Tíminn - 03.06.1983, Side 1
Dagskrá ríkisf jölmiðlanna næstu viku - sjá bls. 13
FJÖUREYITARA
OG BETRA BLAD!
Föstudagur 3. júní 1983
126. tölublað 67. árgangur
Síðumúla 15-Pósthólf 370 Reykjavík-Ritstjórn86300-Auglýsingar 18300- Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsímar 86387 og 86306
Markús örn
Antonsson:
Kjonnn
forseti
borgar-
stjórnar
■ Markús Örn Antonsson var
kjörinn forscti borgarstjórnar
Rcykjavíkur á borgarstjórnar-
funili í gær. Markús Örn hlaut I2
atkvæöi cn Ingibjörg Rafnarscm
gegnt hcfur starfi yaraforscta
undanfariö ár. Iilaut; 4 atkvæði
cn 5 seölar voru auöir.
Albert Guðmundsson haföi
(iskað þess aö honum yröi vettt
leyft frá störfum borgarfulltrúa
og borgarráösmanns svo og
öðrum störfum scm liann hafði
verið kjörinn til á vcguni borgar-
innar mcöan hann gcgnir starfi
fjármálaráöhcrra. Fyrsti vara-
fulltrúi á lista Sjálfstæöisflokks-
ins, Jóna Gróa Siguröardóttir.
tekur stcti hans á rncöan.
Albert þakkaöi borgarfulltrú-
um fyrir ánægjulegt samstarf og
árnaöi þeint heilla. Hann sagöist
vonast cftir aö fjarvera sin frá
borgarstjórn yröi tímabundin
þótt hann vtcri ekki þar mcð aö
oska hinni nýju ríkisstjórn. scm
hann hefði tekiö sæti í. skamnt-
lífis. .
Borgarstjórinn. Davíð
Oddson. ávarpaöi Alhert og
þakkaöi honum santstarfið og
árnaöi honum velgengni i hinu
nýjtt slarli. Siinta geröu talsmcnn
iiiinhihlutaflokkiinna. Adda
Bára Sigfúsdótlir. Kristján
Bencdiktsson. Siguröur E.
Guörhundsson og Magdalena
Sehrant. I’au luku lofsorði á störf
Alberts bteði sem forsctaborgar-
stjórnar og scm borgarfulitrúa,
og árnuöu honum hcilla t nýju
starfi.
Ingibjörg Rafnar lekur viö
sæti Alberts í borgarráði.
- JGK
Fimm ára
stúlka:
Lítid
slösud
eftir 25
metra fall
■ Fimm ára gömul stúlka
hrapaði í gær fram af 25 metra
háum hömrum niður í stórgrýt-
isurö á Hellnuin á Snæfclls-
nesi. Stúlkan scm hcitir Guð-
rún Birna Hauksdóttir, slapp
ótrúlega ve.l frá fallinu.
Þegar faðir hennar kom tii
hennar eftir slysið sagðist hún
aðeins flnnu til i fætinum og
við fyrstu læknisskoöun kom í
Ijós að hún hafði lærbrotiiað
en sloppið unnars að mestu
leyti. Stúlkan var flutt með
flugvél ásjúkrahús í Reykjavík
í gær.
Landsvirkjun fær 19% hækkun:
SJÚNARMH) STJÓRNAR
FYRIRTÆKISINS VHtT’
segir Halldór Jónatansson, forstjóri Landsvirkjunar
■ Iðnaðarráðherra, Sverrir
Hermannsson, hefur ákveðið að
hcimila Landsvirkjun 19%
hækkun á heildsölugjaldskrá
fyrirtækisins frá og með deginum
í dag. Kemur þessi hækkun í
viðbót við 10% hækkun 1. maí
síðastliðinn, en þá fór stjórn
Landsvirkjunar fram á 31%
hækkun.
„Með þessu móti virðir ráö-
herrann sjónarmið stjórnar
Landsvirkjunar því nú hefur í
raun fengist sú hækkun sem
beðið var uni 1. maí,“ sagöi
Halldór Jónatansson, forstjóri
Landsvirkjunar, í samtali við
Tímann í gær.
Halldór sagöi að hækkunin
gerði það að verkum aö væntan-
lega þyrfti ekki að koma til
samdráttar í þeim framkvæmd-
um sem fyrirhugaðar voru í
sumar miðaö viö lögfesta láns>
fjáráætlun. Hann sagði ennfrcm-
ur að þrátt fyrir hækkunina væri
ckki enn séð fyrir endann á
fjárhagsvanda Landsvirkjunar á
þessu ári. Til þess aö endar næðu
saman þyrfti aö koma til frckari
hækkana og þaö mál þyrfti nú aö
skoða meö Jiliðsjón af efnahags-
ráðstöfunum nýrrar ríkisstjórn-
ar.
