Tíminn - 20.02.1983, Page 25
þegar ég hef mikið að gera. En maður
safnar í sarpinn þegar maður dregur sig
í hlé og ég var dugleg að fara á sýningar
og tónleika. Yfirleitt er ég dugleg að
sækja list í hvaða formi sem hún er.
Annars er listamaðurinn oft virkastur
þegar aðrir halda að hann sé ekki að gera
neitt“, segir Elín Edda og brosir við.
„Nú, að loknu þessu ári heima settist ég
svo í grafíkdeildina og lýk náminu nú í
vor.“
„í dag er enginn maður
með mönnum
nema hann máli“
- Hvað finnst þér um svokallaða
nýlist?
„Að mínu áliti er nýlist bara orð yfir
það sem er nýtt hverju sinni. Mér finnst
því orð eins og nýlist rangyrði eins og
það er notað. En það hefur margt verið
að gerast í íslenskri myndlist sem við
finnum ekki í nágrannalöndunum, t.d.
Svíþjóð og Danmörku, eins og t.d.
bókagerð og hér hafa komið fram sterk
áhrif konceptlistar á íslenska myndlist-
armenn.
Koncept-tímabilið hefur að mestu
liðið undir lok og vikið fyrir málverkinu.
Stundum hvarflar það að manni að þetta
sé hreinlega tískufyrirbæri. • í dag er
enginn maður með mönnunt nema hann
máli og eins og. sumir séu frekar að
fyigja straumnum en að sinna ákveðinni
þörf til listsköpunar. Ég málá ekki,
heldur nota ég grafískar aðferðir við
myndsköpun og mér fyndist ég alls ekki
tilbúin til þess að hoppa allt í einu núna
yfir í það að mála, bara af því að það er
í tísku. Mér finnst að þörfin verði að
vera númer eitt og mestu máli skiptir
hvað listamaðurinn finnur sig í að gera
hverju sinni. Það er hans ,að ákveða
hvernig hann vinnur, og í hvaða efni, en
ekki einhver ráðandi tíska.
áhugamálum sínum og þurfa ekki að
eyða orkunni í að gera eitthvað allt
annað, þá verður maður bara óham-
ingjusamur.
„Mér fannst ég
endurfæðast við að
eignast barn“
- Hafa barneignir og heimilishald
ekkert hindrað þig?
„Nei, frekar virkað örvandi. Börn
eiga ekki að vera hindrun. Mér fannst ég
endurfæðast við að eignast barn, fá
einhverja kjölfestu í tilveruna. En ég er
líka svo heppin að við höfum bæði
jafnmikinn áhuga á því að láta áhugamál
okkar ganga upp og erum samstillt um
að stunda þau og rækta án þess þó að
það sé á kostnað barnanna."
Satt að segja finnst Daða samtal okkar
Elínar Eddu vera heilmikið á sinn kostn-
að svo við látum tilleiðast og þiggjum
ítrekað boð hans á leiksýningu. Daði
stendur fyrir tíðum leiksýningum á
heimili sínu og er orðinn sviðsvanur
mjög. Leikritið er einþáttungur í gaman-
sömum dúr en ég treysti mér ekki útí
nánari skilgreiningu, nútímaleikritun
getur verið ansi flókin! Að lokinni
þessari ánægjulegu uppákomu er kom-
inn tími til að forvitnast örlítið um hagi
Sverris.
„Ég er líka Reykvíkingur og alinn upp
á mölinni, sonur Jakobínu Ebbu Guð-
mundsdóttur, frá Læk í Flóa. Faðir minn
er Guðjón Matthíasson harmonikku-
leikari frá Einarslóni á Snæfellsnesi. Ég
rann ljúflega á færibandi í gegnum
skólakerfið, tók landspróf frá Austur-
bæjarskólanum og fór síðan í Mennta-
skólann í Reykjavík. Mér þótti ekki
mjög gaman í menntaskóla slíkir skólar
virka á mig sem einhvers konar biðtími,
■ Við æfingar á Kabarett.
Þeir sem standa best að vígi að mínu
mati í nýja málverkinu í dag eru þeir sem
hafa gengið í gegnum hefðbundinn skóla
og vita því hvað það er sem þeir eru að
brjóta upp. Það verður líka mjög spenn-
andi að fylgjast með þróuninni, sjá hvað
þeir sem nú eru af krafti í nýja málverk-
inu verða að gera eftir nokkur ár.“
- Hafa konur einhverja sérstöðu inn-
an myndlistarinnar?
