Tíminn - 20.02.1983, Blaðsíða 10

Tíminn - 20.02.1983, Blaðsíða 10
10_________ bókafréttir SUNNLIDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 Flim-Flam! The Truth About Unicorns, Parapsychology and Other Delusions. Höfundur: James Randi. Útgefandi: Lippincott & Cromwell, New York. James Randi (þekktur sem „The Am- azing R.andi“) er einn kunnasti sjón- hverfingarmaður í Bandaríkjunum sem nú cr á dögum, og oft líkt við fyrirrcnn- ara sinn, hinn fræga Harry Houdini, sem Randi hefur skrifað bók um. Báðir hafa þcir sagt hindurvitnum stríð á hendur, og elt uppi loddara sem notfært hafa sér sjónhverfingalistina til að slá ryki í augu almennings og þykjast vcra gæddir dul- arkröftum eða vera í sambandi við framliðnar verur. Houdini skrifaði bækur um þetta efni: Miracle Mongers and Their Methods (1920) og A Magican Among the Spirits (1924). Randi hóf fyrst af alvöru baráttu gegn hindurvitnum og blekkingum eftir reynslu sem hann varð fyrir og hann greinir frá í þeirri bók sem hér er til umfjöllunar.Hann hafði sótt um inntöku í Mensa, alþjóðasamtök fólks sem skarar fram úr á grcindarprófum. Hann tók inntökupróf - greindarpróf- og árangur hans varð svo góður að honum var ekki • aðeins boðin aðild að samtökunum hcld- ur og aö ávarpa landsþing þeirra í Bandaríkjunum. Randi kaus að ræða um yfirskilvitleg fyrirbæri, og leiddi rök að því að þau væru byggð á blckkingum og sjálfsblekkingunt. Sjónarmið hans g!tiÍS»!gÉ*» ■ James Randi tók m.a. þátt í því að afhjúpa loddaraskap „huglækna“ á Filippseyjum fyrir nokkrum árum, en þeir þóttust geta læknað alvarleg innanmein manna með höndunum berum. Hér er hann að verki. Sjónhverfingamaður segir sálarrannsóknum stríð á hendur fengu slæmar undirtektir. í augum Randis var þetta hættumerki. Hér var hann mættur á vettvang þar sem átti að sitja hámcnntað og afburða j;áfað fólk, sem unnt væri að skiptast á skoðunum við, fólk sem ræddi málin af víðsýni og dómgreind. Svo rcyndist ckki vera. Hvernig var þá ástandið með óbreyttum almenningi? Randi sagði sig úr Mcnsa og hclgaði sig, samhliða sjónhvcrfinga- listinni, rannsókn á staðhæfingum um yfirskilvitlega hæfileika og dulræna reynslu. . Nokkrar niðurstöður hans er að finna í Flim-Flam. Enda þótt Randi sé ekki vísindamaður að mennt eða starfi, varð góður skilning- ur hans á aðferðafræði vísinda og barátta gegn gervivísindum til þess að honum var boðiö að ávarpa landsþing banda- ríska Vísindafclagsins (American Ass- oeiation for the Advancement of Sci- ence) árið 1980 og greina frá rannsókn- urn sínum á dulrænum fyrirbærutn. Raunar má ieiða að því rök að menn eins og Randi séu hæfari en vísindamcnn til að átta sig á því hvort og hvcnær brögð eru höfð í tafli. Rcyndin er sú að vísindamenn sem litla þekkingu og reynslu hafa af sjónhverfingum og sálar- lífi m_annfólksins eru einatt gabbaðirog falla á einföldustu gildrum. í bókinni grcinir Randi frá athugunum sínum og mjög svo eindregnum niður- stöðum sem varla munu verma hjörtu dulsálfræðinga og annarra þeirra sem daðra við dulræn fyrirbæri. Hann sýnir þessu fólki enga miskunn og dregur hvergi undan. Ein sagan sem Randi segir í bókinni, og er um margt dæmigerð, varðar hinn fræga Cottinglcy-draugagang á Englandi á þriöja áratugnum. Tvær litlar systur virtust þar hafa náð Ijósmynd af vængjuðum vofum, og sá frægi Arthur Conan Doyle, sem var mikill áhugamað- ur um andatrú og sálarrannsóknir, lýsti því yfir að myndirnar væru án nokkurs vafa ekta. Enda þótt auðvelt reyndist síðar að sýna fram á að myndirnar væru falsaðar skipti Conan Doyle ekki um skoðun. Randi ræðir í bókinni ástæður manna fyrir því að taka slíka trú þrátt fyrir að öll rök og staðreyndir bendi í aðra átt. Cottingley-málið er ágætt dæmi um það hvernig áhrifamaður getur leitt almenning á villigötur og hve traust gögn og rökræða dugir stundum skammt þeg- ar farið er að ræða dulræn fyrirbæri. Nú á dögum eru það fremur vísinda- menn en skáldsagnahöfundar sem