Tíminn - 03.06.1983, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 3. JÚNÍ1983
fréttir
Hafnarfjörður
75 ára:
Sýningar
í tilefni
afmælis-
ins
■ í tilefni af 75 ára kaupstaðarafmæli
Hafnarfjarðar, hcfur verið opnuð
sögu- og sjónminjasýning í Brydc-
pakkhúsinu við Vesturgötuna í Hafn-
arfirði. Sýningin verðuropin alla daga
til 19. júní, scm lier segir: I. júnf - 5.
júní frá kl. 14:00-22:00, og 6. júnf -
19. júní frá kl. 14:00-18:00.
I’á var hinn I. júní s.l. opnuð
samsýning 18 hafnfirskra listamanna í
Háholti, Dalshrauni 9b. Vcrður þar
sýnd myndlist, lcirlist og gullsmíði.
Þcssir listamcnn munu sýna: Eiríkur
Smith, Gestur Þorgrímsson, Guð-
mundur Karl Ásbergsson, Gunnar
Hjaltason, Gunnar Sigurjónsson,
Gunnlaugur Gíslason, Haraldur Sigur-
jónsson, Haukur Sigtryggsson, Jón
Gunnarsson, Jóna Guðvarðardóttir,
Jónas Guðvarðarson,.Jónína Guðna-
dóttir, Lára Magnúsdóttir, NíclsÁrna-
son, Sigrún Guöjónsdóttir, Sigurbjörn
Kristinsson, Sólcy Eiríksdóttir og
Svcinn Björnsson. Sýningin vcrður
opin scm hcr segir: I. júní-3. júní kl.
14:00—23:00 og 4. júnt - 12. júnt kl.
17:00-22:00.
Margt annað er til skcmmtunar
þcssa hátíðarviku, s.s. varöcldur á
Hamrinum, Sýning hafnfitskra kvik-
mynda, sýning ungra myndlistar-
inanna, djósmyndara í grunnskóla í
Flcnsborg, íþróttakappleikir, siglinga-
mót, diskótck o.fl. Þá niunu skátar
koma fyrir leiktækjum í miðbæ fyrir
yngstu kynslóðina á laugardag. Þá er
starfrækt útvarp Hafnarfjörður alla
vikuna og cr útvarpað á 94,3 MHz kl.
15:(K>—19:00.
MISSTi
FÓHNN
í VINNU-
SLYSI
■ Ungur maður rnissti fót í vinnuslysi
viö Rckagranda um fimmlcitið í gær.
Maðurinn var að vinna á bygginga-
svæði Byggungar við Rekagranda.
Vinnupallurscm maðurinn var á hrap-
aði með ofangreindum afleiðingum.
-GSH
■ Lionel Hampton spilaði eitt af sínum þekktustu lögum og í rokna stuði að ■ Kappinn í trommusólói. Á tímabili hélt hann á 6 kiuðum.
vanda.
■ Nú gaf hann hljómsveitinni lausan tauminn og steppaði sjálfur með.
Stórbrotnir hljómleikar
Lionel Hamptons og félaga
■ „í þrjátíu ár hef ég beðið eftir þessum viðburði og biðin var þess
sannarlega virði,“ varð einum jazzgeggjaranum að orði eftir stórkost-
lega tónleika Lionel Hampton og stórhljómsveitar hans fyrir troðfullu
húsi áheyrenda í Háskólabíói í fyrrakvöld.
Hampton og piltar hans voru hér á vegum Jazzvakningar sem hefur
staðið fyrir hverjum jazzhljómleikunum á fætur öðrum nú síðustu
árin og ber að lofa dugnað þeirra og atorku.
Þess verður örugglega langt að bíða að önnur eins stemmning náist
upp eins og í Háskólabíói í fyrrakvöld. Hinn sjötugi víbrafónsnill-
ingur fór á kostum í hljóðfæraleik jafnt sem sviðsframkomu. Hann
söng, lék á trommur og steppaði fyrir utan að töfra fram hið besta út
úr víbrafóninum sínum.
Áheyrendur hylltu hinn síunga Hampton lengi vel, bæði fyrir og
eftir tónleikana og stóðu upp honum til heiðurs.
Það er erfitt að lýsa með berum orðum þessari eftirminnilegu
stemmningu í Háskólabíói í fyrrakvöld en látum myndirnar tala sínu
mah.
