Tíminn - 26.06.1983, Qupperneq 16

Tíminn - 26.06.1983, Qupperneq 16
VHtMMMFam F= ARMÚLA11 SlMI 81500 SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ1983 ///MtFoaa ist að Canaris hafi verið eitursnjall njósnaforingi, en það er nú satt að segja rangt. Abwehr var samansett af alls konar fólki, amatörum fyrst og fremst, og niósnarar leyniþjónustunnar í öörum löndum höfðu meiri áhuga á að lifa hátt og svíkja fé út úr gjaldkerum Canaris en afla upplysinga. Þetta er að vísu ekki Canaris einum aö kcnna. Honum hafði á ýmsan hátt vcrið gert erfitt fyrir áður en styrjöldin hólst, og svo kom í Ijós að hann var hreinlega ekki t'ier um að skipuleggja raunverulega njósnastarf- semi í öðrum löndum. I lann var í essinu sínu þegar hann fékk að undirbúa cin- stakar aðgerðir nákvaimlega og út í tesar, framkvæma þær síðan snögglega og með bravúr, en þolinmæöisverk eins og uppbygging njósnahringja var honum ekki mjög að skapi. Hann reyndi hins vegar sitt besta og var sífcllt á faraldsfæti milli Abweh-stöðva til að aögæta hvaö þær hefðu lyrir stafni, en yfirmönnum þar lærðist fljótt hvernig átti að sannfæra hann um að allt væri í allra besta lagi. Auöveld leið var til dæmis að þykjast hafa gaman af hundum og stilla þeim upp hvar sem Canaris átti leiö um, en Canaris elskaði hunda og æ meira cftir því sem á ævina leið og hann sannfæröist um vonsku mannanna. I lann hafði gift sig skömmu eftir lyrri heimsstyrjöldina en hjónabandið var honum engin full- næging og í seinna stríöi var Itann lítið heima viö. Þau hjón áttu tvær dætur: önnur var vangefin en hin músíkölsk og Canaris náði sambandi viö hvoruga. I lonum leiö sjaldan vel á stríðsárunum síðari. Svik undirmanns Meöan Canaris átti í harðri baráttu við sjálfan sig fyrri liluta stríðsins haföi einn undirmanna hans tekið af skarið. Hans Oster. majór og síöar hershöfðingi í Abwehr, var, eins og Canaris, viss um að Þýskaland gæti aldrei unnið stríðið og því setti liann sér það takmark að gera það eins stutt og mögulegt væri. Oster vílaöi til að mynda ekki fyrir sér að láta leyniþjónustur annarra landa vita af innrásaráætlunum þýska hersins, en því miður trúöi honum enginn. Hann skýröi bæði frá yfirvofandi innrásum í Dan- mörku og Noreg og síðar Holland, Belgíu og Frakkland. en var svo seint á ferð og svo háttsettur að uppljóstranir hans voru alltaf taldar tilraunir til að vekja svo harkaleg viðbrögö að Þjóð- verjar lengju átyllu til innrásar. Oster gafst þó ekki upp: liann var óþreytandi í samsærum sínum og skipulagði ótal moröilræði við Hitler en framvæmdi ekkcrt. Ekki löngu eftir innrásina í vesturátt komust SS og Gestapo að því að einhver hefði leikið tveimur skjöldum og brátt bárust böndin að Oster og klíku Irans. Er Canaris frétli um svik undirmanns , síns varð hann afar hneykslaður, vegna þess að Oster hafði vitanlega stefnt lífi Hundar voru flotaforingjanum undir lokin hugleiknari en menn. tugþúsunda þýskra hermanna í hættu, en hann hélt samt sem áður hlífiskildi yfir honum - vissi senr var að Oster hafði, þegar allt kom til alls, ekkert gert nema rétt. og aö tugþúsundum mætti fórna til aö. vernda milljónir. Staða Canaris sjálfs fór nrjög versnandi eftir því sem á stríðið leið. SS og Gestapo þrengdu að honum. Abwehr hafði gert sig seka um svo mörg mistök að trúnað- artraust Hitlers v;ir brostið og margir í innsta hring Foringjans töldu víst að Canaris ynni nú markvisst gegn nasist- um. Það var næstum rétt. en markvissar voru tilraunir Canaris þó varla. Hann setti sig þó í samband við ýmsa aðila á vesturlöndum. í von um að semja mætti um sérfrið ef Hitler yrði komið frá völdum ogsumarið 1943 átti hann aldeil- is einstæöan fund með tveimur fulltrúum frá Bretlandi og Bandaríkjunum: Stew- art Menzies. ýfirmanni bresku leyniþjón- ustunnar, og William Donovon. yfir- manni einnar leyniþjónustu Bandaríkj- anna. Þessi fundur fór fram á Spáni og var auövitaö injög leynijcgur en á honum reyndu þremenningarnir að finna lciðir til aö binda endi á stríöið hið bráðasta. Gallinn var bara sá að Church- ill og Roosewelt höfðu