Tíminn - 20.02.1983, Blaðsíða 20

Tíminn - 20.02.1983, Blaðsíða 20
20______ nútíminn SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 19S3 Úrslitin í vinsælda- kosningum Nútímans: ■ Óhætt er að segja að EGÓ kom, sá og sigraði í vinsældakosningum Nútím- ans að þessu sinni. Eins og sést af töflunum þá komst engin hljómsveit með tærnar þar sem EGÖ hafði hælana hvað varðar vinsælustu hljómsveit ársins, þar að auki voru þeir með vinsælustu plötu ársins og áttu þrjú af fimm vinsælustu lögum ársins. Vinsældakosningar Nútímans Fyrst er að nefna það að kosningar þessar voru ekki fjölmennar, þ.e. okkur bárust ekki ýkja margir seðlar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. En samt er hægt að segja með nokkurr vissu að þær séu marktækar, hvort sem fólki líkar betur eða verr. Við báðum fólk að skrifa niður þrjár bestu hljómsveitirnar, þrjár bestu plöturnar og lögin, og við gáfum 3 stig efstu hljómsveitinni, síðan tvö stig og síðustu eitt. Þótt ekki hafi verið mikið að gerast í útlendum poppheimi síðasta árið hefur talsvert gerst hér heima og heill bunki hefur komið út af plötum. En þessi kosning um það vinsælasta varð samt ekki spennandi, enda eru það fáar hljómsveitir sem hafa verið mjög áber- andi og ég held að fólk hafi getað ímyndað sér hvað ienti í efstu sætunum. Um toppinn eru það aðallega Egó. Stuðmenn, Grýlurnar, Þeyr og Tappi Tíkarrass sem berjast og skal engan undrast það. Annars er svolítið skrýtið að Mezzoforte skuli ekki eiga neinn þátt í þessari baráttu þar sem þeir hafa gert það mjög gott síðasta árið, en líklega er ástæðan sú að fólk telur þá almennt ekki með popp eða rokkhljómsveitum. Með- al annarra íslenskra hljómsveita sem komu nokkuð við sögu voru Vonbrigði, E60 KOM, SA OG SIGRABI ■ Duran Duran voru bæði vinsælasta erlenda hljómsveitin og áttu þar að auki vinsælustu er- lendu plötuna Ríó. I ■ Gamli slagarinn Rabbarbara Rúna varð óvænt vinsælasta íslenska lagið cn það syngur Björgvin Hall- dórsson. ■ Bruce Springsteen átti vinsælasta lagið At- lantic City Þursaflokkurinn, Purrkur Pillnikk, Af útlenskum hljómsveitum erþað að Bruce Springsteen, Human League Fræbbblarnir og fleiri. segja að Duran Duran, Madness, Clash, byltast um á toppnum. Mest brá okkur að sjá hvað Bruce Sprinsteen náði mörg- um atkvæðum með sólóplötu sinni, Ne- braska, en það er ekki algengt að algjörlega órafmögnuð plata nái að skjóta öllum tæknivæddu hljómsveitun- um ref fyrir rass. Kannski er Bruce bara svona sætur? Annars var það að mestu leyti léttara poppið sem sópaði atkvæð- unum til sín þótt punk og heavy metal hafi greinilega höfðað til ófárra af þeim sem voru svo yndislegir að senda inn lista. Jafnvel var Crass nokkuð tíð og Anti-Nowhere League og Dead Kenn- edys. Af bárujárninu var það aðallega AC/DC og Iron Maiden sem virtust hafa fylgi. ■ Það sem hvað mest vakti athygli okkar voru úrslitin um vinsælustu lög ársins 1982. Það var ekki nóg með að EGÓ ætti þrjú af fimm vinsælustulögun- um, heldur var lag númer 6 Fjöllin hafa vakað, af í mynd, og tvö önnur lög af þeirri plötu sköguðu hátt upp í toppinn: Sætir strákar og Guðs útvalda þjóð. Mest kom okkur þó á óvart að Rabba- baraRúna skyldi lenda í efsta sæti þar sem það lag var svo gjörsamlega „úr sambandi“ við öll önnur úrslit. T.d. kom það oft fyrir á seðlunum að Þeyr, Purrkur Pillnikk og Fræbbblarnir voru sem bestu hljómsveitirnar og á sama seðli var besta lagið RabbabaraRúna! Samfara vinsældum kvikmyndaplöt- unnar Með allt á hreinu fengu mörg lög hennar góðan slatta af atkvæðum þó það nægði ekki til að koma þeim á lista. Þau voru íslenskir karlmenn, Ekkert mál, Utí í Eyjum og Ástardúett. Af öðrum nokkuð vinsælum lögum má nefna I don’t like your style með Bara- flokknum, Illt í efni með Tappanum, Draumaprinsinn með Ragnhildi og Ó Reykjavík með Vonbrigði. Að lokum má draga eina ályktun af þessari talningu, þá að ennþá eru það stóru risarnir sem ráða rt'kjum á íslensk- um popp heimi: EGÓ, Stuðmenn og Björgvin. Öll hin „nýja útgáfa" hefur enn ekki kaffært þá, nema kannski Þeyr og Tappi Tíkarrass að einhverju leyti. „Draumurinn er að gefa út eigin plötur sjálfir” — rætt við Bubba Morthens í tilefni úrslita vinsældakosninga Nútímans ■ „Ég átti alls ekký von á þessu, maður var með það á hreinu að Stuðmenn yrðu efstir, en úr því að svona fór vjl ég færa þeim þakkir, fyrir hönd bandsins, sem sýndu okkur þenn- an heiður“ sagði Bubbi Morthens í samtali við Nútímann en hljómsveit . hans EGÓ varð langcfst í vinsælda- kosningum Nútímans. „Mér finnast þessar kosningar nokk- uð merkilegri en aðrar á þessu sviði að því lcyti að það er fólkið sjálft sem fær að ráða og hvort sem „kjörsókn" hefur verið góð eða slæm er þetta tvímæla- laust betra en cf einhver akademísk nefnd hefði stillt upp listanum. Undanfaríð hefur borið á því áð ekki sé allt með fclldu í samstarfi félaganna ■ Egó. Við spurðum Bubba út í þau máf. „Þetta voru sambýlisvandamál sem alltaf koma upp„Það má líkja svona sam^tarfi við hjónaband, þar koma oft upp sambúðarerfiðlekar, en við vorum menn til að lcysa úr crfiðle’ikunum og nú er þetta úr sögunni“. Hvað með nánustu framtíð, hvað hefur Egó á prjónunum? „Draumurinn er að gefa út okkar cigin plötu sjálfir, stofna eigin fyrirtæki til að einbeita sér að þessum hlutum. Þetta kemur þó ekki til vegna ágrein- ings eða neins slíks við Steinar, hann á ailar þakkir skildar fyrir samstarfið á undanförnum árum. Við viljum einnig finna okkar eigin tónlistarstíl og fínpússa en við höfum þrætt ótrúlegustu leiðir á þeirn vett- vangi.“ Nú gáfuð þið út tvær stórar plötur á síðasta ári, má búast við svipuðu í ár? „Við komum sennilega ekki til með að gefa út neina plötu í ár fyrr en þá í desember. Við eigum, að ég held, eftir að gcra eina stóra plötu fyrir Steinar en síðan viljum við eins og ég sagði áðan standa á eigin fótum, feta í fótspor Þeysaranna, það er aö ég tel eðlilcgur hfutur. Við crum búnir að slíta barnskónum og ættum að vera tilbúnir til að gera hlutina sjálfir að þessu leyti”. Má búast við breyttri tónllst þessu samfara? „Það er alvcg á hreinu. £g get að vísu enn ekki svarað þessari spurningu nákvæmlega. Viðihöfum verið að basla við það undanfarið að sameina tónlist- arsmekk einstakra meðlinta hljóm- ■ Hljomsvcitin EGÓ. sveitarinnar samán í eina heild, þannig að allir geta sætt sig við og þetta er að smella saman nú eftir ágreininginn og nú er að koma upp grundvöllur fyrir góðu samstarfi innan bandsins". -FRI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.