Halldór sagöi að cftir hækkun-
ina 1. maí hcföi verið fyrirsjáan-
legur halli á rekstri fyrirtækisins
upp á 360 milljónir. En aö teknu
tillití tii hækkunarinnar sem nú
kemur til framkvæmda mætti
reikna meö 250 milljóna halla
miöað við óbrcytta gjaldskrá út
áriö.
„í stefnuyfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar scgir að jöfnun
húshitunarkostnaðár veröi aukin
verulega og var ákvcðið aö verja
Kajakródrar
í Laugardalslaug
sjá baksíðu
Tímamynd: Árni Sæberg
150 milljónum króna til jöfn-
unarinnar. Veröur á næstunni
lcitað að lciöum til aö ná þessu
markmiði," segir í frétt frá iðn-
aðarráðherra um hækkunina.
Þá segir í fréttinni aö jafnframt
hækkuninni til Landsvirkjunar
hafi vcrið hcimiluö 9,5% hækk-
un á gjaldskrám rafveitna og
þcirra hitavcitna sem nota raf-
orku sem aflgjafa.
- Sjó.
Skátarnir við
Grímsvötn:
Heyra
greinilegar
drunur frá
gosinu
■ „Þau eru uppi viöGrímsvötn
núna. Þar er rcyndar snjókoma
og þoka og nánast ekkcrt skyggni
svo þau hafa ekkert séð til
gossins, sem er i fjögurra kíló-
mctra fjarlægð frá dvalarstað
þeirra. En drunur frá því heyra
þau greinilcga," sagöi Eiríkur
Karlsson, meðlimur í Hjálpar-
sveit skáta í Rcykjjvík, þegar
hann var inntur Irétta af hjálpar-
svcitarfólkinu scm Tíminn sagði
frá í gær, aö lagt hefði á snjóbíl
upp aö Grímsvötnum.
Aö sögn Eiríks eru þau níu,
átta strákar og ein stúlka, en
ekki fjögur eins og sagt var í
Tímanum í gær. Eiríkur sagði að
þau hefðu ekki séð ösku frá
gosinu því snjór heföi lagst yfir
hana og cinu mcrkin um eldgos
væru drunur sem heyrðust endr:
um og cins.
Þcgar veöurskilyröi batna ætla
skátarnir að fara nær gosstöðv-
unum. • - Sjó.
Ósk forsætisráðherra á ríkisstjórnarfundi:
rAðherrar lAti af launudum störfum
til að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra
■ „Á fyrsta reglulegutn fundi
ríkisstjórnarinnar, þá lýsti ég
þeirri ósk minni að ráöherrar
létu af öllum launuöum
störfum," sagði Steingrímur
Hermannsson, forsætisráöherra
er Tíminn spuröi hann hvorl
hann hefði óskað sérstaklega
eftir því við ráðherra að þeir létu
af launuðum störfum.
„Það er mín skoðun að ráð-
herra eigi ekki að vera í neinum
þeim störfum sem gætu leitt til
hagsmunaárekstra, og það er
ástæöa þess að ég óskaði eftir
þessu," sagði forsætisráðherra
og sagðist fastlega búast við því
að ráðherrarnir yrðu við þessari
ósk hans.
Það verða því talsverðar
breytingar í bankaráðum á næst-
unni, þar sem fjórir ráðherr-
anna sitja í bankaráðum, og ef
þeir fara að óskum forsætisráð-
herra, sem er mjög líklegt, þá
taka varamenn þeirra sæti þar.
Albert Guðmundsson og Alex-
ander Stefánsson 'sitja í banka-
ráði Útvegsbankans, Albert er
formaður. Þeir greindu frá því á
bankaráðsfundi í gær, að þeir
myndu hætta í bankaráðinu og
varamenn þeirra taka þeirra
sæti. Það sama munu þeir Hall-
dór Ásgrímsson, formaður
bankaráðs Seðlabankans og
Matthías Á. Mathiesen banka-
ráðsfnaður Landsbankans gera
innan tíðar, eftir því sem Tíminn
kcmst næst. Þá má nefna starf
Sverris Hermannssonar í Fram-'
kvæmdastofnuninni, sem hann
mun nú láta af og aðrir ráðherrar
sem setið hafa í launuðum nefnd-
um munu kalla á varamenn sína
til að taka við þeim störfum.
Alexander Stefánsson, félags-
málaráðherra, sagði í samtali við
Tíniann í gær, að allir ráðherr-
arnir hefðu tekið vel í þessa ósk
forsætisráðherra, og raunar talið
sjálfsagt að verða við henni,
enda væri það mjög góð regla að
þiggja ekki laun.annars staðar
frá, þegar setið væri í ráðherra-
stól.
- AB