Tíminn - 31.07.1983, Side 10

Tíminn - 31.07.1983, Side 10
SUNNUDAGUR 31. JÚLÍ 1983 10 ( ■ Ke)>urdar8amkeppní Islands er app- aral sem rekiii helur veriii um margra áratuga skeið. Keppni þessi snýst um það, eins og hvurt barn veit.lað velja fegursta íslendinginn af kvenkyni og hlaut1 hún ævinlega slíka umfjöllun í fjiilmiðlum að eftirsóknarvert þólti að veljast í keppnina svo rnaður minnist nú ekkí li að vinna hana. Fegurðarsam- keppni íslands var lengi vel einráð á ntarkaði liinnar kvenlegu fcgurðar en svo fóru flciri f\rirliæri sömu gerðar að skjóta upp koilinum svo sem kcppnin uin fulltrtia ungu kynslóðarinnar og fegurðarsamkeppni ýmissa íslcnskra að- ila, eins og ferðaskrifstofanna Útsýnar og Sunnu, sem sáu þarna auðvelda leið til að selja sína vöru. Nú er svo komiö að vart verður þverfótaö fyrir alls kyns fegurðarsant- keppnu;n og fyrirsætukeppnum. I'annig stendur Tiskublaðið Ltf fyrir fyrirsætu- keppni um þessar mundir og er sigurveg- aranuni að sjálfsögðu lofaö gulli og gnenum skógum. Nýbúið er að kjósa Stjörnu llollywood og Sólarstjörnu Úrvals. I»á æflar Samúel ekki að lúta sitt eftir liggja - það blað helur mi tekið upp samvinnu við ,,karlatimaritið“ (þannig kynnt í Samúel) Pcnthouse sem „birtir gjarnan fallegar myndir af fallegum fáklæddum stulkuin" eins og stendur í‘ Samúcl en þar stendur hins vegar ekkert um það hvers eölis þær inyndir eru. I'essa fegurðarsamkeppni Pelithouse ■ Magdalena Schram: „Fegurðar- og fyrirsætukeppnir eru afleiðing af sama hugsunarhættinum, sama mynstrinu og veldur því að konur eiga alitof lítinn hlut í því hvemig heiminum er stjórnaö." ■ Bryndis Schram: „Þó að okkur langi persónulega ekki til að láta stilla okkur upp á svið og meta okkur eins og hverjar aðrar skepnur, getum við ekki fordæmt þær stúlkur, sem sjá þarna leið til þess að hagnast. ER FEGURÐARSAMKEPPNI BÍSNESS EÐA ÁRÓÐUR ? — Helgar-Tíminn ræðir við Bryndísi Schram ritstjóra Tískublaðsins Lífs og Magdalenu Schram, sem er í ritnefnd Veru, blaðs Kvennaframboðsins í Reykjavík kallar Samúel ennfremur „glæsilegustu fegurðarsainkeppni í iieimi" og mun þá lial'a peningasjónarmiðið eitt að leiöar- Ijósi. Fkki treystir Samúel sér þó til þess að þýða titil þeirrar stúlku sem valin verður heldur kallar blaöiö hana „Stúlku ársins". Kéltur tilill er á liinii lióginn „One Million Dollar Pct ol' the Year“ eða „Einnar milljón dala gæludýr ársins." Nú, svo er hin árlega Fegurðarsam- keppni íslands nýafstaðin með tilhcyr- andi pomp og prakt að hefðhundnum sið væntanlega en nú brá svo við að ekki var látiö nægja að fegurðardrottningin frá í fyrra léti af hendi kórónu sína hcldur var eftirmynd liennar steypt í tertuinót og síöan étin upp til agna. Þótti þá ýmsum skjóta skökku við, sérstaklega þeim sem töldu rétt kvenna hafa fariö vaxandi í þessu þjóðfélagi siðasta áratuginn eöa svo - hlutgerving konunnar hlyti að vera komin á nokkuð hátt stig þegar menn væru farnir að leggja sér líkama hennar til munns - þó aldrei nema á táknrænan hátt væri. En hvernig í ósköpunum stendur á því að fegurðarsamkeppnum og fyrirsætu- keppnum fjölgar þegar bjartsýnt kven- réttindafólk heldur að réttur kvenna fari vaxandi? Er sá vaxandi réttur kannski bara óskhyggja eða fela fyrir- bæri á borð við fegurðarsamkeppni og fyrirsætukeppni annars vegar og jafn- rétti hins vegar ekki í sér ncina mótsögn? Helgar-Tíminn leitaði álits Bryndísar Schram ritstjóra Tískublaðs- ins Lífs og Magdalenu Schram sem er í ritnefnd Vcru, tímarits Kvennafram- boðsins í Reykjavík, á þessari þróun. „Getur verið að þetta sé kreppucin- kenni," segir Bryndís. „í krcppum beita menn örþrifaráðum til aðgræða peninga og fegurðarsamkeppni er náttúrlega mjög góð leið til að græða peninga. í gcgnum þær koma nýjar stúlkur inn á fyrirsætumarkaðinn og þær eru notaðar til að selja vörur. Fyrir þá scm eru að auglýsa vörur eða ferðalög er þetta mjög góð leið til að koma vörum sínum á , framfæri og selja þær.