Tíminn - 26.06.1983, Blaðsíða 2
•• 2'
SUNNUDAGUR 26. JUNl 1983
■ Hafa Loftleiðir stjórnað verðlagn-
ingu gistirýmis hér á landi? - það cr ein
niðurstaðan sem María kemst að í
ritgcrö sinni.
„Rangt að verðleggja gisti-
rými einungis í dollurum”
RÆTT VIÐ MARÍU RÚRIKSDÓTTUR, VIÐSKIPTAFRÆÐING,
SEM RITAÐI LOKARITGERÐ SÍNA UM VERÐLAGNINGU GISTIRÝMIS
■ „Verölagning á gistirými íslenskra
liolela," er yfirskrift á lokaritgerð eins
viöskiptafneðinemans við II.I. nú í vor,
en þessi nemi, María Kúriksdóttir, frá
ísafirði útskrifast einmitt frá II.í. stðdeg-
is í dag sem viöskiptafræöingur. Mér lék
hugur á að forvitnast órlítið uni efni
ritgcröar Mariu, og þá einkum helstu
niðurstöður, og sló því á þráðinn til
hennar nú í vikunni, þar sem hún er við
slörf á Hótel Rcynihlíö við Mývain, nú
í sumar. María tók málaleitan niinni vcl,
þannig að helstu punktar samtals okkar
fara hér á cftir.
„Rangt að verðleggja
í doIlurum“
- Hvaö finnst þér vera markveröast í
þessari ritgerö þinni, María?
„Þaö er nú fyrst til að ncfna þessa
verölagningu í dollurum. Mér finnst
rangt að vcrðleggja allt í dollurum,
raunar er þaö að mínu mati alveg út í
hött. har með erekkert tillit tekiö til alls
þess fjölda fcröamanna sem kemur liing-
aö til lands frá Evröpu. Vcrðlagningin er
á engan hátt miöuö viö þá, en þeir eru
um 60% allra feröamanna sem koma til
landsins. Þaö er spurning hvort ekki er
htegt aö aöhiga vcrðlagninguna á gisti-
rými hérá landi aö fleiri mörkuöunt. Ég
tel aö þaö sé vel mögulegt, og aö það ætti
að gcfa upp verö í flciri gjaldmiölum en
dolliirum. Dollarinn hækkar um liðlega
100% yfir áriö, miðaö viö þróun pen-
ingamála að undanförnu, franski frank-
inn hækkar miklu minna, cn ég nefni
liann bara sem dæmi um evrópskan
gjaldmiðil. Þá er gistirýmið orðið miklu
dýrara fyrir Frakka og hækkun komin
langt umfram verðbólguhækkunina."
- Veistu ástæöur þess að þessi vcrð-
lagning er cinungis í dollurum?
„Mér hefur skilist að það sé vegna
þess aö svo mikill hluti viöskipta okkar
fer fram í dollurum. Fiskverðiðerákveð-
iö í dollurum o.fl. o.fl.. Auðvitað er
algjörlega vonliiust aö nota íslcnsku krón-
una, því fölk myndi ekki líta við því
veröi sem boðið væri í íslensku krón-
unni. Dollarinn hefur því cinnig veriö
notaður sem viömiöun, til þess aö hafa
einhvern fastan punkt.
Nú. eftir því sem ég kemst næst, þá
telja þeir sem stjórna verðlagningunni
hálfvonlaust aö vera með verðin í
pundum, frönkum og þýskum mörkum
einnig. Þcir vilja liklega halda sig við
dollarann."
- Getur þ;i verið að hér sé um fyrir-
slátt að ræða, hjá þeim sem stjórna
verðlagningunni, þar sem það er örugg-
lega mestur gróði af því að skrá verðin
einungis í dollurum, a.m.k. miðað við
vcrðlagsþróun að undanförnu?
„Ja, það eru náttúrlega stundum góð-
æri, en stundum koma slæm ár. Þegar
staða dollara versnar, þá árar heldur illa.
margir þeirra sem ég leitaði til þegar ég
var að vinna ritgerðina, sögðu að góðu
og slæmu árin jöfnuðu sig upp hvort á
móti öðru, en persónulega tcl ég að hér
sé um alranga afstöðu að ræða. Það sem
við eigum að hugsa um. og stefna að, er
að fá ferðamennina hingað - það er
aukaatriði hvort góð ár jafna sig upp á
móti slæmum á einhverju vissu árabili.
