Tíminn - 20.02.1983, Blaðsíða 24

Tíminn - 20.02.1983, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 20. FEBRÚAR 1983 ,Höfum aldrei getað gengist inná að gifting sé nauðsynleg vegna þess að slíkt samband kemur innanfrá. heimsókn ■ Á áttundu hajð í fjölbýlishúsi við Ljósheima búa Sverrir Guðjónsson og Elín Edda Árnadóttir, ásamt tveimur sonum. Sverrir, sem fyrir um það bil tveimur áratugum var þekktur fyrir blíðan barna- söng, er nú kennari í Fossvogsskóla og Elín Edda er að Ijúka námi við Myndlista- og handíðaskóla íslands. Við heimsækjum þau um þessa helgi. Ég kem til Elínar Eddu og Sverris á bolludaginn, heppin þar því Elín Edda bakaði hinar kræsilegustu bollur í tilefni dagsins. Þegar ég kom sátu bræðurnir ívar Örn 6 ára og Daði 4 ára að krásunum, ásamt Hrólfi vini þeirra með súkkulaði uppá nef og niður á höku, allir þrír. Elín Edda er Reykvíkingur með blönduðu ívafi, frá Vestmannaeyjum og Skipaskaga, alin upp í Reykjavík hjá móður sinni og fóstra sínum Kristjáni Júlíussyni. „Ég gekk í Vogaskólann öll mín yngri ár og tók þaðan gagnfræðapróf. Ég þorði ekki í landsprófið á sínum tíma, var nefnilega haldin landsprófsskrekk." - Varstu ekki líka í ballett? „Jú, ég byrjaði átta ára í Ballettskóla Guðnýjar Péturs, ogfórsíðan í Listdans- skóla Þjóðleikhússins. Ég var næstum óslitið í ballett þar til ég varð ófrísk 23ja ára gömul. Eftir gagnfræðaprófið fór ég til Bandaríkjanna með frændfólki mínu og stefndi þá að námi í dansi en fékk síðan efasemdir, um að það væri akkúrat það sem ég vildi. Það er svo margt sem brýst um í manni á þessum árum. Ég var jafnvel þá farin að spá í myndlistina. Amma mín, Fanný Friðriksdóttir, sem var forstöðukona saumastofu Þjóðleik- „Leitin að upprunanum einkennandi fyrir listina í dag“ En ég dansði líka þó nokkuð á menntaskólaárunum, tók m.a. þátt í sýningum á Brúðkaupi Fígarós, Okla- homa, Kabarett o.fl. Þau ár sem ég eyddi í Þjóðleikhúsinu hafa haft sín áhrif á mig sem myndlistarmann, því ég bý mjög vel að þeirri reynslu sem ég öðlaðist þar. Ég vcit hvað er að gerast í ballett, leikhúsi og myndlist og get því séð samhengið á milli þessara listgreina. Mér finnst oft skorta hjá listamönnum að þeir viti hvað er að gerast í öðrum listgreinum en þeir stunda sjálfir vegna þess að önnur listform geta svo sannar- lega haft gagnverkandi áhrif á það form sem maður fæst við sjálfur. Yfirleitt er nefnilega það sama að gerast í öllum listgreinum, ef grannt er skoðað sér maður að sömu grundvallarþættirnir eru gegnumgangandi. Nú er t.d. talað mikið um frumstæð áhrif á myndlist, fólk málar á mjög frumstæðan hátt og þetta kemur líka fram í tónlistinni. Það má cf til vill segja að leitin að upprunanum sé einkennandi fyrir Iistina í dag. Til dæmis er nýja málverkið dæmigerð uppreisn gegn hinu hefðbundna akademiska mál- verki. „Gott að kunna að meta listina og njóta hennar” 1 heimsókn hjá Elínu Eddu Árna- ~ dóttur mynd- listar- nema og Sverri Guðjóns- syni kennara og r * „Eg var hálf hræddur við hana. Hún var einhvern veginn svo ákveðin á songvara ■ Sverrir syngur