“ „Annað kreppucinkenni sem mér! ■ í fegurðarsamkeppnum eru konur metnar eins og hlutir eða dýr. Mörgum kann þó að þykja hlutgerving konunnar vera komin á nokkuö hátt stig þegar menn eru farnir að leggja sér líkama hennar til munns - þó aldrei nema á táknrænan hátt sé - en það gerðist í maímánuði síðastliðnum. Þá var fegurðardrottning íslands 1983 kjörin og krýnd en við sama tækifæri var feguröardrottning íslands 1982 étin upp til agna! dettur nú fyrr í hug," segir Magdalena, „er að einmitt í kreppum hafa konur alltaf vcrið kallaðar inn á heimilin og útaf vinnumarkaðnum. Þetta er bara hluti af því að það er veriðað reyna að ýta konum inn í hina hefðbundnu kven- ímynd." „Ég gcri nú ckki ráð fyrir því," segir Bryndís. „að þeir bísnessmcnn sem reka fegurðarsamkcppni séu svo meðvitaðir og hafi svo djúpan skilning á þessu að það sé | tilbúið og ákveðið af þeirra hálfu að nú eigi að snúa konunni aftur inn á heimil- ið.“ „Ég átta mig alls ekki á þvi hvernig þetta á sér stað," segir Magdalena, „en það sem gerðist t.d. upp úr stríðinu, þegar konurnar voru beinlínis sendar heim eftir að hafa verið kallaðar út á vinnumarkaðinn þcgar karlarnir fóru í stríðið og vinnuafl vantaði, hefur alltaf gerst. En hvort sem það er meðvitað eða ekki breytir því ekki að þetta gerist, kvenþjóðinni virðist vera stýrt á ein- hvern dularfullan hátt og það er þaö sem , skiptir máli. Þetta fer af stað hvernig svo sem það fer af stað. “ „Þetta er bara bísness...“ „Ég held að þetta sé bara bísness," segir Bryndís. „Ef við lítum til dæmis á fegurðarsamkeppni Útsýnar þá vekur hún athygli á ferðaskrifstofunni, eykur aðsókn að skemmtunum sem fyrirtækið heldur á Broadway og þannig tekst Útsýn betur að kynna fcrðalög sem eru sú vara sem ferðaskrifstofan er að selja. Það eru alls staðar peningar í spilinu." - Líkami konunnar er sem sagt notað- ur til að selja vörur. Eru slík afnot af kvenlíkamanum réttlætanleg? „Ef konum finnst það samboðið virð- ingu sinni, þá getum við engu þar um breytt," segir Bryndís. „Það sem mér finnst verst við þetta allt er að oftast eru stúlkur sem taka þátt í fcgurðarsam- keppni svo ungar að þær átta sig í rauninni ekki á því, hvað um er að ræða. Hégómleikinn rekur þær í keppnina og það er fyrst og fremst skjallið sent þær sækjast eftir - stundarskemmtun. En ef stúlkur eru mcð bein í nefinu geta þær auðsjáanlega hagnýtt sér þetta. Við lifum í samfélagi þar sem markaðssjón- armiðin ráða. Við erum alltaf að selja eitthvað og það er að mínu áliti bara stigsmunur á því hvað við seljum, hvort sem það er röddin, fótfimi eða útlit. Ég áfellist ekki stúlkur fyrir að selja útlit sitt, svo framarlega sem þær álíta það rétt sjálfar. Þó að okkur langi persónulega ekki til að láta stilla okkur upp á svið og meta okkur eins og hverjar aðrar skepnur, getum við ekki fordæmt þær stúlkur, sem sjá þarna leið til þess að hagnast. Ég vona bara, að þær hafi ekki hégómann einan að leiðarljósi, því þá eiga þær bara cftir að sjá eftir öllu saman. Hafi þær á hinn bóginn markmið með þátttöku sinni gegnir öðru máli, fegurðarsam- keppni og fyrirsætukeppni opna klárum og hörðum stelpum ýmsa möguleika. En hafi þær ekki bein í nefinu þá hafa þær ekki roð við bísnessköllunum. Þeir eru hræðilega klókir og neyta allra bragða, enda vita þeir að kvenlíkaminn trekkir mest." „Ég fordæmi auðvitað ekki þær stúlkur, sem taka þátt í fegurðarsam- keppnum," segir Magdalena, „heldur fordæmi ég þau viðhorf, það kerfi, sem elur af sér slíkar keppnir. Það er auðvit- að bara sá hugsunarháttur sem býr að baki kvennakúgun og misrétti kynjanna. Við vitum vitanlega að kúgun kvenna fyrirfinnst ekki bara í vestrænum mark- aðssamfélögum heldur kemur hún fram í ýmsum myndum alls staðar og það er auðvitað mergurinn í málinu, hvernig konum er stýrt og hvernig þær eru gerðar að afnotaverum. Að mínu viti er ekki hægt að réttlæta

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.