„Mér er nú fremur illa við að skipta
listinni í deildir eins og karlalist og
kvennalist en það er þó mjög dæmigert
að konur skila sér alltaf miklu seinna en
karlar sem virkir myndlistarmenn. Sýn-
ing ungra myndlistarmanna á Kjarvals-
stöðum er talandi dæmi um það. Þar er
aldurshámarkið þrjátíu ár og konur eru
þar í miklum minnihluta. Á hinn bóginn
er algengt að þegar þær loksins koma
verkum sínum á framfæri eru þær mjög
sterkar í sinni sköpun og mæta fílefldar
til leiks. Þær eru þá gjarnan orðnar
reynsluríkar og myndmál þeirra oftast
magnað og sterkt.
Myndmál kvenna er líka oft öðruvísi
en karla, þó það sé ekki algilt. En
reynsla hvers listamanns hlýtur ævinlega
að koma fram í verkum hans, og mis-
munandi reynsla kynjanna kemur oft
fram þó ég sé ekki viss um að ég gæti
dæmt um það hvort mynd væri eftir karl
eða konu ef breitt væri yfir nafnið..
Annars fer ekkert að reyna á mann
fyrr en að loknu námi, maður er núna
fyrst að byrja. Ég stefni að því að koma
mér upp vinnuaðstöðu, - það er hugar-
fóstur númer eitt - og vinna að myndlist.
Ég tel mjög mikilvægt að geta unnið að
maður er ekki búinn að taka endanlega
ákvörðun um það hvað maður hyggst
fyrir. Það er líka ákaflega takmarkað
kennt um lífið t menntaskólum. Megin-
áherslan er lögð á bóknámið þannig að
maður veit ósköp lítið um lífið þegar
maður kemur út úr menntaskóla. Sú
hætta er fyrir hendi að skólakerfið stuðli
að ósjálfstæði nemenda ef þeim er
endalaust ætlað að taka við forsögn.
Að loknu stúdentsprófi reyndi ég að
átta mig á því hvað ég viidi og byrjaði í
viðskiptafræði í Háskólanum. Þar leidd-
ist mér alveg óskaplega svo ég ákvað að
hætta strax um áramótin. Haustið eftir
var Kennaraháskóli íslands settur á
laggirnar og ég ákvað að fara þangað.
Það var allt annað að vera þar, Háskól-
inn virkaði á mig sem mjög kuldaleg
stofnun en í Kennaraháskólanum vorum
við svo fá að allt varð miklu persónulegra
og skemmtilegra. Við vorum ekki nema
sjö sem útskrifuðumst gaman.
Síðan fór ég náttúrlega í æfinga-
kennslu og þá leist mér svo sem ekkert
of vel á, því mér fannst sama stífa
kennsluformið vera ríkjandi og þegar ég
var sjálfur í skólakerfinu, þessi óper-
sónulega kennsla þar sem nemandinn er
stöðugt mataður. Það var ekki fyrr en ég
kom í Fossvogsskóla að ég fann breytt
andrúmsloft sem var raunar eins og
ferskur blær. Þó ég hafi ekki verið viss
um hvað gera skyldi þegar ég útskrifaðist
úr Kennaraháskólanum ákvað ég að slá
til þegar mér var boðin staða við Foss-
vogsskólann og mér finnst ég hafa lært
gífurlega mikið af því að vinna á þeim
stað.
„Hver nemandi er
ólíkur þeim næsta“
f Fossvogsskólanum er lögð mikil
áhersla á að ná til einstaklinganna, hver
nemandi er ólíkur þeim næsta og því má
maður aldrei líta á nemendur sem óper-
sónulegan hóp. Við leggjum líka mikla
áherslu á að hver og einn geti unnið á
sínum hraða og eftir sinni getu . Við
erum þó háð ákveðnum takmörkunum,
en hugmyndin er opinn skóli og við
verðum bara að reyna að samræma þá
hugmynd þeim kröfum sem koma í
gegnum námsskrána.