fólk tekur mark á. í þeirra hóp eru margir sem hrasa á svelli sjálfsblekkingar og viljans til að trúa. Þar má nefna tvo rannsóknarmenn við Stanford rannsókn- arstofuna í Bandaríkjunum (sem fjöl- miðlar tengja stundum ranglega við Stanford-háskóla): Russel Targ og Har- old Puthoff. Randi rekur sögu þeirra á eink'ar athyglisverðan hátt. Árið 1974 birti hið virta enska vísinda- tímarit Nature skýrslu um rannsóknir þeirra félaga á dulrænum fyrirbærum og var henni fylgt úr hlaði með þeim ummælum ritstjórans að skýrslan væri ósannfærandi og aðferðalega gölluð, en samþykkt til birtingar til að sýna hvers konar verkefni dulsálarfræði fengist við og hver rannsóknarstaða hennar væri. Fjölmiðlar létu þessi ummæli ritstjórans eiga sig, en slógu því hins vegar upp að nú- væri búið að sanna „vísindalega" tilteknar staðhæfingar um dulræn fyrir- bæri, sem auðvitað var hin mesta firra. Randi sýnir fram á hve léttvæg rann- sókn þeirra félaga var, hve lítt þeir hirtu um að fylgja nauðsynlegum varúðarregl- um vísinda, og með hvaða hætti sjónhverf- ingarmaður getur leikið eftir hin dulrænu undur sem þeir Targ og Puthoff þóttust hafa uppgötvað, m.a. í fari Uri Gellers, sem nú er löngu afhjúpaður loddari. Flim-Flam er skemmtileg bók og auð- lesin, og ágætt vopn fyrir alla þá sem þreyttir eru orðnir á skröksögum anda- trúar- og sálarrannsóknarmanna. ■ Fyrir skömmu birtust í Helgar- Tímanum nokkrir kaflar úr bók Gio- vanni Battista Mencghini: Könan mín hún María Callas. Ekki eru allir á eitt sáttir um það hversu trúverðug frásögn Meneghinis er og þykir hún jafnvel dálítið lituð af særðum tilfinningum hans. Peter Ackroyd bendir á það í ritdómi í The Sunday Times Review nýlega að margar bækur hafi verið skrifaðar um Maríu Callas, en þær hafi allar verið fremur mislukkaðar. Meneghini hefði hins vegar átt að geta skrifað betri bók. Hann bjó með Callas í tólf ár og stjórnaði frægðarferli hennar. Meneghini man aðdáunarlega vel smæstu atriði gamalla samræðna og hefur úr fjöllum af bréfum frá Maríu og blaðaúrklippum að spila (og þyrmir lesendum ekki við neinu). Með þessi gögn í höndunum hefði Meneghini getað náð tangarhaldi á hinni raunverulegu persónu og og haldið sér við hana. En í stað þess fáum við einstaklega ójafnt uppgjör þar sem sjálfsréttlætingu er steypt saman við endurminningar sem sagðar eru um Callas en eru í rauninni um tilfinningar hans til hennar, æfing í helgisagnarritun sem hefur hann sjálfan að dýrlingi (eða öllu heldur píslarvotti). Við þeirra fyrsta fund segist hann einungis hafa fundið til samúðar með henni - vegna offitu hennar og breiðra ökkla - en hann hefði átt að gæta sín á Bók Battista Meneghini: ENN EIN MISHEPPNUÐ ÆVISAGA MARÍU CALLAS samúðinni. Hún krefst oft fórnarlambs og fórnarlambið breytist oft í ákæranda en hvað sem því líður þá varð María Callas ítalskur ríkisborgari og síðan alþjóðleg stjarna undir styrkri stjórn Meneghinis. Hann var faðir, eiginmað- ur, verndari og umboðsmaður - ef til vill ósigrandi sem sambland allra þessara þátta en jafnframt viðkvæmur; væri einn þáttur tekinn burtu gætu hinirfallið líka. Frægðin lét Maríu Callas ekki ó- snortna: hún varð grennri, harðari af sér og fegurri. Hún þurfti ekki lengur á Meneghini að halda og yfirgaf hann vegna Onassis. „Hún virtist hafa orðið fórnarlamb einhvers djöfullegs afls,“ skrifar Meneghini, og stóryrði hans gefa til kynna að hann hafi ekki verið í neinu sambandi við raunverulegar tilfinningar hennar og ef til vill ekki einu sinni sínar eigin. Hin raunverulega María Callas kemur einungis óbeint fram í bókinni. í bréfum til eiginmannsins lýsir hún sér sem kvíðinni, lífsleiðri, svatsýnni. „Fyrst þú ert iifandi verðurðu að berjast...“ sagði hún einu sinni, slíkt spakmæli lýsir óhamingjusamri manneskju. Hún felldi yfir sjálfa sig dóm Tantalusar, barðist ævinlega áfram og var alltaf óánægð. Hún var því fremur erfið í sambúð, og aðalgrínið í þessari bók, sem þó er ekki ætlað að vera fyndin, er furöulegur skepnuskapur hennar. Pegar veikindi og óheppni lögðu feril keppinautar hennar í rústir sagði hún við Meneghini „Guð hefur hefnt mín.