Tíminn - 03.06.1983, Blaðsíða 20
Opiö virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Skemmuveg' 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land alll
Ábyrgö á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
SAMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
abriel
HÖGGDEYFAR
^QJvarahlutrr ST1
rnmmtmm 'iiHiwisiwwf
■ Félagar í Kajakklúbbi Rcykjavíkur hafa yfir að ráða tólf kajökum sem þeir hafa róið í flestum stærstu ám á Suðurlandi.
„VHI RÖUM EIGINLEGA ALLS
STABAR SEM VATN RENNUR
segir Þorsteinn Guðmundsson, formaður Kajakklúbbs Reykjavíkur
■ „Við viljum fyrst ug fremst
efla og auka áhuga á þessari
íþrótt sem hingað til hefur ckki
verið mikið stunduð á íslandi.
Við stofnuðum klúbbinn fyrir
um þremur árum og nú eru
meðlimir hans orðnir um 20 og
það verður að teljast nokkur
gott þar sem við höfum hvorki
auglýst né fengið mikla umjöllun
í fjölmiðlum,“ sagði Þorsteinn
Guðmundsso, formaður Kajak-
klúbbsins, þegar Tímamenn
hittu hann í Laugardalslauginni,
en þar koma klúbbíélagar saman
til æfinga einu sinni í viku.
- Ekki stundið þið róðra í
Laugardalslauginni eingöngu?
„Nei, við erum eiginlega alls
staðar sem vatn rennur og hægt
er að róa á því. Við höfum
talsvert verið í Þjórsá, Ölfusá,
Rangá og fleiri ám á Suðurlandi.
Ogförum líklegaviðar ísumar."
- Erþettaekkistórhættulegur
leikur?
„Langt í frá. Náttúrulega
verða menn að æfa vel og ná
valdi yfir bátunum áður en lagt
er á straumhörðustu árnar. En
menn eru ótrúlega fljótir að fá
tilfinningu fyrir þessu.“
- Hefur einhvern tíina verið
keppt í kajakróðri hérna heima?
„Ekki ennþá. Við höfum ein-
beitt okkur að því að æfa og ná
árangri og það er aldrei að vita
nema að við höldum keppnir
einhverntíma í náinni framtíð -
það er alla vega á stefnu-
skránni.“
- Þarfmikinnogdýranútbún-
að til að stunda þessa íþrótt?
„Það þarf svolítinn útbúnað,
þ.e.a.s kajak, árar og sæmilegan
búning. Hvort útbúnaðurinn er
dýr verður hver og einn að gera
upp við sjálfan sig en ég gæti
trúað að hægt væri að búa sig
sæmilega út fyrir um 10 þúsund
krónur,“ sagði Þorsteinn.
- Sjó
~T'
••• >.- ' '
Búast má við að óþægilegra sé að fara á hvolf í straumhörðu jökulfljóti en í volgu sundlaugarvatninu. En meðlimir klúbbsins eru
hvergi bangnir að leggja á fljótin - telja það reyndar hættulítið ef menn kunna með bátana að fara. (Tímamyndir Árni Sæberg)
Aðalfundur
miðstjórnar Fram-
sóknarflokksins
11. og 12. júní
Framsóknar-
flokkurinn -
- nútíð
og næstu ár
■ Aðalfundur iniðstjórnar
Framsóknarflokksins 1983
vérður haldinn helgina 11. til
12. júní nk. Tíminn snéri sér til
Hauks Ingibergssonar fram-
kvæmdastjóra flokksins og
spurði hann um dagskrá fund-
arins.
„Fundurinn verður haldinn
að Kauðarárstíg 18,“ sagði
Haukur, „og hann byrjar ,ki.