I Fossvogsskóla hefur verið samfelld
þróun og kennararnir hafa orðið að
vinna mikið saman. Við höfum leitað
eftir leiðum til að geta fylgst með
krökkunum einstaklingslega en erum
einnig með beina kennslu þar sem öllum
hópnum eru kennd ákveðin undirstöðu-
atriði. Síðan notum við kannanir miklu
meira en próf, en með þeim reynum við
að átta okkur á því, í félagi við nemand-
ann, hvernig miðast áfram. Nemendur
koma líka með í foreldraviðtölin þar
sem þetta er fyrst og fremst þeirra nám
sem um er að ræða.
Við reynum að gera nemandann eins
ábyrgan fyrir sínu námi og hægt er og
leggjum mikla áherslu á það að hann
meti sjálfur hvað hánn gerir vel og hvað
hann gerir miður vel. Það er hans að
bæta úr því og okkar að aðstoða hann
við það. Það er mjög algengt í skólum
að nemendum eru gefnir stjörnustimplar
en ég tel miklu jákvæðara að krakkarnir
fari sjálfir yfir sín verk og krossi við það
sem vel er gert. Mér finnst slíkt sjálfsmat
vanta inn í skólakerfið.
Ég legg líka mikið upp úr hópum-
ræðum. Við söfnumst þá saman í svo-
kallaðan heimakrók og ræðum málin,
t.d. reynum við að átta okkur á því hvers
vegna einum nemanda getur gengið vel
í einu fagi, en ekki eins vel í öðru og
hvað sé til ráða. Krakkar bera sig alltaf
saman en þau þurfa um leið að gera sér
grein fyrir hversu ólík þau eru að
upplagi. Hæfileg samkeppni getur verið
æskileg, en ég tel það ennþá mikilvægara
að ná því andrúmslofti að nemendum
þyki sjálfsagt að hjálpa hver öðrum.
Ég tel mjög mikilvægt að kennari og
nemendur ræði saman, og að nemend-
urnir geri sér grein fyrir tilganginum
með náminu. Þá á ég ekki við að ég segi
þeim hver tilgangurinn sé heldur að þau
komi með tillögur og hugmyndir. Fólk
nennir nefnilega ekki að læra ef það
finnur engan tilgang í því, en það held
ég að gerist oft í efri bekkjum grunnskól-
ans. Það er alltof mikil áhersla lögð á
bóknámið, en það er ekki nóg að lesa
einhverjar bækur, maður verður líka að
vinna með efnið. Þannig eru samræmdu
prófin t.d. eingöngu bókleg.en barn sem
á gott með verklegt nám fær það ekkert
metið.
„Barnsröddin kemur
beint frá hjartanu“
Annað sem mér finnst mjög slæmt við
skólakerfið er það að þegar krakkarnir
færast upp um bekki þá eru þau ekki
tekin eins og þau eru, þannig að ef þau
kunna ekki sjötta bekkinn þegar þau .
koma uppí sjöunda bekk er þeim oft
ekki gefið tækifæri. Þetta gerist líka
iðulega á lægri stigum, t.d. við breyting-
una um níu og tíu ára aldurinn, þá koma
ný fög inn í námsefnið og börnin eru
mjög misjöfn en það er ætlast til þess að
þau kunni það sama og hafi öll sama
þroska til að takast á við verkefnin.
Annars er ég á kafi í námstækni og er að
kynna mér námsefni þar sem nemendum
er kennd ákveðin námstækni sem hjálpar
þeim að komast í gegnum námshindran-
ir.
- Nú ertu sjálfsagt þekktari sem
söngvari en kennari - hvenær byrjaðirðu
að syngja?
„Ég söng alltaf mikið heima sem barn,
pabbi byrjaði sjálfur seint að spila á
nikkuna, hann var um þrítugt þegar
hann byrjaði að læra og ég lærði þau lög
sem hann var að æfa, auk þess kunni ég
mikið af textum. Síðan fór ég að syngja
með honum eftir að hann byrjaði að
spila. Hann átti ættingja á Hellissandi og
fór alltaf þangað að spila á sumrin og þar
tróð ég upp í fyrsta sinn. Ég tók þetta
aldrei neitt alvarlega, var svo vanur að
syngja með honum heima að mér fannst
þetta ekkert merkilegt.
Síðan hélt ég áfram að syngja svona
■ Elín Edda lýkur námi við grafíkdeild Myndlista- og handíðaskólans í vor. Þessi
myndröð eftir Elínu Eddu er unnin með photo grafískri aðferð (Blueprint).
hér og þar. Ég byrjaði um tíu ára gamall
að læra söng hjá Sigurði Dementz og var
hjá honum í tvö ár. Þá lærði ég m.a.
mörg ítölsk lög sem ég söng á árshátíðum
við undirleik ýmissa píanóleikara.