ákveðið að sætta sig ekki viö neitt minna en skilyröislausa uppgjöf Þjóöverja og til að fá hana var alveg augljóst að berjast þyrfti til þraut- ar. Menzies og Donvan fengu skömm í hattinn þegar heiin kom fyrir þennan ■ Orðinn gamall fyrir aldur fram. Canaris áríð 1944 er hann átti minna en eitt ár ólifað. fund; Canaris reyndi að halda honum leyndum, en tími hans var að renna út. Ymislegt var komiö á daginn um aðild, cða jafnvel frumkvæði, Canaris að sam- særisáætlunum gegn Hitler, en lcngi vcl var hann verndaður af harla ólíklegum manni: Hcinrich Himmler, yfirmanni SS. Himmler var aö vísu fífl, en þó ekki svo mikið fífl að hann sæi ekki þegar hér var komið að Þýskaland hafði tapað stríðinu. Hann vonaðisttil að geta samið sérfrið við handamenn vestan megin, eða þá komist aðeinhverslagssamkomu- lagi um að hann tæki völdin í landinu eftir stríð (!), og hann vildi ekki stofna orstír sínum sem friðflytjanda í hættu með því að snúast gegn Canaris, sem hafði svipuð markmið en töluvert óeigin- gjarnari þó. En þegar kom fram á árið 1944 gat jafnvel Himmler ckki bjargað Canaris. SS og Gestapo höfðu þá þjarm- að svo að Abwehr að leyniþjónustan var nærri óstarfhæf og andspyrna Canaris gegn Hitler og nasistastjórninni var aug- Ijós. í fcbrúar var hann handtekinn og hafður í haldi nokkrar vikur en síðan látinn laus og settur í pappírsvinnu í Berlín. Það__yar svoTilfæðið við Hitler í júlí sem reiö honurn að fullu. Endalok Wilhelm Canaris Canaris átti engan þátt í tilræðinu, sem stjórnað var af Stauffenberg ofursta. Canaris hafði hins vegar vitað að eitt- hvað var í undirbúningi og mcðan enn var talið að Hitler hefði látist settu tilræðismenn sig í samband við hann og báðu um liðsinni. Canaris, bölsýnn að venju, þóttist allsendis viss um að allt myndi misheppnast og hann var ekki seinn á sér að senda Hitler skeyti þar scm hann óskaði til hamingju með björgun hans. Þetta vonaði Canaris að myndi redda hanseigin skinni.cn svo fór þó ekki. Hitler, brjálaður úr reiði, skipaði Himmlcraðuprætaalla andstæð- inga sína og nafn Canaris var ekki lengi að koma upp. Schellenberg, yfirmaður SD, fór sjálfur að handtaka Canaris og kveðst hafa gefiö honum tækifæri til að flýja en Canaris hafnaði því. Nú tóku viö langar og strangar yfirheyrslur sem stóðu i marga mánuöi. Canaris varði sig af mikilli fimi, lýsti sig saklausan af ölluni ákærum en líkurnar gcgn honum voru of miklar. Aðfaranótt 9. apríl 1945, aðeins fáeinum vikum áður en stríðinu í Evrópu lauk, var Wilhelm Canaris tekinn af lífi í Flossenburg fangelsinu, ásamt Hans Oster og nokkrum fleiri. Síðustu skila- boð hans til samfanga voru á þessa leið: „Tími minn útrunninn. Varekki svikari. Gerði skyldu mína sem Þjóðverji. Ef þú lifir berðu konu minni kveðju." Síðan var hann hengdur, var lengi að deyja og lík hans brcnnt. Þá var dáinn - ekki njósnameistari Hitlers, heldur liðsfor- ingi í flota keisarans, því slíkur maður var Canaris umfram allt. -ij tók sarnan. FORD 2910, 44 hö ...............verö frá kr. 293.820 FORD 3910, 50 hö ...............verö frá kr. 307.480 FORD 4110, 57 hö ...............verö frá kr. 409.200 FORD 4110-4WD, 64 hö......verö frá kr. 511.350 FORD 4610-4WD, 64 hö......verð frá kr. 529.010 FORD 5610, 76 hö ...............verö frá kr. 502.240 (verð miðað við gengi 10. 6 1983) FORD traktorar til afgreiðslu strax - Hagstætt verð og góðir greiðsluskilmálar. Vönduð vinargjöf Allt til reiðbúnaðar Söðlasmíðaverkstæði Þorvaldar og Jóhanns Einholti 2 - sími 24180 Útboð íþróttamannvirki á Hellu Undirritaður óskar hér með eftir tilboðum í uppsteypu á sundlaugar- kerfi og leiðslugöngum, samtals u.þ.b. 1200 rúmm. Útboðsgögn verða tilbúin til afhendingar þriðjudaginn 28. júní gegn 3000,- kr. skilatryggingu. Gögn fást afhent á skrifstofu Rangárvallahrepps, Hellu og í Verkfræðistofunni Hnit hf. Síðumúla 31, Rvik. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Rangárvallahrepps föstudaginn 8. júlí n.k, kl. 14.00 Sveitarstjóri Rangárvallahrepps Jón Þorgilsson

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.