram að hún sé algengari en menn hafa ætlað. Valdstjórar um allan heim hafa ætíð haft áhuga á tónlist: þjóðlagatónlist, rokktónlist eða sígildri. Bolsévikar í Rússlandi höfðu ímugust á „1812“ vegna þess að þar er að finna línu úr rússneska þjóðsöngnum, „Guð verndi keisarann"; Tippett féll í ónáð í ísrael vegna þess að „A Child of Our Time“ minnist á Krist; yfirvöld í Suður- Afríku töldu sér trú um að „Imagine" eftir Lennon hvetti til byltingar svertingja, og BBC í Bretlandi bannaði „Sur le Pont d’Avignon" einfaldlega í því skyni að koma í veg fyrir hættulegan misskilning: lagið var merki til frönsku andspyrnuhreyfingarinnar um að Bandamenn væru um það bil að ráðast inní landið. Leiða má að því rök að heimspekingurinn gríski Platón hafi verið frumkvöðull alls þessa. í riti sínu Ríkið skrifaði hann um nauðsyn þess að halda í skefjum og banna þá tónlist sem gæti leitt til úrkynjunar og væri siðspillandi, en halda þeirri á loti sem væri göfug og virðuleg. Kannski hefur það verið hugsun af þessu tagi sem leiddi til þess að BBC bannaði flutning á tónlist eftir Sex Pistols fyrir nokkrum árum. Index heldur því raunar fram að ástandið hafi versnað mjög frá dögum Platóns. Eins og Michael Tippett bendir á í viðtali við tímaritið: „Ritskoðun fyrirfinnst í öllum ríkjum, fasistaríkjum, kommúnistaríkjum, lýðræðisríkjum eða hvaðeina. Þegar verst er þá er hún partur af margvíslegum hömlum á persónufrelsi.” { Sovétríkjunum eru þau tónskáld sem ekki semja verk í anda þess sem kallað er „sovéskur veruieiki” eða verk sem falla yfirmanni Tónskáldafélagsins Tikhon Kretnikov í geð, dæmd til nokkurs konar tónrænnar Síberíuvistar. Verk þeirra eru annað hvort bönnuð algerlega eða fá ekki nauðsynlega viðurkenningu yfirvalda. Jafnvel heimsfrægir tónsmiðir einsog Shostakovich og Prokofiev hafa orðið fyrir barðinu á ritskoðun. Á valdaárum Stalíns var bannað að leika verk hins fyrrnefnda samkvæmt beinum fyrirmælum einvaldsins. Mstislav ■ Bolsévíkum var illa við tónverk Tchaikovsky „1812“. Rostropovich, hinn víðfrægi cellóleikari, er í fullkominni ónáð í heimalandi sínu og býr nú á Vesturlöndum. Nafn hans er ekki nefnt í sovéskum bókum og tímaritum, útvarpið leikur ekki tónlist hans og bannað er að selja hljómplötur hans í landinu. Verk þeirra Richard Wagners og Richard Strauss eru enn bönnuð í ísrael enda þó Zubin Mehta, stjórnandi ísraelsku Fílharmóníuhljómsveitarinnar leggist gegn því. Tónskáldin eru sökuð um gyðingahatur. Aðdáendur Wagners hafa bent á að bannið sé ósanngjarnt, og leikin sé í ísrael tónlist eftir Mussorgsky og Borodin og hafi þeir þó ekki hreinari samvisku hvað varðar gyðingaandúð fyrr á árum. Banninu við tónlist Wagners treysta færri í ísrael sér til að mótmæla, einfaldlega vegna þess í hve miklu uppáhaldi tónlist hans var hjá Hitler. Strauss er líka í ónáð í ísrael, þótt formlegt bann við að leika verk eftir hann sé ekki fyrir hendi. Það sem menn fetta fingur út í er að hann skuli hafa dvalist í Þýskalandi öll valdaár nasista. Strauss og Wagner gjalda stjórnmálaviðburða sem eru orðnir partur af sögunni, en í Suður-Afríku banna menn tónlist sem er talin hættuleg ríkjandi skipulagi og öryggi ríkisins. Þar inn í falla auðvitað lög frelsishreyfingar svertingja, en líka „Jesus Christ Superstar” og „Another Brick in the Wall“ eftir hljómsveitarmenn í Pink Floyd. Það síðarnefnda var látið afskiptalaust, þar til ein textalína úr því „We don’t want no education” varð slagorð svartra skólabarna í fjöldabaráttu gegn aðskilnaðarstefnu í skólamálum árið 1981 Ekki er ástandið betra í Tekkóslóvakíu. Snemma á síðasta áratug var þar starfandi rokkhljómsveit Plastic People of the Universe sem ungur tónlistarmaður, Ivan Jirous, hafði forystu fyrir. Þessi sveit samdi tónlist sem Charter 77- mannréttindahreyfingin tók upp á arma sína - og heita má að hafi opnað flóðgáttir fyrir vestrænni tónlist. Hinar gífurlegu vinsældir Plastic People skefldu yfirvöld ákaflega, og hljómsveitin var bönnuð og gervöll rokkhreyfingin nánast leyst upp: bannað var að syngja á ensku, hljómsveitir sem valið höfðu