Það er erfitt íyrir okkur að fá ferðamenn
hingað frá Evrópu, cinkum núna þar
sem evrópskir gjaldmiðlar standa illa
gagnvart dollara, og því hafa ferðirnar
fyrir Evrópubúa, og gistingar hér á landi
hækkað alveg gífurlega, þannig að þcir
hafa hætt við að fara hingað í stórum stíl.
Þetta held ég að sé cin mcginorsökin
fyrir því að fjöldi ferðamanna hingaö til
lands eykst ekki, heldur stendur í stað.
Ég veit að á ferðaskrifstofum í Eng-
landi og Vestur-Þýskalandi sem semja
við íslcnsk hótel, til dæmis, eru verðin
gefin upp í pundum eða mörkum, þegar
leitað cr til skrifstofanna sjálfra unt
upplýsingar, en í bæklingum sem gefnir
eru út t.d. af Ferðamálaráði - þar eru öll
verð einungis í dollurum, og það eru nú
einu sinni þeir bæklingar sem dreift er
hvað víðast til íslandskynningar, svo
hinn almenni gestur, sem ætlar sjálfur að
leita sér einhverra upplýsinga, t.d. um
verð á gistirými, hann fær einungis
upplýsingar í dollurum."
„Framan af leiddi
Hótel Loftleiðir
verðlagningu gistirýmis“
- Að hvaða niðurstöðu kemstu helst
um verðlagningu á gistirými íslenskra
hótela?
„Mér virðist sem Hótel Loftleiðir hafi
leitt verðlagninguna framan af. Það
hefur að því er ég tel, breyst síðastliðin
þrjú ár, eða svo, en fram til 1980
stjórnaði Hótel Loftleiðir verðlagning-
unni.
Það er auðvitað mikið mikið dýrara
gistirými í Reykjavík, en úti á landi. Að
vísu er erfitt að miða við þá tíma sem
eru í dag, því hótelin í Reykjavík bjóða
íslendingum gistirýmið á allt að helmingi
lægra verði en útlendingum. Það er
staðreynd að íslendingar sem gista t.d. á
Loftleiðum, þeir borga ekki nema ca.
helming af verði því sem útlendingar
verða að greiða fyrir samskonar gistingu.
Mér finnst það alveg út í hött að hafa
tvenns konar verð á gistirými - annað
fyrir útlendinga og hitt fyrir íslendinga,
en það er náttúrlega tilkomið vegna
þessarar verðlagningar í dollurum - það
myndi enginn íslendingur greiða um-
reiknað dollaraverðið í íslenskum
krónum."
- Sýnist þér að nýting á gistirými sé
ráðandi þáttur þegar gistirýmið er
verðlagt?
„Ekki held ég að það sé mikil fylgni
þar á milli. Mér sýndist, þegar ég leit á
þennan þátt, sem ég kannaði að vísu
ekki mjög náið, að nýtingin yfir sumar-
mánuðina væri svo há á flestum stöðum,
að ekki væri um slíkt að ræða. Nýtingin
er yfir 80% á velflestum stöðum, flest
árin, þessa þrjá sumarmánuði."
María sagði mér að hún hefði gert alls
konar vísitölur og samanburð á launum,
verðbólgu o.fl. í öðrum löndum. Mark-
verðast í þeim útreikningum sagði hún
vera að það hefði komið í Ijós að
greinileg fylgni væri á milli vísitölu
ferðamannafjöldans og vísitölu kaup-
máttar. Sem dæmi nefndi hún að 1972 í
Englandi hefði vísitala ferðamannafjöld-
ans verið liðlega 160 og vísitala kaup-
máttar svipuð. 1974 hins vegar þá væri
vísitala ferðamannafjöldans í kringum
70 og kaupmáttar í kringum 80. Báðar
vísitölurnar hefðu síðan farið upp í 100
árið 1975.
■ Hótel Reynihlíö, við Mývatn, þar starfar María í sumar.
■ Hótel ísafjöröur, - María segir gistirými úti á landi vera miklu ódýrara en í
Keykjavík. ^
■ Maria segir hótelin í Reykjavík undirbjóöa verð á gistirými þegar íslendingar eru
annars vegar, og segir hún ástæðuna vera þá að gistirýmið er verölagt í dollurum.
t
i
i
....... ■—* “ "