-Jól
■ Hápunktur tónlcikanna. Hampton marseraði með alla hljómsveitina um
Háskólabíú og allir stóðu upp og klöppuðu með. Tímamyndir GE
Þeir óánægdu í þingflokki Sjálfstæðisflokksins:
VIUA AÐ ALÞINGI VERÐI KALLAÐ SAMAN Nlí ÞEGAR
Bjarni Einarsson
kosinn formaður
■ „Við ræddum þessa ósk stjórnar-
andstöðunnar í morgun á ríkisstjórnar-
fundi, og ég hcf lýst minni skoðun, að ég
tel það sé af ýmsum ástæðum hvorki rétt
né nauðsynlegt að kalla saman þingið
nú,“ sagði Steingrímur Hcrmannsson,
forsætisráðherra er Tíminn spurði hann
hver afstaða nkisstjórnarinnar væri til
þeirra óskar stjórnarandstöðunnar að
kalla saman þing nú.
„Þctta mál verður að sjálfsögðu rætt í
þingflokkum Framsóknarflokksins og
Sjálfstæðisflokksins,“ sagði forsætisráð-
hcrra jafnframt, „og ekki endanlega
afgreitt fyrr en málið hefur verið rætt
þar.“
„Mér þykir ólíklegt að orðið verði við
þessum óskum stjórnarandstöðunnar að
kalla þing saman. Ég er því persónulega
andvígur," sagði Albert Guðmundsson
fjármálaráðherra erTíminn spuröi hann
um hans afstöðu til þeirrar óskar stjórn-
arandstöðunnar að þing verði kallað
saman fljótlega.
„Ég held að allir í ríkisstjórninni líti á
þessa kröfu sem áróðursbragð af hálfu
stjórnarandstöðunnar," sagði Albert.
„Ég hafðf áhuga á að þing kæmi saman
fljótlega og stæði stutt; sagði Sverrir
Hcrmannsson, iðnaðarráðherra erTím-
inn spurði hann um afstöðu til þess
hvcnær þing ætti að koma santan. „Ég er
mjög mikill þingræðissinni og hefur því
oft runnið til rifja á undanförnum árum
að mér hefur þótt sem ríkisstjórnir hafi
hunsað og farið á snið við Alþingi. Ég
held að málsástæður okkar séu allar það
góðar, að við þurfum hreint ekki að
óttast þrætuna í Alþingi. Svo væri nú
fróðlegt, í fyrsta skiptið, eftir allar
þessar stjórnarmyndunarviðræður, að
fá að sjá tillögur þessara manna i
efnahagsmálum, t.d. Alþýðubandalags-
ins. Ósköp væri það nú skemmtilegt!"
Samkvæmt heimildum Tímans þá er
ágreiningur talsverður í þingflokki Sjálf-
stæðisflokksins um þetta mál. Eru þeir
þingmenn flokksins sem voru á móti
stjórnarsamstarfi við Framsóknarflokk-
in s.s. Ólafur G. Einarsson og Friðrik
Sóphusson sagðir vera því fylgjandi að
þing konti saman hið fyrsta, en aðrir
munu vilja að þing verði ekki kallað
saman fyrr en 10. október f haust.
Verður eflaust hart deilt um samkomu- '
dag þingsins í Sjálfstæðisflokknum, en í
Framsóknarflokknum er að því talið er
algjör eining um að nú sé ekki tími til
málþófs á þingi heldur verði að fylgja
fyrstu efnahagsráðstöfunum úr hlaði,
með áframhaldandi ráðstöfunum og
fylgifrumvörpum. _ \b
■ Aðalfundur fulltrúaráðs framsókn-
arfélaganna í Reykjavík var haldinn í
gærkvöldi á Hótel Heklu við Rauðarár-
stíg. Þar var m.a. kostinn formaður og
stjórn. auk fulltrúa í miðsstjóm og í
húsbyggingasjóð.
Úrslit í formannskjöri urðu þau, að
Bjarni Einarsson var kosinn formaður
með 78 atkvæðum gegn 42 sem Hrólfur
Halldórsson fékk. Varaformaður var
kosinn Bjarni Guðbjörnsson, en aðrir í
stjórn voru kosnir Halldór Árnason,
Gestur Jónsson og Sigrún Sturludóttir. í
miðstjórn voru kosnir Björn Líndal,
Viggó Jörgenson, Sævar Kristinsson,
Elísabet Hauksdóttir, Kristín Eggerts-
dóttir, Sigrún Sturludóttir, Valdimar
Kr. Jónsson og Árni Benediktsson.
-ÞB