sér ensk nöfn urðu að verða sér út um ný, og Jirous var handtekinn margsinnis. í júlí á síðasta ári var hann dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi. Konan sem gerði Arthur Rubinstein hamingjusaman á níræðisaldrinum, konu hans og bömum til skelfingar, hefur nú þvertekið fyrir allar sögusagnir þess efnis að hluti auðæfa meistarans muni renna til hennar. Kona þessi, Annabelle Whitestone, ensk að uppruna, gaf í fyrsta sinn eftir lát Rubinsteins í desember s.l. opinbera yfirlýsingu: „Þetta er ekki rétt. Ég mun örugglega ekki eignast hið ómetanlega safn listmuna hans. Mér skilst að fjölskylda hans muni erfa eignirnar.” Fyrir skömmu var haft eftir börnum Rubinsteins að þau myndu höfða mál á hendur Annabelle vegna ákvæða í erfðaskránni þess efnis að í hennar hlut skyldu falla verðmæt málverk og handrit sem góðir vinir píanóleikarans, eins og Picasso, Chagall og Stravinsky, gáfu honum. Erfðaskráin hefur ekki verið birt opinberlega. Annabelle sagði í viðtali við Sunday Times á heimili hennar í Lausanne í Sviss: „Blöðin hafa sagt fáránlegustu hluti og gefið í skyn að ég hafi einhvern veginn erft listasafn hans. Ég hef ekki séð erfðaskrána en ég held að hann hafi ætlað að arfleiða mig að nokkrum hlutum sem hafa tilfinningalegt gildi: einstaka málverki, einstöku bók. En það er allt og sumt.“ Annabelle Whitestone, dóttir flotaforingja í breska sjóhernum sem kominn er á eftirlaun, var kynnt fyrir Rubinstein fyrir tólf árum er hún vann fyrir umboðsmann hans í Madrid. Píanóleikarinn sem þá var 83 ára réði hana til þess að setja saman seinna heftið af æviminningum hans. „Ég var ævinlega við hlið hans síðustu sex ár ævi hans,“ sagði hún. „Hann varð að fara frá París vegna tveggja augnuppskurða og þá fluttum við til Sviss. Hann gat ekki lengur búið í húsi sínu í París vegna þess að það voru of margir stigar í því.“ Hún neitar því að nokkru sinni hafi verið illska á milli hennar og eiginkonu og barna Rubinsteins. „Það var aldrei neinn ágreiningur á milli mín og frú Rubinstein og ekki heldur barnanna. Engir árekstrar. Tvö yngri börnin heimsóttu föður sinn oft á meðan hann var með mér. Við vorum öll saman við útförina og undirbjuggum hana í sameiningu." Rubinstein lifði mjög fjörugu piparsveinslífi, þar til hann varð 45 ára, árið 1932. Meðal vinkvenna nans voru frægar söngkonur og dætur auðkýfinga. En þá giftist hann Nela Mlynarski, 22 ára gamalli dóttur pólsks stjórnanda og umbreyttist í hinn fullkomna fjölskyldumann. Kunningjar Rubinstein hjónanna voru furðulostnir er hann yfirgaf fjölskylduna fyrir sex árum. En vinir hans segja að hann hafi verið yfirmáta hamingjusamur síðustu æviár sín. „Síðan á níutíu ára afmælisdaginn rninn,” skrifar hann í My Many Years, „hef ég verið að lifa hamingjusamasta skeið ævi minnar... Annabelle hefur opinberað mér alla þessa dásamlegu kammertónlist eftir Mozart, Haydn og Beethoven... Ég á Annabelle það að þakka að hafa getað heimsótt aftur staði sem mér þykir vænt um eins og Feneyjar og Róm og jafnvel ísrael, þrátt fyrir þá alvarlegu fötlum sem ég bý við vegna þess að ég er að hluta til blindur.,, Vinir Annabelle Whitestone hafna þeim tilgátum að hún hafi verið á eftir auðæfum gamla mannsins sem fáránlegu bulli. Þeir segja að hún hafi sínar eigin tekjur. Henni finnst enn erfitt að tala um líf sitt með Rubinstein. „Líf mitt er hræðilega tómt. Ég var vön að deila með honum sérhverri mínútu dagsins. Hann var einstakur maður. Hann náði fram því besta í hverri manneskju." Annabelle Whitestone hefur í hyggju að búa áfram í Sviss. „Áður en ég tek endanlega ákvörðun um hvað ég geri verð ég að svara fjölda bréfa og símskeyta." Hún kvartaði undan átroðningi breskra blaðamanna og ljósmyndara sem hafa haldið til á tröppunum hjá henni síðan birtar voru í blöðum staðhæfingar um deilur hennar og fjölskyldu Rubinsteins. Eiginkona Rubinsteins, sem nú er 73 ára gömul og dvelur í New York um þessar mundir, vildi ekki láta hafa neitt eftir sér um þetta mál. ■ Arthur og Annabelle fagna nýju ári, 1981.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.