- Varstu ekki kallaður Robertino
íslands?
„Jú, það kont nú þannig til að Rober-
tino kom hingað og söng og vakti mikla
athygli. Ári síðar var ég svo beðinn að
syngja á útiskemmtun á 17. júní og söng
þá 0 sole mio. Þá sló einhver því fram í
blöðum að kominn væri íslenskur Ro-
bertino - við þurfum alltaf að eiga
íslenskar útgáfur af öllum sortum - og
síðan varð það hálfgert viðurnefni. Þetta
fór hins vegar fremur illa í mig því að
krakkar notuðu þetta frekar í stríðnis-
tón.
Annars held ég að þetta söngtímabil í
bernsku hafi ekki ruglað mig neitt mjög
og þá aðallega vegna þess að ég tók það
aldrei neitt hátíðlega. Það var frekar að
ég tæki alvarlega þjóðsöguna þegar
röddin fór að breytast, um það að
krakkar sem syngju mikið, sérstaklega
strákar, misstu röddina og gætu ekki
sungið á eftir. Þetta er nú ekki alls kostar
rétt, því hér er um tvær ólíkar raddir að
ræða. Barnsröddin er náttúruleg, mað-
ur getur þjálfað hana en ekki á sama hátt
og klassískir söngvarar gera. Barnsrödd-
in kemur beint frá hjartanu og þú notar
hana eins og hún kemur fyrir, en fullorð-
insröddina þarf að móta og þjálfa mjög
mikið. Þjóðsagan stenst einungis að því
leyti að það er ákveðinn þrýstingur á
barnasöngvara um að þeir syngi áfram.
Þeir byrja því oft of snemma í stað þess
að doka við og átta sig á því hvort þeir
vilja syngja eða gera eitthvað allt annað’
í framtíðinni. Mér finnst það mjög
tvírætt að beina barni of mikið inn á
einhverja eina braut nema að þess sé
gætt að það fái mjög mikla upplýsingu í
leiðinni. Að mínu mati er mjög rnikil-
vægt í uppeldi að barninu sé hjálpað til
að átta sig á hvað möguleikarnir eru
margir.
„Þegar okkur lærist '
að elska börnin okkar...“
- Þú hélst svo áfram að syngja?
„Ég stoppaði i 2 ár en gekk í sömu
gildru og svo margir aðrir, söng eins og
ekkert hefði í skorist með bra-bra-rödd-
inni minni í hljómsveit pabba. Ég fór
ekki að leita minna eigin lciða fyrren um
það bil sem ég var að ljúka menntaskól-
anum.“
- Fórstu þá í söngnám?
„Nei, það var ekki fyrr en ég fór í^kór
Langholtskirkju að ég fór að fá áhuga á
miklu fjölbreyttari tónlist en áður og
löngun til að læra eitthvað meira í söng.
Ég var í kórnum í fimm ár og fékk þar
tilsögn og var einnig í söngnámi einn
vetur. Ég lærði mikið á því en varð
jafnframt að gera upp við mig hvort mig
langaði í áframhaldandi söngnám eða
ekki. Einhvern veginn gat ég ekki séð
sjálfan mig í því hlutverki að fara í
gegnum hefðbundið söngnám og ákvað
því að leggja fremur stund áryþmíska
tónlist og djass. Síðan fór ég í djassdeild
FlH, þar sem ég er nú að leika mér og
hef mjög gaman af. Þetta er sú tegund
tónlistar sem ég hef kannski minnst skipt
mér af en áhugi minn á henni eykst
stöðugt. Mig langar til að skilja hvað
liggur að baki því að impróvísera í
djassi. En söngvarar sem geta virkilega
spunnið í djassi gera það ekki bara
hugsunarlaust, þeir hafa byggt sig upp
og æft sig á alls konar tónskölum og
frösum. Maður verður að vita hvaða
möguleika hinarýmsu hljómsamsetning-
ar gefa í impróviseringu.“
- Hefurðu ekki verið eitthvað í popp-
inu líka?
„Jú, ég söng í þrjá vetur með hljóm-
sveitinni Pónik, en það gefst ákaflega
, lítill tími til að vinna að einhverri sköpun
þegar maður er alltaf að spila á böllum,
Sjá næstu siðu