10 á laugardagsmorguninn,
stendur allan laugardaginn og
framan af sunnudeginum, en
við ráðgerum að hægt verði að
Ijúka honum um kl. 16 á
sunnudeginum. Auk venju-
legra aðalfundarstarfa, ss. yfir-
litsræðu formanns, skýrslu
ritara, gjaldkera og formanns
hlaðstjórnar Tímans, og kosn-
inga í trúnaöarstörf verður
fjallað um Framsóknarflokk-
inn - nútíð og næstu ár. Þetta
verður reyndar yfirskrift þessa
aðalfundar. Þessi liöur hefst
eftir hádegi á laugardeginum
og það verða flutt 6 framsögu-
erindi um afmarkaða þætti er
varða flokksstarfið og síðan
verður skipt í umræðu-
hópa,“ - AB
Aðalfundur
Sambandsins:
Haldinn að
Bifröst í
næstu viku
■ Aðalfundur Sambands is-
lenskra samvínnufélaga verður
haldinn að Bifröst í Borgarfirði
dagana 9. og 10. júni, þ.e.a.s.
á fimmtudag og föstudag í
næstu viku. Auk venjulcgra
aðalfundarstarfa verða fjármál
Samvinnuhreyfingarinnar til
umræðu á fundinum.
Rétt til fundarsetu hafa 117
fulltrúar frá kaupfélögunum
auk nokkurra starfsmanna
Sambandsins. Búist er við að
fundarmenn verði um 170.
Fundurinn hefst klukkan
09:00 að morgni fimmtudags-
ins og eru menn hvattir til að
mæta timanlega. Feröir verða
frá Umfcrðarmiðstöðinni í
Reykjavík klukkan 16:00 á
miðvikudag.
Sjó.
dropar
m,„
Slysavarna-
félagið bjargar
sjónvarpsfrétt
■ Fisksali nokkur hafði sam-
band við Slysavarnafélagið um
hálf áttaleytið á þriöjudags-
kvöldið og sagðist hafa hcyrt í
farstöðinni sinni að bátur ætti í
vandræðum úti á Viðeyjar-
sundi. Slysavarnamenn brugðu
hart við og fóru á björgunar-
bátnum Gísla J. Johnsen að
athuga málið.
Þegar þeir nálguðust bátinn
sáu þeir að þar sat Olalur
Sigurðsson fréttamaður Sjón-
varpsins í stafni og var heldur
þungbrýnn. Sjónvarpsmenn
höfðu nefnilcga ætlað að taka
góðar inyndir af Eddunni þeg-
ar hún sigldi inn í Sundahöfn
en báturinn bilaði á miðri leið.
Björgunarmennirnir tóku bát-
inn í tog og drógu liann í land
og þar tók Ólafur sprettinn
uppí Sjónvarp með myndirnar
dýrmætu sem sjónvarpsáhorf-
endur fengu svo að sjá seinna
um kvöldið af Engeyjarvita og
andlitinu á Olafi, en hvergi
sást til fleysins sem öllu máli
þó skipti.
Enginn
ríkisjötubragur
hjá Albert
■ Þeir hafa margir hnýtt í
Albert Guömundsson, og full-
yrt að hann ætti ckkert erindi í
stól fjármálaráðherra - og hafa
þaö jafnt verið samflokksmenn
hans sem aðrir. Dropar hailast
þó að því að það sé fullsncinmt
að afskrifa Albert og dæma
hann duglausan í embættinu.
Ef marka má fyrstu frcgnirnar
sem borist hafa úr fjármála-
ráðuneytinu eftir að Albcrt
tók við, þá verður cnginn ríkis-
jötubragur á rekstri ráðuncyt-
isins undir hans stjórn. Hermir
sagan að Albert, sem mætir
snenuna til vinnu dag hvern,
gangi um salarkynni ráðuneyt-
isins þegar kl. er 9 að morgni
og mcnn eiga að vera mættir til
vinnu. Lítur Albert tóma stóla
hornauga, á þessari yfirreið
sinni, og kallar síðan sökudólg-
ana á sinn fund þcgar þeir
drattast til vinnu og biður þá
um skýringar á dröttólfshætti
sinum. Ef þetta er ekki að taka
hlutina föstum tökum, þá vita
Dropar ekki hvað það er.
Krummi
...frétti að til vandræða hefði
horft í Firðinum í gær vegna
þess að allir trésmiðir bæjarins
lögðu niður vinnu, þegar Ham-
arinn var friðaður...!