“ Pó Meneghini greini frá ýmsum óskemmtilegum atburðum og fremur óþokkalegum ummælum prímadonn- unnar lætur hann ekki í Ijós neina skoðun á þeim - reyndar gæti athugull lesandi grunað höfundinn um að vera að hefna sín með því að leyfa Maríu að sakfella sjálfa sig um leið og hann hrópar tryggð sína yfir heiminn. Tryggð hennar við hann er vissulega eitt aðalefni bókarinnar scm opinberar í miklu mæli hjartansmál Maríu. En þó hann birti langa kafla úr ástarbréfunum frá henni þá afhjúpa þau annað en það sem hann bjóst við. Ástarjátningar hennareru svo tilbreytingarlausar og einhæfar að þær hefðu getað verið skrifaðar af tölvu. Hún virðist vera að leika enn eitt hlutverkið - nefnilega hlutverk hinnar ástríku eiginkonu - fyrir grunlausan áhorfandann Meneghini. Þó þetta hlutverk hafi orðið henni óbærilegt að lokum lék hún það af allri þeirri sannfæringu sem góð leikkona hefur yfir að ráða. Ef það er leyndarmál Maríu Callas þá er það líka leyndarmál bókarinnar: hún er eins og ópera að, innihaldi og formi. Samkvæmt bók Meneghinis verða allir sem eitthvað koma nálægt óperum fórnarlömb ofsa- fenginna og óeinlægra tilfmninga sem slá við hverju því sem hendir á sviðinu sjálfu. Vélráð óperuheimsins gera það sem gerist í hinni stóru ítölsku stofnun- inni, Mafíunni, að barnaleik einum. Ef marka má bókina um Maríu Callas gengur á með blóðhefndum og samsær- um í ítölsku ópcrunni. Konan ,.mín hún María Callas er ekki betri en aðrar bækur sem skrifaðar hafa verið um Maríu: sem skýrsla um opinbert líf hennar er hún fáránlega fyndin, en sem lýsing á einkalífi hennar er hún ósköp einfaldlega fáránleg. bók um sjónarmið Simone de Beauvoir Simone de Beauvoir heule - Gesprác- he aus zchn Jahren. Höfundur: Alice Schwarzer. Útgefin af þýska forlaginu Rowohlt. Alice Schwarzer er kunn blaðakona og feministi í Þýskatandi, ein af konun- um sem standa að tímaritinu EMMA og skrifar hún mikið í það rit. í byrjun áttunda áratugarins var hún fréttaritari þýskra blaða í París og starfaði bá mcð frönsku kvcnnahreyfingunni. I þeirri pólitísku ólgu sem ríkti um þær mundir stóð Sartre við hlið franskra maóista, en það var í viðtali við Sartre sem Alice Schwarzer hitti Simone de Beauvoir, heimspcking og rithöfund í fyrsta sinn. Alice lýsir því í formála bókarinnar hversu stór stund það hafi verið er hún hitti Simone de Beauvoir í fyrsta sinn, höfund bókarinnar um „Hitt kynið“ sem var nokkurs konar biblta hinna nýju kvennahreyfinga er þær fóru af stað uppúr 1968. Eftir útkomu þeirrar bókar skipti Simone sér ekki af kvenréttindamálum og lýsti því einhverju sinni yfir að hún tryði þvf að sósíalisminn myndi frelsa konurnar sjálfkrafa. Um 1970 hefur hún skipt um skoðun og er orðin virk í kvennahreyfingunni um þær rnundir sent Alice Schwarzcr kom til Parísar. Vinátta þeirra þar og samstarf varð til þess að þær áttu saman tal sem síðan birtist í franska tímaritinu Nouvel observateur. í því viðtali lýsti Simone þeirri skoðun sinni að sjálfstæð kvennahreyfing - án karlmanna - væri nauðsynleg. Fleiri viðtöl fylgdu síðan í kjölfarið, - það seinasta sem tekið var í september 1982, er ef til vill persónulegast, - en þau fjaila um kvenréttindi, kynferði, hjónaband, fjölskyldu, móðurhlutverkið, heimilis- störf og vinnu utan heimilis, breyttar aðstæður kvenna. friðarhreyfingar og samband Simone de Beauvoir og Sartre sem sumum þykir fyrirmynd „frjálsra" ásta. Alls eru 6 viðtöl birt í þessari bók, tekin á árunum frá 1971 til 1982. Þó sjálfsagt hafi flestir feministar hafn- að bók Simone de Beauvoir um „Hitt kynið“ vegna nýrri kenninga, sem halda mikilvægi kvennamenningarinn- ar á lofti, er forvitnilegt.að komast að því hvernig skoðanir hennar hafa þró- ast í áranna rás. ■ Simone de Beauvoir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.