á útiskeinmtun á svipinn." (Elín Edda í busavígslu í Arnarhóli 17. júní, þá tólf ára gamall. M.T.). Rmantyndir: Róbert. hússins, hafði mjög mótandi áhrif á mig og það var í gegnum hana sem áhugi minn á listum kviknaði. Hún sá til þess að ég fór í ballett og hún fór einnig með mig á myndlistarsýningar þegar ég var barn og síðan kom áhugi á leiksýningum í kjölfarið. Mér gekk ágætlega í dansinum,fékk styrk til að fara á námskeið og var komin það langt að ég var búin að fá inni á háskólanum í Madison í Wisconsin í nútímadansi. Ég hefði þá þurft að taka bandarískt stúdentspróf og síðan BA- próf í dansinum en sá fram á að það var ekki það sem ég vildi. Mér nægði alveg að vera heima og taka þátt í sýningum þegar tækifæri gafst og taka tíma í dansi. Ég tók þátt í nokkrum sýningum í Borgarleikhúsinu þarna úti, m.a. í söng- leik sem hét Frænka mín og hefur líka verið sýndur hér. Ég var einnig í litlum sýningarhópi sem sýndi dansa sem voru sérstaklega ætlaðir börnum og fór í skólana í Madison. Þetta var allt sáman mjög skemmtilegt þó ekki það sem ég var að leita að. Eftir að ég kom heim vann ég eitt ár í tískuverslun. Það var nú ekkert sérstakt og ég er ekkert yfir mig spennt yfir því tímabili. Þetta var svona biðstaða á meðan ég var að hugsa mig um. Að loknu þessu ári fór ég í Menntaskólann við Tjörnina. Þar eignaðist ég marga góða vini sem ég hef enn samband við, en þó að menntaskólaárin hafi sinn sjarma fannst mér þau alls ekki eins skemmtileg og margir vilja meina. Og eiginlega finnst að lífið hafi ekki byrjað fyrr en ég eignaðist strákana. - Fórstu í myndlistarskóla eftir stú- dentspróf? „Nei, ég varð ófrísk um vorið og fór í Háskólann um haustið að læra frönsku og málvísindi. Það kom mér mjög á óvart hversu gaman var í Háskólanum. Ég var í mjög skemmtilegum kvenna- hópi og við unnum verkefnin saman, sem gerði námið að sjálfsögðu miklu skemmtilegra. En þegar ég var ófrísk og gat ekki dansað fór ég að teikna. Það er eins og skapandi afl lciti í annan farveg ef aðstæður breytast. Mér gekk alltaf vel í teikningu í barnaskóla en hætti að teikna á gelgjuskeiðinu sem er dæmigert fyrir breytingarnar sem verða á manni. Það er eins og maður lokist á vissan hátt og verði ekki eins meðvitaður um sjálfan sig. Ég fékk sem sagt brennandi áhuga á að virkja teikninguna upp á nýtt og dreif mig á námskeið ári eftir að barnið fæddist. Síðan tók ég inntökupróf í Handíða- og myndlistaskólann um vorið - þá ófrísk að öðru barni. En þetta var eitthvað sem ég varð að gera og vissi að var rétt. Ég var svo í skólanum fram á sfðasta dag, ég á teikningu frá 7. desember sem var föstudagur en Daði fæddist 9. des- ember. Ég var svo utanskóla það sem eftir var vetrar og fékk að leysa mín verkefni heima. Síðan urðu veikindi Daða þess valdandi að ég ákvað að draga mig i hlé og vera heima í eitt ár. Þctta ár sem ég var heima kom mjög vel út, ég var lengi með Daða á brjósti (eins og reyndar ívar Örn) og gat sinnt því vel. Samt finnst mér ég alltaf afkasta mestu

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.